Morgunblaðið - 16.11.1978, Síða 3

Morgunblaðið - 16.11.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÖVEMBER 1978 3 Kristján Ragnarsson: Fengu 3 milljónir fyrir verksmið ju, sem nú á að kaupa aftur á 300 millj. — ATVINNUREKSTUR á þessum stað hefur verið undir forystu Framkvæmdastofnunar ríkisins f nokkur ár og þaðan hefur fjárrennslinu til togaraútgerðarinnar og frystihússins á staðnum verið stjórnað, sagði Kristján Ragnarsson í ræðu sinni á LÍÚfundinum í gær, en hann gerði þar m.a. að umtalsefni atvinnurekstur á Þórshöfn á Langanesi. Sagðist Kristján víkja að þessu máli vegna þess, að hann teldi að þarna væri á ferðinni alvarleg aðvörun til stjórnmálamanna um pólitíska misnotkun á almannafé, sem ekki mætti endurtaka sig. Næst í þessu máli sagði Kristján vera, að Síldarverksmiðjum ríkis- ins yrði seld ónýt síldarverk- smiðja, sem til væri á staðnum. Síðan sagði Kristján í ræðu sinni: „Verksmiðja þessi var seld á uppboði fyrir mörgum árum og eignaðist þá Ríkisábyrgðarsjóður verksmiðjuna, en seldi hana 1973 fyrirtæki á staðnum fyrir 18 milljónir króna, en aldrei mun það þó hafa greitt nema 3 milljónir króna. Nú mun áætlað af stjórn- völdum að selja Síldarverksmiðj- um ríkisins verksmiðjuna fyrir 300 milljónir króna gegn vilja stjórnar og framkvæmdastj. verksmiðj- anna, sem telja verksmiðju þessa aldrei verða notaða." 0 Afengissalan: Aukning í krónutölu 37% á meðan verð- ið hækkaði mn 73% „ÞAÐ hcfur orðið mikill sam- lát þar á,“ sagði Jón Kjartansson dráttur í áfengissölunni og ekkert forstjóri ÁTVR í samtali við Mbl. í gær. Salan í Reykjavík fyrstu 10 daga nóvembermánaðar var 301,5 milljónir króna en sömu daga síðasta árs nam salan 232,9 miiljónum króna. Aukningin í krónutölu er 29,5% meðan áfengis- verð hefur hækkað um samtals 72,8%. Jón Kjartansson gaf Mbl. einnig upp sölutölur á landinu öllu fyrir september sl. og september ’77. Nú seldist áfengi fyrir röskan milljarð en í september ’77 fyrir 761,8 milljónir. Aukning á krónutölu er 37%, en 28. desember hækkaði áfengi um 20%, 13. júní sl. hækkaði það aftur um 20% og 8. september um 20% til viðbótar, samtals 72,8%. Skyndihappdrættið: Dregið eft- ir tvo daga DREGIÐ verður í skyndihapp- drætti Sjálfstæðisflokksins á laugardaginn. Þeir sem enn eiga ógerð skil vegna heimsendra miða eru hvattir til að gera þau í dag. Skrifstofan í Sjálfstæðis- húsinu verður opin til klukkan 22 í kvöld og sfminn er 82900. Dagaspursmál að fá svar um Víðishúsið - segir fr amkvæm dastj óri Karnabæjar „Þetta er orðið dagaspursmál hjá okkur en við búumst nú við því að menntamálaráðherra sýni okk- ur þann sóma að svara tilboðinu." sagði Guðlaugur Bergmann fram- kvæmdastjóri Karnabæjar, er Mbl. spurði hann í gær hvort fyrirtækið héldi enn við tilboð sitt í húsnæði mcnntamálaráðuncytisins í Víðishúsinu. „Við höfðum skýrt ráðherra frá því hvað það skipti okkur miklu máli að fá svar í október," sagði Guðlaugur. „Við höfum að vísu útgöngudyr í málinu, þar sem er lóð í Iðnborgum, sem við myndum þá byggja á, en okkur er nauðsynlegt að geta tekið ákvörðun í málinu á næstunni." DAGUR Akureyri, þriðjudagur 14. nóvember 1978 Þessi úrklippa er af baksíðu Akureyrar- blaðsins Dags. NÍU BÖRN A FJORTAN MANUÐUM!!! Hér sjást nfu mnður með börnln sín, sem fœðst hafa i síðustu fjórtán mánuðum. bessar myndar- legu konur hafa allar unnið i útlbúl KEA f Höfðahlið 1 í Glerárhverfi á Akureyrl. A myndlnnl með þeim er útibússtjórinn, Guðmundur Magnússon, og þótt hann só hlnn föðurlegasti, saekja blessuð börnln myndarskap slnn til annarra. Vart mun það of- mætt, að ástar- og frjósemlsgyðjan hafi oft átt er- Indi og tyllt niður tá nálaegt þessu verslunarútlbúi, jafnvel svo að með elndaemum má telja. Tll ham- Ingju með árangurlnn. Mynd á.