Tíminn - 15.06.1965, Síða 3
ÞRHJJUDAGUR 15. júní 1965
TÍIVIINN
Þessi mynd er tekin af þeim J. R. Rider (t. v.) og 'Harold iFlater, fulltrú-
um fnternational Harvester; með þeim er Gunnar Gunnarsson, fulltrúi í
véladeild SÍS. Myndin er tekin í varahlutaverzlun SÍS að Ármúla.
(Tfmamynd GE).
Fulltrúar International
Harvester í heimsókn
JHM-Reykjavík, mánudag.
Hér hafa dvalið að undanfömu
tveir fulltrúar frá International
Harvester bíla- og dráttarvélaverk
smiðjunum á vegum véladeildar
SÍS. Annar þessara manna, Har-
old Flater, hefur verið hér á landi
15 sinnum, en hann er fulltrúi fyr-
ir Norðurlandadeildinni, með að-
setur í Brussel. Hinn er J. R.
Rider og er tæknifræðingur frá
London-skrifstofunni, og stjómar
þar tækniskóla fyrir sölu- og við-
gerðarmenn. Rider hefur einnig
komið til íslands áður.
Þeir félagarnir komu hingað í
kynnis- og eftirlitsferð, en eins og
menn vita er töluvert til af Inter-
national Harvester dráttarvélum
hér. Flater skýrði fréttamanni
blaðsins' frá því,að hann yrði að
ferðast mikið um Norðurlönin og
fylgjast með vélunum, eða eins og
hann orðaði það: „Vandamálin era
alltaf að breytast.“ Hann sagði, að
verksmiðjumar legðu mikið upp
ttr því, að fulltrúar þeirra ferðuð-
ast til þeirra landa, þar sem fram-
leiðsla þeirra væri mikið notuð,
til að athuga hvemig tækin reynd-
ust. Intemational Harvester hefur
um 21 verksmiðj” í Bandaríkjun-
um, sem er heimaland þess, og um
23 verksmiðjur utan þeirra. Á s.l.
ári var velta þess 2,2 billjónir doll
ara sem er öllu meira en þjóðar-
velta Danmerkur.
— Við álítum, sagði Flater, að
við höfum fundið rétta stærð af
m ‘
í Asmundarsal og Mokka
GB-Reykjavík, mánudag.
Á laugardag var opnuð að við-
stöddum fjölmörgum forvitnum
gestum sýning fjögurra myndlist-
armanna, sem líkleg er til að
verði talsvert umrædd í borginni,
og þótt hún fylli tvær hæðir að
Freyjugötu 47, bæði í Ásmundar-
sal og kennslustofum Myndlistar-
skólans, komst hún ekki öll fyrir
í því húsi, og er því hluti hennar
sýndur í Mokka-kaffi við Skóla-
vörðustíg.
Fjórmenningarnir, sem að sýn-
ingunni standa, eru málmlistar-
maðurinn Jón Gunnar Árnason
og teiknararnir og málararnir
Haukur Sturluson, Hreinn Frið-
finnsson og Sigurjón Jóhannsson.
Eru verk Jóns Gunnars og Sigur-
jóns langflest og fyrirferðarmest,
því að Sigurjón setur saman
geysistórar veggmyndir úr margs
konar efni, olíu, coage, bronsi,
blaðaúrklippum, tré og plasti. Og
skúlptúrmyndir Jóns Gunnars úr
járni, stáli, plasti og tré era sum-
ar hverjar engin smásmíði, en
þær eru ýmist rismyndir á vegg,
frístandandi skúlptúr, og hreyfi-
myndir, sem trúlega vekja mikla
athygli og mörgum mun þykja
girnilegar til fróðleiks, því að
þessi listgrein er fáséð hér á
landi. Líkt má segja um myndir
þeirra Hreins og Sigurjóns, sem
tilheyra „pop“-stefnunni nýju,
sem áður hefur aðeins sézt hér á
sýningum Ferrós, en hefur vakið
mikinn úlfaþjd erlendis, þótt ein
slík hlyti fyrstu verðlaun á hinni
heimsfrægu Feneyjasýningu síð-
ast Og meðal sinna fáu mynda á
þessari sýningu bregður jafnvel
Haufcur Sturluson á þennan leik
ieiani eða tveim myndum. Sumir
urðu furðu lostnir við opnun sýn-
ingarinnar, og var þó Atli Heimir
ISveinisson hvergi nærri til að
láta fólki bregða snögglega við,
hann átti að flytja frumsamið
elektrónískt tónverk, svonefnt
Viðbrögð, en forföll komu í veg
fyrir það að sinni, sem vonandi
rætist úr áður en sýningunni lýk-
ur, en hún verður opin daglega til
20. júní kl. 2—10 síðdegis í Ás-
mundarsal og Mokka.
