Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 45

Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24, OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 25 • Þorbjörn Guðmundsson brýzt hér í gegnum vörn Refstad ox skorar eitt fimm marka sinna í leiknum á sunnudag. Leikmenn Refstad léku í Vaisbúningum þar sem þeir höfðu tapað töskunni mcð búningum sinum á leiðinni til íslands. Ljósm. RAX. Stórgóö markvarzla Óla Ben kom Val áfram VALSMÖNNUM tókst að leggja Refstad að veili í Laugardalshöllinni á sunnudag, 14 — 12, og tryggja sér þar með rétt til að taka þátt í annarri umferð Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik. Er þetta í þriðja sinn sem Valur kemst áfram í aðra umferð. Leikur Vals og norska liðsins Refstad á sunnudag var skemmtilegur á að horfa, þó sérstaklega síðari hálfleikur, og ekki vantaði spennuna í lok leiksins er Norðmönnunum tókst að minnka muninn niður í tvö mörk á lokamínútunni. Var mikil stemmning á áhorfendapöllunum og var Valsmönnum ákaft fagnað er sigurinn var í höfn. Það var fyrst og fremst frábær markvarsla Ólafs Benediktssonar sem tryggði Val áframhaldandi þátttöku í keppninni. Ólafur sýndi að hann hefur engu gleymt, og hvað eftir annað varði hann stórvel. Fékk hann t.d. aðeins á sig þrjú mörk allan fyrri hálfleikinn. Ekki má samt gleyma því, að hann hafði sterka vörn fyrir framan sig, en varnarleikurinn og markvarslan voru aðall Valsliðs- ins í þessum leik. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir leik- menn Vals, hversu sóknarleikur liðsins er sveiflukenndur og hversu mörg marktækifæri mis- notast. Vítaköst, hraðaupphlaup og upplögð tækifæri af línu fóru forgörðum. Refstad er ekki sterk- ara lið en það, að Val hefði ekki átt að vera skotaskuld úr að sigra það með fimm til átta marka mun. Það var Bjarni Guðmundsson sem opnaði leikinn fyrir Val með því að skora laglega eftir hraða- upphiaup á 4. mín. leiksins. Trond Ingebrittsen, eini norski leik- maðurinn sem einhver ógnun virtist stafa af, jafnaði með þrumuskoti eftir uppstökk. Tölu- verður hraði var í leiknum til að byrja með hjá báðum liðum. Um miðján fyrri hálfleikinn hafði Valsmönnum tekist að ná 4ra marka forystu í leiknum og áttu þeir nafnar Þorbjörn Guðmunds- son og Jensson mestan þátt í því. Á sama tíma lék Valsvörnin vel og Óli Ben. varði eins og berserkur. Á 20. mínútu fyrri hálfleiks skorar svo Jón Karlsson með lausu skoti milli fóta norska markvarðarins, og áttu nú flestir von á að Refstad yrði nú kafsiglt, en svo fór ekki. Síðustu 10 mínútur hálfleiksins skoruðu Valsmenn ekki eitt ein- asta mark. Sóknarleikur þeirra varð ráðleysislegur og ekkert gekk. Hilmar þjálfari hefur eflaust talað vel við sína menn í hálfleik, því að þeir voru mjög sprækir framan af síðari hálfleiknum og léku þá vel, var það besti kafli Vals í leiknum, hröð upphlaup tókust vél, laglegar línusendingar sáust og falleg langskot utan af velli. Þegar síðari hálfleikur var hálfn- aður var staðan 13—7 og öruggur sigur virtist í höfn. En þá hljóp allt í baklás hjá Val. Þeir hættu að sækja og láta boltann ganga á milli. í stað þess var reynt að hnoðast inn í vörnina og það gekk að sjálfsögðu ekki. Leikmenn Refstad gengu á lagið og þegar fimm mínútur eru eftir af leiknum er staðan 13—10. Upp- hófst nú mikill darraðardans síðustu fimm mínútur leiksins. Stefáni tókst að skora 14. mark Vals en Refstad bætti tveimur við og síðustu 30 sek. léku þeir maður