Morgunblaðið - 22.11.1978, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978
11
Gísli Magnússon.
að hitta fyrir gamlan kunningja í
nýjum búningi. Píanókonsertinn
eftir Jón Nordal er rúmlega
tvítugur og einn af þremur
slíkum verkum, sem til eru eftir
íslensk tónskáld. Það ætti ekki að
vera ofverkið fyrir ílenska píanó-
leikara að hafa þessi verk á
efnisskrá sinni. Konsertinn eftir
Jón Nordal var frumfluttur af
höfundi en auk þess hefur Rögn-
Karsten Andersen.
valdur Sigurjónsson flutt hann.
Gísli Magnússon flutti konsert-
inn fyrir ári á tónlistarhátíðinni í
Bergen og þóttu þar töluverð
tíðindi, bæði verkið og ekki síður
flutningur Gísla. Fréttir af þess-
um atburði bárust íslendingum í
fremur lítilfjörlegu umli, enda
varla von að poppmenntuð blaða-
mannastéttin sé uppnæm fyrir
einhverju „klassisku“ tilstandi
og yfrið nóg verk að „pæla“ í
vinsældalistunum, þar sem
„sándið“ og „stuðið“ er „svo
ofsalegt og alveg á heimsmæli-
kvarða“. Gísli Magnússon píanó-
leikari hefur stundað hljóðfæri
sitt af kostgæfni og er orðinn
snjall píanóleikari. Leikur hans
og túlkun var kraftmikil og
þannig fluttur var konsertinn ný
og skemmtileg upplifun. Hljóm-
sveitin hefði mátt vera öruggari
bæði með innkomur og í hreinum
leik. Tónbilið ferund er mjög
viðkvæmt og fær á sig „tóndjöfla-
blæ“ ef það er ekki flutt sérlega
hreint. Það má segja að það hafi
verið óþarfi að flytja Consertíno
Honeggers, en verkið er þokka-
fullt og Gísli lék það af öryggi.
Tónleikunum lauk með Sin-
fóníu nr. 1, eftir Sibelíus.
Það er greinilegt að Sibelíus
átti fyrir aftan sig sinn risa, eins
og Brahms, þ.e.a.s. Tsjaikovskí,
því af og til í verkinu, var
nærvera Tsjaikovskí mjög áber-
andi. Þrátt fyrir það, að sinfóní-
an er á köflum nokkuð slitrótt í
formi, eru í henni stórkostlegir
sprettir, sem hljómsveitin skilaði
oftlega mjög fallega, undir ör-
uggri stjórn Karsten Andersens.
í pólskri
útgáfu
NUNA í haust kom út í Poznan í
Póllandi skáldsagan „Ef sverð
þitt er stutt" eftir Agnar Þórðar-
son í pólskri þýðingu Andrezi
Jankowskí. Styðst hann að veru-
legu leyti við þýðingu Pauls
Schach „The Sword," sem kom út
í Bandaríkjunum fyrir nokkrum
árum.
„Ef sverð þitt er stutt“ heitir á
pólsku „Jesli Miecz Twój Krótki"
og kemur út í bókaflokki skandi-
naviskra bókmennta.
Agnar Thórdarson
JEáLI MIECZ TWÓJ
KRÓTKI
Kápusíða bókarinnar.
Sveitastjórnamenn
þinguðu í Munaðamesi
AÐALFUNDUR Samtaka sveitar-
félaga í Vesturlandsumdæmi var
haldinn í Munaðarnesi á föstudag
og laugardag.
Þau mál sem fjallað
var sérstaklega um voru rekstur
dreifbýlishreppa, rekstur heil-
brigðisþjónustu, rekstur fjöl-
brautaskóla og verkefnaskipting
ríkis og sveitarfélaga. Félagsmála-
ráðherra, Magnús H. Magnússon,
ávarpaði fundinn.
Dómur Hæstaréttar 6. okt.
1978: Ökuleyfissvipting
hefði verið staddur í húsi við
Ásvallagötu hjá kunningja
sínum þá fyrr um kvöldið.