■ r
1500 sáu Fórnarlambið iija
Leikfálagi Neskaupstaðar
Leikfélag Neskaupstaðar hefur
nú lokið vetrarstarfi sínu að þessu
sinni. Sýnt var eitt leikrit, þar eð
ekki reyndist unnt að fá nógu
margt fólk til starfa fyrri hluta
vetrar. Félagið mun leggja
áherzlu á að geta sýnt tvö leikrit
næsta leikár.
Undir mánaðamótin marz-apríl
hóf félagið æfingar á finnskum
gamanleik, Fórnarlambinu, eftir
Yrjö Soini, í þýðingu Júlíusar J.
Daníelssonar. Höskuldur Skag-
fjörð var ráðinn leikstjóri, en
hann hefur starfað á vegum Banda
Framhald 8 14. siðu
dráttarvélum fyrir ísland, en það
er International B-414. Sú tegund
hefpr verið flutt hingað inn í 2—3
ár, pg hefur reynzt mjög vel að
allpfl dómi. Við flytjum hingað
B-27P, sem einnig er gott tæki, auk
anpgrrar framleiðslu.
Itider tæknifræðingur sagði, að
íslppzkir bændur, eins og aðrir
dráttarvélaeigendur, ættu að fara
betiir með tækin sín.
—- Við seljum dráttarvélarnar
í qjyeg toppstandi, og við ætlumst
til, að eigendurinir haldi þeim
þappig. Bóndinn á að athuga vél-
ina, ttUnn? Pg rðfhlöðHR* eÍRU
sinni í viku. Dráttarvélareigandittn
á að hugsa eins um dráttarvélina
og bílinn sinn, sagði Rider.
Báðir fulltrúamir ferðuðust um
landið og töluðu við eigendur og
viðgerðamenn. Rider lét mjög
vel af samskiptum sínum við bænd
uma, og sagði, að þeir væra fullir
af áhuga og væra fúsir til að skýra
frá reynslu sini af B-414.
Þeir skýrðu að lokum frá því,
að í haust verður haldið hér nám-
skeið til að kenna viðgerðarmönn-
um viðgerðir og meðferð á Inter
national Harvester dráttarvélum.
Námskeiðið verður Mklegast f név
ember og kemur hingað tæknifræð
ingur frá verksmiðjunum til að
stjóma því.
Félag gæzlusystra
18. maí s.l. var stofnað félag
gæzlusystra. Undirbúningur að
stofnun félagsins var hafinn í marz
og kosin nefnd: Margrét Back-
mann, forstöðukona Skálatúni, Ár-
ný Kolfoeinsdóttir og Helga Biraa
Gunnarsdóttir, gæzlusystur á Kópa
vogshæli. Stofnfundur félagsins
var haldinn 18. maí 1965. Á fundin-
um vora mættar 12 gæzlusystur,
auk þess var ákveðið, að þær,
sem áður vora búnar að tilkynna
þátttöku, en gátu ekki mætt á þess
um fundi, skyldu teljast stofnfé-
lagar. Alls verða því stofnendur 16
eða allar þær gæzlusystur, sem nú
era staddar hérlendis.
Á stofnfundinum vora samþykkt
lög fyrir félagið. Félagið heitir
„Félag gæzlusystra“ og er félágið
deild í „Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana". Tilgangur félagsins er
að efla stétt gæzlusystra og glæða
áhuga þeirra á öllu því, er að
starfi þeirra lýtur. Tilgangi þess
um hyggst félagið ná með því
að stuðla að framhaldsmenntun
gæzlusystra, gæta félagslegra hags
muna þeirra og réttinda, efla sam
heldni þeirra og stéttartilfinningu.