á mann. En þeir byrjuðu sprettinn of seint, Valssigur var í höfn, naumlega þó. Lið Vals lék þennan leik vel á köflum en þess á milli datt það niður í algera meðalmennsku. Bestu menn Vals í þessum leik voru Ólafur markvörður og nafn- arnir Þorbjörn Guðmundsson og Þorbjörn Jensson, þeir voru sem klettar í vörninni og stórhættuleg- ir í sóknarleiknum. Mörk Þor- björns Guðmundssonar voru mörg stórfalleg. Lið Refstad olli vonbrigðum, allur leikur þeirra var mjög einhæfur og lítið um gegnumbrot, og aðeins einn maður gat ógnað verulega með langskotum. Besti maður liðsins var markvörðurinn Tom Janssen, varði hann mjög vel og var Valsmönnum erfiður ljár í þúfu. Mörk Valsi Þorbjörn Guðmunds- son 5, Þorbjörn Jensson 3, Stefán Gunnarsson 2, Jón Pétur Jónsson 2, Bjarni Guðmundsson 1, Jón Karlsson 1. Mörk Refstadi Ulf Magnussen 4, Trond Ingebrittsen 4, Terje Halle 2, Jörn Ormaasen 2, Vísað af leikvellii Rune Sterner í 2 mín., Þorbirni Jenssyni í 4 mín., Steindóri Gunnarssyni í 2 mín. Misnotuð vítakösti Jón Karlsson skaut í stöng á 22. mín. og lét verja hjá sér á 40. mín. Þorbjörn Guðmundsson lét verja hjá sér vít.i á 26. mín. Sagt eftir leikinni Hilmar Björnsson, þjálfari Valsi Taugarnar gáfu sig í lokin hjá mínum mönnum. Það er óskiljan- legt hve mikið af góðum tækifær- um fer forgörðum. Það eru til þrjú lið á íslandi sem eru betri en þetta norska lið. Stefán Gunnarsson, fyrirliði Valsi — Ég er ánægður með að komast í aðra umferð. En ekki nægilega ánægður með þennan leik. Það var markvarsla Óla Ben. og varnar- leikurinn sem kom okkur áfram. Harald Tyrdal, þjálfari Refstadi — Við erum vonsviknir. Við vorum seinir í gang og það kostaði okkur sigur í leiknum. Það er alltaf jafn gott að leika á íslandi. Góð stemmning. Þr. Nýlióarnir bitu vel frá sér í sínum fyrsta leik NÝLIÐARNIR í 1. deild. HK. hlutu eldskírn sína í deildinni í fyrsta leik mótsins er þeir léku á móti Víkingi. Ekki var að sjá að þeir bæru mikla virðingu fyrir mótherjum sínum heldur þvert á móti voru þeir teknir íöstum tökum og framan af fyrri hálfleiknum leiddi HK leikinn. Leikur IIK og Víkings var allharður. en ekki að sama skapi vel leikinn. Fjórum leikmönnum var vísað af leikvelli og þjálfara HK var vísað út úr húsinu fyrir Ijótt orðbragð við dómara leiksins. Víkingar báru sigurorð af HK í leiknum eins og við var búist, skoruðu 25 mörk gegn 20. Staðan í leikhléi var 11—9 Víkingi í vil. Mikill hraði var í leik liðanna og réðu þau á köflum illa við hann og urðu sendingar þá oft ónákvæmar og upphlaup fóru forgörðum. Sérstaklega á þetta við um HK. Með meiri yfirvegun í leik sínum hefðu þeir getað náð lengra. Ljóst er að það verður enginn leikur fyrir liðin í 1. deild að sækja HK heim. Nú þegar hefur nafnið ljónagryfjan heyrst nefnt um heimavöll þeirra að Varmá. Og dyggilega er stutt við bakið á þeim af áhangendum þeirra með miklum hrópum og köllum. Um 300 áhorfendur voru á leiknum á laugardag og flestir á bandi HK. Lið HK tók forystuna í leiknum á laugardag með marki Stefáns Halldórssonar og var það jafn- framt fyrsta mark Islandsmótsins í ár. Stökk Stefán hátt upp fyrir framan vörn Víkings og skoraði laglega í hornið niðri hjá Kristjáni markverði Víkings. Það var ekki fyrr en á 14. mínútu fyrri hálfleiks sem Víkingum tókst að jafna 4—4, það sem eftir var fyrri hálfleiks var staðan jöfn, en rétt í lokin tókst Víkingum að síga fram úr með tveimur mörkum og höfðu því tveggja marka forystu í