Morgunblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978
Félagslíf og
vandamál í
framhaldsskólum
Öllum þeim, sem glöddu mig
með heimsóknum gjöfum og
skeytum á sjötugsafmæli mínu
8. október, þakka ég af heilum
hug.
Guð blessi ykkur öll,
Petrea H.
Ingimarsdóttir,
Hátúni 8.
Öllum þeim, sem heimsóttu
mig, færðu mér gjafir, sendu
mér blóm og skeyti á 70 ára
afmæli mínu, færi ég mínar
innilegustu þakkir.
Hallgrímur G.
Björnsson.
Hjartans þakkir til barna,
tengda- og barnabarna minna,
fyrir rausnarlegar gjafir og
hlýhug á 80 ára afmælinu mínu,
sem var 6. október. Ennfremur
þakka ég öðrum skyldum og
vandalausum fyrir gjafir, blóm
og skeyti. Öll þessi vinsemd
gjörðu mér þessi tímamót
eftirminnileg.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg
frá Hamragörðum.
Sjónvarp í kvöld
kl. 18.05:
Viðvaningar
til sjós
Viðvaningarnir nefnist mynda-
flokkur í sjö þáttum, sem hefst í
sjónvarpi klukkan 18.05. Segir hún
frá tveimur sautján ára piltum,
sem ætla sér að verða sjómenn, og
fá skipsrúm sem viðvaningar á
togara. Sýnt er frá lífinu um borð í
togurum og frá námi sjómanns-
efna í sjómannaskóla. Þátturinn í
kvöld nefnist „Strokupilturinn" og
segir frá pilti, Jim, sem líkar ekki
að starfa á bílaverkstæði föður
síns en vill komast á sjóinn og
strýkur að heiman.
Útvarp í kvöld
kl. 21.00:
Tíu þúsund
Big Bands
Jazzþáttur í umsjón Jóns Múla
Arnasonar er í útvarpi í kvöld
klukkan 21.00. „Ég las það í blaði
ísumar að nú væru starfandi í
Bandaríkjunum 10.000 „Bigg
Bönd“, og ætla í stuttu máli að
rekja þessa ánægjulegu þróun,“
sagði Jón Múli, er hann var
spurður hvað helzt yrði á dagskrá í
þættinum.
Þátturinn tekur 45 mínútur í
flutningi.
Þátturinn „Úr skólalífinu" í
umsjón Kristjáns E. Guðmunds-
sonar er á dagskrá útvarps
klukkan 20.00 í kvöld.
Að þessu sinni er kynning á
félagslífi og vandamálum
nemenda í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Fjölbrautaskólinn er
3ja ára og eru nú um 1000 manns
við nám í honum. Nemendur eru
með eigin kynningu á félagslífinu.
Rætt verður við fimm af nemend-
um úr forystuliði skólans um
félagslífið, húsnæðisvandræði í
sambandi við mikla útþenslu
skólans, áfangakerfið og hvaða
áhrif það hefur á félagsanda, að í
skólanum er ekkert eiginlegt
bekkjarkerfi. Einnig verður rætt
um lesaðstöðu nemenda, svo og
þau göt í stundatöflunni, sem
óhjákvæmilega vilja verða, þegar
um áfangakerfi í skólum er að
ræða.
Síðar í þessum þáttum í vetur
verður tekið fyrir nám og námstil-
högun í hinum einstöku skólum og
rætt við fulltrúa nemenda
viðkomandi skóla í því sambandi.
Þættir þessir ná eingöngu yfir
framhaldsskóla.
Stórkostleg nýjung
Tölvustýrt litsjónvarpstæki
frá
Toshiba tryggír þér baö nýjasta og besta
á hverjum tíma.
Aurunum er vel varið meö kaupum á Toshiba.
Toshiba Japan er stærsta fyrirtæki heims í
framleíðslu elektrónisikra tækja. Ekkert fyrirtæki
ver jafn miklum fjármunum í rannsóknir. Því koma
nýjungarnar frá Toshiba.
Nú er þaö nýjasta tölvustýrt litsjónvarpstaki.
Talvan í C 2080 litsjónvarpstækinu stjórnar því aö móttakan trá
sjónvarpssendinum verður ávallt eins góö og frekast er kostur.
Talvan gerlr tjölda hluta úrelta. Því er gangverkið einfaldara og minni
líkur á þilunum.
