Morgunblaðið - 18.10.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1978.
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
Húsnæði í yfir 20 ár er sýnilega
ekki metið sem stuðningur. En
húsnæði er samt einn af stærstu
útgjaldaliðunum hjá sambærileg-
um starfshópum. Hver ætli upp-
hæðin sé á núgengi? Ég var þessu
nokkuð kunnugur á tímabili og
veit því, að einstök góðvild og
liðlegheit gerðu það fært. að veita
kórnum þessa miklu þjónustu í
Vogaskóla. Kom oft niður á
félagslífi nemenda, þegar nálgað-
ist hljómleika hjá kórnum og æft
var á hverju kvöldi. Þetta var, að
því er ég best veit, aldrei talið
eftir. En mér finnst að linna megi
ásökunum um stuðningsleysi ekki
síst þar sem vel er ýmislegt annað
framlag kórs og stjórnanda tíund-
að, sem vel má gera.
Ég hefi lengi stillt mig um að
benda á þetta, og tel nú ástæðu til
þess — í allri vinsemd.
- S.Á “
Til viðbótar þessu má segja, að
þegar forráðamenn Polýfónkórs-
ins hafa rætt um styrki og
stuðning hafa þeir einkum átt við
beina fjárstyrki, en vissulega
hefur það komið fram í viðtöium
við þá, að þeir meta stuðning sem
þann er bréfritari er að benda á,
þó e.t.v. megi líka segja með réttu,
að hann hafi ekki verið metinn
sem skyldi þegar rætt er um þetta
atriði. En nóg um það.
Þessir hringdu
• Frekja eða
forgangur?
Ökumaður í Reykjavík vildi fá
að varpa fram þeirri spurningu
hvernig bílstjórum S.V.R. fyndist
hafa gengið að aka í bænum síðan
sett var í lög, að strætisvagnar
hefðu forgang þegar þeir ækju frá
biðstöðvum. Fannst þessum öku-
manni þeir ekki ætíð sýna næga
aðgæzlu og áleit bílstjóra stundum
aka út í umferðina án þess að gefa
t.d. þeim bíl, sem væri kominn fast
upp að vagni, tækifæri til að
komast framhjá. Þó tók hann
fram, að það væri e.t.v. undan-
tekning, þar sem hann hefði oftast
góða reynslu af þessu atriði.
Eiríkur Ásgeirsson forstj. S.V.R.
sagðist ekki vita annað en þetta
hefði gefizt vel, áður en þessi
forgangur hefði verið leiddur í lög
hefðu einkabílstjórar í vaxandi
mæli sýnt strætisvögnum tillits-
semi, sérstaklega á vissum stöðum
í borginni, þar sem væri sérstak-
lega erfitt að komast út frá
biðstöðvum. Þó sagði hann vera
vissa hættu á því að t.d. á
Suðurlandsbraut, þar sem öku-
menn færu jafnan hratt yfir,
kynnu bílstjórar að fara af stað án
nægilegrar aðgæzlu, miðað við t.d.
Laugaveg, þar sem umferðin væri
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á aiþjóðlega skákmótinu í
Osijek í Júgóslavíu í vor kom þessi
staða upp í skák júgóslavanna
Koshanskys og Gligorics, sem
hafði svart og átti leik.
25.... Hxf l!, 26. Dxí4 - IH8. 27.
De4! (Annar leikur svartur 27...
f2+ og mátar)
Dd2!! og hvítur gafst upp. Hann
verður mát eftir 28. Dxe6+ — Kh8,
29. Hf2 - Ddl+, 30. Hfl - f2+.
Þeir Gligoric og Adorjan,
Ungverjalandi sigruðu á mótinu,
hlutu níu vinninga af 13 möguleg-
um. Næstir komu júgóslavarnir
Kurajica og Velimirovic með átta
vinninga.
yfirleitt hæg og vagnarnir gætu
því ekið nánast viðstöðulaust út í
umferðina aftur. Eiríkur Ásgeirs-
son sagðist þó ekki vita til að nein
slys hefðu orðið sem rekja mætti
til þessa forgangs vagnanna, enda
væri hann með þeim takmörkun-
um að bílstjórum væri gert að
sýna fyllstu aðgæzlu.
