Morgunblaðið - 22.11.1978, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978
29
VELVAKANDI
^ SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
r\M f/JAmry’ua'/jit
minn, — að eins og þú ávkrpar
aðra ávarpa aðrir þig. Á þessu
getur að vísu orðið misbrestur, en
láttu það ekki á þig fá.
Gautur.“ >
• A hvaða
braut stefnir?
„Velvakandi.
Sunnudaginn 19. nóv. s.l.
birtist grein hér í Velvakanda um
málefni sem ég tel vel til þess
fallið og eiginlega nauðsynlegt að
taka upp. Þetta var grein undir
nafninu „Hversu langt má ganga“.
Þar er talað um einkamála auglýs-
ingar síðdegisblaðanna. Þessar
auglýsingar vekja óneitanlega upp
afgerandi spurningar um þjóð-
félag vort og inná hvaða braut
slíkar auglýsingar ásamt m.fl.
reyna að ýta okkur.
Það er engin spurning um það að
fjölskyldan er sá hornsteinn sem
þjóðfélagið byggir á enda sést það
best í gegnum mannkynssöguna að
þar sem frjálst kynlíf þykir
sjálfsagt og fjölskylduböndin lítið
sem ekkert virt, hefur menningin
og þjóðfélagið hrunið til grunna og
feikilegir erfiðleikar hafa blasað
við komandi kynslóðum. Skýrust
eru dæmin um Rómaveldi, Grikk-
land og Egyptaland til forna.
Þessar auglýsingar eru einn af
mörgum þáttum sem vinna að því
að venja almenning við slíkum
hugsunargang. Og skeður þetta á
svo kænlegan hátt að enginn tekur
eftir því nema athuga það sérstak-
lega. Það er óskandi að menn láti í
sér heyra og geri sér skýra mynd
af þessum hlutum.
Halldór Einarsson.“
t>essir hringdu . . .
• Engin
hagræðing
Ferðamaðuri
— Mig langar að koma á
framfæri smákvörtun, en hún er
sú að slæmt er að ekki skuli vera
hægt að nota sams konar mynd í
ökuskírteini og vegabréf. Ég var
nýlega að endurnýja vegabréf mitt
og þá átti ég fyrir nýlega mynd frá
því ég endurnýjaði ökuskírteinið.
Hefði ég haldið að sú mynd gæti
gengið, en því var ekki að heilsa
þar sem nokkrum millimetrum
munaði á stærð þeirra og því
vonlaust að fá að nota sömu
myndina. Því mátti ég arka til
Ijósmyndara og eyða þar á þriðja
þúsund krónum til að fá nýja
mynd í hinni umbeðnu stærð. Væri
nú ekki hægt að samræma þessar
stærðir eitthvað, ekki sízt þar sem
sama embætti annast þessi mál og
því er það vart mjög erfitt.
• Ekkert sport?
Ö.Á.i
— Mér er illa við þá uggvæn-
legu þróun að sportvörur eru að
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pitursson
Á samsovézka úrtökumótinu
Daugavpils í ár kom þessi staða
upp í skák þeirra Ziljbersteins,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Kims.
verða þvílíkur lúxus að ekki verður
bráðum hægt að leggja stund á
eitt eða neitt sport. Benda má á að
ómerkileg tvíhleypa kostar nú um
200 þúsund krónur og með því
áframhaldi verður okkur sport-
mönnum gersamlega ómögulegt að
stunda þetta sport okkar.
HÖGNI HREKKVÍSl
FAU.E.61T Q}£A(rr\E> !-• HöTOR-OU
oefttö/\e qfa 'a VomuM^
SlGGA V/öGA £ ÍILVZ9AH
Mótmæltu starf s-
leyf i ræk ju-
skelsverksmidju
Ilnífsdælingar hafa skrifað undir mótmælaskjal og sent til
bæjarstjórnar ísafjarðar en þar er mótmælt umsókn Rækjuverk-
smiðjunnar h.f. í Hnífsdal um starfsleyfi fyrir mjölverksmiðju er
ynni mjöl úr rækjuskel. Verksmiðjan hyggst reka þessa
mjölvinnslu í húseign sinni á Leiti í Hnífsdal og skrifuðu 88 íbúar
Hnífsdals undir mótmælaskjalið, sem lagt var fram á fundi
bæjarstjórnar ísaf jarðar í lok október sl.
Sturlá Halldórsson bæjarfull- greinir í frétt Vestfirska frétta-
trúi lagði fram á fundi bæjar-
stjórnar í byrjun nóvember sl.
greinargerð um mál þetta og
umsagnir nokkurra aðila og
kemur fram í henni að mótmæli
bæjarbúa byggjast á því að
óþrifnaður og mengun fylgi
rekstri verksmiðjunnar og geti
staðsetning hennar í miðri íbúð-
arbyggð haft óheillavænleg áhrif
á uppbyggingu Hnífsdals að
mati bæjarfulltrúans, eins og
blaðsins frá umræðum þessum.
Samþykkt var í bæjarstjórn að
hafna umsókn Rækjuverksmiðj-
unnar h.f. og var samþykkt að
fela bæjarráði að gera tillögu
um lóðarúthlutun til Rækjuverk-
smiðjunnar fyrir umrædda
starfsemi svo fljótt sem auðið er,
en upphaflega var sótt um lóð
fyrir þessa starfsemi í október
1977.
Kínverskar
handunnar
FANG
mottur
nýkomnar.
íLRUt
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
19. Hxe7+! - Kxe7, 20. Bb4+ -
Kf7, 21. Bd5+ - Ke8, 22. De6+ -
Kd8, 23. Bb7+ - Dd7, 24. Ba5
mát. Sigurvegari á mótinu varð
hinn 15 ára gamli Kasparov, hann
hlaut 9 v. af 13 mögulegum og er
langyngstur þeirra sem hafa unnið
sér rétt til þess að tefla í úrslitum
á Skákþingi Sovétríkjanna. Jafn
Kasparov að vinningum, en lægri á
stigum varð I. Ivanov, en í 3.-7.
sæti komu þekktir kappar, þeir
Kaupreitschik, Mikhailchisin,
Kapengut, Panchenko og
Tseshkovsky, sem allir hlutu 8V4
YlVAflA
'fáös m av y/ka
m vym A9 l4ta
W/NA XW^Kv/AUSA X
- \IÍ— 1WA9A \' MAOSWJM A VÍOWuW)
L/tfliK áVENQötí
SVOKA. v/AW/V t£6\f? A9
W 'OoKV/
\\L 4$ Kov/A
'&^KvMu'hAM/L
^A OKKO^