Algerlega ný gerð myndlampa. 16.6% breiðarl fosforrendur og
þynnri skil gefa 30% þjartari mynd.
Tækiö er aöeins 83 wött. Það fékk vcrðlaun fyrir fallegt útlit. Hægt er
að tengja tækið við audio og video Cassettutæki.
Árs ábyrgö — Greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI 10 A.
SÍMI16995.
Útsölustaðir:
Akranes: Bjarg hf.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
ísafj.: Verzl. Straumur.
Bolungarv.: Verzl. EG.
Hvammstangi: Verzl. V.S.P.
Blönduós: Kaupfól. A.Hún.
Sauöárkrókur: Kaupf. Skagf.
Akureyrí: Vöruhús KEA
Hljómver HF.
Húsavík: Kaupfél. Ping.
Egilsstaöir: Kaupfél. Hóraösb.
Ólafsfjöröur: Verzl. Valberg.
Siglufjöröur: Gestur Fanndal.
Hornafjöröur: KASK
Hvolsvöllur: Kaupfél. Rang.
Vestmannaeyjar: Kjarni sf.
Keflavík: Stapafell hf.
úlvarp Reykjavfk
3QX1B
MIÐVIKUDAGUR
1. nóvomber 1978
18.00 Kvakk-kvakk
ítölsk klippimynd.
18.05 Viðvaningarnir
Breskur myndaflokkur í sjö
þáttum.
Fyrsti þáttur. Strokupiltur-
inn.
Söguhetjurnar eru tveir
sautján ára piltar. sem hafa
áhuga á sjómannsstörfum
og fá skipsrúm sem viðvan-
ingar á togara.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.30 Öra fi Afríku
Norsk mynd um dýra- og
íuglalíf í Afríku. Þýðandi
og þulur Jón O. Edwald.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
18.55 Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Nýjasta ta'kni og vísindi
j leit að afbrotamönnum
Barátta gegn bitmýi
Klettaviðgerðir
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.00 Ár í ævf dýralæknis
Nýlokið er myndaflokki í
gamansömum tón um dýra-
lækna.
Ilér er bresk heimildamynd
um dýralækni í ensku
sveitahéraði og störí hans.
Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
21.55 Vesturfararnir
Sænsk framhaldsmynd í
átta þáttum. byggð á flokki
skáldsagna eftir Vilhelm
Moberg.
Ilöfundur myndarinnar er
Jan Troell.
Aðalhlutverk Max von
Sydow, Liv Ullmann. Eddie
Axberg. Allan Edwail.
Pierre Lindstedt. Hans Al-
fredsson og Monica Zetter-
lund.
Fyrsii þáttur. Steinríkið.
Sagan hefst í harðbýlli sveit
í Smálöndum um miðja
nítjándu öld.
Aðalpersónurnar eru ungur
smáhóndi. Karl Oskar. og
Kristín. kona hans. Kotbú-
skapurinn er erfiður á
þessum tímum og þar kem-
ur, að Karl Óskar ákveður
að flytjast með fjölskyldu
sína til Vesturheims.
Þýðandi Jón 0. Edwald.
Vesturfararnir voru áður á
dagskrá Sjónvarpsins fyrir
tæpum fjórum árum.
Fyrsti þáttur var frumsýnd-
ur á jóladag 1974.
(Nordvision)
22.50 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGÚR
3. nóvember 1978
20.00 Fréttir og vcður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sailor
llljómsveitin Sailor flytur
nokkur vinsælustu laga
sinna. Einnig kemur fram
hljómsvcitin Sutherland
Brothers and Quiver.
21.30 Kastljós
Þattur um innlend málefni.
IJmsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir.
22.30 Nýliðar
(The Virgin Soldiers)
Bresk bíómynd frá árinu
1970
Aðalhlutverk Lynn
Redgrave, Hywel Bennett
og Nigel Davenport.
Sagan gerist í Singapore
snemma á sjötta áratug
aldarinnar. Breskt herlið er
í borginni. að mestu skipað
kornungum og óreyndum
piltum. Dóttir eins yfir-
mannsins. Philippa. kynn-
ist einum piltanna á dans-
leik. en fyrstu kynnin verða
hálfvandræðaleg vegna
reynsluleysis þcirra.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.55 Dagskrárlok.