Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 HESTAMENN komu saman til árlegs þinjjs Landssambands hestamannafélaga í Kópavogi um síðustu helgi. Aðalmál þessa þings var að fjalla um álit þriggja nefnda, sem starfað höfðu frá síðasta ársþingi og lögðu nú fram tillögur sínar. Var þarna um að ræða tillögur um breytingar á lögum LH, tillögur um breytingar á gæð- ingadómum og álit milliþinga- nefndar um breytingar á kyn- hótadómum. Afgreiddi þingið tillögur um þessa málaflokka auk samþykkta um ýmis önnur atriði. Þótti þingið takast í alla staði hið besta og vera eitt afkastamesta þing LH. sem komið hefur saman, allavega nú síðustu árin. LH flytur skrifstofu sína til Fáks Sú nýbreytni var að þessu sinni viðhöfð við þinghald LH, að þingstörf hófust árdegis á föstu- degi og var lokið síðdegis á laugardegi en venja hefur verið að þingið stæði yfir laugardag og sunnudag. Gafst þessi nýbreytni vel og ekki síður að þingskjöl og álit nefnda voru lögð fram fjölrituð. Arsþingið var að þessu sinni haldið í boði Hestamanna- félagsins Gusts og var það haldið Ársþing Landssambands hestamannafélaga var að þessu sinni haldið í Félagsheimili Kópavogs í boði Hestamannafélagsins Gusts og sést hér hluti þingfulltrúa. Næsta ársþing verður að ári að Flúðum í Hrunamannahreppi í boði Smára. Ljósm. Mbl. Kristján. STARFSAMT ÞING L.H.: Nýjar regl- ur um gæðingadóma Tillögur að breytingum dóma kynbótahrossa og í Félagsheimili Kópavogs en þingforseti var Stefán Pálsson, Gusti. Akveðið hefur verið að næsta ársþing LH, sem jafnframt er það 30., verði haldið á Flúðum í Hrunamannahreppi í boði Hesta- mannafélagsins Smára. Albert Jóhannsson, formaður LH, flutti á þinginu skýrslu stjórnar sambandsins og vék þar að þeim málum, sem stjórnin hafði afskipti af á síðasta starfs- ári. Greindi Albert svo frá, að á sl. sumri hefðu Landssambandið og tímaritið Hesturinn okkar flutt skrifstofu sína i Félags- heimili Fáks í Reykjavík og hefðu verið gerðar nokkrar breytingar á Félagsheimilinu vegna þessa. I Félagsheimilinu hefur LH til einkaafnota skrifstofu og salar- kynni Félagsheimilisins til fund- arhalda og námskeiða. Þá hefur LH einnig sameiginleg afnot af skrifstofu Fáks en skrifstofu- stúlka á skrifstofu Fáks sinnir einnig starfi fyrir LH og Hestinn okkar. 20. árgangur Hestsins okkar — Kennslubók vænt- anleg — Handbókin kemur fyrir jól Varðandi útgáfumál minnti Albert á, að á næsta ári kæmi út 20. árgangur tímarits LH, Hests- ins okkar, og skoraði hann á hestamannafélögin að vinna ötul- lega að aukningu áskrifenda og söfnun efnis fyrir blaðið. Fram kom hjá Albert, að kennslubók í hestamennsku, sem milliþinga- nefnd á vegum LH hefur tekið saman, er nú í prentun og verður væntanlega komin á markað áður en reiðskólar næsta árs taka til starfa og verður bókin 80—90 blaðsíður. Þá er gert ráð fyrir að Handbók hestamanna komi út fyrir jólin í ár. I ræðu sinni vék Albert að fjölmörgum öðrum málum, sem ekki er kostur að geta um að sinni en nefna má að stjórn LH staðfesti á sl. ári nokkur Islands- met og viðurkenndi á afrekaskrá í vissum tilvikum. Fram kom að meðal annars hefði stjórn LH borist umsókn um staðfestingu á afreki Fannars í skeiði, sem sett var á Lagarfljótsbrú en stjórnin taldi ástæðu til að kanna mála- vexti nánar áður en umsóknin yrði endanlega afgreidd. Þess má geta að í umræðum á ársþinginu lögðust þeir ræðumanna, sem að þessu afreki Fannars viku, allir gegn því að það yrði staðfest sem Islandsmet. Félagar 42 aðildar- félaga LH nú 5200 Haraidur Sveinsson, gjaldkeri LH, gerði grein fyrir reikningum LH og Hestsins okkar og reynd- ust tekjur LH á árinu 1977 vera rúmar 2,8 milljónir króna og þar af er mestur hlutinn ársgjöld sambandsfélaganna, 1,9 milljón- ir. Kostnaður