leikhléi. Töluverð harka var í fyrri hálf- leiknum og á stundum var um óþarfa hrindingar og brot að ræða. I byrjun síðari hálfleiksins kom strax í ljós leikreynsla og raun- veruleg geta Víkinganna þrátt fyrir að þeir næðu sér aldrei verulega á strik, höfðu þeir alltaf undirtökin og sigur þeirra var aldrei í neinni hættu. Þeirra beitta vopn voru hraðaupphlaupin sem oft tókust vel. Um miðjan síðari hálfleik höfðu þeir náð fimm marka forustu og héldu henni út leikinn. Besti maður Víkings í þessum leik var Skarphéðinn Óskarsson sem barðist mjög vel í vörninni og gerði engar vitleysur í sóknar- leiknum, þá voru þeir Páll og Árni traustir að vanda og létu mikinn hamagang lítil áhrif hafá á sig. Viggó Sigurðsson varð fyrir því óhappi að nefbrotna í fyrri hálf- leik og gat því lítið leikið með í síðari hálfleiknum. Lið HK kom ágætlega frá leiknum, þeir leika léttan og frísklegan handknattleik, en skortir auðsjáanlega meiri leik- reynslu. Hættu þeir sér út í of mikinn hraða og reyndu of oft ótímabær skot sem gáfu Víkingum kost á hraðaupphlaupum. Lið þeirra var frekar jafnt í þessum leik, þó var Hilmar Sigurgíslason áberandi fyrir dugn- að í leiknum og skoraði hann einnig falleg mörk. Þá er Einar Þorvarðarson ath.vglisverður markvörður, hann varði vel í fyrri hálfleiknum en datt svo niður er líða tók á leikinn. HK-menn mega vel við una eftir þennan fyrsta leik sinn, þeir eiga vafalaust eftir að spjara sig vel í vetur í deildinni. ISTUTTU MÁLI. ístandsmótid 1. deild. íþróttahúsið Varmá. Mosiellssveit. 21. október. HK — VíkinKUr. 20.25(9.11), Mörk HK. Björn Blöndal 5. Stefán Halldórsson 4. Hilmar Siiturifíslason 4. Raifnar Ólafsson 4, Kristinn Ólafsson 2. Karl Jóhannsson 1. Mörk Víkings. Sigurður Gunnarsson 5. Páll Björuvinsson 4. Vitfgó Siifurðsson 3. Árni Indriðason 3. Erlendur Hermannsson 3. Ólafur Jónsson 3. Skarphéðinn Óskarsson 2. Steinar Birifisson 2. Brottvísanir af veili. Björn Blöndal HK í 2 mín.. Hilmar Sigurifislason HK í 2 mín., Skarphéðinn óskarsson Vikinifi 2 mín. ok Steinar BirKÍsson VfkinKi í 2 mín. Misheppnuð vítaköst. Árni Indriðason skaut í þverslá á 3. mínútu. Kristján SÍKmundsson varði vitakast frá RaKnari Ólafssyni á 1. mínútu. ok Einar Þorvarðar son varði vítakast frá Gunnari Gunnarssyni á 00. mínútu. Dómarar. Valur Benediktsson ok Kristján Örn InKÍberKsson. Dæmdu þeir leikinn þokkaleKa. en þó brá fyrir ónákvæmni. sérstakleKa í síðari hálfleiknum. ÞR. Björn Blöndal sendir boltann yfir vörn Víkings í leiknum. Ólafur Jónsson og Steinar Birgisson eru til trnar. Ljósm. RAX. - Stórsiaur Sæmundur Stefánsson. FH, hindrar Arsæl Ilafsteinsson, iR. sem kominn er í dauðafæri á línunni. FH-INGAR unnu yfirburðasigur yfir ÍR í 1. deild karla í Hafnarfirði á laugardaginn, 20:12. Ekki var sigur FH jafn sannfærandi og tölurnar gefa til kynna, pví á síðustu sex mínútum leiksins skoraði FH 6 mörk gegn einu og breytti stöðunni úr 14:11 í 20:12. En pað fór ekki milli mála að FH-íngar voru betra liðið í pessum heldur slaka leik. Framan af fyrri hálfleik virtisf stefna í stórsigur FH því eftir 24 mínútur var staðan oröin 7:2 FH í hag. En þá komust ÍR-ingar í gang og breyttu stöðunni í 7:5 og síðan 8:7 en í hálfleik var staðan 9f7 FH í vil. Seinni hálfleikurinn var ákaflega slakur og gekk liöunum mjög illa aö skora. Undir lokin teystist leikurinn upp í hreina leikleysu og FH-ingarnir skoruðu hvert markið eftir annað á mjög svo ódýran hátt og tryggöu sér þannig