Hann hefði ákveðið að sækja
dansleik og þá skilið bif-
reiðina eftir við hús kunningja
síns. Þegar dansleiknum lauk
hefði hann gert árangurslaus-
ar tilraunir til þess að fá inni
hjá ættingjum og vinum, en
engan fundið heima fyrir, og
ekki hefði hann haft efni á því
að gista á hóteli. Því hefði
hann tekið það ráð að fara að
bifreið sinni, setja hana í gang
og kveikja á miðstöðinni, en
úti var nokkur kuldi. Þá hefði
hann strax lagt sig í aftursæt-
ið. Hann kvaðst ekki hafa
hreyft neitt við bifreiðinni,
enda væri honum kunnugt um
hverju það varðaði. En hins
vegar hefði hann ekki grunað
samræmi við niðurstöðu blóð-
rannsóknar og önnur sakar-
gögn, sé sannað, að ákærði
gangsetti bifreið sína undir
áhrifum áfengis, þar sem
bifreiðin stóð við hús nr. Y við
Ásvallagötu í Reykjavík
aðfararnótt sunnudagsins 30.
nóvember 1975. Þar sem gang-
setning bifreiðar verði að
teljast þáttur í akstri hennar
hefði ákærði gerst brotlegur
við 2. mgr. sbr. 3. mgr. 35. gr.
umferðarlaga og 1. mgr. 24. gr.
áfengislaga. Þá var hann
dæmdur til þess að greiða 70
þúsund króna sekt til ríkis-
sjóðs og hann sviptur ökuleyfi
ævilangt, en vorið 1973 hafði
hann verið sviptur ökuleyfi í 1
ár vegna ölvunar við akstur.
Þá var hann dæmdur til
greiðslu alls sakarkostnaðar.
alda á sér hita
að gangsetning bifreiðar ein
út af fyrir sig gæti varðað við
lög. Næst kvaðst hann hafa
munað eftir sér við lögreglu-
stöðina í miðbænum, þar sem
hann var leiddur fyrir lög-
regluvarðstjóra, síðan til blóð-
töku og loks í fangageymslu.
Skipaður verjandi ÞÞ
krafðist sýknu í málinu og
byggði á því, að ákærði hefði
ekki átt annarra kosta völ en
að gangsetja bifreiðina sér til
varnar við kulda, sem ella
hefði getað orðið honum að
fjörtjóni, en ÞÞ var þá nýris-
'inn upp úr veikindum.
Héraðsdómur vildi ekki
fallast á þessi sjónarmið
verjandans þar sem ÞÞ hefði
verið fullfært að leita annarra
úrræða, svo sem á náðir
lögreglu.
Sviptur ökuleyfi
ævilangt í héraði
I niðurstöðum sakadómara
segir m.a. að með játningu um
gangsetningu bifreiðarinnar
X og neyzlu áferrgis, sem sé í
Sýkna í Hæstarétti
í niðurstöðum Hæstaréttar
í máli þessu sem áfrýjað var
segir m.a. að þegar lögreglu-
menn komu að bifreiðinni X
kl. 05.10 sunnudag 30. nóvem-
ber 1975, hafi ákærði verið
sofandi í aftursæti hennar.
Hann hafi staðfastlega haldið
því fram, að fyrir sér hafi ekki
vakað að aka bifreiðinni,
heldur hafi hann leitað skjóls
í henni. Þessi frásögn fengi
stoð í gögnum málsins. Eins
og hér stæði á verði ákærða
eigi refsað fyrir að reyna að
aka bifreiðinni, sbr. 25. gr. og
80. gr. umferðarlaga, með því
að setja vél hennar í gang. Því
bæri að sýkna ákærða af
kröfum ákæruvalds í máli
þessu og leggja allan sakar-
kostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti á ríkissjóð.
í sakadómi Akraness
dæmdi Jón Sveinsson fulltrúi,
en í Hæstarétti dæmdu
hæstaréttardómararnir Ár-
mann Snævarr, Björn Svein-
björnsson og Logi Einarsson.
Fleiri og fleiri fyrirtæki kjósa að taka Wang rafreikna í sína
þjónustu til aö létta þeim störfin. Þaö er eðlilegt því aö Wang býöur
einfaldleika, áreiöanleika og sveigjanleika.
Eigum fyrirliggjandi ýmsar geröir forrita t.d. fyrir: Fjárhagsbók-
hald, viðskiptamannabókhald, birgðabókhald, launabókhald,
verkfræöistofur, sveitarfélög.
Hringiö og viö veitum allar upplýsingar um Wang rafreikna eða
komiö í heimsókn í tölvudeild okkar og sjáiö Wang aö störfum.
heimilistæki sf
z
Tölvudeild — Sætúni 8 — 24000