Morgunblaðið - 18.10.1978, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1978.
GERD Muller einhver mesti markaskorari allra ti'ma í knattspyrnunni. Síðasta ár var Muller
markakóngur í Vestur-Þýsku 1. deildinni, og er enn í fullu fjöri þó orðinn sé 33 ára. Hann hefur skorað
þrennu þríveKÍs það sem af er keppnistimabilinu í V-Þýskalandi í ár. Hann hefur einstaka hæfileika á að
vera rétt staðsettur á réttu augnabliki. Hér sést hann leggja sík allan fram að koma knettinum í netið.
NÚ ER keppnistímabilið í 1. deild knattspyrnunnar víðast hvar komið
á íulla ferð í Evrópu. Það er því ekki úr vegi að líta á mjög
athyglisverða töflu frá síðasta tímabili. Þessi tafla sýnir okkur
markakónga í hverju landi um sig, og jafnframt hvar flest mörk voru
skoruð í 1. deild.
Luxemborg er efst á listanum, þeir eru með að meðaltali 3.57 mörk í
leik, samt eru leiknir þar færri leikir í 1. deild en í flestum
Evrópulöndum. Flestir leikir í 1. deildarkeppni eru í Vestur Þýska-
landi alls 34. Sextán lönd eru með betra meðalskor en árið á undan. En
taflan hér fyrir neðan talar sínu máli og er hin fróðlegasta.
MARKAKONGARNIR
% Besta meðalskor var T Luxemborg á síðasta ári
i
^ Þjóðland
S™ LuxcmborK
N. írland
V. Þýzkal.
I
Danmörk
Sviss
Ungvcrjaland
NorcKur
Frakkland
Holland
A. Þýzkal.
Belgía
Skotland
Austurríki
Spánn
Finnland
írska lýðv.
Rúmenía
Sviþjóð
England
Tékkóslóvakía
Búlgaría
Júgóslavía
Portúgal
Grikkland
Ítalía
Pólland
Sovétríkin
Tyrkland
Markhæstir
Muller (Red Boys)
Armstrong (Ards)
G. Miiller (Bayern) D. Miiller
(Cologne)
Hansen (Odense)
Kunzli (Lausannc Sports)
Fazekas (Ujpest Dozse)
Oehland (Byrne Idrettslag)
Bianchi (Paris St.-Germain)
Geels (Ajax)
Havenstein (Chemie Böhlen)
Nickel & Riedl (Both Standard
Liege)
Johnstone (Rangers)
Krankl (Rapid Vienna)
Kempes (Valencia)
Paatelainen (Ilaka Valkeakoski)
0’Connor (Bohemians)
Georgescu (Dinamo Bucharest)
Almqvist (ÍFK Gothenburg)
& Aronsson (Landskrona)
Latchford (Everton)
Kroupa (Zbrojovka Briinn)
Miladenov (Beroe Zagora)
Savic (FC Sarajevo)
Gomes (FC Porto)
Mavros (AEK Athens)
Rossi (Lannerossi Vicenza)
Kimiecik (Wisla Krakow)
Blochin (Dynamo Kiev)
Cemil (Fenerbahcc)
Mörk
18
21
Samtals
íl.
deild
472
441
1.014
785
599
920
396
1.135
901
528
864
507
503
842
364
652
829
491
1.231
640
619
778
583
733
512
510
481
474
Meðal-
tal
77/78
3.57
3.34
3.31
3.27
3.12
3.00
3.00
2.98
2.94
2.90
2.82
2.81
2.79
2.75
2.76
2.71
2.70
2.69
2.66
2.66
2.57
2.53
2.43
2.39
2.13
2.12
2.00
1.97
Meðal-
tal
76/77
2.94
3.07
3.54
2.93
3.32
3.12
2.54
2.95
2.83
2.74
2.71
2.78
2.62
2.62
2.78
2.90
2.55
2.84
2.55
2.88
2.53
2.43
2.56
2.63
2.22
2.39
2.10
1.80
11 réttir gáfu 93.500
EFTIR úrslitum lcikja cnsku deildakcppninnar á laugardag að
dæma. var gcrt ráð fyrir 12 réttum á gctraunaseðli nr. 8. Það
reyndist ekki er til kom og komu aðeins fram 11 réttir, sem komu
fram á 10 seðlum. Vinningur fyrir 11 rétta var kr. 93.500 - og fyrir
10 rétta verður greitt kr. 2.88 - cn raðafjöldi var 141.
Hörmuleg var útkoma eins þátttakanda með 10 rétta á
kerfisseðli. hann var með tvo tvítryggða leiki ranga, og gctur
líklcga tekið undir með skáldinu á Í.S.Í. þingi fyrir nokkrum árum<
Ahyggja mér af því vex.
að eiga að hitta á tölur.
