Morgunblaðið - 16.11.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÖVEMBER 1978
3
Kristján Ragnarsson:
Fengu 3 milljónir
fyrir verksmið ju,
sem nú á að kaupa
aftur á 300 millj.
— ATVINNUREKSTUR á þessum stað hefur verið undir forystu
Framkvæmdastofnunar ríkisins f nokkur ár og þaðan hefur
fjárrennslinu til togaraútgerðarinnar og frystihússins á staðnum
verið stjórnað, sagði Kristján Ragnarsson í ræðu sinni á
LÍÚfundinum í gær, en hann gerði þar m.a. að umtalsefni
atvinnurekstur á Þórshöfn á Langanesi. Sagðist Kristján víkja að
þessu máli vegna þess, að hann teldi að þarna væri á ferðinni alvarleg
aðvörun til stjórnmálamanna um pólitíska misnotkun á almannafé,
sem ekki mætti endurtaka sig.
Næst í þessu máli sagði Kristján
vera, að Síldarverksmiðjum ríkis-
ins yrði seld ónýt síldarverk-
smiðja, sem til væri á staðnum.
Síðan sagði Kristján í ræðu sinni:
„Verksmiðja þessi var seld á
uppboði fyrir mörgum árum og
eignaðist þá Ríkisábyrgðarsjóður
verksmiðjuna, en seldi hana 1973
fyrirtæki á staðnum fyrir 18
milljónir króna, en aldrei mun það
þó hafa greitt nema 3 milljónir
króna. Nú mun áætlað af stjórn-
völdum að selja Síldarverksmiðj-
um ríkisins verksmiðjuna fyrir 300
milljónir króna gegn vilja stjórnar
og framkvæmdastj. verksmiðj-
anna, sem telja verksmiðju þessa
aldrei verða notaða."
0
Afengissalan:
Aukning í krónutölu
37% á meðan verð-
ið hækkaði mn 73%
„ÞAÐ hcfur orðið mikill sam- lát þar á,“ sagði Jón Kjartansson
dráttur í áfengissölunni og ekkert forstjóri ÁTVR í samtali við Mbl. í
gær. Salan í Reykjavík fyrstu 10
daga nóvembermánaðar var 301,5
milljónir króna en sömu daga
síðasta árs nam salan 232,9
miiljónum króna. Aukningin í
krónutölu er 29,5% meðan áfengis-
verð hefur hækkað um samtals
72,8%.
Jón Kjartansson gaf Mbl. einnig
upp sölutölur á landinu öllu fyrir
september sl. og september ’77. Nú
seldist áfengi fyrir röskan milljarð
en í september ’77 fyrir 761,8
milljónir. Aukning á krónutölu er
37%, en 28. desember hækkaði
áfengi um 20%, 13. júní sl. hækkaði
það aftur um 20% og 8. september
um 20% til viðbótar, samtals 72,8%.
Skyndihappdrættið:
Dregið eft-
ir tvo daga
DREGIÐ verður í skyndihapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins á
laugardaginn. Þeir sem enn eiga
ógerð skil vegna heimsendra
miða eru hvattir til að gera þau í
dag. Skrifstofan í Sjálfstæðis-
húsinu verður opin til klukkan
22 í kvöld og sfminn er 82900.
Dagaspursmál að fá
svar um Víðishúsið
- segir fr amkvæm dastj óri Karnabæjar
„Þetta er orðið dagaspursmál
hjá okkur en við búumst nú við því
að menntamálaráðherra sýni okk-
ur þann sóma að svara tilboðinu."
sagði Guðlaugur Bergmann fram-
kvæmdastjóri Karnabæjar, er Mbl.
spurði hann í gær hvort fyrirtækið
héldi enn við tilboð sitt í húsnæði
mcnntamálaráðuncytisins í
Víðishúsinu.
„Við höfðum skýrt ráðherra frá
því hvað það skipti okkur miklu
máli að fá svar í október," sagði
Guðlaugur. „Við höfum að vísu
útgöngudyr í málinu, þar sem er lóð
í Iðnborgum, sem við myndum þá
byggja á, en okkur er nauðsynlegt
að geta tekið ákvörðun í málinu á
næstunni."
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 14. nóvember 1978
Þessi úrklippa er
af baksíðu Akureyrar-
blaðsins Dags.
NÍU BÖRN A FJORTAN MANUÐUM!!!
Hér sjást nfu mnður með börnln sín, sem fœðst
hafa i síðustu fjórtán mánuðum. bessar myndar-
legu konur hafa allar unnið i útlbúl KEA f Höfðahlið
1 í Glerárhverfi á Akureyrl. A myndlnnl með þeim
er útibússtjórinn, Guðmundur Magnússon, og þótt
hann só hlnn föðurlegasti, saekja blessuð börnln
myndarskap slnn til annarra. Vart mun það of-
mætt, að ástar- og frjósemlsgyðjan hafi oft átt er-
Indi og tyllt niður tá nálaegt þessu verslunarútlbúi,
jafnvel svo að með elndaemum má telja. Tll ham-
Ingju með árangurlnn. Mynd á.þ.
