Morgunblaðið - 22.11.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
267. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaösins.
Starfsmenn
Ford sömdu
London, 21. nóvember. AP.
Verkfalli starfsmanna
Ford-verksmiðjanna bresku lauk
í dag þegar samninganefndir
starfsmanna og vinnuveitenda
náðu samkomulagi eftir nfu
vikna verkíall, að því er segir í
frétt verksmiðjanna.
í þessu níu vikna verkfalli
heíur fyrirtækið orðið fyrir fjár-
hagslcgu tjóni sem talið er að
nemi a.m.k. 300 milljörðum ís-
lenzkra króna og hefðu verk-
smiðjurnar getað framleitt að
minnsta kosti 120 þúsund bifreið-
ar á þessum tíma.
í frétt verksmi.ðjunnar segir að
samningar hafi tekist um launa-
hækkun sem nemur 16*/2% en það
er sú hækkun sem fyrirtækið bauð
starfsmönnúm sínum fyrir tveim-
ur vikum. Það sem réð úrslitum í
þessari síðustu samningalotu voru
ákvæði um einhver fríðindi í
sambandi við frídaga starfs-
manna. Samningarnir verða
bornir undir atkvæði starfsmanna
á morgun og er reiknað með því að
þeir verði samþykktir með yfir-
gnæfandi meirihluta.
Talsmaður starfsmanna, Ron
Todd, sagði að þeir hefðu sam-
þykkt drög fulltrúa fyrirtækisins
þar sem þeir teldu að ekki væri
komist lengra í samningunum.
16‘/2% væri að vísu ekki sú
hækkun sem krafa var gerð um en
það væri þó þrisvar sinnum hærri
prósenta heldur en gert er ráð
fyrir í tillögum ríkisstjórnarinnar
til að stemma stigu við almennum
kauphækkunum.
Líbanon:
20 fórust í
sprengingu
Beirut, 21. nóvcmber Reutcr — AP
AÐ MINNST.A kosti 20 sýrlensk-
ir hermann létust í Beirut í
morgun þegar langferðabíll sem
flutti þá sprakk í loft upp að því
er haft er eftir hægri sinnum í
Líbanon í dag.
Sýrlendingarnir sem eru í
friðarsveitum Araba í Líbanon
voru á leið út úr Beirut til
bæjarins Aleý stutt fyrir utan
borgina þegar sprengjan sprakk
oggjöreyðilagði langferðarbílinn.
Talið er að tala látinna kunni
að hækka eitthvað þegar lokið
verður við að rannsaka flak
bílsins og nágrenni. Fjöldi her-
manna í bílnum var sagður vera í
kringum 40 en sú tala hefur ekki
fengist staðfest af stjórn sýr-
lenzka gæzlusveitanna.
Allir pólitískir
flóttamenn senn
lausir á Kúbu?
Ilavana. 21. nóvembpr AP
ALLIR þeir þrjú þúsund pólitísk-
ir flóttamcnn sem eru í íangels-
um í Kúbu munu verða leystir úr
haldi innan skamms, segir f
tilkynningu sem sendinefnd land-
flótta Kúbumanna, sem er í
heimsókn í Kúbu, sendi frá sér í
dag.
Formaður sendinefndarinnar,
Bernardo Benes, sagði á fundi
með fréttamönnum að hann bygg-
ist við því að Castro tilkynnti
þessa á kvörðun sína á fundi
sínum með hinum 75 landflótta
Kúbönum á morgun.
Þá sagði Benes að tvö önnur stór
vandamál myndu sennilega leysast
á fundi aðilanna, þ.e. að Kúbubúar
sem eiga ættingja í Bandaríkjun-
um fái fararleyfi til að heimsækja
skyldmenni sín þar og öfugt.
Fréttir herma, að í lokuðum
fundi, að Castro hélt með sendi-
nefndinni á mánudag, hafi hann
nafngreint nokkra fanga sem yrðu
látnir lausir á næstunni þ.á m. son
einnar konu í sendinefndinni og er
sagt að konan hafi brostið í grát.
I lok fréttamannafundarins sem
Benes .hélt ítrekaði hann gagnrýni
sína á Carter Bandaríkjaforseta
fyrir að vera tregur til að veita
landvistarleyfi kúbönskum flótta-
mönnum sem leystir hafa verið úr
fangelsi að undanförnu.
Tveir góðir. Jimmy Carter, Bandarikjaforseti, og Mikki mús hittust í Hvíta húsinu um helgina þegar
forsetinn hélt Mikka afmælisveislu í tilefni 50 ára afmælis hans. Símamynd AP
Aframhaldandi
róstur í íran
Teheran, 21. nóvember. AP. Reuter.
í BRÝNU sló milli stuðn-
ingsmanna keisarans og
andstæðinga víða um land í
íran í nótt og morgun og er
talið að alls hafi 17 manns
látist í þessum átökum.
Ekki urðu verulegir bar
dagar í Teheran í dag en
róstur héldu áfram í ýmsum
smærri borgum landsins.