Vandamálið 1, 2. X.
aðeins sncrtispölur.
Skemmtíleg golf-
keppm a Eskifiroi
GOLFKLÚBBURINN á Eskifirði gekkst fyrir firmakeppni í golfi
síðastliðinn laugardag og voru leiknar 18 holur. 17 fyrirtæki tóku þátt
í keppninni, sem var með forgjafarfyrirkomulagi. Blíðuveður var er
keppnin fór fram og golfvöllurinn í góðu ástandi miðað við árstíma.
Sigurvegari varð Hlíðarskáli á Eskifirðr; en það var Magnús
Bjarnason, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins, sem lék fyrir
fyrirtækið. Benedikt Jóhannsson, verkstjóri í frystihúsinu, kom síðan
næstur, en hann lék fyrir Landsbankann á Reyðarfirði. í þriðja sæti
varð síðan sýslumaður S-Múlasýslu, Bogi Nilsson, sem lék fyrir Hótel
öskju. ~ áij.
Júgóslavar unnu
HM í körfubolta hefurjVerið í fullum gangi undanfarna daga og um
helgina var leikið um fyrstu 8 sætin í keppninni. Til úrslita léku
Júgóslavar og Rússar. Meðal fjölmargra áhorfenda var Anatoly
Karpov heimsmeistari í skák. En það á ckki af honum að ganga
blessuðum og Sovét tapaði. Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn,
72—72, en eftir framlengingu stóðu Júgóslavar uppi sigurvegarar,
82-81.
Brasilíumenn komu mest á óvart í keppninni og höfnuðu að lokum í
3. sæti eftir að hafa unnið ítali 86—85. Kanadamenn sigruðu
Bandaríkin í leik um 5. sætið með 94 stigum gegn 86 og í leik um 7.
sætið léku Ástralía og Fiiipseyjar. Ástralíumenn unnu 92—74.
Víðir I Garði vann
Suðumesjamótið
UM HELGINA lauk Suðurnesjamótinu í knattspyrnu með sigri Víðis
í Garði sem sigraði Njarðvík í síðasta leik mótsins með einu marki
gcgn engu. Markið var skorað í síðari hálflcik og var það Gísli
Eyjólfsson sem þar var að verki.
Suðurnesjamótið í knattspyrnu er keppni sem haldin er á vegum
íþróttabandalags Suðurnesja, en í bandalaginu eru knattspyrnufélög-
in í Grindavík, Njarðvík, Sandgerði og Garði. Keppt er í fimm
fiokkum, meistaraflokki, 3. flokki, 4. flokki, 5. flokki og 6. flokki.
Víðismenn létu sér ekki nægja að sigra meistaraflokkinn, heldur
unnu þeir einnig 3. og 4. flokk og líta forráðamenn félagsins björtum
augum til framtíðarinnar. Fimmta flokkinn unnu Njarðvíkingar en
Grindvíkingar báru sigur úr býtum í 6. flokki.
Annarrar deildar lið Sandgerðinga varð að láta sér nægja þriðja
sætið í meistaraflokki en þar ráku Grindvíkingar lestina en Njarðvík
varð í öðru sæti og hefði þeim nægt jafntefli í síðasta leiknum til að
vinna mótið.
Meistaraflokkur Víðis hefir átt góðu gengi að fagna í sumar. Unnu
þeir t.d. alla sína heimaleiki í 3. deildinni. Sigurður Ingvarsson hefir
verið þjálfari meistaraflokks Víðis tvö undanfarin ár og hefir liðið átt
góðu gengi að fagna undir hans stjórn. Þjálfari 3. og 4. flokks var
Guðjón Guðmundsson. AR/ÞR
Fyrstu leikir (slandsmóts-
ins í handknattleik
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknattleik hefst af fullum krafti um næstu
helgi. Hefst þá keppni í 1. deild karla og kvenna, 2. og 3. deild karla.
Leikir helgarinnar eru þessir:
Laugardagur.
Varmá í Mosfellssveit HK — Víkingur 1. deild karla kl. 14.00.
Hafnarfjörður 1. deild kvenna FH — UBK kl. 14.00
1. deild karla FH - ÍR kl. 15.00
Laugardalshöll 1. deild kvenna Fram — Haukar kl. 16.00
1. deild karla Fram — Haukar kl. 17.00
Akureyri 2. deild karla KA — Leiknir kl. 16.00
Akranes 3. deiid karla ÍA — ÍBK kl. 15.00
Sunnudagur.
Akureyri 2. deild karla Þór — Leiknir kl. 14.00
Njarðvík 3. deild karla Njarðvík — Grótta kl. 14.00
2. deild kvenna Grindavík — Njarðvík kl. 15.00.