Morgunblaðið - 15.11.1978, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.11.1978, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978 Siglingar kjörin tómstundaiðja Siglingaklúbburinn BROKEY í Reykjavík hélt nú nýverið 8. aðalfund sinn, en félagið var stofnað 1971 af áhugafólki um siglingar. Starfið í BROKEY er m.a. fólgið í almennri fræðslu um siglingar, þjálfun og kennslu í meðferð seglbáta, sköpun aðstöðu til báta- bygginga og bátageymslu, skipulagningu og fram- kvæmd siglingakeppna, þátttöku í siglingakeppnum og félagslegu starfi til að auka skoðana- og samskipti áhugafólks um siglingar. Á fundinum var samþykkt svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur siglingaklúbbsins BROKEYJAR í Re.vkjavík, haldin að Háaleitisbraut 68 þann 30. október, vill vekja athygli borgaryfirvalda á Fossvoginum, Nauthólsvíkinni og umhverfi hennar, sem einum vinsælasta útivistarstað borgar- búa. Siglingamenn treysta því að borgaryfirvöld haldi áfram að bæta þá aðstöðu til siglinga, sem þar er þegar fyrir hendi. íbúar í höfuðborginni við sundin blá hafa frá náttúrunnar hendi mjög ákjósanleg skilyrði til að iðka siglingaíþróttina. Ætti hún því að vera þeim ekki síður en öðrum landsmönnum kjörin tómstundaiðja og holl útivistarskemmtun." I stjórn klúbbsins voru kosnir: Róbert Pétursson, formaður, Steinar Gunnarsson, Bjarni Guðmundsson og Stefán Mogen- Ef fjölskyldan er ekki fyllilega ánægÖ með litína í • blaupunkt geturðu skilað tækinu aftur! Við erum sannfærðir um yfirburði litasjónvarpstækjanna frá Blaupunkt. Tæknilega fullkominn búnaður þeirra og frábær hönnun tryggir viðskiptavinum okkar góð kaup. Þess vegna máttu skila Blaupunkt litasjónvarpstækinu aftur að viku liðinni, ef þið eruð ekki fyllilega ánægð með kaupin. Hvað gerir #BLAUPUNKT litasjónvörp áhugaverðari en önnur fullkomin tæki? 1. Ekkert, en litasjónvörp Blaupunkt eru í hæsta gæðaflokki. 2. Myndlampinn. Blaupunkt notar aðeins amerískan RCA myndlampa í tæki sín. 3. Skilarétturinn. Ef þér líka ekki litirnir, máttu skila tækinu að viku liöinni. Gunnar Ásgeirsson h.f. endur- greiðir fúslega kaupverð tækisins. 4. Ábyrgðin. Vegna reynslu okkar af Blaupunkt vörum hérlendis er ábyrgð okkar á myndlampanum 3 ár. 5. Verðið. Hagstæðir samningar, sem m.a. byggjast á vinsældum Blaupunkt meðal íslenskra sjónvarpseigenda, gera okkur nú kleift aö bjóða þér litasjónvarps- tæki á betra veröi en nokkru sinni áóur. Skoðaðu önnur tæki, en komdu svo og fáðu þér Blaupunkt litasjónvarp! Blaupunkt geturðu skilað aftur að viku liðinni ef fjölskyldan er ekki fyllilega ánægð! Gunnar Ásgeirsson h.f. Suðurlandsbraut 16, sími 91-35200 Safha upp- lýsingumum íslenzkar kvikmyndir SKIPAÐ hefur verid í stjórn Kvikmyndasafns íslands. en á síðasta Alþingi voru sam- þykkt lög um Kvikmyndasafn og Kvikmyndasjóð. í stjórn safnsins hafa verið skipaðir Árni Björnsson, Erlendur Sveinsson, Jón bórarinsson. Magnús Jóhannsson og Knút- ur Hallsson formaður safnsins skipaður af menntamálaráðu- neytinu. Hlutverk safnsins er að safna íslenzkum kvikmyndum og kvikmyndum um íslenzk efni, gömlum og nýjum, hverju nafni sem nefnast og varðveita þær. Á fyrsta fundi safnstjórnar var ákveðið að hefjast handa um söfnun upplýsinga og skráningu íslenzkra kvikmynda og kvikmynda um íslenzk efni. í fréttatilkynningu sem Morgunblaðinu hefur borizt, beinir safnstjórnin þeim til- mælum til allra þeirra, sem kunna að hafa undir höndum slíkar kvikmyndir eða telja sig hafa vitneskju um hvar þær kunni að vera niður komnar, að koma þeim upplýsingum á framfæri, annaðhvort við menntamálaráðuneytið eða við Fræðslumyndasafn ríkisins. Karsten Andersen stjórnar Sinfóníunni SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís- lands heldur fjórðu áskriftar- tónleika sína á þessu starfsári n.k. fimmtudag 16. nóv. kl. 20.30. Tónleikarnir verða eins og að venju í Háskólabíói. Efnisskráin á þessum tónleik- um verður sem hér segir: Vivaldí: Concerto grosso Honegger: Concertino Jón Nordal: Píanókonsert Sibelius: Sinfónía nr. 1. Stjórnandi er norski hljóm- sveitarstjórinn Karsten Ander- sen aðalhljómsveitarstjóri rík- ishljómsveitarinnar í Bergen, en hann er íslenskum tónleika- gestum að góðu kunnur frá því hann var aðalhljómsveitar- stjóri Sinfóníuhljómsveitar ís- lands í nokkur ár. Gísli Magnússon hefur áður leikið einleik með Sinfóníu- hljómsveit Islands og einnig haldið sjálfstæða tónleika. Á tónlistarhátíðinni í Bergen á síðastliðnu ári lék Gísli píanó- konsertinn eftir Jón Nordal með fílharmoníuhljómsveitinni í Bergen undir stjórn Karstens Andersens, og hlutu þeir báðir einróma lof gagnrýnenda. Rithöfundasam- bandið styður listabannFÍM STJÓRN Rithöfundasambands Islands lýsir yfir eindregnum stuðningi við listbann Félags íslenskra myndlistarmanna vegna ágreinings um stjórn listrænnar starfsemi á Kjarv- alsstöðum. Jafnframt vill stjórnin skora á borgarfulltrúa Reykjavíkur- borgar að gera nú þegar gang- skör að því að leysa ágreining hússtjórnar Kjarvalsstaða og samtaka listamanna svo að Kjarvalsstaðir geti sem fyrst orðið sá vettvangur lista í Reykjavík sem að er stefnt. (Fréttatilkynning).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.