Símasamband komst aftur
á frá Iran í dag eftir að það
hefur legið að öllu niðri
undanfarna tvo daga vegna
verkfalla starfsmanna, sem
með því vildu lýsa andstöðu
sinni við keisarastjórnina.
Eftir fundi með yfirvöldum á
sunnudag og í gær sam-
þykktu starfsmenn þó að
snúa aftur til vinnu sinnar og
eru þá flest öll verkföll sem
staðið hafa að undanförnu
leyst. Aðeins eru minni hátt-
ar skæruverkföll hér og þar.
Þá herma fréttir frá íran í
dag að olíuframleiðsla lands-
manna sé óðum að komast í
eðlilegt horf, þ.e. að fram-
leiddar séu um 5 milljónir
tunna á dag.
Ný samningsdrög
frá Israelsstjórn
Jcrúsalem, Kairó, 21. nóvember. AP. Reuter.
ÍSRAELSSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum í dag ný drög að
samningum við Egypta sem taka
þó ekki með í reikninginn síðustu
kröfu Egypta varðandi Gazasvæð-
ið, að því er haft er cftir
Menachcm Begin, forsætisráð-
herra ísraels, í dag.
Samhliða samningsdrögunum
sem samþykkt voru með 15 at-
kvæðum gegn tveimur var stjórnin
samþykk því að hafnar yrðu
sérstakar viðræður um sjálfstjórn
á vesturbakka árinnar Jórdanar
og Gazasvæðinu í kjölfar undirrit-
unar friðarsamninga ríkjanna.
Begin vildi ekki rekja efni
samningsdraganna en fréttir
herma að þau séu að mestu byggð
á bandarísku samningsdrögrnum
svonefndu, sem unnin voru á
samningafundum Cyrusar Vance,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
með æðstu mönnum sendinefnda
ríkjanna á fundunum í Washing-
ton 11. nóvember s.l.
Þá sagði Begin að síðustu kröfur
Egypta brjóti algerlega í bága við
Camp David-samkomulagið og séu
algerlega óaðgengilegar fyrir
Israelsmenn, en ef Egyptar séu
tilbúnir að skrifa undir friðar-
samning á grundvelli þessa upp-
kasts þá sé hægt að undirrita
friðarsamninga str \x á morgun.
Forsœtisráðherra Sri Lanka:
„Nauðsynleg að-
flugstœki ftugvaU-
arins voru í lagi”
Sri Lanka, 21. nóvember AP
RANASINGIIE Premadasa,
forsætisráðherra Sri Lanka,
sagði á fréttamannafundi í dag
að enn væru þrjú lík ófundin í
braki Loftleiðaþotunnar sem
fórst þar á miðvikudag.
Forsætisráðherrann sagði,
að 80 farþegar hefðu komist
lífs af en nokkrir þeirra væru
enn í iífshættu.
„Að því er við bezt vitum
voru með vélinni 219 íarþegar
og 13 manna áhöfn. þ.e. með
vélinni voru því 259 manns, 80
þeirra komust lífs af en nokkr-
ir þeirra eru illa haldnir á
sjúkrahúsi. Leit verður haldið
áfram að þeim sem ekki hafa
fundist enn,“ sagði forsætisráð-
herrann á þingi seinna í dag.
„Fjarskiptasamband milli
flugumferðarstjórnarinnar og
flugvélarinnar svo og allar
athafnir hennar eru sagðar hafa
verið með eðlilegum hætti,"
sagði Premadasa ennfremur.
Forsætisráðherrann hafði eft-
ir flugumferðarstjóranum sem
var á vakt, að öll tæki hefðu
verið í fullkomnu lagi, utan þess
að aðflugsljósin og svokölluð
fjarlægðarmælitæki hefðu verið
óvirk, en þessi tvö tæki væru
alls ekki nauðsynleg til að
stjórna flugvél inn til lendingar.
Um veður sagði hann að
lítilsháttar rigning hafði verið
og skyggni um sex kílómetrar,
og klukkustund fyrir slysið eða
milli 22.00 og 22.30 hefði
Jumboþota flogið frá flugvellin-
um og flugvél breska flughers-
ins lent og þá hefði veður verið
öllu verra.
„Flugumferðarstjórinn á vakt
við radar segir, að hann hafi
fyrst haft samband við vélina
um klukkan 23.13 þegar hún var
um 92 mílur vestur af vellinum í
33 þúsund feta hæð. Frá þeim
tíma var hann í stöðugu sam-
bandi við vélina. Þegar flugvélin
kom á síðasta legg inn til
lendingar um 2 mílur frá
flugbrautinni, hafði flugum-
ferðarstjórinn gefið flugstjóran-
um fyrirmæli um að halda sig í
650 feta hæð.
Flugumferðarstjórinn í flug-
turni segist hafa séð að flugvél-
in flaug of lágt og gefið
flugstjóranum fyrirmæli um að
hækka sig. Aðeins sekúndubroti
síðar sá hann vélina skella í
jörðina og elda koma upp i
henni,“ sagði forsætisráðherr-
ann að síðustu.