Morgunblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
Þetta gerðist
Reka áróður út
á sigur Karpovs
Moskvu, Hong: Konjí, 23. okt. AP.
SIGUR Anatoly Karpovs í
einvíginu um heimsmeistara-
titilinn í skák var hvalreki á
fjörur áróðursmeistara
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna. Eru þeir þegar farnir að
færa sér í nyt sigur Karpovs.
Þannig hafa fjölmargar
greinar um Karpov birst í
blöðum í Sovétríkjunum og
gerði Pravda t.d. mikið úr
skeytum milli Karpovs og
Leonid Brezhnevs á forsíðu. I
skeyti þakkaði Karpov Brezhnev
persónulega fyrir árangur sinn í
einvíginu.
Tass-fréttastofan hefur gert
mikið úr afreki Karpovs og í
sovéska sjónvarpinu var sýnd 45
mínútna kvikmynd um ævi
skákmannsins þegar úrslitin í
einvíginu voru kunn. Þar var
fjallað um Karpov ýmist sem
skákmann, listamann, vísinda-
mann, læriföður, verkamann í
þágu þjóðarinnar eða sendi-
herra.
Viktor Korchnoi kom í gær til
Hong Kong frá Filippseyjum og
teflir hann í dag fjöltefli við
skákmenn Hong Kong.
Búist er við því að bæði
Karpov og Korchnoi komi til
Ólympíuskákmótsins í Buenos
Aires í Argentínu, en þó er
reiknað með að hvorugur þeirra
tefli, þar sem svo skammt er
liðið frá einvígi þeirra um
heimsmeistaratitilinn í skák.
Akureyri 4 1 1» f
Ameterdam 13 rigning
Apena 18 heiðskírt
Barcelona vantar
Berlín 11 skýjað
Brussel 13 skýjað
Chicago 23 rigning
Frankfurt 11 rigning
Genf 9 poka
Helsinki 3 heiðskírt
Jerúsalem 29 heiðskírt
Jóhanneaarb. 23 léttskýjaö
Kaupmannah. 7 skýjað
Lissabon 24 léttskýjaö
London 17 léttskýjað
Loa Angeles 24 heiðskírt
Madrid 21 heiðskírt
Malaga 21léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Miami 27 skýjað
Moskva 5 heiðskírt
New York 24 skýjaö
Ósló 5 skýjað
París 15 skýjað
Reykjavík 4 snjóél
Rio De Janeiro 28 léttskýjað
Rómaborg 14 heiðskírt
Stokkhólmur 6 skýjað
Tel Aviv 29 skýjaö
Tókýó 21 heíðskírt
Vancouver 12 skýjað
Vinarborg 10 skýjað
Castro sendir
f anga til Miami
Ilavana. 23. október. AP.
Fyrsti hópur pólitískra fanga
sem heíur fengið að fara frá
Kúbu til Bandarikjanna kom til
Miami með fiugvél um helgina.
í hópnum voru 46 fangar og 25
skyidmenni þeirra. Aðeins ein-
staklingar hafa fengið að fara frá
fangelsum á Kúbu til Banda-
rikjanna til þessa.
Castro skýrði frá þeirri ákvörð-
un sinni að sleppa föngunum í
ágúst og gaf í skyn að fleirum yrði
sleppt síðar. Pólitískir fangar á
Kúbu eru á bilinu 1.000 til 3.000.
Einhliða ákvörðun Castros er
túlkuð sem tilraun til að bæta
stirð samskipti Kúbu og fjöl-
mennrar nýlendu kúbanskra út-
laga á Suður-Florida.
Kafloðinn Kínver ji
Peking, 23. október. Reuter.
GU CHEN-HUAN hlýtur að vera
loðnasta barn Kína. því þó að
hann sé ekki nema eins árs er
líkami hans, að undanteknum
nefhroddinum, iófum og iljum,
þakinn hárum. A herðum barns-
ins er t.d. sjö sentimetra langt
hár.
Gu er sonur smábónda í Liaon-
ing og er sagður mjög heilbrigður
og lífsglaður. Hefur kvikmynd
verið gerð um drenginn.
Fréttastofan Nýja-Kína sagði í
dag að loðið barn hefði fæðst í
sömu sveit fyrir menningarbylt-
inguna, en afi þess hefði orðið því
að bana þar sem hann hafi haldið
það vera draug.
Fiskveidideila EBE:
Bretar virða
dómsúrskurð
dómstóllinn dæmdi Ðretum í
óhag í máli Efnahagsbandalags-
ins gegn Bretum.
Silkin sagði að ef dómstóllinn
dæmdi aðgerðir Breta í fiskveiði-
málum ólöglegar, þá myndu Bret-
ar virða þann úrskurð. En hann
var bjartsýnn á niðurstöður og
sagði að Bretar berðust fyrir
góðum málstað, því að gripið hefði
verið til aðgerðanna í verndunar-
skyni en ekki af pólitískum
ástæðum. Silkin sagði að aðgerð-
irnar hefðu komið verst við
brezkan sjávarútveg.
Breski sjávarútvegsráðherrann
sagði að Bretar væru enn sem fyrr
viljugir til viðræðna um veiðikvóta
fyrir lönd Efnahagsbandalagsins
við Bretlandsstrendur. En hann
sagði að eina lausn fiskveiðideilu
bandalagsins væru frekari vernd-
unaraðgerðir og einkaréttur Breta
til veiða allt að 12 mílum frá
ströndum Bretlands.
Stjómin tap-
aði í Aþenu
Aþenu. 23. október. AP. Reuter.
