Morgunblaðið - 29.10.1978, Síða 13

Morgunblaðið - 29.10.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978 13 Ný bók: Ljóðasafn Sigurðar frá Arnarholti Þetta gerðist 29. október Morgunbalðinu hefur borizt ljóðasafn Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholti og nefnist bókin Ljóðmæli. Ilún er gefin út af Ilelgafelli, en Jóhann Gunnar Ólafsson skrifaði ítalegan for mála um skáldið. í bókinni, sem er 291 bls. að stærð og skipt er í 6 kafla, er heildarsafn ljóða Sigurðar, sem var á sínum tíma þjóðkunnur af ljóðum sinum. Og sum ljóða hans hafa festst í sessi í bókmenntasögunni. Meðal slíkra ljóða í þessu safni cr Útilegu- maðurinn og í dag. Bókin er tilrinkuö konu skáldsins, Önnu Pálsdóttur. bess má gcta, að við mörg ljóðanna eru upplýsingar um það, hvar og hvcnær þau birtust fyrst. Kristján Karlsson segir að bókarkápu um þetta ljóðasafn Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholtii Niðurgreiðslur auknar vegna hækkaðs gjalds hjá dagmömmum BORGARRÁÐ hefur samþykkt að hækka niðurgreiðslu dagvistunar á einkaheimilum og gildir hækkunin frá 1. þessa mánaðar. Niðurgreiðsla þessi er bundin við börn einstæðra foreldra. Að sögn Sveins Ragnarssonar, forstöðu- manns Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, nemur niðurgreiðsl- an nú 20.750 krónum á mánuði, en var 14.000 krónur. Að sögn Sveins hækkuðu „dag- mömmur" eða þær konur, sem taka börn í fóstur á einkaheimili, gjald sitt fyrir ágústlok. Var þar um að ræða kauphækkanir, sem aðrar stéttir höfðu fengið fyrr á árinu. r ASI vill kanna farmgjöld skipafélaganna Á FUNDI sínum 26. 10. ’78 samþykkti miðstjórn ASI einróma eftirfarandi ályktun: „Miðstjórn ASÍ samþykkir af gefnu tilefni að skora á ríkis- stjórnina að láta nú þegar fram fara ítarlega rannsókn á farm- gjöldum skipafélaganna." „Fyrir utan ljóðabækur sínar lét Sigurður Sigurðsson frá Arnar- holti eftir sig ljóð og brot í blöðum og handriti. Hér birtist nú í fyrsta sinn heildarútgáfa á Ijóðum hans. Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrver- andi bæjarfógeti hefir séð um útgáfuna og ritað mjög fróðlegan formála. Sigurður frá Arnarholti stendur í fremstu röð íslenzkra skálda frá fyrstu áratugum aldarinnar. Hann er í hópi þeirra, sem þá taka að gera hinar hæstu kröfur um vandað form og um fegurðarleit í efnisvali. Þessar kröfur uppfyllti Sigurður flestum betur og hann varð einn af upphafsmönnum nýrrar ljóðlistar, þar sem draum- hneigð, langanir og geðhrif sitja í fyrirrúmi. En hugsun hans er svo skýr og tilfinningin sterk, að hann verður aldrei daufur og því síður væminn. Hann vildi ennfremur, að mál ljóða færi sem næst mæltu máli eins og það er bezt og eðlilegast. Málfar hans er ákaflega hljómmikið og ljóðlínurnar heil- steyptar. — Á síðustu árum verður skáldskapur hans yfirleitt mjög hlýr og nærtækur með blæ af samtali eða jafnvel góðlátlegu rabbi, en alltaf bregður líka fyrir tilkomumiklum stíl og sterkum tilþrifum. Hann byrjaði skáldferil sem skáld mikils stíls, gerðist athafnamaður um langt skeið ævinnar, síðast orti hann einkum sér og vinum sínum til hugar- hægðar og það hefir líka sitt gildi“ 1970 — Bandaríkjamenn og Rússar semja um tengingu í geimnum. 1962 — Bandaríkjamenn aflétta hafnbanninu á Kúbu. 1956 — Innrás ísraelsmanna í Sinai — Kadar verður leiötogi ungverska kommúnistaflokks- ins. 1929 - Verðhrunið í Wall Street. heimskreppan byrjar. 1923 — Tyrkland lýðveldi. 