Morgunblaðið - 24.10.1978, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.10.1978, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 Ekki óalgengt að skipin fylli sig í einu kasti LOÐNUVEIÐI var mjög góð um holfíina ox undanfarið hefur það ckki vorið óalgengt að skipin fylli sík í oinu kasti. A föstudas fókk Víkinííur um 1200 tonn í einu kasti ok á sunnudas fókk Sigurð- Ibúðarhús skemmdist af eldi ELDUR kom upp í eldhúsi íbúðarhússins Hlaðavellir 12 á Selfossi laust eftir hádegi á sunnudag. Húsráðendur voru ekki heima en maður í næsta húsi tók eftir eldinum og gerði slökkviliðinu viðvart. Kom það -strax á staðinn og tókst reyk- köfurum fljótlega að komast fyrir eldinn og slökkva hann. Talið er að kviknað hafi í eldavél. Var mikill eldur í eldhúsinu og það stórskemmt á eftir. Einnig urðu mjög miklar skemmdir á innbúi af sóti og reyk. ur risakast. en reif nótina. Loðnan. sem veiðist er gott hráefni. en undanfarið hafa skipin ekki komist til Faxaflóa- hafna yegna hvassrar suðvestan- áttar. í gærmorgun var um 4000 lestum landað í Siglufirði. cn mörg skipanna fóru austurfyrir með afla sinn. Veður var gott á milli um helgina á loðnumiðunum um 80 — 90 mflur norður af Ilorni. Frá hádegi á laugardag þar til síðdegis í gær tilkynntu eftirtalin skip um afla. Laugardaguri Ljósfari 180, Náttfari 530. Sunnudaguri Guðmundur 750, Pétur Jónsson 680, Huginn 500, Albert 620, Ilelga II 520, Sigurður 250, Sæberg 600, Hilmir 550, Súlan 760, Gígja 630, Skarðsvík 620, Hrafn 650, Faxi 170, Magnús 470, Húnaröst 580, Harpa 500. Mánudaguri Víkurberg 220, Jón Finnsson 500, Stapavík 550, Gull- berg 590, Sæbjörg 530, Óskar Halldórsson 410, Gunnar Jónsson 200. Jón P. Emils látinn JÓN P. Emils lögfræðingur andað- ist á sjúkrahúsi í Reykjavík aðfararnótt 16. október s.l. 55 ára að aldri. Útför hans fór fram í gær. Jón var fæddur að Stuðlum í Reyðarfirði 23. október 1922, sonur Emils bónda þar og konu hans Hildar Bóasdóttur. Hann varð stúdent frá MR 1944 og lögfræði- Sex skip selja ytra í vikunni SEX íslenzk fiskiskp selja afla sinn erlendis í þessari viku. Drangey og Birtingur seldu í Hull og Cuxhaven í gær og í dag selur Ótur í Bremerhaven. Á morgun selur Snæfugl í Bremerhaven og á fimmtudag selja Vestri og Rauði- núpur í Cuxhaven og Hull. prófi lauk hann frá. Háskóla Isiands 1951. Jón P. Emils stund- aði málflutningsstörf um árabil en einnig var hann um hríð fulltrúi borgarstjórans í Reykjavík, bæjar- fógetans í Vestmannaeyjum og yfirborgarfógetans í Reykjavík. Jón lét félagsstörf mikið til sín taka og átti hann m.a. sæti í miðstjórn Alþýðuflokksins 1944—‘58. Andri Heiðberg látinn ANDRI Heiðberg þyrluflugmaður og kafari andaðist í Reykjavík á laugardagsmorguninn, 48 ára að aldri. Andri fæddist í Reykjavík 14. apríl 1930, sonur Þóreyjar Eyþórsdóttur Heiðberg og Jóns Heíðbergs stór- kaupmanns. Hann lauk vélsmíöa- prófi í Reykjavík og rak um hríð eigin vélsmiðju. Andri byrjaði fljót- lega að stunda köfun og hann stundaði það starf um árabil, mest fyrir vélsmiðjuna Hamar. Árið 1964 urðu þáttaskil hjá Andra er hann festi kaup á þyrlu og rak hann síðan þyrluflugfyrirtæki til dauðadags. Varð hann þekktur sem þyrluflug- maður en einnig var hann mjög þekktur sem kafari, enda starfaði hann um allt land. Andri slasaðist allmikið s.l. sumar er þyrla hans nauðlenti uppi á öræfum. Lá hann lengi á sjúkrahúsi eftir það slys. Eftirlifandi