Morgunblaðið - 16.11.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10— 11
1 FRÁ MÁNUDEGI
eitthvað þekkir til veit um hvern
er að raeða? Þetta jafngildir
nafnbirtingu. Ég legg engan dóm á
sannleiksgildi frétta af „fjársvika-
málum í uppsiglingu" en ég vil að
menn teljist saklausir þangað til
sekt þeirra hefur verið sönnuð, og
þá er hægt að afhjúpa þá fyrir
alþjóð, ef ástæða þykir til.
Blaðamenn, hættið að sverta
mannorð fólks í augum almenn-
ings og valda aðstandendum
óþarfa sársauka (hann er nógur
fyrir) fyrr en einhver sök hefur
verið sönnuð. Abyrgð ykkar er
mikil, þið hafið æru fólks í hendi
ykkar. Farið varlega, því mistök
eru venjulega ekki leiðrétt með
feitu letri á forsíðu og ná því ekki
til lesenda á sama hátt og
uppsláttarfrétt.
Það verður þó að segja blaða-
mönnum Morgunblaðsins til hróss,
að þeir fara yfirleitt vægt í
sakirnar í þessum málum og halda
því vonandi áfram. En ekki líkar
mér þróunin hjá síðdegisblöðun-
um. Það er ágætt að vera vel á
verði, en meint fjármálamisferli
virðist jafngilda a.m.k. manns-
morði hjá íslenzkum blaðamönn-
um og þykir mér það einkennilegt,
því peningar eru dauður hlutur og
ótal mörg afbrot svo miklu verri,
til dæmis misþyrmingar.
Ein hneyksluð.“
Þessir hringdu . . .
• Ferðabæn
Sjónskert kona.
— Síðan við hjónin eignuð-
umst okkar bíl hefi ég haft það
fyrir venju líkt og gert hefur verið
um áraraðir hérlendis að fara með
eins konar ferðabæn um leið og
setzt er upp í bílinn. Hún er svona:
Góður Guð haldi hendi sinni yfir
okkur hjónunum og öllum öðrum
sem leið eiga um láð, loft eða lög. í
Jesú nafni.
• Ráðlegging-
ar í vetrar-
akstri
Ökumaður, nokkur hafði
samband við Velvakanda og vildi
benda á nokkur atriði, sem hann
taldi að gætu komið að gagni
varðandi vetrarakstur og fara þau
hér á eftir:
„Nú er snjórinn kominn og því
nauðsynlegt fyrir alla bílstjóra að
hafa bíla sína vel útbúna fyrir
veturinn. Mig langar að skýra frá
því hvernig ég útbý minn bíl, ef
einhver vildi fylgja mínu fordæmi.
Ég hef bílinn á venjulegum
radialdekkjum en yfir afturöxul
hef ég 60 kílóa ballest. Þennan
útbúnað hef ég haft nokkra
undanfarna vetur og aldrei lent í
neinum vandræðum. Ég hef meira
að segja mælt bremsuvegalend og
hefur útkoman verið með því bezta
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Ólympíuskákmótinu í Buenos
Aires, sem er nýlokið, kom þessi
staða upp í skák júgóslavneska
stórmeistarans Velimirovics og
hins nítján ára gamla Rogers frá
Ástralíu, sem hafði svart og átti
leik.
sém gerist. Til vonar og vara hef
ég sandpoka frá gatnamálastjóra í
skottinu en hann þurfti ég aðeins
að nota einu sinni í fyrravetur.
Nagladekk eru alveg óþörf, það er
mín reynsla. Þau gera ekki gagn
umfram venjuleg dekk ef út-
búnaðurinn er réttur og þau
skemma göturnar fyrir milljónir á
ári.“
HÖGNI HREKKVÍSI
GEISíPf
Kuldaskór
Dömu- og barna
kúrekastígvél
loöfóöruö.
Stæröir 24—41.
Loöfóöraöir
meö þykkum
hrágúmmísólum.
Stæröir 26—46.
adidas
SKOSALAN Laugavegi 1
Reykjavík
Brussel
Perfekt
Trist
Universal
Sport As
ZUrich
Madrid
22. - Rg4!, 23. Hcl (Eftir 23. fxg4
— Bb7+, 24. Rf3 — fxg4, er hvíta
staðan vonlaus) Re3+, 24. Kf2
(Flýtir fyrir úrslitunum, en eftir
24. Khl — Bd4, hefur svartur
einnig léttunnið tafl) Rc2+ og
hvítur gafst upp.
MANNI OG KONNA
s.
HAGTRYGGING HF 4(p.
/
OG,OG PARKLJOS
AOALLJOSj
HANSKAHOLFS-
LJÓS OG E.UM,
JÁ NÚ MAN ÉG,
NÚMERALJÓS
LATIÐ STILLA LJOSIN