1918 — Sjóliðauppreisnin í Kiel. 1888 — Samningurinn um Súez-skurð í Konstantínópel. 1807 — Danir ganga í lið með Frökkum. 1762 — Ósigur Austurríkis- manna fyrir Frökkum í orrustunni við Freiburg. 1688 — Frekkar taka Pils- burg, Þýzkalandi. 1618 — Sir Walter Raleigh tekinn af lífi fyrir landráð. 1567 — Meaux-samsæri Húgenottg ieiðir til annars trúarbragðastríðsins í Frakk- landi. Afmæli dagsins. Edmund Halley enskur stjörnufræðingur (1656—1742) — James Boswell, skozkur ævisagnahöfundur (1740-1795) Innlent. Ritstjórar „Nýs Dag- biaðs“ og „Þjóðviljans" dæmdir í varhald 1941 — Fyrsta umræða danska þingsins um handrita- málið 1964 — „Alþýðublaðið" hefur göngu sína 1919 — Tillaga Jóns Hjaltalíns um lækningar í kláðamálinu 1856 — Dómur iandsyfirréttar í tvíkvænismáli Sigurðar Breiðfjörð 1838 — D. Arnljótur Ólafsson 1904 — F. Sigurjón Á. Ólafsson 1884 — Sr. Sigurður Einarsson 1898 — Gísli Sigurbjörnsson 1907. Orð dagsins. Sönn vinátta er eins og góð heilsa. Gildi hennar er sjaldan metið fyrr en hún er glötuð — C.C. Colton, enskur klerkur (1780-1851). Þetta gerðist 30. október 1975 — Juan Carlos prins tekur við völdum á Spáni. 1963 — Alsír og Marokkó semja frið. 1957 — Gaiilard myndar stjórn 5 Frakklandi. 1956 — Bretar og Frakkar setja Egyptum og Israelsmönnum úrslitakosti = Rússar ráðast inn í Ungverjaiand en Mindzenty sleppt. 1938 — Orson Welles veldur múghræðslu með útvarpsleikriti um innrás frá Mars. 1928 — Tilraunaútsendingar sjónvarps hefjast í Bretlandi. 1922 — Mussoiini myndar fasistastjórn. 1918 — Bandamenn semja vopnahlé við Tyrki = Tékkóslóvakía sjálfstætt lýð- veldi. 1914 — Orrustan um Ypres hefst. 1905 — Rússakeisari lætur undan kröfum þingsins um aukin völd. 1899 — Búahershöfðinginn Joubert sigrar Breta við Nicholson’s Nek. 1697 — Ryswick-friður Frakka og Austurríkismanna. 1611 — Andast Kari IX Svía- konungur. 1546 — Bæheimskt herlið ræðst inn í Saxland. 1517 — Upphaf siðaskipta. Afmæli dagsins. Georg II, brezkur konungur (1683—1760) = R-B. Sheridan irskur leikrita- höfundur (1741-1807) = Feodor Dostoievsky, rússneksur rithöf- undur (1821-1881) = Léon Gambetta, franskur stjórnmála- ieiötogi (1838-1882). Innlent. Togarinn „Bragi" ferst við England 1940= „Þjóðviljinn“ hefur göngu sína á ísafirði 1886 = D. Margrét drottning Skúla- dóttir 1270 = F. Matthías Þórðarson 1877 = Dr. Sigurður Samúelsson 1911 = Hafsteinn Björnsson 1914. Orð dagsins. Fífl hlýtur öðru hverju að hafa rétt fyrir sér af tilviljun — William Cowper, enskt skáld — (1731—1800). [ I Kalmar! Álverið: Uppsetning hreinsitækja gengur sam- kvæmt áæthrn UPPSETNING hreinsibúnaðar í Álverinu í Straumsvík gengur samkvæmt áætlun, að því er Ragnar Halldórsson forstjóri ísal tjáði Mbi. í gær. í lok þessa árs verður búið að breyta 40 kerjum af 240 en þau eru öll í skála tvö. Næsta vor verða svo sett upp sérstök tæki, sem hreinsa útblástur frá verksmiðjunni áður en hann fer út í andrúmsloftið. Hinar vinsælu CLASSIC baöskápaeiningar eru fyr- irliggjandi á lager. CLASSIC baöskápaein- ingarnar eru úr eik og fást bæöi litaðar og ólitaöar. Kynniö ykkur möguleikana sem CLASSIC baöskápa- einingarnar frá Kalmar bjóöa. » í sýningarhúsnæði okkar í Skeifunni 8 sýnum viö uppsett baöborö ásamt mismunandi uppstillingum af þeim fjölmörgu útgáfum KALMAR-innréttinga sem hægt er aö fá. kalmar innréttingar hf. SKEIFAN ». REVKJAVÍK 8ÍWIKW45 { b. ' / .4-':

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.