Morgunblaðið - 09.11.1978, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
256. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„ÞAÐ gladdi mig mjög að ég skyldi hljóta svona mörg
atkvæði og þetta víðtæka fylgi mun hjálpa mér til þess að
jafna þann ágreining, sem nú er ríkjandi innan Fide,“ sagði
Friðrik Ólafsson stórmeistari í samtali við Morgunblaðið í
gær, eftir að hann hafði verið kjörinn forseti Alþjóðaskák-
sambandsins á 23. þingi þess, sem haldið er á Sheraton-hó-
telinu í Buenos Aires í Argentínu.
Sjá ennfremur viðtal við
Friðrik á bls. 3, frásögn
Högna Torfasonar af kosn-
ingunni í miðopnu og viðtal
við dætur Friðriks og Auðar
Júlíusdóttur konu hans á
baksíðu.
Sveinn Jónsson
féhirðir FIDE
Hryðjuverkamenn myrtu
dómara og tvo lífverði
Kosningin var æsispennandi og
úrslitin í fyrri umferðinni þóttu
mjög óvænt, en þá var kosið milli
Friðriks, Rabell-Mendez frá
Puerto Rico og Svetozar Gligoric
frá Júgóslavíu. Mendez fékk flest
atkvæði eða 31 , Friðrik hlaut 30
atkvæði og Gligoric 29 atkvæði.
Einn seðill var ógildur. Næst var
kosið milli Friðriks og Mendezar
og hlaut Friðrik 57 atkvæði en
Mendez 34. Samkvæmt þessu hafa
flestir stuðningsmenn Gligoric
stutt Friðrik í 2. umferð eftir að
þeirra maður var úr leik og sagði
Friðrik að Austur-Evrópuþjóðirn-
ar, sem allar studdu Gligoric í 1.
umferðinni, hefðu með kosningu
sinni viljað stuðla að því að
aðalstöðvar Fide yrðu áfram í
Evrópu.
„Þetta er vissulega stór stund,"
r
Iran:
Handtökur
og eigna-
upptaka
Tehcran, 8. nóvember AP
IIERINN í íran lét skína í
tennurnar í dag þegar hand-
teknir voru helztu forsprakk-
ar SAVAK til skamms tíma,
ásamt Iloveida, sem var for-
sætisráðherra landsins um 13
ára skeið.
Meðan á handtökunum stóð
voru skriðdrekar hafðir til taks
í miðborg Teherans, en enda
þótt ástandið í borginni sé
ótryggt kom þar ekki til átaka.
Er talið að umsvif hersins
síðustu daga hafi haft sitt að
segja, og virðist yfirvöldum
umhugað um að ekki fari milli
mála hverjir hafi tögl og
hagldir í landinu. Reza Pahlevi
hefur afsalað sér stjórn sjóðs,
sem hefur að geyma gífurlega
fjármuni. Hlutverk sjóðsins er
að veita fé til góðgerðarstarf-
semi, og mun ríkisstjórnin
framvegis hafa umráð yfir
honum. Þá hefur keisarinn
gefið fyrirmæli um að eigur
útlægra ættingja hans skuli
gerðar upptækar og andvirðið
renna til almennra velferðar-
mála.
Meðal hinna handteknu er
Mentullah Asiri, fyrrum hæst-
ráðandi hinnar alræmdu
öryggislögreglu, SAVAK, en
hún er meðal annars vænd um
að stunda kerfisbundnar
pyntingar á pólitískum föngum.
sagði Friðrik. „Jafnframt því sem
ég fagna kjörinu geri ég mér ljósa
þá miklu ábyrgð, sem það hefur
lagt á herðar mínar og nú er það
mitt að axla þá ábyrgð. Kosningin
var svo tvísýn að maður var
viðbúinn bæði tapi og sigri. Þeim
tilfinningum, sem bærðust innra
með mér þegar mér bárust tíðind-
in er ekki hægt að lýsa.“
Mikil gleði ríkti að vonum í
herbúðum Islendinganna í Buenos
Aires í gær og Friðrik bárust
heillaóskir víða að.
