Morgunblaðið - 16.11.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978
Lítt miðaði í vísi-
tölunefnd í gærdag
Umdeild svalahandrið í Breiðholti:
VISITÖLUNEFNDIN sat í gær á alllöngum fundi, þar sem f jallað var um
drög að áliti nefndarinnar, en fyrsta áliti sínu ber henni að skila fyrir 20.
nóvember. Nefndin komst ekki að niðurstöðu um drögin, enda höfðu
umbjóðendur þeirra fulltrúa, sem sátu fundinn. ekki tekið endanlega
afstöðu til draganna í heild. ASÍ heldur t.d. miðstjórnarfund um drögin í
dag og í BSRB er stjórnarfundur í dag af sömu ástæðu. Ákveðið var að
fundarmenn hittust aftur á morgun, föstudag, en formaður
nefndarinnar, Jón Sigurðsson, hagrannsóknastjóri, mun þó hafa opinn
möguleika fyrir fundi síðdegis
áðurnefndum fundum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær,
ræddu menn einstök atriði drag-
anna, sem eru mjög í anda þeirra
frumdraga, sem Mbl. hefur áður
birt kjarnann úr. Heldur er dregið
úr áherzlum í drögunum frá því er
var í frumdrögunum, en öll hin
sömu atriði eru þó enn í myndinni.
Umræðan á fundinum mótaðist að
nokkru af því að formaður nefndar-
innar hefur ekki gert neinar
veigamiklar breytingar frá frum-
drögunum.
Niðurstöður á fundinum voru
engar, þar sem enginn aðili á
fundinum lýsti afstöðu sinni til
tillagnanna í drögunum í heild,
heldur skýrðu menn fremur afstöðu
til einstakra þátta málsins. Hins
í dag, ef skýr svör verða til á
vegar munu Vinnuveitendasamband
íslands og Vinnumálasamband
samvinnufélaganna í stórum
dráttum vera sammála drögunum í
heild og reiðubúin til að taka þessi
atriði til skoðunar, enda eru þau öll
í þá veru að takmarka áhrif
víxlhækkana verðlags og kaup-
gjalds.
Helztu sjonarmið forystumanna
launþega á fundinum eru að þótt
yfirlýst sé að draga eigi úr
verðbólgu, þá séu þessar áþreifingar
að mestu úr tengslum slitnar við
aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þeir
telja sig ekki sjá nein merki þess að
menn ætli að takast á við
verðbólgudrauginn af alvöru og þá
muni þetta fremur lítt stoða eitt
sér.
Breki VE 61 kom til heimahafnar í gær eftir langa fjarveru vegna viðgerðar á
Akureyri. Ljósm. Mbl.i Sigurgeir.
Vísitölunefndin á fundi í gær. Frá vinstri. Július Kr. Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna, Jónas
Bjarnason, formaður Bandalags háskólamanna, Jónas Sveinsson,
hagfræðingur Vinnuveitendasambands íslands, Brynjólfur Bjarnason,
rekstrarhagfræðingur, fulltrúi VSÍ, Ingólfur Ingólfsson, forseti FFSÍ,
Jón Sigurðsson, formaður nefndarinnar, Bolli Bollason, ritari
nefndarinnar, Þorsteinn Geirsson, skrifstofustjóri fjármálaráðuneytis-
ins, Haraldur Steinþórsson, íramkvæmdastjóri BSRB, Ásmundur
Stefánsson, hagfræðingur ASÍ, og Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar. — Ljósm.. RAX
„Ráðið gegn verðbólgunni
er ekki að gefast upp fyr-
ir henni og hækka vexti”
— segir framkvæmdastjóri LÍÚ —
IIÆSTIRÉTTUR hefur með nýlegum dómi sýknað byggingameistara
einn í Reykjavík af kæru um brot á byggingasamþykkt með frágangi
svalahandriða hússins nr. 2—20 við Dvergabakka í Reykjavík, en
umræddur maður byggði það hús.
VEXTIR og verðtryggingar voru
meðal þeirra mála, sem Kristján
Ragnarsson ræddi um í setningar-
ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ í gær.
Sagði hann að eftir þá breytingu,
sem gerð hefði verið á verðtrygging-
ar- og vaxtakjörum Fiskveiðasjóðs,
yrði ekki smíðað fiskiskip fyrir
íslendinga, hvorki hér á landi né
erlendis, nema af aðilum, sem sótt
gætu fé í vasa samborgaranna eftir
sérstökum leiðum. Útskýrði Kristján
Sótt um bygg-
ingaleyf i f yr-
ir fimm flug-
skýliáReykja-
víkurflugvelli
BYGGINGARNEFND
Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum á fimmtudag
byggingu fimm flugskýla á
Reykjavíkurflugvelli.