við starfsemi sam- bandsins varð á árinu 1977 um 1,5 milljónir og tekjuafgangur var því 1,3 milljónir. Niðurstöðutölur reikninga Hestsins okkar voru nær 5,4 milljónir. Fram kom á þinginu að aðild- arfélög Landssambands hesta- mannafélaga eru nú 41 og félagar þeirra 5200. Þess má geta að árið 1968 voru aðildarfélög LH 32 og félagar þeirra 2841. Fjölmenn- asta hestamannafélagið nú er Fákur í Reykjavík með 772 félaga, næst kemur Gustur í Kópavogi með 292 félaga, þá Geysir í Rangárvallasýslu með 267 félaga og Sleipnir á Selfossi og í nærsveitum með 263 félaga. Nýjar reglur um gæðingadóma Hér á eftir verður stuttlega getið um nokkrar samþykktir þingsins og þá einkum þær tillögur, sem samþykktar voru í framhaldi af álitum milliþinga- nefndanna. Vonandi gefst tæki- færi til að fjalla nánar um samþykktir þingsins og ýmislegt, sem þar bar á góma, á þessum vettvangi á næstunni. Sem fyrr sagði voru lagðar fyrir þingið tillögur að breyting- um á reglum um gæðingakeppni og lagði milliþinganefndin til að á þeirri keppni yrðu gerðar nokkrar breytingar frá núgild- andi reglum og voru tillögur nefndarinnar samþykktar með smávægilegum breytingum. Samþykkt var að breyta tilhög- un sjálfrar gæðingakeppninnar nokkuð og er nú gert ráð fyrir að hver gangtegund sé dæmd sér og fái sérstaka einkunn. Ekki er gert ráð fyrir að dómari gefi einkunn eftir hvert atriði heldur gera hinar nýju reglur ráð fyrir að með hverjum dómara starfi ritari, sem skrái niður einkunnir dómarans og reikni út meðaleink- unn strax og dómari hefur lokið einkunnagjöf en dómarinn réttir aðeins upp spjöld með þessari meðaleinkunn. I greinargerð með tillögum sínum sagði nefndin að Hestar eftir TRYGGYA GUNNARSSON þetta fyrirkomulag ætti að flýta fyrir keppninni og einnig gæfi þetta sýnanda möguleika á því að ráða í hvaða röð hann sýndi þau atriði, sem dæma skal. Nýju reglurnar gera ráð fyrir að einkunn fyrir vilja og mýkt verði gefin af sérstökum dómara, er fari á bak viðkomandi hesti. Sú nefnd þingsins, sem hafði hinar nýju reglur til meðferðar, lagði til að þetta atriði yrði fellt úr reglunum en sú tillaga var felld með 42 atkvæðum gegn 19. Reglurnar gera einnig ráð fyrir að fyrrgreind prófun fari fram minnst deginum áður en hestur er sýndur í dómhring. Þá segir í greinargerð milli- þinganefndarinnar: „Menn hafa löngun deilt um hvort réttara mat fáist á vilja hestsins með því að fara á bak eða sjá hestinum riðið. Nefndin varð sammála um að leggja til, að fram fari á vegum LH, svo fljótt sem auðið er, ítarleg rannsókn, þar sem vilji hestsins yrði dæmdur með hvorri tveggja aðferðinni og reynt að lagabreytingar finna út með hvorri aðferðinni réttvísinni sé betur fullnægt." Sérstök úrslita- keppni hjá gæðingunum Sú nýjung er í nýju reglunum að á landsmótum og fjórðungs- mótum er sú skylda að fram fari sérstök úrslitakeppni en varðandi önnur hestamannamót er þarna um heimildarákvæði að ræða. í úrslitakeppni taka þátt jafn- margir hestar og verðlaun eiga að hljóta, á landsmóti 10, á fjórð- ungsmóti 8 og á öðrum mótum 3 eða 5. Dómarar gefa hestunum ekki einkunnir, heldur sýna á spjaldi í hvaða sæti þeir raða hverjum hesti fyrir viðkomandi atriði. Tillögur milliþinganefndar um dómstiga kynbótahrossa og regl- ur um framkvæmd dóma þeirra voru samþykktar að mestu óbreyttar en samþykktum sínum um þetta efni beindi þingið til Sýningarnefndar Búnaðarfélags Islands en í henni eiga sæti tveir ráðunautar og tveir fulltrúar frá LH auk hrossaræktarráðunauts Búnaðarfélagsins. Samþykkt var að leggja til að dómnefndir kynbótahrossa við fjórðungs- og landsmót verði skipaðar fimm mönnum, hrossa- ræktarráðunaut, sem sé formað- ur nefndarinnar, tveimur skipuð- um af búnaðarsamböndum eða B.