SVEINN Jónsson viðskiptafræð-
ingur var síðdegis í gær kosinn
gjaldkeri Alþjóðaskáksambands-
ins en feglan er að gjaldkeri
samhandsins sé samlandi forset-
ans. Ineke Bakker var endurkjör-
inn framkvæmdastjóri Fide.
Ítalía:
Frosinone, 8. nóvember. AP.
Bíllinn var eins og gatasigti
og mennirnir þrír lágu lífvana í
blóði sínu þegar lögreglan kom
að fáförnum vegi í nágrenni
Rómar í morgun eftir að
vélbyssuskothríð þriggja
hryðjuverkamanna lauk. Einn
árásarmanna særðist á flótta.
og fannst lik hans síðar f bíl,
sem árásarmennirnir höfðu
greinilega notað til að komast
undan á. Ilringt var til lög-
reglunnar nokkrum klukku-
stundum eftir árásina og sagt
að „Víglínan“, ein af fjölmörg-
um hreyfingum vinstri sinn-
aðra öfgamanna, hefði verið
þarna að vcrki, en yfirvöld vita
enn ekki sönnur á þeirri stað-
hæfingu. Þetta er mesta árás
öfgamanna á Ítalíu síðan ránið
og morðið á Aldo Moro átti sér
stað fyrir átta mánuðum, en í
þeirri árás létu lífið fimm
lífverðir.
Skotárásin í morgun varð með
þeim hætti að Fedele Calvosa
dómari í bænum Frosinore var á
leið til vinnu sinnar, í fylgd
tveggja lífvarða. Skyndilega
varð á vegi þeirra bifreið, sem
lagt hafði verið þvert á veginn,
þannig að þeir urðu að nema
staðar til að afstýra árekstri.
Spruttu þá fram þrír menn úr
runnaþykkni við vegarbrúnina
og hófst mikil skothríð, sem
lyktaði með ofangreindum hætti.
Sjónarvottar segja að einn
árásarmanna hafi greinilega
orðið fyrir skoti félaga síns,
enda var blóðslóðin að þeim stað
þar sem árásarmenn höfðu lagt
bíl sínum, þegar að var komið.
Gífurlegur fjöldi lögreglumanna
hefur kembt svæðið í nágrenn-
inu í allan dag, en sú leit hefur
engan árangur borið.
Calvosa er sjöundi dómarinn,
sem fellur fyrir hendi pólitískra
ofstækismanna á Italíu frá því
að hryðjuverkaöld rann þar upp
fyrir sjö árum. Hann var 59 ára
að aldri.
„Baktjaldamakk”
— segir Tanjug um kjör Friðriks
BelKrad — 8. nóvember. AP.
JÚGÓSLAVNESKA fréttastof-
an Tanjug hafði það í gær-
kvöldi eftir heimildarmönnum
si'num í Bucnos Aires. að kjör
Friðriks Ölaíssonar í forsaéti
FIDE væri árangurinn af „bak-
tjaldamakki" á þinginu.
Fréttastofan fór ekki nánar út
í þá sálma hvað átt væri við
með baktjaldamakki. en gat
þess að Bobby Fiseher. fyrrver-
andi heimsmeistari í skák hefði
stutt framboð Gligorics, hins
júgóslavneska stórmeistara, og
hefði Fischer haft góð orð um
það að snúa sér aftur að því að
tefla opinberlega cf Gligoric
næði kjöri.
Fríðrik Ólafcson, nýkjörinn forseti Alþjóða skáksambandsins í samtali við MbL:
„Þetta fylgi hjálpar mér
að jafna ágreininginn”
Hinn nýkjörni forseti
Fide, Friðrik Ólafsson og
kona hans Auður Júlíus-
dóttir fylgjast með ræðum
mótframbjóðendanna á
þingi Fide á Sheratön-hót-
elinu í Buenos Aires í gær.
iSímamynd AP