Morgunblaðið - 15.10.1978, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.10.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978 27 Sextugur—Ölafur Hjartar bókavörður Árin líða hvert af öðru og fyrr en varir hafa menn náð þeim aldri að full ástæða er að geta þess með nokkrum orðum. Einn þessara manna er vinur minn Ólafur F. Hjartar bókavörð- ur sem er sextugur í dag. Ólafur er fæddur á Suðureyri í Súgandafirði, þar sem foreldrar hans, Kristín Þóra Jónsdóttir og Friðrik Hjartar skólastjóri, bjuggu. Ólafur var við nám í Mennta- skólanum á Akureyri og varð stúdent þaðan 1939. Kennarapróf tók hann 1942. Síðan lagði hann stund á bókvörslu í School of Librarianship, University College, í London. B.A.-próf í ensku tók hann við Háskóla íslands 1954. Eftir það starfaði Ólafur við kennslu um skeið við barnaskólana í Vestmannaeyjum, Siglufirði og Akranesi. Kenndi einnig við Stýri- mannaskólann, Námsflokka Reykjavíkur, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Flensborg í Hafn- arfirði. Hann var aðstoðarbókavörður við bókasafn Háskóla íslands 1947—53. Starfsmaður fjármála- eftirlits skólamála um eins árs skeið og bókavörður við Borgar- bókasafn Reykjavíkur. Árið 1958 var Ólafur ráðinn bókavörður í Landsbókasafni ísl. og hefur starfað þar síðan. Ólafur er félagshyggjumaður, ungur að árum gekk hann í reglu góðtemplara og hefur verið virkur félagi þar um áratugi. Hann hefur gegnt þar ábyrgðarstörfum, verið gæslumaður í barnastúku og átt sæti í framkvæmdanefnd Stór- stúkunnar, framkvæmdastjóri Áfengis- og bindindismálasýning- ar haustið 1955. Umsjónarmaður bindindisbókasafns G.T.-reglunn- ar um árabil og skrásetti hann þá safnið og flokkaði. Öll störf sem honum hafa verið . falin hefur Ólafur rækt af kostgæfni og trúmennsku. Ólafur er músíkalskur og söng- elskur, leikur prýðisvel á orgel, og hefur það oft komið sér vel þegar þurft hefur að leita til hans í félagsstarfinu. Rýmingarsala 60—80% afsláttur á margskonar ullarvörum. Peysur, pils, kjólar, buxur o.fl. Dalbær, Hverfisgötu 32. Frá Hofi Nýkomnar handskornar trévörur, listiðnaður frá Fillipseyjum. Ótrúlega fallegt úrval hannyrðavörum og garni. Hof Ingólfsstræti 1. af Til sölu Fasteignin Tunguháls 9, Rvík. Stærö grunnflatar 450 fm. Stærö samtals um 1000 fm. Stækkunarmöguleikar um 600 fm. Stærö lóðar 3.500 fm. Hentugt fyrir iönaö, heildverzlun, félagsheimili, skemmtistaö. Upplýsingar í síma 85020 og 82567 á kvöldin. Nokkur rit liggja eftir hann, sem hann hefur ritað einn eða með öðrum og má þar nefna Bókasafns- rit 1. ásamt Birni Sigfússyni, Vorblómið ásamt öðrum, lítil bók skrifuð fyrir börn og unglinga, sem komið hefur út árlega s.l. 15 ár á vegum Unglingareglunnar. Hann aðstoðaði við útgáfu á hinu nýja Alþingismannatali, sem ný- lega er komið út. Auk þess sem hér er talið liggja fleiri rit eftir hann sem hér verða ekki talin. Ólafur er léttur á fæti og snar í hreyfingum, fljótur að koma í framkvæmd því verkefni sem fyrir liggur. Hann er ekki málskrafs- maður, en ákveðinn í tilsvörum og segir meiningu sína hver sem í hlut á. Heilsteyptur og orðheldinn. Aðalstarf Ólafs hefur verið eins og fyrr segir við bókasöfn og hefur hann lagt sig fram um að kynna sér þau störf sem best, og er því mjög fær á þessu sviði, enda áhugasamur um bækur og bókaút- gáfu og fylgist þar mjög vel með. Eiginkona Ólafs er Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir og eiga þau þrjú börn, Svavar, Sverri og Þóru. Þau hjónin hafa búið sér gott heimili að Mosgerði 9 og þangað hefur verið ánægjulegt að koma. Ég vona að við spilafélag- arnir eigum enn um stund eftir að hittast og taka slag, eins og við höfum gert um mörg liðin ár. Ólafur, heillaóskir til þín og fjölskyldu þinnar á þessum merku tímamótum. Kristján Guðmundsson. Aðalfundur Knattspyrnudeildar Fram Knattspyrnudeild Fram heldur aöalfund sinn í félagsheimilinu viö Safamýri í dag 15. október kl. 2. Venjuleg aöalfundarstörf. Stjórnin. Fdtamarkaóur Drengjabuxur frá 900.- Barna gallabuxur frá kr. 2.200- Drengjaskyrtur frá kr. 700- Smekkbuxur frá kr. 2.200,- Herrabuxur frá kr. 3.200.- Kvennbuxur frá kr. 3.500.- Peysur, sokkar og margt fleira á góðu verði. Mikíö úrval af allskonar efnisbútum. Komið skoðið og gerið góð kaup. Buxna- og bútamarkaðurinn Skúlagötu 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.