Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978 Gils Guðmunds- son forseti Sameinaðs þings Sjálfstæðismenn fá fyrsta vara- forseta S.þ. og þingdeilda Gils Guðmundsson (Ab) var kjörinn forseti Sameinaðs Alþingis í gær, Bragi Sigurjónsson (A) forseti efri deildar og Ingvar Gíslason (F) forseti neðri deildar. Sameinað þing Gils Guðmundsson (Ab), hlaut 51 atkvæði við kjör forseta Sam- einaðs Alþingis í gær, Vilmundur Gylfason 1, en auðir seðlar vóru 4. Fyrsti varaforseti var kjörinn Halldór E., Sighvatur og Lúðvík formenn þingflokka • Ilalldór E. Sigurðnson 1. þm. Vesturlands, hefur verið kjörinn formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Með- stjórnendur í þingflokki fram- sóknarmanna eru: Ingvar Gíslason, 1. þm. Norðurlands eystra, og Jón Helgason, 6. þm. Suðurlands. • Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestfjarða, hefur verið kjörinn formaður þingflokks Alþýðuflokksins. Karl Steinar Guðnason, 5. þm. Reyknesinga, varaformaður, og Jóhanna Sigurðardóttir, 12. þm. Reyk- víkinga, ritari. • Lúðvík Jósepsson, 1. þm. Austurlands, hefur verið kjör- inn formaður þingflokks Al- þýðubandalagsins, en hann er jafnframt formaður Alþýðu- bandalagsins. Kjartan Olafs- son, 3. þm. Vestfjarða, er varaformaður þingflokksins. Friðjón Þórðarson (S) með 54 atkvæðum, Lúðvík Jósepsson fékk 1 atkvæði, Karl Steinar Guðnason 1. Annar varaforseti S.Þ. var kjörinn Karl Steinar Guðnason (A) með 48 atkv., Svava Jakobs- dóttir fékk 1 atkv., Ólafur Ragnar Grímsson 1 en 6 seðlar vóru auðir. Skrifarar S.þ. vóru kjörnir: Friðrik Sóphússon (S) og Páll Pétursson (F). Neðri deild Ingvar Gíslason (F) var kjörinn forseti neðri deildar Alþingis með 36 atkv. en 3 seðlar vóru auðir. Fyrri varaforseti var kjörinn Sverrir Hermannsson (S) með 36 atkv. en 3 seðlar vóru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Eðvarð Sigurðsson (Ab) með 35 atkvæð- um; fjórir seðlar vóru auðir. Skrifarar deildarinnar vóru kjörnir Jósep Þorgeirsson (S) og Arni Gunnarsson (A). Efri deild Bragi Sigurjónsson (A) var kjörinn forseti efri deildar Alþing- is með 17 atkvæðum en auðir seðlar vóru 2. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) var kjörinn fyrri varaforseti deildarinnar með 17 atkv. en 2 seðlar vóru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Jón Helga- son (F) með 18 atkv. en 1 seðill var auður. Skrifarar deildarinnar vóru kjörnir Guðmundur Karlsson (S) og Helgi F. Seljan (Ab). Fundur verður í Sameinuðu þingi í dag og þá væntanlega kjörnar nefndir S.þ. Ágúst Ilalldór Varamenn á þingi TVEIR varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gæri 1) Ágúst Einarsson í veikindaforföllum Björns Jónssonar (A), fyrsta landkjörins þingmanns, og Halldór Blöndal í fjarveru Lárusar Jónssonar (S), sem er erlendis í opinberum erindagjörðum. Skipan efri deildar: Stjórnarlidar vinna hlutkesti IILUTKESTI fór fram á fundi S.þ. í gær milli 7. manns í tilnefningu þingflokks sjálf- stæðismanna í efri deild, Friðriks Sóphussonar, og 14. manns í sameiginlegri tilnefningu stjórnarflokkanna þriggja, Kjartans Jóhannssonar, sjávarút- vegsráðherra. Báru stjórnarliðar sigur af hólmi í því hlutkesti. í efri deild sitja eftirtaldir þingmenn, taldir í stafrófsröð: Alexander Stefánsson (F), Björn Jónsson (A), Bragi Nielsson (A), Bragi Sigurjónsson (A), Eyjólfur Konráð Jónsson (S), Geir Gunnarsson (Ab), Guðmundur Karlsson (S), Helgi F. Seljan (Ab), Jón Helgason (F), Jón G. Sólnes (S), Karl Steinar Guðnason (A), Kjartan Jóhannsson (A), Oddur Ólafsson (S), Ólafur R. Grímsson (Ab), Ólafur Jóhannesson (F), Ragnar Arnalds (Ab), Ragnhildur Helgadóttir (S), Stefán Jónsson (Ab), Vilhjálmur Hjálmarsson (F) og Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S). Aðrir þingmenn sitja í neðri deild. Samkvæmt þingsköpum ber þingflokkum að tilnefna 'h þing- manna til setu í efri deild. Þar sitja því 20 þingmenn en 40 í neðri deild. Þrjár af sextíu: Jóhanna Sigurðardóttir (A), Svava Jakobsdóttir (Ab) og Ragnhildur Helgadóttir (S). Svipmyndir frá setningu Alþingis Aldursforseti Alþingis, Oddur Ólafsson (S), viö þingsetningu. Aörir frá vinstri: Lárus Jónsson (S), Jón Helgason (F) og Friöjón Sigurósson, skrif- stofustjóri Alþingis. * Forseti islands, dr. Kristján Eldjárn, ávarpar Alþingi. Fjórir þingmenn Sjálf- staaöisflokks: Matthías Bjarnason, Þorvaldur G. Kristjánsson, Geir Hall- grímsson og Eggert Haukdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.