Morgunblaðið - 22.11.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR ‘l%
'8
15
Loka Norðmenn
auðugum miðum?
Ósló, 21. nóvcmber. Frá fróttaritara Mbl.
NORÐMENN munu að líkindum
loka fyrir allar togveiðar á
tveimur veiðisvæðum á hafinu
undan Mæri og Romsdal og
undan Troms-fylki frá og með
haustinu 1979. Ennfremur verða
þau þrjú svanii, sem nú er bannað
að toga á, að líkindum stækkuð,
að því er Eivind Bolle sjávarút-
vegsráðherra skýrði frá í dag.
Þau svæði, sem að líkindum
verður lokað, eru Storegga undan
Mæri og Romsdal og Fugleyjar-
banki undan Troms. Þetta eru
auðug fiskimið, og einkum er
Fugleyjarbanki þekktur fyrir góð
þorsk-, ýsu- og lúðumið. A Stor-
egga er mest um lúðu, löngu og
keilu.
Leikkonurnar Liza Minelli og Gina Lollobrigida hittust í samkvæmi í New York fyrir skömmu og var
þessi mynd þá tekin. Ekki er annað að sjá en að vel fari á með þeim stöllunum.
Times og Sunday
Times í kröggum
London, 20. nóvember.
Reuter.
Framtíð tveggja víðlestn-
ustu dagblaða Bretlands, The
Times og The Sunday Times,
hangir nú á bláþræði að því er
fréttir hér herma.
Mjög hart hefur verið lagt að
útgáfustjórn blaðanna að
hætta ekki útgáfu þeirra eins
og stjórnin hefur hótað að gera
30. nóvember n.k. þar til hætt
verði skæruverkföllum starfs-
manna sem hafa verið tíð, og
hafa valdið blöðunum gífur-
legu tapi.
Stöðugir fundir hafa verið
haldnir alla helgina og verður
haldið áfram með útgáfustjórn
blaðanna og fulltrúum starfs-
manna og fulltrúum ríkisvalds-
ins, en ekki er búist við neinni
niðurstöðu af þeim fundum fyrr
en í fyrsta lagi í loku vikunnar.
Fulltrúar prentiðnaðarins
leggja mjög hart að breskum
stjórnvöldum að hlutast til um
að við útgáfustjórn blaðanna að
hætta ekki útgáfu þar sem það
myndi hafa í för með sér
gífurlegt tap og atvinnumissi
fyrir fjölda manna.
Stafeetningar-
breyting í Kína
Peking. 21. nóvember. Reuter.
KÍNVERSKA stjórnin hefur til-
kynnt að breytingar verði gerðar
á stafsetningu ymissa manna-
nafna og staða, eins og þau eru
stafsett með latínuletri, þannig
að búist er við að ógjörningur
verði að átta sig á þeim út frá
fyrri nöfnum.
Breytingarnar gera það að
verkum að Peking verður að
Beijing, Hong Kong verður að
Xianggang, en Kína verður áfram
Kína í stað Zhongguo. Þá er
ólíklegt að Mao Tse Tung verði
Mao Z-dong, og að Sun Yat-sen
verði Sun Chong-shan, eins og
ætla mætti, þar sem tilkynning-
unni fylgdi að leyft væri að nöfn
frægra manna og staða héldust
óbreytt.
Nafn Hua Kuo-feng flokksfor-
manns verður Hua Guo-feng, og
Teng Hsiao-ping varaforsætisráð-
herra verður í framtíðinni Deng
Xiao-ping.
Skipholti 19
Sími 29800
27 ár í fararbroddi
Sértilboð
meöan birgöir
endast
í>etta gerðist 21. nóvember
1975 — Juan Carlos prins
verður konungur Spánar.
1974 — PLO fær að hafa
áheyrnarfulltrúa hjá SÞ.
1973 — Fundur egypzkra og
ísraelskra hershöfðingja um
vopnahlé.
1972 — Nixon afléttir 22 ára
banni við ferðum til Kína.
1967 — Ályktunartiliaga
Öryggisráðsins um frið ísraels
og Arabarikja.
1963 — Kennedy ráðinn af
dögum.
1962 — Rússar hætta viðbúnaði
vegna Kúbu-deilunnar.
1943 — Kaíró-fundur
Churchills, Roosevelt og Chiang
Kai-shek.
1941 — Þjóðverjar taka Rostov.
1927 — Albanir í varnarbanda-
lag með ítölum.
1922 — Cuno kanslari Þýzka-
lands.
1915 — Orrusta Breta og
Tyrkja við Tsiphon.
1906 — „SOS“ viðurkennt
neyðarkall skipa í sjávarháska =
Umbætur í rússneskum land-
búnaðarmálum.
1892 — Belgar bæla niður
uppreisn arabískra þrælasala í
Efri-Kongó.
1830 — Belgía konungsríki.
1774 — Andast Clive, stofnandi
heimsveldis Breta á Indlandi.
1699 — Sáttmáli Dana, Rússa,
Saxa og Pólverja um skiptingu
Svíaveidis.
Afmæli dagsinsi Charles de
Gaulle, franskur stjórnskörung-
ur (1890—1970) * Thomas Cook,
enskur brautryðjandi ferðamála
(1808-1892) = André Gide,
franskur höfundur (1869—1951)
= Benjamin Britten, enskt tón-
skáld (1913'-).
Innlenti Björn Jónsson ráðherra
víkur stjórn Landsbankans frá
1909 = D. Hrafn Oddsson 1289 =
Sigurður Gunnarsson prófas*ur
1878 = F. Rasmusk Christian
Rask 1787 = Rask-hneykslið 1887
= Konungur staðfestir fossalög-
in 1907 = Samningur við Thor E.
Tulinius um strandferðir 1913 =
Kosningaaldur 21 ár 1933 = D. ’
Pálmi Hannesson rektor 1956 =
F. Haraldur Á. Sigurðsson 1901.
Orð dagsinsi Ennþá hefur
enginn heimspekingur getað'
afborið tannpínu með þolin-
mæði — William Shakespeare,
enskt leikritaskáld (1564—1616).