Morgunblaðið - 15.10.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
19
Séra Gunnar Björnsson í Bolungarvík:
Ragnar H.
Ragnar áttræður
Einhver elsti ofí virðulefjasti
kirkjuorfjanisti landsins, Rafjnar
H. Rafínar á ísafirði, varð áttræð-
ur hinn 28. september síðastliðinn.
Þá voru bráðum tvö ár síðan
Rafjnar hætti að synnja á orfíelið í .
ísafjarðarkirkju, þar sem hann
hafði á hendi orfjanslátt tveimur
fátt í tuttugu ár, en síðan Jónas
heitinn Tómasson tónskáld eldri
lét af því starfi. Enginn skyldi þó
halda, að Ragnar H. Ragnar hafi
lagt niður söngstjórn í höfuðkirkju
Vestfjarða fyrir aldurssakir eða
elliþyngsla, öðru nær: það kölluðu
að vaxandi annir í öðrum póstum.
1 vor leið var Ragnar búinn að vera
skólastjóri Tónlistarskóla ísa-
fjarðar, einhverrar helstu menn-
ingarstofnunar landsins, í rétt
þrjátíu ár, allra manna unglegast-
ur og hressastur og skyldi engum
koma til hugar, að þar færi maður
á níræðisaldri. Aldrei hefur tón-
listarskólinn veriö fjölmennari en
nú, og sjaldan öflugri eða glæstari
að kennaraliði en einmitt þessi
síðustu ár, en kennt á öll hugsan-
leg hljóðfæri, húskonsert heima
hjá Ragnari og hans ágætu konu,
Sigríði J. Ragnar, hvern einasta
sunnudag sem Guð gefur yfir og
margfaldir hljómleikar á jólum,
miðsvetrar og vors. Sinfóníu-
hljómsveitin gaf Ragnari heiðurs-
og hátíðarhljómleika í afmælisgjöf
og Ríkisútvarpið, Tónskáldafélag
Islands og Isafjarðarkaupstaður
ætla að halda honum afmælis-
hljómleika í öndverðum október
næstkomandi, þar sem eingöngu
verða flutt íslensk nývirki í tónlist
og margir höfundar og flytjendur
koma fram. Hið rausnarlega heim-
ili þeirra Ragnars og Sigríðar
stendur vinum og samstarfsmönn-
um opið á nóttu sem degi og svo
hefur dómbær maður látið um-
mælt, að fá heimili á íslandi
standi undir reisn og menningu
Neytenda-
samtökin
safna nýj-
umfélögum
NÚ HAFA Neytendasamtökin
hafið mikla herferð til að safna
nýjum félögum. Eftir því sem þau
eru fjölmennari verða þau hæfari
til að gegna hlutverki sínu, sem er
fyrst og fremst neytendavernd,
auk upplýsingastarfsemi um hags-
muni neýtenda. Þessi herferð hefst
í dag og er fólk hvatt til þess að
hringja í síma 21666 frá kl. 10—17
og láta skrá sig sem nýja félaga.
Árgjald samtakanna er nú kr.
2000.- og er Ne.vtendablaðið inni-
falið í því. (Fréttatilkynning).
jafnfætis þessu góða athvarfi
okkar margra að Smiðjugötu 5, í
húsinu sem Tónlistarfélag ísa-
fjarðar átti lengi, en Ragnar
keypti nú á dögunum. Varla er
hægt að hugsa sér samviskusam-
ari eða nákvæmari verkamann í
víngarði Drottins en Ragnar H.
Ragnar og það mun séra Sigurður
Kristjánsson, fyrrum prófastur á
ísafirði, manna best kunna að
dæma, því að Ragnar starfaði með
honum alla sína söngstjóratíð í
kirkjunni, en stjórnaði auk þess
Sunnukórnum með glæsibrag, svo
sem framgengur af fjölmörgum
upptökum og hljómplötum. Ein-
lægt var Ragnar sestur í sæti sitt
við orgelið í tæka tíð, þaðan sem
hann leiddi söfnuðinn í lofsöng
sköpunarinnar til Drottins síns,
því að öll ljómar veröldin frammi
fyrir Guði og tilbiður hann með
söng og spili tónum og tali í litum
fegurð og blómum. Þess vegna er
listin svo mikilvægur þáttur í
guðsþjónustunni, af því að í
listinni finna maðurinn og sköpun-
in hvort annað og fallast í faðma,
líkt og fvrirboði þess dags, þegar
við eignuðumst þá sátt við Guð og
menn, sem gerir okkur fullkom-
lega hamingjusöm. Trúmaður er
Ragnar mikill og einlægur, þó
minnugur þeirra orða postulans að
hugsa ekki hærra en hugsa ber.
