Morgunblaðið - 16.11.1978, Qupperneq 1
48 SIÐUR
262. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Flóttamanna-
skipinu vísað
frá Malaysíu
FLÓTTAMANNASKIP — Um borð í þessu skipi híma nú 2500 flóttamenn frá Vietnam og bíða örlaga
sinna. Malaysíustjórn hefur hótað að fjarlægja skipið úr landhelgi sinni, en Poul Hartling, forstöðumaður
Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefur skorað á Malaysíu að heimila fólkinu landtöku.
Port Klang, Malaysíu.
15. nóvember. AP. Reuter.
MALAYSÍUSTJÓRN ítrekaði í
dag að ekki kæmi tii mála að
veita hæli 2500 flóttamönnum frá
Víetnam. sem nú eru um borð í
flutningaskipinu Ilai Ilong utan
við höfnina í Port Klang í
Malaysíu. Segir stjórnin að hún
sé reiðubúin að láta í té matvæli,
lyf og veita aðra aðhlynningu og
aðstoð við að gera við vélar
skipsins til þess að það komist í
burt. en beitt verði öllum tiltæk-
um ráðum til að losna við skipið
úr landhelgi.
Poul Hartling, yfirmaður
Fyrst
síoan
Kairó, Jerúsalem.
Washington. 15. nóv. Reuter AP.
VARAFORSETI Egyptalands,
Hosni Mubarak, var í kvöld
væntanlegur til Washington til að
gera þar grein fyrir breyttri
afstöðu Egypta í samningavið-
raMlunum við ísraelsmenn, sem
samið um Gaza og
um Yesturbakkann?
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, skoraði í dag á Malay-
síustjórn að heimila fólkinu land-
göngu um stundarsakir á meðan
unnið yrði að því að finna því
varanlegt hæli í hinum ýmsu
löndum, sem hafa boðið aðstoð
sína að þessu leyti.
Skipið hefur nú legið undan
ströndum Malaysíu í vikutíma og
segir bandarískur blaðamaður sem
komst um borð í skamma stund að
aðbúnaður allur sé hinn ömurleg-
asti og hreinasta neyðarástand
ríkjandi um borð.
Malaysíumenn halda því fram
að fóikið um borð sé ekki venjulegt
flóttafólk heldur fóik sem greitt
hafi offjár til fjármálaaðila í Hong
Kong til að komast burt. Burtséð
frá því hafi Malaysíumenn þegar
gert sitt í því að hjálpa víetnömsk-
um flóttamönnum, þar sem þegar
séu tugir þúsunda slíkra í landinu.
stofnað hefur framtíð viðræðn-
anna í hættu. Mubark kom við í
París á leið sinni vestur um haf og
sagði þar í borg að hann hefði ekki
meðferðis neinar nýjar hugmyndir
til að færa Carter Bandaríkjafor-
iseta. -
Rússar hleypa úr
landi veiku barni
Moskvu, 15. nóvember — AP. Reuter.
SOVÉZK Gyðingahjón íengu í dag
heimild yfirvalda til að flytjast úr
landi með eins árs dóttur sína, sem
þjáist af mjög sjaldgæfum og
alvarlegum barnasjúkdómi, er
einungis mun unnt að annast með
árangri í Bandarfkjunum. Fólk
þetta hefur um langa hríð leitað
eftir því að flytjast burt, en jafnan
verið neitað um nauðsynleg lcyfi,
þar til Edward Kennedy, banda-
ríski öldungadeildarþingmaurinn,
tók mál þeirra persónulega upp
við Brezhnev forseta Sovétríkj-
anna fyrir nokkru.
Fjölskyldunni, Boris og Natalyu
Katz og dóttur þeirra, var gefinn
frestur til 4. desember til að fara úr
landi. Natalya Katz sagði vestræn-
um fréttamönnum í dag, að þau
hjón ættu bágt með að trúa því að
þau fengju að fara frá Rússlandi. Sá
böggull fylgir þó skammrifi að
frestur sá sem gefinn hefur verið til
brottfarar er mjög stuttur, en
Natalya er nú langt komin á leið
með annað barn sitt og hafa læknar
ráðlagt henni að leggja ekki á sig
nein ferðalög, þar sem séð er að
fæðingin verður erfið. Natalya
sagðist í dag ekki vita hvort þeim
tækist að komast burt fyrir 4.
desember, en hún ætti von á öðru
barni sínu hvaða dag sem væri úr
þessu.
Boris Katz sagði í dag að hann
myndi þegar fara og ná í vegabréfs-
áritanir fyrir fjölskyldu sína og
greiða þær 1400 rúblur (um 650
þúsund ísl. kr.), sem þær kosta.
Egy'pzkar heimildir í Washington
hermdu á hinn bóginn, að egypzka
stjórnin hefði nú í hyggju að slaka á
þeirri kröfu sinni að ísraelsmenn
féllust á að tengja friðarsamning
ríkjanna við framtíð Vesturbakka
Jórdanár og Gaza-svæðisins. Sadat
Egyptalandsforseti stakk upp á því
í gær, að viðræðum um Vesturbakk-
ann yrði frestað, en tekið til við
samninga um Gaza-svæðið.
ísraelsstjórn frestaði í dag fundi
sínum um nýjar málamiðlunartil-
lögur Bandaríkjastjórnar þar til séð
væri hvað Sadat ætti við með
þessari hugmynd.
