Morgunblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 1
40 SlÐUR
232. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Olíuhreinsunar-
stöð í Danmörku
alelda — 8 slasast
Kaupmannahöfn. 11. okt.
Frá fróttaritara Mbl. Erik Larsen.
FYRSTA alvarlcga slvsiO í olíu-
hreinsunarstöð sem hefur orðið í
Belgíustjóm
segir af sér
BrUssel. 11. okt. Reuter. AP.
STJÓRN Bclníu sagði af sér í dag
vegna mikils ágreinings innan
stjórnarflokkanna um skiptingu
landsins í héruð eftir tungumálum.
Leo Tindemans forsætisráðherra
gekk á fund Baldvins Belgíukon-
unns í dafí «k féllst konungur á
iausnarbeiðnina. en fól Tindemans
að gegna áfram störfum forsætis-
ráðherra til bráðabirgða.
Tindemans baðst lausnar fyrir
stjórn síiia fyrr í sumar, en konung-
ur neitaði þá að taka lausnarbeiðn-
ina til greina og sat stjórnin þá
áfram. Nú er hins vegar yfirvofandi
stjórnarkreppa í Belgíu og ekki
óhugsandi að brátt verði boðað þar
til nýrra þingkosninga.
Tindemans ákvað að segja af sér
þegar honum þótti sýnt að ekki
myndi takast að jafna þann ágrein-
ing sem er innan og milli flokka um
þau áform hans að skipta landinu í
þrjú héruð, þ.e. flæmskumælandi
hérað í norðurhluta landsins,
frönskumælandi hluta í Vallóníu og
Brússel, þar sem bæði tungumálin
væru viðurkennd.
Danmiirku varð í dag. Átta
manns hrenndust. þar af fjórir
mjög illa og eru jafnvel í
lífsha'ttu, Þeir voru fluttir með
þyrlum á sjúkrahús í Kaup-
mannahöfn. þar sem reynt er að
gera að brunasárum þeirra sem
eru 3. stigs sár.
Slysið varð í Stigsnæs-olíu-
hreinsunarstöðinni í vesturhluta
Sjálands skammt frá bænum
Selskör. Eigandi stöðvarinnar er
olíufyrirtækið Gulf. Talsmaður
þess sagði, að sprenging hefði
orðið í ofni þar sem olían er hituð.
Virðist ljóst að um ofhitun hafi
verið að ræða.
Við sprenginguna kom upp
geysilegur eldur sem breiddist út
með ægilegum hraða og var
hitinn svo ofboðslegur að reyk-
kafarar áttu í erfiðleikum með að
komast inn á svæðið. Ekki er enn
ljóst hvort 'hinir slösuðu muni
lifa af.
Kallað var til lið frá ýmsum
nærliggjandi bæjum og eftir
tveggja klukkustunda baráttu
hafði slökkviliðsmönnum tekizt
að hefta útbreiðslu eldsins og
náðu síðan að slökkva hann.
Olíuhreinsunarstöðin í Stigsnæs
er meðal þeirra stærstu í Norð-
ur-Evrópu. Ekki er ljóst hversu
mikið eignatjón hefur orðið en
það mun skipta tugum eða
hundruðum milljóna.
Ritskoðun í íran
harölega mótmælt
Teheran. 11. október. Reuter. AP.
STARFSMENN tveggja stærstu
blaðanna í íran hafa lagt niður
vinnu til að mótmæla því að stjórn
landsins hefur ákveðið að ritskoða
blöð landsins og sent hermenn á
ritstjórnarskrifstofur þeirra til að
anna.st ritskoðunina. Nokkur átök
urðu í Teheran í dag vegna
þessarar ákvörðunar stjórnarinnar
og tókust á mótmælendur úr röðum
stúdenta og öryggissveitir stjórnar-
innar. Óstaðfestar fregnir hcrma
að þrír hafi látizt í átökunum.
Blaðamenn og annað starfsfólk
blaðanna Ettelaat og Kayhan
tilkynntu í dag að vinna yrði ekki
hafin að nýju fyrr en ritskoðuninni
yrði aflétt. Um er að ræða 4000
starfsmenn. Blaðamennirnir krefj-
ast þess að ritskoðun verði þegar
hætt og að stjórn hersins hætti með
öllu að skipta sér af útgáfu blaðanna.
Einnig er krafizt fulls vinnufrelsis
fyrir blaðamenn og ljósmyndara og
að greint verði ýtarlega frá ritskoð-
unaráformunum í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi.
„Verðum að verja Island af
öllum mætti komi til stríðs”
— segir Isaac Kidd flotaforingi
Briissel. 11. októher. AP.
