Morgunblaðið - 03.11.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
251. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Símamynd AP
Viðureign Viktors Korchnois og Júgóslavans Svetozar
Gligorics á Olympíuskákmótinu í Buenos Aires vakti athygli
þar sem Korchnoi var nýkominn frá heimsmeistaraeinvíginu
í Baguio á Filippseyjum. Korchnoi tefldi fyrir svissnesku skáksveitina á mótinu og hafði
hvítt. En viðureign hans og Gligorics lyktaði með jafntefli. Sjá nánar um fréttir frá
Olympfuskákmótinu í gær á bls. 17.
Ráðizt á skotmark
í nánd við Lusaka
Lusaka, 2. nóvember. Reuter
RHÓDESÍSKAR herflugvélar gerðu í
dag leifturárás á búðir skæruliða
Föðurlandsfylkingar Joshua Nkomos
aðeins 16 km frá miðborg Lusaka.
höfuðborgar Zambiu. Þetta er önnur
meiriháttar árás Rhódesíumanna á
landið á tveimur vikum og þeir hafa
aldrei áður ráðizt á skotmörk svo nærri
höfuðborginni.
Lengsta
geimför
Moskvu, 2. nóvember.
__ Ppilfpr. A P
TVEIR sovézkir geim-
farar ientu heilu og
höldnu í Mið-Asíu í dag
eftir lengstu mönnuðu
geimferðina sem kórón-
ar geimafrek Rússa á
þessu ári, eykur mögu-
leika á varanlegri mönn-
un geimstöðva og eykur
forskot Rússa í kapp-
hlaupinu við Banda-
ríkjamenn í geimnum.
Geimfararnir, Vladimir
Kovalyonok ofursti og Alex-
ander Ivanchenkov verkfræð-
ingur, voru sagðir við góða
heilsu þegar þeir stigu út úr
Soyuz-geimfarinu sem flutti þá
frá geimstöðinni Salyut-6.
Þeim var skotið frá Baikonur
15. júní. Þeir tengdu geimfar
sitt við stöðina tveimur dögum
síðar og voru alls 139 daga, 14
klst. og 49 mínútur í geimnum.
Þar með voru Kovalyonok og
Ivanchenkov sex vikum lengur í
geimnum en tveir geimfarar
sem áttu fyrra metið og voru 96
daga í geimstöðinni fyrr á
þessu ári. Bandarískir geimfar-
ar hafa verið lengst 84 daga í
geimnum og það var met sem
stóð í fjögur ár.
Yfirmenn sovézkra geimvís-
inda voru sigri hrósandi eftir
lendingu Kovalyonok ofursta
og Ivanchenkovs og töldu að
ferðin hefði heppnazt nánast
fullkomlega.
Sprenging
Villahjmosa, Mexíkó.
2. nóvember AP
GASLEIÐSLA sprakk á olíuauð-
ugu svæði í Suður-Mexíkó i dag og
52 biðu bana og 21 slasaðist að
sögn yfirvalda.
Lögreglustjorinn í fylkinu
Tabasco segir að enn hafi ekki
tekizt að ná öllum líkum af
slysstaðnum og fleiri kunni að
hafa farizt.
Árásin er líka gerð aðeins
örfáum dögum eftir að Bretar hófu
sendingu loftvarnavopna til
Zambíu. En talsmaður Zambíu-
stjórnar sagði að Bretar bæru
ábyrgðina ef stríðið í sunnanverðri
Afríku magnaðist vegna árásar
Rhódesíumanna nú.
Zambíustjórn sagði að skot-
markið hefði verið flóttamanna-
búðir svartra barna frá Rhódesíu
og að tekizt hefði með öruggum
varnarráðstöfunum að draga úr
áhrifum árásarinnar.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í Lusaka beindist
árásin gegn hernaðarmannvirkj-
um. Rhódesíumenn segja að sýnd
hafi verið mikil nákvæmni og þess
gætt að árásin ylli sem minnstu
tjóni. Þeir segja að ráðizt hafi
verið á skotmark sem hafi nýlega
fundizt samkvæmt upplýsingum
frá föngum og flugvélarnar hafi
snúið aftur heilu og höldnu.
Árásin virðist sýna a stjórnin í
Salisbury hafi útilokað sérfrið við
skæruliða og Zambíu, í bili að
minnsta kosti. Horfur á friðarvið-
ræðum allra deiluaðila virðast
einnig hafa dvínað. Nú verður fast
lagt að Kenneth Kaunda forseta
að hefna fyrir árásina.
við Berim „Friður kemst á
í Miðausturlöndum”
New York, 2. nóvember
Reuter.
Forsætisráðherra ísraels,
Menachem Begin, sagði í dag að
verulega heíði miðað áfram í átt
að friðarsamningi Israelsmanna
og Egypta og átti síðan óvæntan
fund með Carter forseta.