í. og tveimur skipuðum af framkvæmdanefnd fjórðungs- móts, en LH þegar um landsmót er að ræða. Skal hluti dómnefnd- ar starfa við forskoðun og aldrei færri en þrír dómarar og er óheimilt að kveðja til aðra menn til dómarastarfa við forskoðun en þá sem í dómnefnd eru, eftir því sem lagt er til í samþykkt þingsins. Sérstök ættar- einkenni hjá kynbótahrossunum Lagt er til að forskoðun vérði ítarlegri en áður og einn dómnefndarmaður eða trúnaðar- maður dómnefndar fari á bak hrossunum. Þá er lagt til að niðurstöður forskoðunar verði afhentar umráðamönnum hrossa að skoðun lokinni. Þingið sam- þykkti að leggja til að gerðar yrðu nokkrar breytingar á bygg- ingareinkunn kynbótahrossa og er lagt til að byggingareinkunn verði einkunn, sem fylgi hrossi án breytinga, eftir að hesturinn hefur náð 6 vetra aldri. Hæfi- leikaeinkunn kynbótahrossa verði endurskoðuð með tilliti til þess að meta vilja og mýkt meira í heildareinkunn. Þá er lagt til að tekin verði upp sérstök ættar- einkunn hjá kynbótahrossum. í samþykkt þingsins um þetta atriði er vikið að ýmsum fleiri breytingum en nánar verður gerð grein fyrir þeim síðar. 50 félagar í stað 40 að baki hverjum fulltrúa á þingi LH Varðandi breytingar á lögum LH var meðal annars samþykkt hvað viðkemur fulltrúum aðildar- félaganna á ársþingi, að nú kemur einn fulltrúi fyrir fyrstu 50 félagana í stað 40 áður, annar fulltrúi fyrir 51 til 100 félaga í stað 41 til 80 og þriðji fulltrúinn kemur fyrir 101 til 150 félaga í stað 81—100. Eftir þrjá fulltrúa fjölgar fulltrúunum við hverja fimmtíu félaga. Þá var samþykkt að lágmarksfjöldi félaga í hesta- mannafélagi til að það geti orðið aðili að LH þurfi að vera 30 í stað 15 áður. Nokkrar aðrar breyting- ar voru gerðar á lögum L.H. s.s. um að hægt sé að veita félögum, sem stofnuð eru um sérhæfð verkefni er samrýmast lögum LH, aukaaðilj og hafa fulltrúar þeirra málfrelsi og tillögurétt. Lágmarksþyngd knapa í hlaupum felld niður Þingið samþykkti ályktun um að skylda alla nemendur í reið- skólum hestamannafélaganna til að nota reiðhjálma til verndar og einnig var samþykkt að knapar í öllum hlaupagreinum kappreiða verði að hafa öryggishjálma á höfði í keppni og skal þessi samþykkt taka gildi 1. janúar 1980. Eftir þann tíma verður enginn knapi samþykktur til keppni án öryggishjálms. Þingið samþykkti að fella niður þá grein kappreiðareglugerðarinnar, sem kveður á um lágmarksþyngd knapa en hún var áður 64 kg. Eftirleiðis gildir því sú regla, að knapi verður að hafa náð 16 ára aldri nema foreldrar viðkomandi hafi samþykkt þátttöku hans og taki á sig fulla ábyrgð sé knapinn yngri en 16 ára. Þá var samþykkt að kannaðar yrðu tryggingar knapa á kappreiðum. Samþykkt var að hækka árs- gjald aðildarfélaganna fyrir hvern félaga úr 600 krónum í 1000 krónur og ítrekaðar fyrri samþykktir um að ráðinn yrði framkvæmdastjóri til starfa hjá LH. Á þinginu fóru fram kosningar og var að þessu sinni kosið um formann, einn meðstjórnanda, varaformann og varameðstjórn- anda. Albert Jóhannsson, Skógum, var endurkjörinn formaður LH. Hjalti Pálsson, Reykjavík, var endurkosinn meðstjórnandi með 38 atkvæðum en við þá kosningu fengu Gísli B. Björnsson, Reykja- vík, 31 atkvæði og Stefán Páls- son, Kópavogi, 28 atkvæði en aðrir fengu færri atkvæði. Vara- formaður var kjörinn Stefán Pálsson, Kópavogi, með 75 at- kvæðum í stað Steinþórs Gests- sonar, Hæli, sem baðst undan endurkosningu. Varameðstjórn- andi var kjörinn Leifur Kr. Jóhannesson, Stykkishólmi, með 65 atkvæðum. Hér verður að sinni látið staðar numið við að greina frá 29. ársþingi LH en væntanlega verð- ur haldið áfram að viku liðinni og kannski fljóta með einhverjar fleiri fréttir af hestum og hesta- mönnum. - t.g.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.