Morgunblaðið - 24.10.1978, Side 38

Morgunblaðið - 24.10.1978, Side 38
46 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 Þetta gerðist Reka áróður út á sigur Karpovs Moskvu, Hong: Konjí, 23. okt. AP. SIGUR Anatoly Karpovs í einvíginu um heimsmeistara- titilinn í skák var hvalreki á fjörur áróðursmeistara kommúnistaflokks Sovétríkj- anna. Eru þeir þegar farnir að færa sér í nyt sigur Karpovs. Þannig hafa fjölmargar greinar um Karpov birst í blöðum í Sovétríkjunum og gerði Pravda t.d. mikið úr skeytum milli Karpovs og Leonid Brezhnevs á forsíðu. I skeyti þakkaði Karpov Brezhnev persónulega fyrir árangur sinn í einvíginu. Tass-fréttastofan hefur gert mikið úr afreki Karpovs og í sovéska sjónvarpinu var sýnd 45 mínútna kvikmynd um ævi skákmannsins þegar úrslitin í einvíginu voru kunn. Þar var fjallað um Karpov ýmist sem skákmann, listamann, vísinda- mann, læriföður, verkamann í þágu þjóðarinnar eða sendi- herra. Viktor Korchnoi kom í gær til Hong Kong frá Filippseyjum og teflir hann í dag fjöltefli við skákmenn Hong Kong. Búist er við því að bæði Karpov og Korchnoi komi til Ólympíuskákmótsins í Buenos Aires í Argentínu, en þó er reiknað með að hvorugur þeirra tefli, þar sem svo skammt er liðið frá einvígi þeirra um heimsmeistaratitilinn í skák. Akureyri 4 1 1» f Ameterdam 13 rigning Apena 18 heiðskírt Barcelona vantar Berlín 11 skýjað Brussel 13 skýjað Chicago 23 rigning Frankfurt 11 rigning Genf 9 poka Helsinki 3 heiðskírt Jerúsalem 29 heiðskírt Jóhanneaarb. 23 léttskýjaö Kaupmannah. 7 skýjað Lissabon 24 léttskýjaö London 17 léttskýjað Loa Angeles 24 heiðskírt Madrid 21 heiðskírt Malaga 21léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Miami 27 skýjað Moskva 5 heiðskírt New York 24 skýjaö Ósló 5 skýjað París 15 skýjað Reykjavík 4 snjóél Rio De Janeiro 28 léttskýjað Rómaborg 14 heiðskírt Stokkhólmur 6 skýjað Tel Aviv 29 skýjaö Tókýó 21 heíðskírt Vancouver 12 skýjað Vinarborg 10 skýjað Castro sendir f anga til Miami Ilavana. 23. október. AP. Fyrsti hópur pólitískra fanga sem heíur fengið að fara frá Kúbu til Bandarikjanna kom til Miami með fiugvél um helgina. í hópnum voru 46 fangar og 25 skyidmenni þeirra. Aðeins ein- staklingar hafa fengið að fara frá fangelsum á Kúbu til Banda- rikjanna til þessa. Castro skýrði frá þeirri ákvörð- un sinni að sleppa föngunum í ágúst og gaf í skyn að fleirum yrði sleppt síðar. Pólitískir fangar á Kúbu eru á bilinu 1.000 til 3.000. Einhliða ákvörðun Castros er túlkuð sem tilraun til að bæta stirð samskipti Kúbu og fjöl- mennrar nýlendu kúbanskra út- laga á Suður-Florida. Kafloðinn Kínver ji Peking, 23. október. Reuter. GU CHEN-HUAN hlýtur að vera loðnasta barn Kína. því þó að hann sé ekki nema eins árs er líkami hans, að undanteknum nefhroddinum, iófum og iljum, þakinn hárum. A herðum barns- ins er t.d. sjö sentimetra langt hár. Gu er sonur smábónda í Liaon- ing og er sagður mjög heilbrigður og lífsglaður. Hefur kvikmynd verið gerð um drenginn. Fréttastofan Nýja-Kína sagði í dag að loðið barn hefði fæðst í sömu sveit fyrir menningarbylt- inguna, en afi þess hefði orðið því að bana þar sem hann hafi haldið það vera draug. Fiskveidideila EBE: Bretar virða dómsúrskurð dómstóllinn dæmdi Ðretum í óhag í máli Efnahagsbandalags- ins gegn Bretum. Silkin sagði að ef dómstóllinn dæmdi aðgerðir Breta í fiskveiði- málum ólöglegar, þá myndu Bret- ar virða þann úrskurð. En hann var bjartsýnn á niðurstöður og sagði að Bretar berðust fyrir góðum málstað, því að gripið hefði verið til aðgerðanna í verndunar- skyni en ekki af pólitískum ástæðum. Silkin sagði að aðgerð- irnar hefðu komið verst við brezkan sjávarútveg. Breski sjávarútvegsráðherrann sagði að Bretar væru enn sem fyrr viljugir til viðræðna um veiðikvóta fyrir lönd Efnahagsbandalagsins við Bretlandsstrendur. En hann sagði að eina lausn fiskveiðideilu bandalagsins væru frekari vernd- unaraðgerðir og einkaréttur Breta til veiða allt að 12 mílum frá ströndum Bretlands. Stjómin tap- aði í Aþenu Aþenu. 