„ÞAÐ er alger nauðsyn að
hafa aðstöðu á íslandi og
spænsku Azor-eyjunum komi
til átaka á N-Atlantshafi,“
segir Isaac C. Kidd jr. flotafor-
ingi. sem um þcssar mundir
lætur af störfum sem æðsti
yfirmaður Atlantshafsflota
NATO. í grein er hann ritar í
tímaritið „NATO review". Seg-
ir Kidd að handalagið verði
„að vera við því búið að verja
þessar eyjar“ strax og til
einhverra átaka komi og af
öllum mætti. áður en Sovét-
menn geti gert þær „óvirkar
eða náð þeim undir sig.“
I greininni segir flotaforing-
inn að Atlantshafsbandalagið,
einkanlega Evrópulöndin í
bandalaginu, verði að gera nýtt
átak til að tryggja að koma
megi birgðum og búnaði til
Vestur-Evrópu frá Norður-Am-
eríku, ef til ófriðar skyldi koma.
Kidd segir ennfremur að þörf
sé fleiri nýtízkulegra skipa og
flotaflugvéla til að vernda
skipaleiðir á Atlantshafinu í
ófriði.
Flotaforinginn, sem gegnt
hefur yfirmannsstarfinu í
Brússel í þrjú ár, segir einnig í
greininni að þreyting þurfi að
verða á þeirri stefnu Evrópu-
þjóðanna í NATO að heimila
aðeins afnot af kaupskipum
sínum til vopnaflutninga eftir
að stríð skellur á en ekki á
meðan að stríðinu dragi. Nú sé
aðeins hægt aö nota bandaríska
kaupskipaflotann til slíkra
flutnínga. Varar flotaforinginn
við auknum styrk sovézka
flotans, er kunni að reyna að
berjast við flota NATO um
yfirráðin yfir siglingaleiðum á
Átlantshafi.
FRÁ ELDSVOÐANUM Á SJÁLANDI í G/ER — Rcykur stígur upp frá olíuhreinsunarstöðinni í Selskör.
en íremst má sjá slökkvibíl. sem eldtungur læstu sig í og gjöreyðilögðu. Tveir slökkviliðsmcnn. sem í
hílnum voru skaðbrenndust. (Símamynd Nordfoto).
Palme býður minnihluta-
Smith sagði að Carter og
embættismenn hans hefðu reynt
að láta líta svo út sem
Rhódesíustjórn væri andvíg
sameiginlegum fundi allra aðila
Rhódesíudeilunnar, þar á meðal
skæruliðaforingjanna, en það
væri alrangt. Stjórn sín væri
fylgjandi slíkri ráðstefnu væri
hún nægilega vel undirbúin.
Smith og sr. Sithole verða í
Bandaríkjunum í nokkra daga
enn og fara á næstunni frá
Washington til vesturstrandar
landsins.
stjórn Ullstens stuðning
Stokkhólmi. 11. okt. Frá frétta-
ritara Mbl. Önnu Bjarnadóttur.
OLAF PALME leiðtogi sænskra
jafnaðarmanna sagði í dag að
flokkur hans væri tilbúinn til að
veita minnihlutastjórn Þjóðar-
flokks Ola Ullstens stuðning.
þar eð ekki væri grundvöllur
fyrir myndun minnihlutastjórn-
ar jafnaðarmanna. Thorbjörn
Fálldin leiðtogi Miðflokksins og
fráfarandi forsætisráðherra
sagði í dag að flokkur hans
myndi ekki standa í vegi íyrir
myndun samsteypustjórnar
Þjóðarflokksins og Ilægri
flokksins. Þessar yfirlýsingar
virðast hafa opnað nýja mögu-
leika í stjórnarmyndunarviðræð-
unum.
Þjóðarflokkurinn gæti nú valið
aö mynda samsteypustjórn með
Hægri flokknum, sem nyti stuðn-
ings Miðflokksins eða minni-
hlutastjórn með fulltingi
jafnaðarmanna, fái flokkurinn
stjórnarmyndunarumboð.
Henry Allard þingforseti mun
væntanlega tilnefna nýjan for-
sætisráðherra á morgun, fimmtu-
dag, og gæti atkvæðagreiðsla um
traust þingsins farið fram daginn
eftir.
Afstaða Banda-
ríkjanna óbreytt
— gagnvart Rhódesíu segir Ian Smith
Washington, 11. okt. AP.
Reuter.
IAN Smith forsætisráðherra
Rhódesíu sagði í dag í banda-
ríska blaðamannaklúbbnum í
Washington að sér hefði
mistekist að vinna Bandaríkja-
stjórn til íylgis við bráða-
hirgðasamkomulag það sem
hann og þrír blökkumannaleið-
togar hafa samið um. Smith
sagði að hann og samstarfsmað-
ur hans. blökkumannaleiðtog-
inn sr. Sithole, heíðu í viðræð-
um við þingmenn og ýmsa aðra
áhrifamenn orðið varir við
skilning á málstað þeirra og
jaínvel stuðning. en á hinn
bóginn hefði þeim ekki tekizt
að fá embættismenn stjórnar
Carters til að breyta um við-
horf.