Fjárframlag ríkissjóös í f járlagafrum varpi:
3,6 milljarðar króna
tÚ verðtryggingar líf-
eyri ríkisstarf smanna
FJÁRFRAMLÖG ríkissjóðs til líf-
eyris eftirlaunaþega ríkisins eru á
fjárlögum fyrir 1979 áætluð um 3,6
milljarðar króna eða nánar tiltekið
3.585.039.000.- krónur. Fjárhæð
þessi hefur frá því á fjárlögum í
fyrra aukizt um 71,5%, en þá var
þessi upphæð rétt rúmlega 2
milljarðar króna eða
2.090.925.000 - krónur.
Þessi fjárhæð, tæplega 3,6
milljarðar króna, er framlag ríkis-
sjóðs til verðtryggingar greiðslum
úr lífeyrissjóði starfsmanna ríkis-
ins. Hún mun hækka svo mikið milli
ára vegna þess að í fjárlögum
siðasta árs var þetta framlag
vantalið að einhverju leyti, en í
meðferð Alþingis á fjárlagafrum-
varpinu í fyrra var áðurnefnd
upphæð, rúmir 2 milljarðar króna,
lækkuð í 1.890 milljónir króna.
Samkvæmt reikningum ársins
1977 fyrir lífeyrissjóð starfsmanna
ríkisins voru lífeyrisgreiðslur 1.341
milljón króna, en þar af var
endurgreiðsla ríkisins, þæ.a.s. hluti
ríkisins í verðtryggingu lífeyrisins,
962 milljónir króna. Þá var því sá
lífeyrir, sem sjóðurinn sjálfur bar,
379 llljónir króna. Á því ári hafði
lífeyrissjóðurinn í raun mun meira
greiðsluþol, þar sem fjármunir hans
eru að miklu leyti geymdir í
verðtryggðum skírteinum. Þetta ár
var uppreiknuð verðtrygging á
fjármunum sjóðsins á því ári 425
milljónir króna.
Morgunblaðinu tókst ekki í gær að
fá upplýsingar um áætlaðar lífeyris-
greiðslur úr sjóðnum fyrir árið 1979,
en fyrir árið 1977 var talan sem sagt
379 milljónir. Þess ber að gæta að
þessi upphæð hlýtur að hafa hækkað
nokkuð, þar sem yngstu lífeyris-
þegarnir eru dýrastir sjóðnum. Sé
hins vegar lífeyrisþegi orðinn 10 ára
eða meira, er það nú þegar mjög
óverulegur kostnaður fyrir sjóðinn
að greiða slíkum manni lífeyri.
Lagaákvæði sjóðsins segja að
greiða skuli lífeyri eins og hann er
upphaflega úrskurðaður, en ríkis-
sjóður greiði síðan verðtryggingu.
Nú mun vera til athugunar að
verðtryggt fjármagn sjóðsins komi
til frádráttar framlagi ríkissjóðs.
Lögunum hefur þó enn ekki verið
breytt.
Prestur vill
stofna ferða-
skrifstofu
„ÞAD ERU ferðir til ísraels og
Grikklands og Egyptalands, sem
ég er með í undirbúningi." sagði
séra Frank M. Ilaildórsson er Mbl.
spurði hann f gær um umsókn þá
um stofnun ferðaskrifstofu sem
hann hefur sent samgöngumála-
ráðuneytinu. „Ég er prestur í fullu
starfi og á því verður engin
breyting, þannig að ég mun sinna
þessu áfram í sumarleyfi mínu. en
ég hef tryggt mér starfskraft til
rekstursins ef af verður," sagði
séra Frank. Ferðamálaráð hefur
mælt með því að honum verði veitt
ferðaskrifstofuleyfi.
Sr. Frank sagðist síðastliðin tólf
ár hafa verið fararstjóri í sumar-
leyfum sínum í ferðum til Biblíu-
landa og sögufrægra staða. Hefði
hann nú talið rétt að sækja um
ferðaskrifstofuleyfi til að fá frjáls-
ar hendur um skipulagningu ferða,
en í undirbúningi eru páska- og
hvítasunnuferð til ísraels og ferð til
Grikklands og Egyptalands í júní.
Ríkisst jórnin sit-
ur á völtum stóli
segir Þjóöviljinn
Ráðherrar vinstri
stjórnarinnar sitja á völtum
stólum að sögn Þjóðviljans,
en forystugrein blaðsins í
gær endar svona:
„Sjái hinsvegar Fram-
sóknarflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn enga leið
aðra en stórskerðingu á
kaupmætti launafólks í ASÍ
og BSRB, mun verkalýðs-
hreyfingin ekki láta það
óátalið. Og þá hlýtur
Alþýðubandalagið að gera
það upp við sig hvort það
hefur ekki farið erindisleysu
inn í þá ríkisstjórn sem nú
situr á völtum stóli.“