Eigendafélagið TF-FET
sótti um leyfi til að byggja
flugskýli úr stáli, 216,4
fermetrar, og Vélflugfélag
íslands sótti um leyfi til að
byggja 4 flugskýli úr stáli,
samtals 1732,5 fermetrar.
mál sitt síðan með dæmum og sagði
svo:
„Öllum ætti að vera ljóst, að
fiskiskip verða ekki smíðuð á
næstunni fyrir Islendinga og þaðan
af síður, ef vextir og önnur lánskjör
verða gerð enn óhagstæðari. Vanda-
málið' í þessu dæmi, eins og öllum
öðrum, stafar af verðbólgunni og
stjórnmálamennirnir verða að skilja,
að ráðið er ekki að gefast upp fyrir
henni og hækka vexti, heldur að
grípa til aðgerða gegn henni. Ekki í
margra ára áföngum, heldur einu
samræmdu átaki, þar sem fólk skilur
að verið sé að taka á vandanum og
við ætlum okkur að leysa hann.“
Húsið er stórt fjölbýlishús í
Neðra-Breiðholti með um 50 íbúð-
um. Frágangur svalahandriða er
frábrugðinn því, sem tíðkast í
fjölbýlishúsum í nágrenninu,
handriðin eru úr tré og var það álit
byggingafulltrúa, að með frágangi
þeirra hefði byggingasamþykkt
verið brotin og slysahætta stafaði
af búnaði svalanna. Bygginga-
meistarinn var kærður og höfðaði
ríkissaksóknari opinbert mál á
hendur byggingameistaranum árið
1971. Dráttur varð á því að dómur
væri kveðinn upp í héraði og í
byrjun árs 1977 var kveðinn upp
dómur í sakadómi Reykjavíkur.
Þar var refsing ákærða felld niður
en honum gert að greiða sakar-
kostnað.
í hæstarétti var byggingameist-
arinn einnig sýknaður og ákveðið
að sakarkostnaður skyldi greiðast
úr ríkissjóði. í dómi Hæstaréttar
segir ennfremur, að vítaverður
dráttur hafi orðið á rekstri
málsins.
Upphaf þessa máls var kvörtun
íbúa hússins til byggingafulltrú-
ans í Reykjavík vegna ófullnægj-
andi frágangs svalanna. Munu
íbúarnir hafa beðið eftir niður-
stöðu þessa máls og mun það hafa
verið ætlun þeirra að höfða mál á
hendur byggingameistaranum ef
hann tapaði og krefja hann um ný
svalahandrið. Nú er endanlegur
dómur fallinn og samkvæmt
niðurstöðunni þurfa íbúarnir
sjálfir að bera kostnað af breyt-
ingunni ef þeir ráðast í hana en
þarna er um milljóna verk að
ræða.
Gengu ber-
serksgang—
misþyrmdu
heimilinu
HEIMILI í nágrenni Reykja-
víkur var um síðustu helgi
stórskemmt af óðum krakka-
lýð og mun tjón á innan-
stokksmunum skipta
hundruðum þúsunda ef ekki
milljónum. Hjónin, sem eiga
húsið, voru ekki heima og
hafði dóttir þeirra boðið
skólafélögum sínum í „partý"
með þeim afleiðingum, sem að
framan greinir. Unglingarnir
munu hafa ákveðið að mis-
þyrma heimilinu. þar sem
þeim þótti það of borgaralegt.
Hluti gestanna er sam-
kvæmt heimildum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
nemendur úr framhaldsskóla á
stór-Reykjavíkursvæðinu, en
heimasætan, sem bauð til
veizlunnar, er þar einnig
nemandi. Fleiri munu þó hafa
komið í boðið, þar sem það
mun hafa spurzt út að glaum-
ur væri í húsinu. Nokkrir
nemenda skólans munu hafa
verið teknir til yfirheyrslu af
yfirmanni skólans og mun í
ráði að taka fleiri til bæna
vegna þessara atburða.
Heimilið, sem er í húsi á
sjávarlóð, mun hafa verið
mjög illa út leikið eftir þessa
atburði. M.a. munu ungl-
ingarrfir hafa borið húsgögn í
fjöruna og slegizt með lömp-
um. Nokkrir unglinganna voru
sýnu verstir og gengu
berserksgang. Aðrir reyndu að
stilla til friðar, en fengu lítið
sem ekkert að gert.
Mál þetta hefur ekki verið
kært til lögregluyfirvalda.
Örin bendir á Dvergabakka 2 — 20.
Álagið óskaplegt
segja stúlkurnar á 09-
„ÞAÐ HEFUR verið óskaplegt
álag hjá okkur undanfarna daga
og fólk þarf að bíða í þrjá til
íimm tíma eftir því að ná
samhandi." sagði Guðný Þórðar-
dóttir varðstjóri á Talsamband-
inu við útlönd í samtali við Mbl.
Sæstrengurinn milli íslands og
Skotlands, Scottice, er enn slit-
inn. Guðný sagði að í gær hefði
borizt skeyti þess efnis að við-
gerðarskipið Iris væri lagt af stað
frá Suðureyjum. Er áætlað að
skipið verði sólarhring á leiðinni
á bilunarstaðinn, sem er norðan
við Færeyjar. Það fer svo eftir
veðri hvenær viðgerð hefst en
hún tekur skamman tíma. „Við
vonura að kapallinn komist í lag
um helgina og að ástandið komist
þá í samt lag,“ sagði Guðný.
Talsambandi hefur orðið að
notast við fjórar línur í gegnum
sæstrenginn Icecan, sem liggur
héðan til Kanada og þaðan hefur
verið gefið samband um allan
heim.
Byggingameistarinn
sýknaður í Hæstarétti