Sadat lýsti því yfir í dag að
snurða væri hlaupin á þráðinn í
viðræðunum og verið gæti heppi-
legast fyrir alia aðila að hlé væri
gert á þeim og samningsaðilunum
þannig gefið tóm tii að endurmeta
málin frá grunni.
Ástæða þess, að Egyptar eru nú
fáanlegir til að ræða sérstaklega og
fyrst um Gaza-svæðið er talin sú, að
þeir fóru með stjórn þess svæðis
einir fyrir 6 daga stríðið 1967 og
leiðtogar Palestínumanna á
svæðinu munu reiðubúnir til sam-
starfs nú. Á hinn bóginn var
Vesturbakkinn á yfirráðasvæði
Jórdaníu fram til 1967 en Jórdaníu-
menn hafa ekki viljað taka þátt í
friðarviðleitni Sadats.
Á fengisauglýs-
ingar bannaöar
í Svíþjóð
Stokkhólmi. 15. núvember. AP.
SÆNSKA þingið ákvað í dag að
banna auglýsingar á áfengum
drykkjum í Svíþjóð frá og með I.
júlí n.k. Auglýsingar á tóbaki
verða áfram heimilar. en þeim
verða þó að fylgja viðvaranir um
skaðsemi reykinga. Bann þings-
ins hefur ekki áhrif á auglýsing-
ar áfengisframleiðenda í erlend-
um blöðum. sem flutt eru til
Svíþjóðar.
Flugræningi drep-
inn í Sovétríkjunum
Moskvu, 15. nóvember. AP.
VOPNAÐUR maður sem fyrir
nokkrum diigum reyndi að ræna
sovézkri farþegaflugvél í innan-
landsflugi var skotinn til bana,
þegar verðir reyndu að yfirbuga
hann og hann veitti mótspyrnu,
að því er sovézka fréttastofan
Tass skýrir frá í dag.
Tass segir, að maðurinn hafi
verið vopnaður glæpamaður, E.M.
Makhayev að nafni, og hafi hann
verið um borð í áætlunarflugvél á
leið frá Krasnodar til Baku við
Kaspíahaf. Segir jafnframt, að
aðra farþega hafi ekki sakað,
þegar flugræningjanum var ráð-
inn bani.
Þetta er í annað sinn á sex
mánuðum sem tilraun til flugráns
á þessum slóðum fer út um þúfur. í
maímánuði sl. bönuðu öryggis-
verðir manni sem hugðist snúa
flugvél í innanlandsflugi nálægt
Kákasusfjöllum til Vesturlanda.
Amarasinghe, forsetl hafréttarráðstefnunnar;
„ Við munum Ijúka
starfi á nœsta ári
99
„ÞRATT fyrir nokkur stór
vandamál sem liggja fyrir geri
ég mér miklar vonir um að
okkur takist að ljúka störfum á
vorfundinum, sem ákveðið
hefur verið að fari fram 19.
marz til 27. apríl á næsta ári í
Genf," sagði Ilamilton Shirley
Amarasinghe. forseti hafrétt-
arráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna. í samtali við Morgun-
hlaðið í gær.
Amarasinghe var eins og
kunnugt er af fréttum kosinn á
allsherjarþinginu til að gegna
áfram stiirfum forseta ráð-
stefnunnar. þrátt fyrir að hafin
sé ekki lengur fulltrúi lands
síns, Sri Lanka. hjá Sameinuðu
þjóðunum. Við atkvæðagreiðslu
á allsherjarþinginu fékk
Amarasinghe alls 86 atkvæði
gegn 9.
Þá sagði Amarashinghe, að
stærstu vandamálin, sem lægju
fyrir ráðstefnunni, væru í fyrsta
lagi að komast að samkomulagi
varðandi auðlindalögsögu ríkja
og þá sérstaklega með tilliti til
meginlandsríkja, sem lítinn sem
engan aðgang hafa að sjó. Hins
vegar væru nokkrar deilur um
yfirráðaréttinn yfir hafsvæðum
utan lögsögu strandríkja.
Er Amarasinghe var inntur
eftir hans áliti á þeirri gagnrýni
sem fram kom af hálfu and-
stæðinga hans við atkvæða-
greiðsluna til forsetakjörs, þ.e.
að ótækt væri að maður sem
væri ekki fulltrúi neins lands
væri forseti ráðstefnunnar,
svaraði hann: „Það er auðvitað
út í hött að halda því fram, að ég
vinni störf mín verr, þótt ég sé
ekki lengur formlegur fulltrúi
þjóðar minnar. Ég mun að
sjálfsögðu starfa samkvæmt
minni beztu sannfæringu og
pólitík mun þar ekki hafa nein
áhrif, enda tel ég að hafréttar-
mál beri að skoða alveg ópóli-
tískt. Ástæðan sem ríkin gefa
upp er bara skálkaskjól og hin
raunverulega ástæða er póli-
tísk.“
Að síðustu kom fram hjá
Amarasinghe, að ef ekki tækist
að ná samkomulagi á fundinum
í Genf í vor, þá teldi hann nær
víst að hægt væri að ljúka
verkinu á einum fundi til
viðbótar á næsta ári, þannig að
lausn málsins ætti að vera í
augsýn.