Morgunblaðið - 29.10.1978, Síða 22

Morgunblaðið - 29.10.1978, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978 Enn einu sinni hefur goðsögn tœknialdarinn- ar — um hina fíjúgandi furðuhluti utan úr geimnum verid vakin upp. Fréttir frá Bandaríkjunum og Astraliu um dularfull fyrirbrigöi af þessu tagi og undarlegur Ijósagangur hér á Fróni ásamt sýningum á víðfrœgri kvikmynd um þetta efni hafa orðið til að vekja á nýjan leik spurninguna um það hvað þarna sé áferð. Mæö vaxan'di þekkingu á himin- ííeimnum, eðlislögmálum hans og óravíddum eru flestir vísindamenn á sviði stjörnu- og stjarneðlisfræði hættir að útiloka þann möguleika að víðar í alheimi en hér á jörðu hafi skapazt skilyrði til lífs þeirrar náttúru sem við þekkjum. Engu að síður ríkir almenn vantrú í röðum þessara sömu vísindamanna á því að þau fyrirbæri, sem borið hefur fyrir augu fjölmargra jarðarbúa á liðnum áratugum, eigi rætur sínar að rekja til íbúa annarra hnatta, sem séu komnir hingað til að rannsaka líf okkar hér á jörðu en það er alþýðúskýringin á fyrirbær- um þessum. Ástæðan fyrir efasemdum vís- indamanna er auðvitað sú að ferðalög vitsmunavera milli hnatta og jafnvel stjörnukerfa stangast á við öll þekkt eðlisfræði- lögmál. Fjarlægðir himingeimsins eru mældar í ljósárum, en hraði ljóssins er mesti hraði sem eðlis- fræðin þekkir og ekkert efni þolir slíkan hraða. Og þó svo mannlegu hugviti tækist að yfirstíga hindrun þá sem hraðinn er, þá er hins að gæta að ein bæjarleið í himin- geimnum, ef svo má að orði komast tekur hundruð ljósára og það er erfitt að sjá hvernig mannlegar verur eiga að endast slík ferðalög. Það hefur líka komið á daginn, að þorri hinna fljúgandi fyrirbæra hefur átt sér náttúrulegar og eðlilegar skýringar eða milli 80—90% þeirra tilfella sem skráð hafa verið. En hin 10 til 20%. fyrirbæranna eru eftir sem áður óskýrð og það eru þau sem gera goðsögnina um fljúgandi furðu- hluti svo heillandi, því að í mörgum tilfellum eru þau studd vitnisburði traustra og óbrengl- aðra manna. • Fyrirbærin koma í bylgjum Það var einhvern tíma síðari hluta 19. aldar að menn fóru að greina fyrirbæri á himninum og fljúgandi furðuhluti með þeim hsétti, sem nú er gert, því að allt fram á nítjándu öld höfðu hvers kyns teikn í lofti verið rakin beint til almættisins. Ýmsar lýsingar má finna í bókmenntum liðinna alda, allt frá Biblíunni til trúar- bragðarita síðari alda, sem þeir sem gerst hafa kannað sagnir um fljúgandi furðuhluti, telja koma vel heim og saman við síðari tíma lýsingar á slíkum fyrirbærum. Eitt einkenni fljúgandi fyrir- bæra er að þau koma eins og í bylgjum. Það var í Bretlandi árið 1909, að i fyrsta sinn er skráð í Evrópu að slík bylgja gengi yfir en þá sáu margir Bretar undarleg loftför, búin sterkum leitarljósum, sem var greinilega stýrt og það bárust fregnir um lendingar þess- ara loftfara og að sést hefði til stjórnenda þeirra. Þessum lýsing- um bar saman við hliðstæð fyrir- bæri í Bandaríkjunum 1896—’97. Næsta alda gekk yfir snemma á fjórða áratugnum, þegar Svíar urðu varir við „draugaflugvélar" Teikning listamanns af geimverum samkvæmt lýsingum sjónarvotta betto eru myndir úr hinni opinberu Bláu bók bandaríska flughersins af vettvangi þar sem vegaSðgreglumaðurinn Zamora sá furðuhlut og verur að bjástra við hann hjá Soccoro í Nýju lMtdfcá en innan hringanna eru förin eftir lendingarfætur furðuhlutarins. norðarlega í landinu, sem þar sveimuðu yfir einum bænum í brjáluðu veðri en reyndu þó ekki að lenda heldur gerðu ýmsar kúnstir, sem þóttu ganga fífl- dirfsku næst. Engin skýring fékkst á því hverjir þarna væru á ferð þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan. I heimsstyrjöldinni síðari komu upp ýmis kynleg fyrirbæri á vettvangi stríðsins bæði á Atlants- hafi og Kyrrahafi. Undarlegir hlutir á lofti hrelldu margan flugmann bandamannaj en þessir hlutir áttu það til að koma flugmönnunum í opna skjöldu, elta þá um tíma en hverfa síðan út í bláinn. Af hálfu bandamanna var haldið, að þetta væri einhvers konar leynivopn andstæðinganna og ætlað til að draga kjarkinn úr flugmönnum bandamanna, en í stríðslo'k komust hins vegar bandamenn að því að flugmenn bæði Þjóðverja og Japana höfðu orðið- fyrir hliðstæðri reynslu og að í þeim herbúðum var haldið að þarna færi leynivopn banda- manna. Árið 1946 voru fljúgandi furðu- hlutir enn á kreiki í Svíþjóð, og þá urðu þúsundir manna vitni að því hvar eldflaugalaga hlutir þeyttust um himininn, og Svíar — sjálfum sér líkir — kölluðu þetta „drauga- flaugarnar". Bandaríkjaihenn sendu meira að segja Doolitle hershöfðingja til Svíþjóðar til að líta á málíð, því að grunur lék á að Fólk sér ýmsa furðulega hluti .J’JG hef heyrt ýmsur söyvr o</ mér hafu borizt frásaynir um ýmsa furduleya hluti, sem fólk hefur séö. É</ hef j>ó enn ekki feriyiö þær upplýsinyar að éy sé sannfærdur um aö eitthvaö yfirnáttúruleyt eöa eitthvaö utan úr yeimnum hafi veriö þar á ferö,“ sayöi dr. Þorsteinn Sœmundsson stjörnufrœðinyur, er Mbl. spuröi hann hvort í þerirri vitneskju sem hann hefur undir höndum væri eitt- hvaö yfirnáttúruleyt eöa eitt- hvfiö sem benti til tilvista fljúyandi furðuhluta. ,fíy fæ ööru hvoru ýmsar fróöleyar lýsinyar, “ sayöi dr. Þorsteinn. ,J>að er Ijóst aö fólk sér ýmsa furöuleya hluti, sem oft verða ekki skýrðir í einu vetfanyi, sérstakleya þeyar aöeins um einn sjónarvott er aö rœöa. En aö hlaupa þá til oy seyja aö allt slíkt séu fljúyandi fvrðuhlutir utan úr yeimnum, finnst mér ábyryöarleysi. “

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.