• Leiðrétting
I pistli frá Sigrúnu Gísladótt-
ur hjá Velvakanda í gær skolaðist
þýzkan til, en þar stóð Der Elv
König, en á að vera Der Erlkönig.
Hver ríður svo síðla... o.s.frv. og
átti Hver að sjálfsögðu einnig að
vera með stórum staf.
Þá má nefna að Sigríður Jóns-
dóttir hringdi og kvaðst vilja
benda á í sambandi við kvæðið
Engan grunar álfakóngsins mæðu,
að það væri sænskt þjóðlag og
væri ljóð Gests ekki þýðing, þar
sem á sænskunni fjallaði ljóðið um
nykur, en lag þetta og ljóð væri í
50 svenska folkvisor. Þá vildi
Sigríður benda á að til væri önnur
þýðing á kvæði Göthes um álfa-
kónginn, í litlu sönglagahefti
útgefnnu 1899 í Winnipeg af Láru
Bjarnason (og Sigríður spurði
hvort einhver vissi deili á henni)
væri lagið eftir J.Fr. Reichart og
þýtt af V.B. sem gæti verið
Valdimar Briem og væri upphaf
þess þannig: Hver ríður svo ört
yfir ís og hjarn ...
HÖGNI HREKKVÍSI
£"I2 CþúiHN AÐ fA NOb AF þ£bS\J Li©,
06 pE.b$<j LtULGf\ LU<k!UOÝ(?\ ""
&> SIGGA v/öGA t VLVtMi
Mínar innilegustu þakkir til allra þeirra nær og
fjær sem sýndu mér hlýhug og vináttu meö
kveðjum og gjöfum á nítíu ára afmæli mínu 30.
september s.l.
Gudrún Steinsdóttir,
Karlsskála,
Grindavík.
Hjartanlega þakka ég vinum og vandamönnum,
fyrir kveöjur, gjafir og afmælisveislu á 75 ára
afmæli mínu 2. október s.l.
Guö blessi ykkur öll.
Ásdís Ágústsdóttir,
frá Birtingaholti.
Börnum mínum, tengdabörnum, venslafólki og
vinum, færi ég hugheilar þakkir fyrir góöar gjafir,
skeyti, vinarkveðjur og góövild er mér var sýnd á
áttræöisafmæli mínu, 3. okt. s.l. Hreppsnefnd
Grímsneshrepps færi ég heilshugar þakkir fyrir
þá miklu viröingu er hún vottaði mér, meö því aö
kjósa mig heiðursborgara sveitarinnar. Ykkur
öllum, kæru vinir, óska ég af einlægum huga,
gæfu og Guðsblessunar.
Guómundur Guómundsson,
Efri-Brú.
Segulstál
Vigtar 1 kíló. Lyftir 60 kílóum.
Stærö 8x9x3 sentimetrar.
Gott til aö „fiska“ uþp járnhluti úr sjó, ám,
vötnum, gjám, svelg, tönkum. Líka til aö halda
verkfærum og smíöahlutum.
Sendum í póstkröfu.
StoTteMgJMtr <G)«SxrD®@@ini Si ©@ rsvkjavik, icsland
VESIURGOTU 16 - SÍMAR 14480 • 21480 - POB 605-TEIEX, 2057 STURIA IS
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ÝG W YLS) 'dJOLxmN) (ÍG vm 49 LIGG)A
v/ó w/na*
líw tfMosr
mroz ■'
\\
, ‘uMotN/AíóAt xIL
X) MgA 0$ 0YI
\M vmVÚ'ffiT
^objrfLau>
sÉMxrim% vsw _ „
tG V47ÁT/AI ZA05?/ir4