Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 7

Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 7 4 SIÐA — ÞJODVILJINN Sunnudigur 22. oklóbcr »78 DIOÐVIUm Málgagn sósíalisma, verkalýðs- Hreyfingar og þjóðfrelsis ItKriuiidi: i tgáfufélag Þjðövrljans f ramkvenidasl jóri: Kiöur Bergmann Kitstjðrar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson Auglýsinga Aigreiðslus' Blaðamenn uröardðttir Margeirssoi fréttamaðu? I.jðsm yndir C tlit og höi llandrita- o Klias Mar Siglingafræði strandkapteins! Strandkapteinninn var kokhraustur i útvarpsumræð unum um stefnuræðu forsætlsráðherra. Nú hafðl hann ráð undir hverju rlfl hverju og bauð fram hugmyndlr slnar um langtlmalausnir á efnahagsvandamálum Is lensku þjóðarinnar. En varla hefur nokkur rlklsstjórn sögu lýðveldlsins skilið ef tir sig annað eins ef nahagsöng þveiti eins og sú stjórnsem strandkapteinnlnn stýrðl. Þrír áttavitar Þjóðviljinn er eilítið utangátta pessa dagana. Þrír eru áttavitar nýrrar vinstri stjórnar og vísar enginn sama veg. Þar af leiðir, aó Þögn pykír hæfa um líðandi stund, Þótt kompásskekkju Alpýðu- bandalagsins sé að vísu gert hæfilega hátt undir höfði. Leiðarar Þjóðvilj- ans horfa Því gjarnan um öxl, til fyrri stjórnarand- stöðu, Þegar Þjóðvilja- menn vóru í essinu sínu, getandi skammað allt og alla og horft fram hjá hvers konar Þjóðfélags- legri ábyrgð. Þannig fer í sunnudagsleiðara Þjóð- viljans. Hann er helgaöur fráfarinni ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, á hefðbundinn hátt innantómra fullyrð- inga. Forystugreinin ber heitið „Siglingafræðí strandkapteins" — og kemur ekkert fram í texta, sem ekki felst t fullyrðingu yfirskriftar. Nauðsynlegt er hins vegar að staldra eilítiö við fullyrðinguna sjálfa. Veröbólga óg vísitala Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar gerði marga hluti vel, Þó að hápunktur ferils hennar væri útfærsla fiskveiði- landhelginnar í 200 sjómílur; og samningar út á við er geröu allt í senn: aö afla viöur- kenningar á einhliða ís- lenzkum rétti innan Þessara marka, að binda enda á hættuleg átök á islandsmiðum sem og á brezka og v-pýzka veiði- sókn hér við land. Það sem stjórninni mistókst, eða Þjóðinni í heild, var að ráða niðurlögum verðbólgunnar. En einnig Þar náðist nokkur árangur. Vinstri stjórnin, 1971—1974 skyldi eftir sig 54% verðbólgu. Þessari veröbólgu tókst að ná niður í u.p.b. 27% á miðju ári 1977. Þá seig aftur á ógæfuhlið, m.a. vegna óraunhæfra kjara- samninga og víxlverkana kaupgjalds og verðiags (vísitölukerfis pess, sem hér ríkir, en á hvergi sinn líka í nágrannalöndum). Sá árangur sem náðist í verðbólguhjöðnun frá 1975 fram til miðs árs 1977 sýndi Þó að rétt var stefnt af fyrri atjórn. Það sem á skorti var samátak Þeirra Þjóðfélagsafla sem til Þess Þurfti að fylgja Þessum árangri eftir. Það var rétt stýrt og stefnt af kapteini fyrri stjórnar, en í stýri hans var gripið af pólitískum öflum innan hagsmunahópa í pjóð- félaginu, er skekktu stefnuna og báru fleyið af leið, svo líkingu Þjóð- viljans sé haldið. Orsök og afleiöing í peim efnum tengist engum stjórn- málaflokki fremur en Alpýðubandalaginu, sem Þess vegna gæti eins heitið Verðbólgubanda- lagið. Strandar viö- leitnin enn á Alþýöu- bandaiaginu? Innan núverandi ríkis- stjórnar eöa ríkisstjórn- arflokka er áreiðanlega nokkur viljí til verðbólgu- hjöðnunar, hver svo sem viðbrögö hennar og árangur veröa á Þeim