Morgunblaðið - 24.10.1978, Síða 18

Morgunblaðið - 24.10.1978, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 Slysavarnafélag fslands: Hvetur til sameigin- legs átaks í um- ferðarslysavörnum Siysavarnaíélaginu voru afhent að gjöf reykköfunartæki. Gefendur eru Klif h.f. í Reykjavík og framleiðendur tækjanna. Fenzy & Cie í Frakkiandi. Á myndinni sést er Svavar Davíðsson framkvæmda- stjóri Klif h.í. afhendir Gunnari Friðrikssyni forseta SVFÍ tækin. SLYSAVARNAFÉLAG íslands átti hálfrar aldar afmæli á þessu ári. Félag- ið var stofnað 29. janúar 1928 og var fyrsti forseti þess Guðmundur Björns- son. Núverandi forseti SVFÍ er Gunnar Friðriks- son. Á fundi með blaða- mönnum nú í vikunni var starfsemi félagsins kynnt. Árbækur SVFÍ og platti Út er komin árbók SVFÍ 1978 sem hefur að ge.vna starfs- skýrslur félagsins frá árinu 1977. Bókin er gefin út í 4.500 eintökum. Auk þessarar árbókar sem jafnframt er afmælisrit félagsins gefur það út heildarút- gáfu árbóka SVFÍ frá byrjun, samtals 41 bók, sem greinir frá starfi og sögu félagsins í 50 ár. Bækurnar eru til sölu hjá öllum deildum félagsins og kostar hvert eintak 20.000 kr. Bækurn- ar eru gefnar út í 400 eintökum. Slysavarnafélagið gefur út veggplatta í tilefni 50 ára afmælisins. Plattinn er fram- leiddur hjá Bing og Gröndal í Kaupmannahöfn og er myndin á honum af björguninni við Látra- bjarg máluð af Eggerti Guð- mundssyni listmálara. Plattinn er gefinn út í 5000 eintökum. Heimildakvikmynd Heimildakvikmynd um sögu og starf félagsins verður tilbóin til sýninga á næstunni. Myndin er eins konar yfirlit yfir starf félagsins í 50 ár. Fyrirtækið Lifandi myndir h.f. annaðist gerð myndarinnar sem er tæpra 50 mínútna löng og er gerð í litum. Umdæmaskipting björgunarsveita SVFÍ I sumar var lokið við að skipta björgunarsveitum SVFI eftir umdæmum en ákvörðun um aö Umdæmaskipting S.V.F.Í. hrinda henni í framkvæmd var tekin á Landsþingi félagsins árið 1976. Meginmarkmið um- dæmaskiptingarinnar er að auka samstarf og þjálfun björgunarsveitarmanna. Fyrir u.þ.b. 12 árum var efnt til samæfingar björgunarsveita við Seyðisárrétt á Kili. Eftir það var efnt til nokkurra samæfinga en ekki reglulega. Það sem af er þessu ári hafa verið haldnar 6 samæfingar auk þess sem ákveðin er samæfing í Borgar- firði nú 4. nóv. n.k. Á samæfing- ar á þessu ári hafa komið samtals um 600 manns en alls eru 2.700 manns félagar í i n c. s, v. i. r. björgunarsveitunum sem eru 87 talsins. Á fundinum með blaða- mönnum kom það fram, að markmiðið er að halda samæf- ingar árlega í hverju umdæmi eða að öðrum kosti að æfingarn- ar nái til björgunarsveita í öllum umdæmum. Til þess að auka fræðslu og þekkingu þeirra sem stunda björgunar- og hjálparstörf eru nú fyrirhuguð umdæmisnáms- skeið fyrir þjáifara og leiðbein- endur björgunarsveita„ Á næst- unni verða haldin tvö námskeið í fjallamennsku, þ.e. klifri og sigi. Verða þessi námskeið haldin í umdæmum 10 og 2. Þá er fyrirhugað leiðbeinendanám- skeiö í slysahjálp og sjúkra- flutningum á næstunni í um- dæmi 1. Miðað er við að öll þessi námskeið séu helgarnámskeið. Samstarf Almanna varna og Slysavarna- félags íslands Almannavarnir og Slysa- varnafélag íslands hafa gert með sér samkomulag um hlut- verk Slysavarnafélags Islands í almannavörnum. Slysavarnafé- lagið og björgunarsveitir þess munu taka að sér ýmis störf í áætlunum Almannavarna svo sem aðstoð við löggæslu, sjúkra- og slysaþjónustu og störf er lúta að björgunar- og ruðningsþjón- ustu á hættu- og neyðartímum. Umferðarmálin Á aðalfundi Slysavarnafé- lagsins í vor var gerð ályktun þar sem hvatt var til sameigin- legs átaks í umferðarslysavörn- um af hálfu allra sem að þeim vinna. I samræmi við þá ályktun hefur verið unnið að ýmsum verkefnum bæði af deildum og stjórn félagsins. Ymsar deildir hafa staðið að fundahaldi þar sem þessi mál hafa verið tekin til meðferðar og einnig reynt að fylgja því eftir að umferðar- fræðsla verði aukin í skólum. Þá standa deildir að ýmiss konar áróðri um umferðarmál í sínum heimabyggðum og ýmsar þeirra hafa dreift endurskinsmerkjum, einkum til barna og gamal- menna. Stjórn SVFÍ og deildir þess eru að undirbúa fundaherferð meðal deilda þar