Alþýðublaðið - 27.08.1920, Qupperneq 1
Alþýðublaðið
Crefið lit af Alþýðuflokkimm.
1920
Föstudaginn 27. ágúst.
195. tölubl.
IjásMeíisleysi og
brunamál bæjarins.
Eftir Magnús V. Jóhannesson.
(Frh.)
V.
Yaraliðið!
Svo er fyrir mælt með lögum,
a,ð allir verkfærir menn, á aidrin-
^rn frá 25 til 45 ára, eru skyldir
f varaliðið, skyldir til æfinga og
skyldir að láta sjá sig einu sinni
á ári, eftir bendingum frá bruna-
stjóra, niðri á brunastöðinni til
^krásetningar, og sá sem vanrækir
að koma, en hefir ekki lögleg for-
fölí, er dæmdur til sekta!! 1
Mér er kunnugt að undanfarin
'fvö ár hafa menn verið dæmdir
tii sekta, en á sama tíma hefir
engin æfing verið höfð með vara-
iiðinu, og eg yil ætla að hversu
íl>ikinn bruna sem að höndum
^æri, yrði varaliðið aldrei kvatt,
ef dæma imætti eftir reynzlu und-
a»íarandi ára, Fastaliðið hefir laun
°g eg ætla að vona að ekki verði
tangt að bíða þess að þeir fái
ókeypis tryggingu gegn slysum
°g sjúkdómum sem orsökuðust af
starfi þeirra í þágu bæjarfélagsins.
% segi sjúkdómum, því sú hætta
tetur orðið fult svo mikil sem
%sahættan, þegar menn verða
íennvotir í hörkugaddi við bruna,
margir sem aldrei þekkja
aeiaa vosbúð, nema undir slíkum
^ingumstæðum.
Nú hafa allir brunar sýnt, að
^staliðið er ekki einfært um að
ráða við eldinn og annað sem til-
^eyrir, en þó hefir varaliðið aldrei
Verið kvatt til hjáipar. Þetta end-
artók sig við síðasta bruna. Þá
Setlt oftar voru það fórnfúsir sjálf-
°ðalíga). sem aðstoðuðu drengi-
ega og lögðu sig eins fram og
Petr einkennisklæddu, án þess að
taka tillit til þess að þóknunin
Var engin. T. d. þegar eldurinn
^ auzt austur úr gafli hússins
' 3i, þá varð svo mikill hiti á
þe'ss og Lv. 33 að brunaliðið
hröklaðist undan og fór að sprauta
á kvistinn á því húsi. Þá sá einn
áhorfenda að aðferð þessi var
þýðingarlaus, ef eldur kæmist í
gafl hússins varð ekki viðráðið,
gaflinn þurfti að verja, hvað sem
það kostaði. Þaut hann því til og
fékk sér 3 aðstoðarmenn og settu
þeir upp seglskýli á milli fyr-
nefndra húsa. Þegar það var kom-
ið upp komu liðsmenn með 2>
slöngur og höfðust við undir segl-
inu. Nokkru seinna virtist eldurinn
ætla að leggja undir sig húsin
sunnan Lv. og fékk hinn sami
tnaður þá sett upp annað skýli
þeim til varnar. Þetta var gert
um það bil er eldhafið var sem
hæst, og eg vil fullyrða að húsið
Lv. 33 hefði fallið í rústir og ef
til vill fleiri, ef skýlin hefðu ekki
verið sett upp í tæka tfð.
Sjáifboðaliðsmenn þeir, er skýl-
unum héldu, voru ver leiknir en
liðsmenn, þar eð þeir voru hlýfð-
arfatalausirþví stöðugt þurfti að
leika vatn um skýlin, til þess þau
ekki brynnu. Þessa læt eg hér
getið aðeins til að sýna fram á
að í þetta sinn, sem önnur, þurfti
varalið að aðstoða, en í þess stað
kom sjálfboðalið, og þar með eru
lög um það efni tildur eitt, sem
aldrei er framfylgt, nema þegar
hægt er að fþyngja mönnum með
fjárútlátum. Lög um varalið, eins
og þau nú mæla fyrir, eru gagns-
laus. Hvað á að þýða þessi fjöldi
allur á aldrinum frá 25—45 árall
Væri ekki hyggilegra að hafa fast
varalið, svo sem 2—3 sinnum
mannfleira en aðalliðið, og það
þá æft vel, svo það væri fært um
að taka við hvenær sem vera
skyldi, og einnig kvatt er þörf
krefði; kvatt með brunaköllurum
þeim, sem áður voru notaðir?
Það sem mælir með þessari breyt-
ingu er 1., að aldrei er þörf fyrir
alla verkfæra menn frá 25—45
ára; 2., að fáir vel æfðir samtaka
menn gera mikið meira gagn en
fjöldi ósamtaka og óæfðra manna.
Eg beini þessari tillögu til bruna-
málanefndar bæjarstjórnarinnar til
rækilegrar yfirvegunar.
(Frh.)
Rðssar og pólverjar,
Khöfn, 26. ágúst.
Frá London er símað, að fuli-
trúar Pólverja á friðarráðstefnunni
í Minsk hafi neitað að ganga að
friðarskilmálum Sovjet-Rússlands,
sömuleiðis Englands um að þjóð-
erni ráði landamærum.
Wolffs fréttastofa tilkynnir, að
bolsivíkar ætli að flytja alt liðið
af Krím-vígstöðvunum (sem er að
fást við Wrangel) og senda það
gegn Pólverjum.
Frá Danzig er símað, að þang-
að komi stöðugt frönsk hergögn
til Pólverja.
Frá Berlín er símað, að 30 þús.
bolsivíkar hafi farið yfir landamæri
Austur- Prússlands.
Erlend mynt.
Khöfn 26. ágúst.
Sæaskar krónur (100) kr. 144,00
Norskar krónur (100) — 99,75
Pund sterling (1) — 25,4$
Dollar (1) — 7.12
Bolsivisminn breiðist út.
Hið nýja óháða lýðveldi Azcr-
bedjan ríkið (norðvestan við Per-
síu) er nú orðið bolsivíkst. Hefir
þar verið tekin upp ráðstjórn og
náin samvinna við Rússa, og
heimta Rússar nú landsvæði nokk-
urt af Armeníumönnum, svo þeir
megi veita tyrknesku þjóðernis-
sinnunum lið. Það er engin furða
þótt ensku auðvaidsblöðin hæli
eigi bolsivíkum, þeir eru komnir
fullnálægt Mesopotamiu og Ind-
landi til þess.