yfirburðastöðu. Bæði FH og !r tefla fram breyttum tiðum frá í fyrra. í FH-liðið vantar nú Þórarinnn Ragnarsson, sem er hættur, Janus Guðlaugsson sem óvíst hvort leikur með FH í vetur, Júíus Pálsson, sem genginn er í Hauka og einnig vantaði Viðar Símonarson að þessu sinni. FH tefldi nú fram þeim bræðrum Sæmundi og Gils sterka Stefánsson- um og en þeir voru lítið með í fyrra og að auki þremur nýliðum. FH er því óskrifað blað enn sem komið er. Miðað við frammistöðuna í þessum leik má ekki búast við of miklu af liðinu í vetur en FH-ingar eru frægir fyrir seiglu og margt óvæntara gæti gerst en það að FH blandaði sér enn einu sinni í toppbaráttuna. í þessum leik var Magnús Ólafsson mark- vörður og nýjasti brandarakarl sjón- varpsins í sérflokki. Hann varði eins og berserkur allan leikinn. Þeir Sæmundur og Guðmundur Magnús- son áttu einnig góöan leik en af nýliðunum kom Kristjan Arason bezt út. Óvenjulítið bar á Geir Hallsteins- syni að þessu sinni. Að öllu óbreyttu bíður fallbarátta liðs ÍR. Nokkrir af máttarstópum liðsins í gegnum árin eru ekki lengur með, svo sem Ásgeir Elíasson, Vilhjálmur Sigurgeirsson og Sigurður Svavarsson, en hann mun væntan- lega verða með seinna í vetur. Skyttuleysi háir mjög ÍR-ingum og spil þeirra er einnig og einhæft. Bezti maður liðsins var Jens Einarsson markvörður, en hann á sjaldan slaka leiki. Bræöurnir Gunnar og Bjarni Gunnarssynir dæmdu og í heildina sluppu þeir allvel frá leiknun. í STUTTU MÁLI. Islandsmótið 1. dcild íþróttahúsið Haínarfirði 21. októhor, FH— ÍR 20.12 (9.7). Mörk FII. Kristján Arason 5 (1 v). Geir Hallsteinsson 5 (3 v). Guðmundur Maxnús- son 3. Sæmundur Stefánsson 3. Ilans Guðmundsson 2. Guðmundur Árni Stefáns- son 1 ok Ilafsteinn Sv. Pétursson 1 mark. Mörk ÍR. Guðjón Marteinsson 5, Ársæll Hafsteinsson 2. Brynjólfur Markússon 2 (2 v), Guðmundur Þórðarson 1. Jóhann InKÍ Gunnarsson 1 ok Bjarni Hákonarson 1 mark. Misheppnuð vítaköst. Sverrir Kristins- sson varði víti Brynjólfs Markússonar í f.h. ok Bjarni Hákonarson skaut í stönK úr vítakasti í s.h. Jens Einarsson varði vi'ti Geirs Hallsteinssonar í s.h. Brottrekstur af velli. Guðmundur Árni. Gils Stefánsson. ValKarður VaÍKarðsson. allir FII. ok Bjarni llákonarson. ÍR. reknir útaf í 2 mínútur hver. — SS. • Hörður Harðarson átti mestan þátt í sigri Ilauka gcgn Fram. Hér lyftir hann sér glæsilega yfir vörn Fram og skorar eitt af 9 mörkum sínum í leiknum. Mvnd. Emilía. Sóknarhandbolti í algleymingi - SÓKNARLEGA séð var þessi leikur stórskemmtilegur á að horfa, bæði liðin beittu skemmti- legum sóknarfléttum og mörg gullfalleg mörk voru skoruð. Hins vegar var varnarleikurinn ekki eins góður né heldur mark- varslan. — Þetta hafði landsliðs- þjálfarinn Jóhann Ingi Gunnars- son að segja um leik Fram og Hauka í Laugardalshöllinni á laugardaginn, en þar sigruðu Haukar Reykjavíkurliðið með 26—25 í hörkufjörugum og oft hörðum leik. Staðan í hálfleik var 14—13 Haukum í vil. Framan af skiptust liðin á um forystuna, en aldrei skildu þau að fleiri mörk en þrjú, en þá stóð 11—8 og 12—9 fyrir Hauka. Það stefndi allt í tveggja marka forystu í leikhléi, Haukum í hag, en Sigurbergi tókst að minnka muninn í eitt mark með stórkost- legu marki úr horninu. Framarar jöfnuðu strax í síðari hálfleik og var síðan jafnræði allt upp í 17—17, en þá skoruðu Haukar þrjú mörk í röð og gerðu út um leikinn. Framarar slepptu Haukum þó ekki lengra frá sér og á síðustu 2 mínútunum skoruðu