vettvangi. Endurskoðun vísitölukerfisins viröist nauðsynlegur undanfari raunhæfs árangurs. í pví efni koma kenningar Sjálfstæðisflokks um Þjóðarsátt og AlÞýðu- flokks um kjarasáttmála heim og saman, sem og hugmyndir um Þjóðhags- vísitölu. Þess vegna höfðu margir AlÞýðu- flokksmenn trú á nýrri „nýsköpunarstjórn" með aðild Sjálfstæðis- flokksins. Viðreisnar- stjórnin, sem AlÞýöu- flokkur og Sjálfstæðis- flokkur áttu aðild að, hélt og verðbólgu innan hóf- legra marka, 10—14% að meðaltali í 12 ára stjórn- artíð. Framsóknar- flokkurinn hefur nú látið í Ijós ákveöin sjónarmið í Þá átt að breyta grund- velli vísitölukerfisins. Hins vegar eru rökstudd- ar efasemdir á lofti um heilindi AlÞýðubanda- lagsins. Flestir reikna með Því að öll víðleitni í úrbótátt strandi á Því. Þar eru sem sé hinir einu sönnu „strandkapteinar" í íslenzkum efnahags- málum. Hætt er og viö að AlÞýöubandalagið verði Það sker sem vinstrí-stjórnarsamstarf- ið steytir á, nú sem áður. Það kemur Því úr hörðustu átt Þegar nýbakaöir ritstjórar Þjóð- viljans hengja áunnið sérheiti eigin foringja á aðra. Volvo 244 og Lada Sport söluhæstu bifreiðarnar Alls voru íluttar inn til lands- ins 7.8fi0 bifreiðar frá áramótum til septembcrloka í ár og þar af 394 notaðar bifreiðar. A sama tíma í' fyrra höfðu alls vcrið fluttar til lands 6.187 bifreiðar á sama tíma. Af bifreiðainnflutningnum í ár eru 6.858 nýjar fólksbifreiðar, 295 sendibifreiðar og 327 vörubifreið- ar. Á þessum fyrstu níu mánuðum ársins hefur mest verið flutt inn af Lada-fólksbifreiðum eða samtals 667 bifreiðar en þar er um að ræða fjórar mismunandi gerðir og Lada Sport-jeppinn ekki talinn þar með. Af einstökum gerðum hefur hins vegar verið flutt mest inn af Volvo 244 eða 386 bifreiðar og Lada Sport jeppunum, alls 383. Listi yfir tíu söluhæstu gerðirn- ar fer hér á eftir: Bifreiöar, 1. Volvo 244................... 386 2. Lada Sport ................. 383 3. Ford Fairmont............... 323 4. Lada 2106 .................. 308 5. Toyota Cressida_____________ 281 6. Skoda 120 .................. 232 7. Mazda 929___________________ 188 8. Fiat 125p ................ 169 9.-10. Subaru 1600................. 163 9.-10. Mazda 323 ................. 163 Vatnsþéttur krossviður nýkominn Stæröir: 122x244 cm. Þykktir: 4 — 9 — 12 — 15 og 18 mm. Á mjög hagstæöu veröi. Timburverzlunin VÖlundur hf. KLAPPARSTÍG 1. SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SÍMI 85244 BOSCH þokuluktir Þú hefur meiri yfirsýn yfir veginn meö Bosch þokuluktum. Allir smáhlutir fylgja i einni pakkningu. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 t>að er nóg pláss í MAZDA 323 ffyrlr fJötskylduna Kynniö ykkur, okkar og farangurinn ótrúlega hagstæöa verö frá kr. 3.080.000 . (gengisskr. 18/10) I Nú eru fáanlegar 5 gerðir af MAZDA 323, er hægt að gera betri bílakaup í BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 simar. 81264 og 81299 Sölumannadeild V.R. Kvöldverðarfundur Miövikudaginn 25. okt. n.k. kl. 19.00 verður haldinn deildarfund- ur í Kristalsal Hótel Loftleiöa Snorri Jónsson forseti A.S.Í. flytur framsöguræðu um afstööu A.S.Í. til kjaramálanna eftir setningu bráöabirgöalaga ríkisstjórnarinn- ar. Magnús L. Sveinsson flytur fram- söguræöu um baráttu verzlunar- fólks fyrir nýrri flokkskipan. Sölumenn, mætið vel og stundvíslega. Magnús Allt verzlunarfólk velkomið. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.