þ. Fjárframlag ríkissjóös í f járlagafrum varpi: 3,6 milljarðar króna tÚ verðtryggingar líf- eyri ríkisstarf smanna FJÁRFRAMLÖG ríkissjóðs til líf- eyris eftirlaunaþega ríkisins eru á fjárlögum fyrir 1979 áætluð um 3,6 milljarðar króna eða nánar tiltekið 3.585.039.000.- krónur. Fjárhæð þessi hefur frá því á fjárlögum í fyrra aukizt um 71,5%, en þá var þessi upphæð rétt rúmlega 2 milljarðar króna eða 2.090.925.000 - krónur. Þessi fjárhæð, tæplega 3,6 milljarðar króna, er framlag ríkis- sjóðs til verðtryggingar greiðslum úr lífeyrissjóði starfsmanna ríkis- ins. Hún mun hækka svo mikið milli ára vegna þess að í fjárlögum siðasta árs var þetta framlag vantalið að einhverju leyti, en í meðferð Alþingis á fjárlagafrum- varpinu í fyrra var áðurnefnd upphæð, rúmir 2 milljarðar króna, lækkuð í 1.890 milljónir króna. Samkvæmt reikningum ársins 1977 fyrir lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins voru lífeyrisgreiðslur 1.341 milljón króna, en þar af var endurgreiðsla ríkisins, þæ.a.s. hluti ríkisins í verðtryggingu lífeyrisins, 962 milljónir króna. Þá var því sá lífeyrir, sem sjóðurinn sjálfur bar, 379 llljónir króna. Á því ári hafði lífeyrissjóðurinn í raun mun meira greiðsluþol, þar sem fjármunir hans eru að miklu leyti geymdir í verðtryggðum skírteinum. Þetta ár var uppreiknuð verðtrygging á fjármunum sjóðsins á því ári 425 milljónir króna. Morgunblaðinu tókst ekki í gær að fá upplýsingar um áætlaðar lífeyris- greiðslur úr sjóðnum fyrir árið 1979, en fyrir árið 1977 var talan sem sagt 379 milljónir. Þess ber að gæta að þessi upphæð hlýtur að hafa hækkað nokkuð, þar sem yngstu lífeyris- þegarnir eru dýrastir sjóðnum. Sé hins vegar lífeyrisþegi orðinn 10 ára eða meira, er það nú þegar mjög óverulegur kostnaður fyrir sjóðinn að greiða slíkum manni lífeyri. Lagaákvæði sjóðsins segja að greiða skuli lífeyri eins og hann er upphaflega úrskurðaður, en ríkis- sjóður greiði síðan verðtryggingu. Nú mun vera til athugunar að verðtryggt fjármagn sjóðsins komi til frádráttar framlagi ríkissjóðs. Lögunum hefur þó enn ekki verið breytt. Prestur vill stofna ferða- skrifstofu „ÞAD ERU ferðir til ísraels og Grikklands og Egyptalands, sem ég er með í undirbúningi." sagði séra Frank M. Ilaildórsson er Mbl. spurði hann f gær um umsókn þá um stofnun ferðaskrifstofu sem hann hefur sent samgöngumála- ráðuneytinu. „Ég er prestur í fullu starfi og á því verður engin breyting, þannig að ég mun sinna þessu áfram í sumarleyfi mínu. en ég hef tryggt mér starfskraft til rekstursins ef af verður," sagði séra Frank. Ferðamálaráð hefur mælt með því að honum verði veitt ferðaskrifstofuleyfi. Sr. Frank sagðist síðastliðin tólf ár hafa verið fararstjóri í sumar- leyfum sínum í ferðum til Biblíu- landa og sögufrægra staða. Hefði hann nú talið rétt að sækja um ferðaskrifstofuleyfi til að fá frjáls- ar hendur um skipulagningu ferða, en í undirbúningi eru páska- og hvítasunnuferð til ísraels og ferð til Grikklands og Egyptalands í júní. Ríkisst jórnin sit- ur á völtum stóli segir Þjóöviljinn Ráðherrar vinstri stjórnarinnar sitja á völtum stólum að sögn Þjóðviljans, en forystugrein blaðsins í gær endar svona: „Sjái hinsvegar Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn enga leið aðra en stórskerðingu á kaupmætti launafólks í ASÍ og BSRB, mun verkalýðs- hreyfingin ekki láta það óátalið. Og þá hlýtur Alþýðubandalagið að gera það upp við sig hvort það hefur ekki farið erindisleysu inn í þá ríkisstjórn sem nú situr á völtum stóli.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.