Morgunblaðið - 22.11.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978
5
Línuveiði-
bann áfram
Síðan 7. febrúar 1978 hafa
allar línuveiðar verið bannað-
ar á svæði við vestanvert
Snæfellsnes.
Samkvæmt síðustu athugun
Hafrannsóknastofnunarinn-
ar, hefur komið í ljós, að enn
er smáfiskur í talsverðum
mæli á svæðinu og hefur
ráðuneytið því ákveðið að
hafa svæðið lokað fyrir línu-
veiðum fyrst um sinn.
Frá sjávarútvcKsráðuneyti.
f rr '
Lionsklúbburinn Freyr:
Sala ióladaga-
tala að hef jast
Tónlist úr öllum áttum
á tónleikum í Garðabæ
Sinfóníuhljómsveitin:
FJÖLBREYTT tónlist verður á efnisskrá tónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar í íþróttahúsinu í Garðabæ á
fimmtudag nk. kl. 20.30.
Þarna verða leikin verkin:
Þjófótti skjórinn, forleikur eftir
Rossini, Aría úr II Trovatore
eftir Verdi, Nótt á nornastóli
eftir Mussorgsky, lokaþátturinn
úr 4. sinfóníu Tsjaikovsky, for-
leikurinn að óperettunni Leður-
blakan eftir Strauss, Stólstafir
sem er lagasyrpa eftir Ólaf
Þorgrímsson, írska þjóðlagið
Londonderry air, A1 Di La eftir
Donida, Jealousy eftir Gade og
lög úr West Side Story eftir
Bernstein.
Einsöngvari á þessum tónleik-
um verður Guðrún A. Símonar
óperusöngkona. Guðrún hlaut
sína menntun í Englandi og á
Italíu og eftir að hún sneri heim
hefur hún verið einn aðal
máttarstólpinn í íslensku söng-
lífi. Guðrún hefur tekið þátt í
mörgum óperusýningum Þjóð-
leikhússins og haldið sjálfstæða
tónleika bæði hér á landi og
erlendis.
Hljómsveitarstjórann Pál. P.
Pálsson er óþarfi að kynna
íslenskum tónleikagestum, hann
þekkja allir sem sótt hafa
tónleika Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
ÞESSA dagana er að hefjast hin
árlega jóladagatalasala Lions-
klúbbsins Freys. Eins og flestum
er kunnugt, eru þetta jóla-
almanök barnanna, en þau gefa
einn súkkulaðimola fyrir hvern
dag desembermánaðar, sem nær
líður jólum.
Freysfélagar annast sjálfir
söluna í Reykjavík með því að
ganga í hús og standa við
verslanir, en auk þess má kaupa
þau á eftirtöldum stöðum:
Bakaríið, Barmahlíð 8(
Gleraugnaverslun Ingólfs
Gíslasonar, Bankastrætii Gunn-
ar Asgeirsson h.f. Suðurlands-
hrauti Heimilistæki s.f. Hafnar-
stræti og Sætúnii Hekla h.f.
Laugavegii Herragarðurinn,
Aðalstrætii Lýsing, Laugavegii
Ingþór Haraidsson h.f. Armúli
li Tiskuskemman, Laugavegii
Tómstundahúsið, Laugavegi.
Lionsklúbburinn Freyr var
stofnaður 29. febrúar 1968 og
varð því 10 ára á þessu ári.
Félagar eru 51.
Klúbburinn aflar fjár til
starfsemi sinnar með sölu þess-
ara jóladagatala. Fé því sem
safnaðist við söluna fyrir síðustu
jól, var varið til Skálatúns-
heimilisins í Mosfellssveit, til
sundlaugarbyggingar við Grens-
ásdeild, Barnaspítala Hringsins,
sjúklingar voru styrktir til ferða
erlendis o.fl.
Auk þess sem hér hefur verið
talið, hefur Freyr nýlokið við
það verkefni sitt að merkja
helstu ár hringinn í kringum
landið. Alls voru sett upp 159
merki á hringveginum. Einnig
hafa Freysfélagar sett upp á
undanförnum árum 114 merki á
leiðir og örnefni, aðallega á
hálendisslóðum.
Jóladagatölin eru seld víðast
hvar úti á landi og í nágranna-
bæjum Reykjavíkur af Lions-
klúbbum á þessum stöðum.
Lionsklúbburinn Freyr þakkar
stuðninginn og óskar velunnur-
um sínum gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs.
(Fréttatilkynning.)
keri, Víglundur Þorsteinsson, lög-
fræðingur.
í varastjórn: Ásgeir Karlsson,
læknir, Bragi Björnsson, lögfræð-
ingur, k’riðrik Pálsson, viðskipta-
fræðingur, Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögfræðingur, Júlíus
Sólnes, verkfræðingur.
Ákveðið hefur verið að halda
fullveldisfagnað stúdenta að Hótel
Loftleiðum 2. desember nk. Verður
mjög vandað til fullveldisfagnað-
arins að vanda, en félagið hefur
um árabil gengist fyrir fullveldis-
Baldur Guðlaugsson form.
Stúdentafélags Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Stúdcntafélags
Reykjavíkur, sá 107. í röðinni.
var nýlega haldinn.
Á fundinum
var kjörin ný stjórn og skipa
hana eftirtaldir menn>
Baldur Guðlaugsson, lögfræð-
ingur, formaður, Sveinn Gústavs-
son, viðskiptafræðingur, varafor-
maður, Lýður Björnsson sagn-
fræðingur, ritari, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, lögfræðingur, gjald-
fagnaði fyrir alla stúdenta og gesti
þeirra.
Aðalræðu kvöldsins flytur Sig-
urður Líndal, prófessor, en veizlu-
stjóri verður Guðlaugur Þorvalds-
son, háskólarektor. Meðal
skemmtiatriða má nefna spurn-
ingakeppni milli stúdenta frá MR
og MA. Miðar verða seldir á Hótel
Loftleiðum frá kl. 17—19 nk.
mánudag, þriðjudag og
miðvikudag.
(Frá Stúdentafélagi Reykjavíkur.)
tsími: 27211
Austurstræti 10
Nýr
hátíöarklœönaöur
frá
tizkuhúsunum
BLAClCy DRESS