Enginn taglhnýtingur er hann í
trúmálum fremur en öðrum efnum
og næsta tortrygginn á lúterskan
sið með köflum eins og margir
góðir sagnfræðingar, þótt auðvitað
hefðu frjálsbornir konungsniðjar
eins og Ragnar og aðrir íslending-
ar aldrei unað öðru en lúterdómi
til lengdar, því að þeir vilja standa
einir og frjálsir framnii fyrir
Herra sínum líkt og töllheimtu-
maðurinn í musterinu forðum og
taka hann milliliðalaust á orðinu í
þeirri Góðu Bók. Tempí Ragnars í
sálmalögum eru samkvæmt þessu
hæg og virðuleg, einleikur hans
með djúpri innlifun og meðleikur í
einsöngs- og einleiksverkum svo
prýðilegur sem best má verða. Og
nú er þessi öölingur áttræður og
hefur fengið hlýjar óskir og
þakklæti úr öllum áttum og
mættum við njóta krafta hans og
leiðsagnar lengi enn.
Oadge
Eigum til afgreiöslu fáeina DODGE ASPEN
COUPE 2dr. 1979 á ótrúlega hagstæöu veröi. í
bílnum er m.a. sjálfskipting, vökvastýri, 6 cyl. vél,
diskahemlar aö framan, vinyl-klæöning á þaki, og
deluxe frágangur aö innan og utan.
Verö nú kr. 5.270.000.
Sölumenn Chrysler-sal: 83454 — 83330.
Ifökull hf.
ARMULA 36 REYKJAVÍK Simi 84366
Sniðill h.f., Akureyri, sími 22255
Bílasala Hinriks, Akranesi sími: 1143
Óskar Jónsson, Neskaupstað sími 7320.
Nýja kvartmílu-
brautin vígð í lok
mánaðarins
ÁFORMAÐ er að vígja kvartmílu-
brautina í Straumsvík sunnudag-
inn 29. október n.k. og væntanlega
verður hún reynslukeyrð helgina
áður, samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Örvar Sigurðsson formað-
ur Kvartmíluklúbbsins gaf blm.
Mbl. í gær.
Búist er við geysimikilli þátt-
töku í fyrstu stóru kvartmílu-
keppninni hér á landi og sagði
Örvar að hugsanlega tækju á
annað hundrað bílar þátt í keppn-
inni. Nú er unnið af fullum krafti
við að girða í kringum brautina og
ganga frá umhverfi hennar að
öðru leyti en því að búist er við
mörg þúsund áhorfendum. Malbik-
un brautarinnar heppnaðist mjög
vel og sagði Örvar að vonir stæðu
til að þessi braut yrði mjög góð
keppnisbraut.
SPARILAN
vegna óværtíra útgjalda
Getur þú fengið sparilán
um leið og óvænt útgjöld
koma í Ijós?
Sparilán Landsbankans
eru tilvalinn varasjóður,
sem grípa má til, þegar
greiða þarf óvænt útgjöld.
Ef fjölskyldan hefur
safnað sparifé á sparilána-
reikning í ákveðinn tíma,
á hún rétt á spariláni strax
eða síðar.
Sparilán Landsbankans
geta verið til 12, 27 eða
8 mánaða — eftir 12,18
ða 24 mánaða sparnað.
Þegar sparnaðar-
pphæðin og sparilánið
ru lögð saman verða
ítgjöldin auðveldari
yiðfangs.
iðjíð landsbankann
m bæklinginn
|um sparilánakerfið.
Sjiariíjársöfnun tengd rétd til lántöku
Sparnaður
þinn eftir
12 mánuði
18 mánuði
24 mánuði
Mánaðarleg
innborgun
hámarksupphæð
25.000
25.000
25.000
Sparnaður í
lok tímabils
300.000
450.000
600.000
Landsbankinn
lánar þér
300.000
675.000
1.200.000
Ráðstöfunarfé
þitt 1)
627.876
1.188.871
1.912.618
Mánaðarleg
endurgreiðsla
28.368
32.598
39.122
Þú endurgreiðir
Landsbankanum
á 12 mánuðum
á 27 mánuðum
á 48 mánuðum
1) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSBANKINN
Sparilán-tiygging í Jranttíð