Formaður félagsins er Margrét
Backmann, Skálatúni .
Einn þeirra fjórmenninga. Haukur Sturluson, var kominn i síld austur á Firði, er sýningin var opnuð, en
hér sjast hinir þrír: Sigurjón, Hreinn og Jón Gunnar, og tv*r myndir, skúlptúr og „pop"-mynd.
a
Á VIÐAVANUl
Aðild íslqnds EFTA
Ráðherrarnir hafa mikið rætt
um aðild fslands áð Fríverzlun
arbandalagi Evrópu upp á sið-
kastið. Er Þar sagt, að viðhörf
hafi breytzt svo mjög á síðustu
árum, að tímabært sé fyrir fs
lendinga að f«ra að leita eftir
aðild að bandalaginu. Er elnk-
um bent á sem rök í þcssu sam
bandi, að samkeppnisaðstaða
Dana og Norðmanna á fisk-
mörkuðunum sé syo miklu
betri en okkar vegna þess að
þeir séu í EFTA. Er jafnvel
reynt að reikna „tapið“ út i
krómim óg auruin.
EFTA sténdur nú á miklunt
tímamótum og er fyrirsjáan-
Jégf tájsvprff. éf ekki veru
leg breyting mun verða i
bandálaglhú áður en lángt um
líður. Gæti sú breyting m. a.
leitt til þess að styttra yrði í
sámruna EFTA við Efnahags-
bandalag Evrópu en margan
grunár, þótt állir spádómar í
þessum málum séu varahuga-
verðir.
Fiskverðið
Ekki verður séð að nókkur
rök mæii með þvi að íslend
ingar gerist nú aðUar að EFTA.
Aðstaða okkar á fiskmorkuðun
nm hefur farið stórbatnandi á
fiskmörkuðunum, þrátt fyrir
mlkla aukningu á útflutnings-
magni. Verðlag á fiskafurðun-
um hefur farið stórhækkandi
— ekki sfzt í EFTA-löndunum,
en tU þeirra fóru á síðasta ári
rúm 43% af heildarútflutningn
um. Nam þessi verðhækkun
um 10% á siðasta ári að með-
altáli, en í mörgum greinum
miklu meiru. Það er af mörgu
IjóSt, að sé markaður vaxandi
eins og verið hefur, grelðir neyt
andinn í viðkomandi landi inn
ffutningstollinn eða hluta hans,
en raunveralega ekki útflytj-
andinn tU landsins. Það er eng
in, sem getur sagt fyrlr um það
á bessu stigi, hvort verðhækk
anir á útflutningsvöram okkar
munu fara hækkandi áfram, en
engin rök hafa enn verið færð
fram haldbær fýrir því að verð
lð muni fara lækkandi. Hlýtur
þvf að teljast skynsamlegt að
bíða átekta og sjá hverju fram
vindur innan EFTA og EBE.
ir belm treyitandi?
Það virðist minna rætt um
það f stjómarherbúðunum,
hver áhrif aðild fslands að
EFTA myndi hafa á íslenzkan
iðnað. Gæti aðildin þó orðiR
rothögg á allan smærri iðnafl
og margar stærri Iðngreinar j
landinu! Hins vegar lýsti viR
skiptamálaráðherra þvf yfir fyr
ir nokkrum dögum, að scp
stök samráð mugi höfð við kaup
mannasamtök landsing um
málið, sem hann taldl sér*
stakt hagsmunamál fslenzkrar
verzlunarstéttar. f sömu ræðu
sagði ráðherrann, að „aldroj
hefðf komjð til greina að í<>
lendingár gerðust aðilar að
EBE eins og til þess vár stofn*
að og eins og það starfar nú
f dag.“ Menn muna nú enn,
hvernig það mál stóð og mættí
koma með margar tUvitnanir i
því sambandi, en nóg ætti að
vera að minna á yfirlýsingun*
frá einum áhrifamesta manni j
stjómarherbúðunum, sem unt
þessi mál fjallaðl, er hann
sagði, að fsland ætti sð gerast
aðill að EBE til að geU haft
áhrif á gang mála Þar og upp
byggingu bandalagsins!!
Framhaid » 14 sfðu