sem umferðar- mál verða aðaldagskrármálið. Mun erindreki félagsins og fulltrúar úr stjórn félagsins mæta á fundinum eftir því sem við verður komið. Einnig mun verða leitað til viðkomandi aðila á stöðunum sjálfum og þeir beðnir að taka þátt í þessum fundum. Fundaherferð þessi hefst nú í vikunni meðal deilda á Norðurlandi. Á vegum félagsdeilda á Stór-Reykjavíkursvæðinu er í undirbúningi sérstök umferðar- vika, líklega um miðjan nóvem- ber, þar sem athygli vegfarenda verður beint að tilteknum atrið- um í umferðinni. Munu félagar í deildum og björgunarsveitum taka þátt í þessu starfi. Tilkynningaskyldan í 10 ár hefur SVFÍ starfrækt tilkynningaskylduna og nú síð- ustu árin hefur hún verið starfrækt allan sólarhringinn frá október til apríl. Á sumrin, hefur hins vegar verið vakt 16 tíma sólarhringsins. Nú eru uppi áform um að næsta ár verði vakt á tilkynningaskyld- unni allan sólarhringinn allt árið um kring. Gjöf til SVFÍ Svavar Davíðsson, fyrir hönd Klifs h.f., hefur fært slysa- varnafélaginu reykköfunartæki að gjöf. Gefendur eru að jöfnu framleiðendur tækjanna, Fenzy & Cie., Montreuil, Frakklandi, og Klif h.f., Vesturgötu 2 í Reykjavík. Með þessum tækjum er hægt að vera í allt að 30 mínútur við björgunarstörf og fylgir þeim lofthylki hlaðið 1200 litrum af andrúmslofti undir 200 kg þrýstingi. Það er skylda að hafa slík tæki um borð í íslenzkum togurum yfir 500 tonn að stærð. Stjórn SVFÍ (f.v.). Hörður Friðbertsson. Baldur Jónsson. Ilaraldur Henrysson. Gunnar Friðriksson, forseti SVFÍ. Ilulda Sigurjónsdóttir. varaforseti SVFÍ og Óskar Þór Karlsson, erindreki SVFÍ. Á borðinu sést heildarútgáfa árbóka ásamt slysavarnafélagsplattanum. 7 4 kennarar útskrif- aðir frá KHÍ í ár 9 KENNARAR með kennaraprófi útskrifuðust frá Kennaraháskóla íslands 14. október s.l.i Ermenga S. Björnsdóttir, Gunnar Páll Jóakimsson. Jón Guðmundsson. Lars II. Andersen, Meyvant Þór- ólfsson. Margrét Björnsdóttir. Sara R. Valdimarsdóttir, Sigurð- ur Albcrt Ármannsson og Þóra Ragnarsdóttir. Kennaraháskóli íslands útskrif- ar kennara tvisvar á ári, í júní og október. 10. júní s.l. útskrifuðust 65 kennarar með kenr.arapróf (B.Ed.) frá skólanum: Anna Einarsdóttir, Anna Jóels- dóttir, Anna Valdimarsdóttir, Ásthildur Kjartansdóttir, Auður Hrólfsdóttir, Birna Sigurjónsdótt- ir, Bryndís Guðmundsdóttir, Edda Antonsdóttir, Edda Eðvaldsdóttir, Eiríkur Hermannsson, Elín Antonsdóttir, Elísabet Karlsdótt- ir, Erla Aradóttir, Erla Skafta- dóttir, Eyrún Baldvinsdóttir, Guð- björg Pálsdóttir, Guðlaug Ólafs- dóttir, Guðleif Unnur Magnúsdótt- ir, Guðmundur H. Helgason, Guð- mundur Þorsteinsson, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Matthías- dóttir, Guðrún Pétursdóttir, Halla J. Andersen, Halldór Óskarsson, Harpa Höskuldsdóttir, Helga María Ólafsdóttir, Herdís Brynjólfsdóttir, Herdís Jónsdóttir, Hildur Árnadóttir, Hrefna Frí- mann, Ingibjörg Daníelsdóttir, Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Jón Baldvin Hannesson, Jón Þor-. varðarson, Kristín Bjarnadóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Kristján Guðjónsson, Laufey Jóhannsdótt- ir, Lilja H. Jónsdóttir, Margrét Samsonardóttir, Margrét Wiium, María Kjeld, Ólöf Guðmundsdótt- ir, Ólöf Jóhannsdóttir, Rúnar Sigþórsson, Sigríður M. Njálsdótt- ir, Sigríður Rafnsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sigríður Sigur- jónsdóttir, Sigrún Hjartardóttir, Sigurborg Sigurðardóttir, Sigurð- ur Ingi Ásgeirsson, Sigurður Brynjúlfsson, Sigurður Pétursson, Sigurlaug Höskuldsdóttir, Soffía Kristjánsdóttir, Steinunn Guð- mundsdóttir, Svanborg Jónsdóttir, Þorbjörg Jóhannsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Þórhildur Albertsdótt- ir, Þórunn Sighvats, Unnsteinn Jónsson, Ögmundur Gunnarsson. KHÍ var stofnaður með lögum frá Alþingi og tók þá við af Kennaraháskóla íslands. Frá KHÍ hefur nú alls útskrifast 161 kennari með B.Ed.-próf, 7 árið 1974, 21 árið 1975, 14 árið 1976, 45 árið 1977 og 74 árið 1978. I KHI eru nú 372 nemendur við almennt kennaranám. Þar af eru 132 á 1. ári, 156 á 2. ári og 84 á 3. ári. Auk þess eru 32 hjúkrunar- fræðingar við kennslunám í hjúkr- unarfræðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.