Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 37

Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 45 ^ - VELVAKANDi SVARAR Í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRA MÁNUDEGI TtMUManx-aa'u* einkum kvikmyndina Network, sem nú er sýnd í Tónabíói, höfðu forráðamenn Tónabíós samband við Velvakanda og óskuðu eftir að koma á framfæri þessum línum: „Eins og flestum bíógestum mun kunnugt hefur Loftur Guðmunds- son rithöfundur, sem nú er nýlát- inn, séð um þýðingar á skýringar- textum fyrir Tónabíó og þar á meðal þýddi hann textann í kvikmyndinni Network. Loftur annaðist allt sitt starf af mikilli smekkvísi eins og alkunna er. Einhver huldumaður sem felur sig á bak við bókstafinn „K“ telur sig bera betra skyn á þessa hluti, en meðan hann segir ekki til nafns leyfist manni að efast um dóm- greind hans.“ • Rafbílar á íslandi? „Fyrir nokkru var fjallað í viðtali við Gísla Jónsson prófessor um rafbíla og taldi hann þá eiga mikla framtíð fyrir sér, ekki sízt hér á landi þar sem nóg væri raforkan, en helzt ætti eftir að kanna hvers konar bílar myndu henta við okkar aðstæður. Það sem kemur mér til að rita nokkrar línur er ekki annað en að hvetja menn til að gefa þessum rafbílum gaum, því áreiðanlega er á ferðinni stórkostlega hagkvæmt málefni og það sparaði ómældar upphæðir í framtíðinni ef hægt væri að knýja bíla með innlendri orku, en ekki verja dýrmætum gjaldeyri til þessara orkukaupa. Það sem gera þarf er að opna augu almennings og ráðamanna fyrir þessum hlutum og það er Gísli einmitt að reyna að gera og hefur honum án efa orðið nokkuð ágengt. Með þessum línum vil ég hvetja hann og aðra sem vit hafa á þessum málum að halda áfram baráttunni og hvetja fleiri til þess að blanda sér í hana. Sjálfsagt kemur það eirinig í hlut bílaum- boðanna að gefa málum þessum gaum, og ættu þau að líta vel í kringum sig hvort ekki sé eitthvað fréttnæmt að gerast erlendis, þ.e. hjá viðkomandi fyrirtækjum, sem við gætum haft not af. Þessir hringdu . . . • Bjórskvaldur Sveinn Sveinssom „Mér stórleiðist þetta sífellda bjórstagl. Ætlast máske íslenzk yfirvöld til þess að íslenzka þjóðin drukkni í sterkum vínum? Ef svo er ekki, því þá ekki að leyfa sterka bjórsölu? Því má ekki þjóðin sjálf ráða því? Hver getur komið í veg fyrir það? Þið sem ráðið þessum ákvörðunum, ég skora á ykkur að láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu úm þetta mál, og það strax. Eilíft þref um þetta sem annað er frámunalega leiðinlegt. Látið ekki reka, en ganga öll þýðingarmikil mál þjóðar vorrar. Hendið allri pólitík út í hafsauga, þá mun greiðar ganga með hin nytsömu störf.“ Svo heldur Sveinn áfram: • Söluturninn á Torginu „Enn einu sinni ætla ég að vækja máls á stöðu gamla turnsins á Torginu. Ég lagði persónulega spurningu fyrir fyrrverandi borgarstjóra og hann svaraði að staða turnsins yrði varanleg. Þá SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Lone Pine í Kaliforníu í apríl kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Lombardys, Bandaríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Westerinens. Finnlandi. 27. RI5! — Kh8 (Eftir 27. ... gxf5 28. Bxf5 er svartur óverjandi mát og sama er uppi á teningnum eftir 27. ... Dc7 28. Hf4! T.d. 28. ... Dxe5 29. Dxh7+! — Kxh7 30. Hh4+ - Kg8 31. Re7 mát) 28. Hf4! og svartur gafst upp. Hann á ekkert svar við hótuninni 29. Hh4. var ekki farið að kjósa til borgar- stjórnar. Ég hef sérstaklega mælt með tveimur stöðum, annar er þar sem hann stóð síðast, við Kalkofnsveg og Hverfisgötu, hinn er á horninu þar sem Bankastræti mætir Lækjargötu. Þar virðist hann ekki vera til neinnar hindr- unar. Ég hef bent á atkvæða- greiðslu borgarbúa um málið, því ég hefi heyrt á öllum Reykvíking- um, sem ég hefi átt tal við um þetta mál, og þeir eru hreint ekki svo fáir, að þeir eru allir óánægðir með stöðu turnsins eins og hún er nú. Nú skora ég á háttvirtan nýkjörinn borgarstjóra og nýskip- aða borgarstjórn að þeir taki sér göngu upp að Bernhöftstorfunni og niður Bankastræti og athugi gaumgæfilega stöðu turnsins. Ég býst við að við Reykvíkingar gerðum okkur ánægða með álykt- un þeirra eftir þá göngu, og munum hlíta úrskurði meirihluta þeirra, hver svo sem hún verður.“ HÖGNI HREKKVÍSI v'HM,HA, HoóNI.1 ... PettA ££ LHí.Eó/ISTH tMTT TU-/,; WARISUÁ FfKLAKD GLÆSILEG SÝNING ÍÁG HÚSINU, ÁRTÚNSHÖFÐA Skodió nýjungar innlendra framleióenda: hítsgögn, ciklœói og innréttingar. Opid virka daga kl. n — 22 Laugardaga og sunniuiaga kl. 14—22 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AKiI.VSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.