„Það kemst á friður í Miðaust-
urlöndum,4' sagði Carter við
Bcgin á óundirhúnum fundi
þeirra.
Begin hafði áður rætt við Cyrus
Vance utanríkisráðherra í tvo og
hálfan tíma um þær fáu hindranir
sem enn standa í vegi fyrir friði.
Forsætisráðherrann sagði
fréttamönnum eftir fundinn með
Vance: „Ég get ságt ykkur að
bráðum rennur upp sá dagur þegar
við getum undirritað samning um
frið milli Israels og Egyptalands."
Carter forseti sagði við Begin»
eftir fund þeirra: „Við munum
leysa ástandið á vesturbakkanum.
Við erum vinir. Það kemst á friður
í Miðausturlöndum."
I Bagdad skoraði forseti Iraks,
Ahmed Hassan Al-Bakr, þegar
hann setti fund leiðtoga Araba-
ríkja annarra en Egyptalands á
Anwar Sadat forseta að vísa á bug
hvers konar sérfriði við ísraels-
menn.
„Við getum ekki sætt okkur við
það að nokkur (arabískur) leiðtogi
áskilji sér rétt til að leiða til lykta
og binda endanlega enda á barátt-
u.na (við Israel) að eigin geðþótta.“
Hann kvað Arabaríki verða að
velja á milli þess að styðja þá
stefnu Sadats að vinna með
óvininum eða styðja þann aðila
sem héti því að halda áfram
baráttunni.
Nyerere
til atlögu
Dar Es Salaam, 2. nóvember.
Reuter. AP.
JULIUS Nyerere forseti bað í dag
ríki vinveitt Tanzaníu að reyna
ekki að miðla málum í deilu
landsins við Uganda og sagði að
Tanzaníumcnn yrðu að herjast til
þess að hrekja innrásarmcnn frá
Uganda úr landi.
Hann sagði að Tanzaníumenn
hefðu skotið niður þrjár flugvélar
Ugandamanna en einnig þrjár af
sínum eigin.
I Nairobi er sagt að Nyerere hafi
beðið Kenya-stjórn að stöðva
olíuflutninga til Uganda er allir
fara um Kenya. Heimildirnar
herma að Ugandamenn eigi aðeins
eldsneyti til þriggja daga.
Brezkur aðstoðarmaður Idi Am-
ins forseta sagði í símtali að Amin
vildi að James Callaghan forsætis-
ráðherra Breta miðlaði málum.
Ugandamenn hafa sótt yfir ána
Kagera og eru í úthverfum sam-
göngumiðstöðvarinnar Kyaka.
Amin segir að Kagera myndi nú
landamærin að Tanzaníu.
Titringur
London, 2. ncWcmbor. AP. Reuter.
TAUGAÓSTYRKUR greip
um sig á gjaldeyrismörkuðum
í dag þrátt fyrir verulegan
ávinning dollarans í kjölfar
áætlunar Carters forseta um
að hjarga honum. Gull lækk-
aði enn í verði.
Carter forseti fékk nýjar yfir-
lýsingar um stuðning við ráðstaf-
anirnar frá stjórnmálamönnum,
bankastjórum og iðnrekendum í
Japan og Vestur-Evrópu í dag. En
þótt dagurinn byrjaði vel fyrir
dollarann og hann hækkaði til
viðbótar við hækkunina í gær var
ástandið glundroðakennt og þegar
á daginn leið fóru ýmsar efasemd-
ir að gera vart við sig og nokkurs
taugatitrings gætti.
Tilræði
í Beirút
Beirút, 2. nóv. AP.
UTANRÍKIS- og landvarna-
ráðherra Líbanons. Fuad
Butros. komst naumlega lífs af
þegar hópur liðhlaupa reyndi
að ráða hann af dögum í dag
að sögn sjónarvotta.
Að minnsta kosti tveir af
lífvörðum Butros biðu bana og
fjórir særðust í skotbardaga við
árásarmennina. Einn vegfar-
andi særðist líka.
Beirút-útvarpið segir að
árásarmennirnir séu félagar í
leynisamtökum sem kalla sig
„Byltingarhreyfingu líbanska
hersins".
Ástæðan til verknaðarins var
sennilega að menn vildu hefna
árásar sem líbanski herinn
gerði í gær með þeim afleiðing-
um að leiðtogi hreyfingarinnar,
Samir Ashkar höfuðsmaður,
féll.
Árásarmennirnir stöðvuðu
bílalest Butros nokkrum metr-
um frá húsi hans í kristna
hverfinu Ashrafieh er ráðherr-
ann var á leið til forsetahallar-
innar til að hitta Elias Sarkis
forseta.