23. október. AP. Reuter. FRAMBJÓÐANDI stjórnarand- stæðinga í borgarstjórnarkosning- unum í Aþenu í gær, Demetrios Beis, vann yfirburðasigur eftir einhverja hörðustu kosninga- baráttu á síðari timum í borginni. Beis hlaut 57,28% atkvæða sam- kvæmt lokatölum en Georg Plytas fyrrverandi ráðherra 32,72%. í Píreus sigraði Georg Kyriakakos sem andstæðingar stjórnarinnar studdu og hlaut 53,4%. Andstæðingur hans, Aristedes Skylitsis, var borgar- stjóri í Píreus á dögum herforingj- astjórnarinnar. Þetta var síðari lota bæjar- stjórnarkosninga í Grikklandi og um tvær milljónir greiddu atkvæði. I Aþenu sátu 24,4% kjósenda heima og 16,35% í Píreus. 1975 — Sendiherra Tyrkja í París skotinn til bana. 1973 — Vopnahlé ísraelsmanna og Egypta tekur gildi. 1966 — Rannsókn í fangelsis- málum Breta eftir flótta Blakes njósnara. 1964 — Zambía fær sjálfstæði = ÓL í Tokyo lýkur. 1962 — Bandaríkin setja hafnbann á Kúbu. 1961— Mótmæli hjá SÞ eftir sprengingu risasprengju Rússa. 1954 — Neyðarástandi lýst yfir í Kenya. 1945 — Stofnskrá SÞ tekur ifiWi. 1929 — Verðhrun í kauphöllini í New York. 1922 — írska þingið samþykkir stjórnarskrá írska fríríkisins. 1917 — Annar ítalski herinn gersigraður við Caporetto. 1909 — Rússar og ítalir undir- rita samninginn í Racconigi. 1795 — Prússar, Austurríkis- menn og Rússar skipta Póllandi. 1688 — Franskt herlið tekur Heidelberg. 1648 — Vestfalsfriðuri Þrjátiu ára stríðinu lýkur * Evrópuríki viðurkenna sjálfstæði Niður- landa. Afmæli dagsinsi Jacques Lafitte, franskur bankastjóri — stjórnmálamaður (1767 — 1844). Innlentt Fyrsti skuttogarinn, »Vigri“, kemur 1972 = Kvenna- árs minnzt 1975 = Sameimnga flokkur alþýðu — sósíalist flokkurinn stofnaður 1938 Samið við Gufuskipafélí Björgvinjar um skipaferðir 19 = F. Guðmundur Friðjónss< 1869 = Kari O. Runólfsson 190C Óttar Möller 1918 = D. Þorsteir próf. Ketilsson 1754. Orð dagsinsi Blessaður sé i sem hefur ekkert að segja < lætur hjá líða að fara mörgu orðum um þá staðreynd George Eliot, ensk skáldkor (1819 - 1880). Liu Shao-chi Kaupmannahöfn. 23. ukt. Reuter. JOIIN Silkin sjávarútvcgsráð- herra Breta sagði í viðtali í danska sjónvarpinu í kvöld að það yrði mikið áfall fyrir þá scm vilja beita sér fyrir aðgerðum til verndar fiskstofnum ef Evrópu- Liu Shao-chi sagður álífi Peking, 22. október. Reuter. FYRRVERANDI þjóðhöfð- ingi Kína, Liu Shao-chi, sem talinn hefur verið látinn í nokkur ár, er enn á lífi samkvæmt áreiðanleg- um heimildum í Peking. En mjög ólíklegt er talið að Liu fái að koma aftur fram opinberlega. Hann var kunnasta fórnarlamb menningarbyltingarinnar á árunum kringum 1970 og Fangelsað- ur fyrir að skjóta knött ÞAÐ óvenjulega atvik átti sér stað á knattspyrnuvelli á Korsíku fyrir skömmu, að þegar framherji úr liði heima- manna lék á vörn gestaliðsins og hugðist renna knettinum í netið skaut einn áhorfenda knöttinn. Loftið fór úr knett- inum scm stöðvaðist rétt við markið, svo að ekkert mark var skorað. Tylft lögreglumanna sneri byssumanninn. Jean-Marc Lucchetti. niður og var hann síðar dæmdur í þriggja mán- aða fangelsi fyrir verknaðinn. þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að hann hafi látizt skömmu eftir að henni lauk. Liu var sviptur öllum störfum í stjórninni og flokknum 1968 eftir harðar árásir sem hann hafði sætt á veggspjöldum í menning- arbyltingunni fyrir að fylgja „endurskoðunar- stefnu“ og að vera hliðholl- ur Rússum. Hann tók við embætti þjóðhöfðingja 1959 þegar Mao Tse-tung leiðtogi kommúnistaflokksins, af- salaði sér því. Honum er ennþá lýst þannig opinber- lega að hann hafi verið yfirmaður „borgaralegra miðstöðva" þótt ýmsir kín- verskir leiðtogar hafi mild- að gagnrýni sína á hann. Samkvæmt sumum heim- ildum stendur yfir endur- mat á stöðu Lius til þess að ákveða framtíðarstöðu hans í sögu kínverska kommún- istaflokksins. Hins vegar bendir ekkert til þess að hann fái uppreisn æru um sína daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.