eiginkona Andra er Elín Högnadóttir. Þau eignuðust fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Fullt steypusíló f ótbraut dreng ÞAÐ slys varð á Áltanest síðdegis í gær að steypusíló fullt af steypu féll niður og ienti á fæti 12 ára gamals drengs, sem var að hjálpa til við steypuvinnuna. Drengurinn fótbrotnaði og þykir mesta mildi að hann skyldi ekki stórslasast, Versnandi færð VEÐURSTÓFAN spáði norðanátt i gær og búist er við versnandi færð á vegum landsins, samkvæmt því sem vegaeftirlitið tjáði Mbl. í gær. I gær voru vegir hvergi ófærir nema á Vestfjörðum að sögn vega- eftirlitsins en víða var mjög hált, sérstaklega á fjallvegum. T.d. var flughálka á helstu heiðum norðan- lands í gærmorgun og áttu bílar í erfiðleikum af þeim sökum. Sömu- leiðis var flughált á Hellisheiöi í gær. því að fullt steypusíló vegur þrjú tonn. Verið var að steypa plötu nýbyggingar við Háakotstún 6 á Álftanesi þegar óhappið varð klukkan 3.45 í gær. Einhverra hluta vegna féll sílóið niður á plötuna, en krani hýfði það þangað upp. Drengurinn, sem var að hjálpa föður sínum varð fyrir sílóinu. Svo mikið var höggið að uppslátturinn undir plötunni brotnaði. Vinnuslys VINNUSLYS varð í loðnubræðsl- unni Lýsi og mjöl hf. í Hafnarfirði í fyrrinótt. Maður, sem þar vann, missti framan af löngutöng hægri handar er hann var við störf í verksmiðjunni. FUJ á Suðurnesjum: Alþýðuflokkur segi sig úr ríkisstjórn — verði efnahagsstefnu ekki breytt AÐALFUNDUR Félags ungra jafnaðarmanna á Suðurncsjum var nýlega haldinn í Keflavík. Á fundinum var eftirfarandi tillaga samþykktt „FÚJ á Suðurnesjum skorar á Alþýðuflokkinn og ríkisstjórnina að beita öllum skynsamlegum ráðum í baráttunni við verðbólg- una. Einnig vill félagið minna á, að Alþýðuflokkurinn gaf út „ger- breytta efnahagsstefnu" til að ráðast gegn verðbólgunni og ef þeim aðferðum sem þar er greint frá er ekki beitt, telur félagið að Alþýðuflokkurinn eigi að segja sig hið fyrsta úr ríkisstjórninni, því meðan efnahagsstefna Lúðvíks Jósepssonar verði leiðarljós ríkis- stjórnarinnar sé sjálfstæði ís- lenzku þjóðarinnar í stórhættu. Því skorar félagið á ríkisstjórn- ina og þingflokk Alþýðuflokksins að ráðast gegn verðbólgunni af fullri hörku eða gefa kjósendum tækifæri á að velja á milli „gerbreyttrar efnahagsstefnu" jafnaðarmanna eða „glötunar- stefnu" kommúnista. Könnun á lyfseðlum lækna í Reykjavík: Engir lyfeeðlar á hormónalyf til íþróttamanna hérlendis EKKERT bendir til þess að íslenskir læknar geíi út lyfseðla á hormónalyf til handa fslensku íþróttafólki, segir í yfirlýsingu sem landlæknir. Ólafur Ólafs- son, hefur látið frá sér fara. Segir í yfirlýsingu landlæknis, að gerð hafi verið könnun á lyfseðlum lækna í Reykjavík fyrir nokkru, og hafi engar lyfjaávísanir fundist yfir hor- mónagjafir til yngri manna. Landlæknir sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að könnun þesi hefði verið gerð vegna umræðna um hormóna- gjafir hér á landi og fullyrðingar í fjölmiðlum um að þær ættu sér stað. Sagði landlæknir að eðli- legt hefði þótt að gera athugun á málinu, að gefnu þessu tilefni. Fjármálaráðherra ítrekar afetöðu sína á Alþingi: Ekki ástæða til að ræða fjár- lagafrumvarpið við aðra aðila EINN þingmanna Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í sameinuðu þingi í gær og gerði að umtalsefni frétt f Morgunblaðinu siðastliðinn laugardag, sem hann sagði „villandi fréttafrásögn“ af samráðsfundi þriggja ráðherra mcð fulltrúum aðila vinnumarkaðarins sfðastijðinn föstudag. Vildi þingmaðurinn gefa fjármálaráðherra, Tómasi Árnasyni, tækifæri til að „Ieiðrétta þá villandi lýsingu á því, sem þarna hefur væntanlega gerzt,“ sagði þingmaðurinn. I frétt Morgunblaðsins á laugar- dag sagði að fundurinn hefði verið haldinn til þess að ráðgast við fulltrúa vinnumarkaðarins um það, hvernig frekara samráði yrði háttað og hafi niðurstaða fundar- ins orðið sú að haldnir yrðu mánaðarlegir fundir. Síðar segir í fréttinni og las Olafur Ragnar upp þann hluta fréttarinnar: „AU- margir aðilar, sem boðaðir voru á fundinn höfðu vænzt þess, að ráðherrar gerðu grein fyrir fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem enn hefur ekki verið lagt fyrir Alþingi. Tómas Árnason sagði á fundinum að svo væri ekki, slíkt væri ekki við hæfi, þar sem frumvarpið yrði fyrst að leggja fyrir Alþingi. Kristján Thorlacius formaður BSRB lýsti á fundinum furðu sinni á ummælum Tómasar, að ekki væri við hæfi að ræða fjárlagafrumvarpið, þeir væru einmitt komnir til þess að ræða það þar.“ Fjármálaráðherra svaraði Ólafi Ragnari og sagði að umræddur viðræðufundur hefði fyrst og fremst verið til að ræða þessi samráð nánar, hvern veg hagað skyldi. Ráðherrann sagði: „Ég veit það, að háttvirtum þingmanni er það Ijóst, að það er ekki við hæfi að ræða einstök atriði fjárlaga- frumvarps, fyrr en það er lagt fram á Alþingi. Það er sú samkoma, sem fyrst fær að sjá fjárlagafrumvarpið næst á eftir ríkisstjórninni, og þess vegna ekki ástæða til þess að gera það við neina aðra aðila." Þá las ráðherra það, „sem skrifað hefði verið niður af þessum fundi", að hann hefði kynnt meginstefnu fjárlagafrum- varpsins, en ekki farið út í einstök atriði þess. Ólafur Ragnar kvaddi sér aftur hljóðs og þakkaði ráðherra þá lýsingu, sem fram hefði komið í orðum hans og nauðsynleg hefði verið vegna „villandi fréttafrá- sagnar Morgunblaðsins". Fleiri tóku til máls, m.a. Sverrir Her- mannsson, sem ekki kvaðst hafa fengið botn í það, hvort eitthvað hefði verið rangt í Morgunblaðinu og óskaði hann skýrra svara við því — ef frásögnin væri ekki rétt, hvað væri þá rangt við hana. Þessu svaraði fjármálaráðherra ekki. Aðspurður af þingfrétta- manni Morgunblaðsins sagðist ráðherra ekki vilja bæta neinu við orð sín, menn yrðu að ráða í þau, hvað satt væri í málinu. Framhaldsumræður um þetta mál hafa verið boðaðar í þinginu í dag. Sjá nánar á þingfréttasíðu í dag, bls: 31. Búinn að skila svörunum VERÐLAGSSTJÓRI hefur svar- að skriflega þremur spurningum, sem lögfræðingar Dagblaðsins og Vísis lögðu fyrir hann vegna verðlagsmála dagblaðanna, en kæra á hendur fyrrnefndum tveimur blöðum er nú til með- ferðar hjá Verðlagsdómi Reykja- víkur. Svörunum skilaði verðlags- stjóri skriflega eins og venja er með embættismenn. Albert hafnaði boði Ellerts ALBERT Guðmundsson alþingis- maður hafnaði boði Ellerts B. Schram, sem Ellert gerði honum á þingflokksfundi í síðustu viku, að hann viki sæti fyrir Albert í fjárveitinganefnd Alþingis. Albert tók ekki boði Ellerts, þar sem hann taldi sig ekki hafa tíma til þess að starfa í nefndinni. Á Alþingi í gær var kjörið í fjárveitinganefnd og eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni Pálmi Jónsson, Lárus Jónsson og Ellert B. Schram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.