FRAMBJÓÐANDI stjórnarand-
stæðinga í borgarstjórnarkosning-
unum í Aþenu í gær, Demetrios
Beis, vann yfirburðasigur eftir
einhverja hörðustu kosninga-
baráttu á síðari timum í borginni.
Beis hlaut 57,28% atkvæða sam-
kvæmt lokatölum en Georg Plytas
fyrrverandi ráðherra 32,72%.
í Píreus sigraði Georg
Kyriakakos sem andstæðingar
stjórnarinnar studdu og hlaut
53,4%. Andstæðingur hans,
Aristedes Skylitsis, var borgar-
stjóri í Píreus á dögum herforingj-
astjórnarinnar.
Þetta var síðari lota bæjar-
stjórnarkosninga í Grikklandi og
um tvær milljónir greiddu atkvæði.
I Aþenu sátu 24,4% kjósenda heima
og 16,35% í Píreus.
1975 — Sendiherra Tyrkja í
París skotinn til bana.
1973 — Vopnahlé ísraelsmanna
og Egypta tekur gildi.
1966 — Rannsókn í fangelsis-
málum Breta eftir flótta Blakes
njósnara.
1964 — Zambía fær sjálfstæði =
ÓL í Tokyo lýkur.
1962 — Bandaríkin setja
hafnbann á Kúbu.
1961— Mótmæli hjá SÞ eftir
sprengingu risasprengju Rússa.
1954 — Neyðarástandi lýst yfir
í Kenya.
1945 — Stofnskrá SÞ tekur
ifiWi.
1929 — Verðhrun í kauphöllini í
New York.
1922 — írska þingið samþykkir
stjórnarskrá írska fríríkisins.
1917 — Annar ítalski herinn
gersigraður við Caporetto.
1909 — Rússar og ítalir undir-
rita samninginn í Racconigi.
1795 — Prússar, Austurríkis-
menn og Rússar skipta Póllandi.
1688 — Franskt herlið tekur
Heidelberg.
1648 — Vestfalsfriðuri Þrjátiu
ára stríðinu lýkur * Evrópuríki
viðurkenna sjálfstæði Niður-
landa.
Afmæli dagsinsi Jacques
Lafitte, franskur bankastjóri —
stjórnmálamaður (1767 — 1844).
Innlentt Fyrsti skuttogarinn,
»Vigri“, kemur 1972 = Kvenna-
árs minnzt 1975 = Sameimnga
flokkur alþýðu — sósíalist
flokkurinn stofnaður 1938
Samið við Gufuskipafélí
Björgvinjar um skipaferðir 19
= F. Guðmundur Friðjónss<
1869 = Kari O. Runólfsson 190C
Óttar Möller 1918 = D. Þorsteir
próf. Ketilsson 1754.
Orð dagsinsi Blessaður sé i
sem hefur ekkert að segja <
lætur hjá líða að fara mörgu
orðum um þá staðreynd
George Eliot, ensk skáldkor
(1819 - 1880).
Liu Shao-chi
Kaupmannahöfn. 23. ukt. Reuter.
JOIIN Silkin sjávarútvcgsráð-
herra Breta sagði í viðtali í
danska sjónvarpinu í kvöld að
það yrði mikið áfall fyrir þá scm
vilja beita sér fyrir aðgerðum til
verndar fiskstofnum ef Evrópu-
Liu Shao-chi
sagður álífi
Peking, 22. október. Reuter.
FYRRVERANDI þjóðhöfð-
ingi Kína, Liu Shao-chi,
sem talinn hefur verið
látinn í nokkur ár, er enn á
lífi samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum í Peking.
En mjög ólíklegt er talið
að Liu fái að koma aftur
fram opinberlega. Hann
var kunnasta fórnarlamb
menningarbyltingarinnar
á árunum kringum 1970 og
Fangelsað-
ur fyrir að
skjóta knött
ÞAÐ óvenjulega atvik átti sér
stað á knattspyrnuvelli á
Korsíku fyrir skömmu, að
þegar framherji úr liði heima-
manna lék á vörn gestaliðsins
og hugðist renna knettinum í
netið skaut einn áhorfenda
knöttinn. Loftið fór úr knett-
inum scm stöðvaðist rétt við
markið, svo að ekkert mark
var skorað.
Tylft lögreglumanna sneri
byssumanninn. Jean-Marc
Lucchetti. niður og var hann
síðar dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi fyrir verknaðinn.
þrálátur orðrómur hefur
verið á kreiki um að hann
hafi látizt skömmu eftir að
henni lauk.
Liu var sviptur öllum
störfum í stjórninni og
flokknum 1968 eftir harðar
árásir sem hann hafði sætt
á veggspjöldum í menning-
arbyltingunni fyrir að
fylgja „endurskoðunar-
stefnu“ og að vera hliðholl-
ur Rússum.
Hann tók við embætti
þjóðhöfðingja 1959 þegar
Mao Tse-tung leiðtogi
kommúnistaflokksins, af-
salaði sér því. Honum er
ennþá lýst þannig opinber-
lega að hann hafi verið
yfirmaður „borgaralegra
miðstöðva" þótt ýmsir kín-
verskir leiðtogar hafi mild-
að gagnrýni sína á hann.
Samkvæmt sumum heim-
ildum stendur yfir endur-
mat á stöðu Lius til þess að
ákveða framtíðarstöðu hans
í sögu kínverska kommún-
istaflokksins. Hins vegar
bendir ekkert til þess að
hann fái uppreisn æru um
sína daga.