þeir tvívegis, þannig að Haukar stóðu uppi sigurvegarar með einu marki. Eins og markatalan gefur til kynna, var varnarleikur ekki í hávegum hafður í leik þessum og ef á heildina er litið var mark- varslan einnig slök. Þó áttu markverðirnir einnig sín augna- blik. Hjá Haukum vakti nýi maðurinn, Hörður Harðarson, verðskuldaða athygli fyrir kraft sinn í sókninni. Skoraði Hörður 9 mörk á hinn fjölbreytilegasta hátt, mörg með glæsilegum bombuskot- um. Frekar lítið bar á nafna hans, Herði Sigmarssyni, en hann var þó að vanda drjúgur að skora. Þá voru Andrés og Árni Hermanns- son atkvæðamiklir á köflum. Hjá Fram byrjaði Atli nokkur Hilmarsson á því að skora hvert markið öðru glæsilegra með upp- stökkum og þrumuskotum. Er leið á, gerðist hann frekar óheppinn í skotum sínum, en eigi að síður er þar á ferðinni leikmaður sem tilvonandi mótherjar Framara gerðu vel að fylgjast náið með. Gústaf Björnsson, Birgir Jóhannesson og Sigurbergur Sig- steinsson glöddu einnig augað með mörgum fallegum mörkum, sér- staklega einu sem Birgir skoraði í síðari hálfleik, átjánda mark Framara, þegar hann skoraði úr hægra horninu. Markinu er ekki hægt að lýsa og því verður það látið ógert. f STUTTU MÁLI. Laugardalshölh 1. deild 21. október, Fram — Haukar 25-26 (13-14). Brottrekstrar af leikvelli* Gústaf Björns- son, Fram, 2x2 mín. og Árni Sverrisson og Júlíus Pálsson, Haukum, Pétur Jóhannsson og Kristján Unnarsson Fram, 2 mínútur hver. Misnotuö vítakösti Einar Birgisson varöi víti Harðar Haröarsonar. Mörk Fram> Gústaf Björnsson 8 (4 víti), Atli 7, Birgir 4, Sigurbergur og Pétur 2 hver, Erlendur og Kristján eitt hvor. Mörk Haukai Höröur Haröason 9 (2 víti). HörÖur Sigmarsson 6 (2 víti) Árni Her mannsson og Andrés Kristjánsson 4 hvor, Þórir, SigurÖur og Árni Sverrisson eitt hver. — gg I Emkunnagiotln s HK: Einar Þorvaröarson 3, Vignir Baldursson 1, Kristínn Óiafsson 2, Gissur Kristinsson 1, Hilmar Sigurgíslason 3, Karl Jóhannsson 1, Ragnar Óiafsson 2, Erling Sigurösson 1, Stefán Halldórsson 2, Björn Blöndal 2, Friðjón Jónsson 1, Kolbeinn Andrésson 2. VÍKINGUR: Kristján Sigmundsson 2, Magnús Guðfinnsson 1, Steinar Birgisson 2, Ólafur Jónsson 2, Skarphéðinn Óskarsson 3, Sigurður Gunnarsson 2, Póll Björgvinsson 3, Erlendur Hermannsson 2, Árni Indriöason 3, Viggó Sigurðsson 2, Gunnar Gunnarsson 1, Eggert Guömundsson 1. FH: Sverrir Kristinsson 1, Gils Stefánsson 2, Sæmundur Stefánsson 3, Valgaróur Valgarðsson 1, Hafsteinn Sv. Pétursson 1, Guómundúr Árni 2, Kristján Arason 2, Tómas Erling Hansson 1, Hans Guðmundsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Guðmundur Magnússon 3, Magnús Ólafsson 4. ÍR: Jens Einarsson 3, Bjarni Hákonarson 2, Sigurður Gíslason 2, Ólafur Tómasson 2, Steinn Öfjörð 1, Guðmundur Þóróarson 1, Bjarni Bessason 1, Ársæll Hafsteinsson 2, Jóhann Ingi Gunnarsson 1, Guðjón Marteinsson 2, Ingimundur Guðmundsson 1. FRAM: Gissur Ágústsson 2, Einar Birgisson 1, Birgir Jóhannesson 3, Björn Eiríksson 1, Theodór Guðfinnsson 1, Hjörtur Þorgilsson 1, Gústaf Björnsson 3, Sigurbergur Sigsteinsson 3, Pétur Jóhannesson 2, Atli Hilmarsson 3, Erlendur Davíösson 2, Kristjén Unnarsson 2. HAUKAR: Gunnlaugur Gunnlaugsson 2, Ólafur Guójónsson 2, Ingimar Haraldsson 1, Hörður Harðarson 4, Hörður Sigmarsson 3,Árni Hermannsson 3, Þðrir Gíslason 1, Siguróur Aðalsteinsson 2, Pálmi Jónsson 1, Andrés Kristjánsson 3, Júlíus Pálsson 1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.