Morgunblaðið - 24.10.1978, Side 41

Morgunblaðið - 24.10.1978, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 21 ^ umferð Evrópukeppni meistaraliða S Refstad. (Sjá bls 24.) Valsmenn veifa til áhorfenda eftir að hafa tryggt sér rétt til þátttöku í annarri í handknattleik með 14-12 sigri sínum yfir ^Stefán skoraði fyrsta imark íslandsmótsins i Fertugasta íslandsmótið í handknattleik hófst á laugar- daginn. Sigurður Jónsson. for- maður HSI, setti mótið form- lega áður en leikur HK og Víkings hófst en hann var ieikinn að Varmá í Mosfells- sveit, sem verður heimavöllur HK. I setningarræðu sinni óskaði Sigurður Mosfellingum til ham- ingju með hið glæsilega íþrótta- hús og sagði að fleiri byggðarlög mættu fylgja fordæmi þeirra með því að byggja íþróttahús sem hefðu löglega keppnisvelli. Þá þakkaði formaðurinn Ólafi A. Jónssyni, formanni móta- nefndar, það mikla starf sem hann hefði lagt af mörkum með vinnu sinni við niðurröðun leikja í mótinu. Að loknu setningarávarpi Sigurðar hófst leikurinn. Það var Stefán Halldórsson HK, sem skoraði fyrsta mark mótsins. Einar Þorvarðarson markvörð- ur HK varð fyrstur til að verja vítakast. Árni Indriðason, Víkingi fyrstur til að misnota vítakast með því að skjóta í stöngina, og Hilmar Sigurgísla- son varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að verða rekinn af velli fyrstur allra í 2 mín. Sjá nánar um leiki helgarinnar á bls 25. Þr. V Gulldrenginn kalla Svíar Teit Þórðarson, sem fyrstur útlendinga ___X----1____ .i .' IrnnHonimiH f noxcin nnnn or víAtal víA s varð sænskur meistari í knattspyrnu. í næstu opnu er viðtal yið Teit, sem Helgi Daníelsson tók nýlega er hann heimsótti Teit og fjölskyldu. Hér er Teitur ásamt eiginkonu sinni Asdísi Dóru Olafsdóttur. Ljósm. Helgi Daníelsson. Fylkir gegn Valsmönn- um Tveir leikir fara fram í íslandsmótinu í hand- knattleik í kvöld, báðir í Laugardalshöll. Klukkan 20.00 hefst leikur Fylkis og Þróttar í 2. deild kvenna. Síðari leikur kvöldsins, sem hefst upp úr klukkan 21.00, er leik- ur Fylkis og Vals í 1. deild karla. Varla verður sagt, að Fylkir fái létta mót- herja í sínum fyrsta leik í 1. deild, en reikna má með því að Fylkismenn selji sig eins dýrt og þeir komast upp með. | Rochdale vildi Pétur, § en hafði ekki efni á | farinu til Englands FYRIR nokkrum árum var Mike Ferguson þjálfari Skaga- manna. Nú er hann franv kvæmdastjóri hjá Rochdale, sem leikur í 4. deild ensku knattspyrnunnar. Þar hefur Ferguson vcrið í eitt ár og hann hefur þann vafasama heiður að stjórna liðinu, sem nær allan þann tíma hefur verið neðst í deildinni. Liðinu, sem virðist dæmt til að vera númer 92, en 92 lið leika í deildunum fjórum. Að vísu tókst liði hans að komast upp í 91. sæti á timabili í fyrra, en það stóð aðeins í 2 vikur. I viðtali við enska blaðið Sunday People segir Ferguson frá ýmsu í starfi sínu sem framkvæmdastjóri. Meðal ann- ars greinir hann frá fjárhags- erfiðleikum félagsins. Þar segir m.a.: „Ferguson var þjálfari á íslandi fyrir tveimur árum og þar uppgötvaði hann og fóstr- aði ungan pilt, sem heitir Pétur Pétursson. Hann reyndi að fá hann til Rochdale. — Strákur- inn vildi koma og það eina sem þetta hefði kostað okkur var flugfarið, 146 pund (um 90 þúsund krónur). En félagið hafði ekki efni á að leggja út fyrir flugfarinu. Þannig fór um þann draum okkar. Viku síðar, eftir að Pétur hafði átt stórleik fyrir ísland á móti A-Þýzkalandi, var hann kominn á mála hjá hollenska stórliðinu Feyenoord. — Hann Gerplaí nýjum sal (þróttafélagið Gerpla í Kópavogi tók um helgina í notkun nýjan íþróttasal á Skemmuvegi 6 í Kópavogi. Salurinn sem áður var vélaverkstæði er 32,4 metrar á lengd og 19 metrar á breidd. Lofthæð er 6.60 metrar. Tómas Guðmundsson formaður félagsins stýrði framkvæmd verksins, en allt var það unnið í sjálfboðavinnu. Margir félagar unnu yfir 100 tíma í sumar og haust og nokkrir yfir 200 tíma. íþróttahús Gerplu var tekið til bráðabirgðanotkunar 1. október síðastliðinn og er húsið nú notað 4 95 klst. í viku hverri. Kópavogsbær nýtir húsið til leikfimikennslu frá kl. 8.00 á morgnana til klukkan 16.00 á daginn. Eftir það eru hinar ýmsu deildir Gerplu í salnum. júdódeild, fimleikadeild, borðtennisdeild og badmintondeild. Sá innréttingarkostnaður sem þegar hefur verið greiddur nemur 16 milljónum. þar af nema framlög félagsmanna 5 milljónum. lánsfé frá bönkum 8,5 milljónum og peningar úr rekstri félagsins 2,5 milljónum. Þessar fjárupphæðir hefðu líklega verið margfaldar ef orðið hefði að ÆíinKar á (jaðurbretti sýndar við opnun hins nýja iþróttasalar Gerplu í Kópavogi. Ljósm. Mbl« — srg. á eftir að verða knattspyrnu- maður Evrópu innan nokkurra ára — og hann gat orðið okkar, segir Ferguson." Þanmg segir í Sunday People, en greininni lýkur svo á því að sagt er að stjórn félagsins hafi ákveðið nýlega að veita framkvæmdastjóranum 10 þúsund pund til kaupa á nýjum leikmanni. Ferguson gerði tilboð í Bryan Hamilton, írskan landsliðsmann hjá Mill- wall, en ekkert varð af samn- ingum. Þá ræddi Ferguson við Bobby Charlton og fór fram á að kappinn kunni léki nokkra leiki með Rochdale til að laða áhorfendur að leikjum liðsins. Því var einnig hafnað. Samt sem áður var Ferguson ánægð- ur. — I nokkra daga var ég eins og raunverulegur fram- kvæmdastjóri, segir hann í viðtalinu. Þess má geta að Pétur Pétursson sagði í spjalli við Mbl. á sunnudaginn, að hann hefði meiðst á annarri æfingu sinni hjá Feyenoord, og ekkert æft síðan. En hann væri nú óðum að ná sér og byggist við að geta hafið æfingar að nýju í þessari viku. Pétur kvaðst kunna vel við sig hjá Feyenoord og sér heyrðist á mönnum að hann fengi tækifæri til að leika með aðalliði Fe.venoord strax og hann væri kominn í góða æfingu. SS/áij.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.