Morgunblaðið - 22.11.1978, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978
31
B-heimsmeistarakeppnin:
ísland í riðli
með Tékkum
og ísraelum
DREGIÐ var um það í Barcelona á Spáni í gær hvaða
þjóðir leika saman í undanrásum B-heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik, sem fram fer á Spáni frá
22. febrúar til 3. marz á næsta ári. ísland lenti í riðli
með Tékkóslóvakíu og ísrael. Tvö efstu liðin komast
áfram í milliriðla og verður að telja ísland eiga mikla
möguleika á því að komast áfram. Riðillinn, sem
ísland er í, d-riðillinn, verður leikinn í Sevilla og
Malaga.
Niðurstaðan í drættin-
um varð annars þessii
A-riðill, Svíþjóð, Búl-
garía og Noregur, leikir í
Madrid.
Briðill, Ungverjaland,
Frakkland og Sviss, leik-
ið í Murcia og Alicante.
C-riðill, Spánn, Hol-
land og Austurríki, leik-
ið í Zaragoza.
D-riðill, Tékkósló-
vakía, ísland og ísrael,
leikið í Sevilla og Mal-
aga.
Undanúrslit keppninn-
ar fara fram í Barcelona
og Madrid og sjálfur
úrslitaleikurinn fer fram
í Madrid.
- SS.
• Geir Hallsteinsson skoraði sigurmark FH með þrumuskoti á síðustu sekúndum leiksins. Hér gnæíir
hann yfir vörn Víkings í leiknum í gærkvöldi. Ljósm. Mbl. Emflía.
Sigurmark FH skor-
að á lokasekúndunum!
FH i efsta sæti
FH heldur forystunni í 1. deild
kvenna eftir sigur yfir Haukum í
gærkvöldi 16,13. Staðan í hálfleik
var 9,5 FH í vil.
Leikurinn í gærkvöldi var
sveiflukenndur. Liðin voru jöfn til
að byrja með en síðan tók FH
mikinn kipp og komst í 7:2 og
síðan í 9:5 fyrir hálfleik.
í seinni hálfleik juku
FH-stúlkurnar forskotið og um
tíma í seinni hálfleik var staðan
13:7 og stórsigur FH blasti við. En
Haukastúlkurnar voru ekki á þeim
buxunum að gefa leikinn og þær
skoruðu næstu 5 mörk og breyttu
jBotiumlilnþiþ
urraTnira
stöðunni í 13:12. Meira að segja
fengu þær tækifæri til þess að
jafna metin. En þegar mest á
reyndi brugðust taugarnar og
hinar leikreyndu FH-stúlkur sigu
framúr á lokamínútunum og unnu
16:13.
Svanhvít Magnúsdóttir lék sinn
150. leik fyrir FH og hélt hún upp
á það með þvi að skóra 6 mörk.
Kristjana Aradóttir var tekin úr
umferð og gat því lítið beitt sér.
Katrín Danivalsdóttir var góð í
vörn og skoraði mikilvæg mörk í
s.h. Þá varði Gyða lengst af vel í
markinu. Hjá Haukunum bar mest
á Margréti Theódórsdóttur og
Svanhildur var örugg í vítaköstun-
um.
Mörk FH: Svanvhít 6, Sigrún
Sigurðardóttir 4, Katrín 3,
Kristjana 2, Hildur Harðardóttir 1
mark.
FH SIGRAÐI Víking 19:18 í einhverjum mesta baróttuleik, sem sést hefur í
Íslandsmótínu í handknattleik í vetur. Það var Geir Hallsteinsson, sem
skoraði sigurmark FH, Þegar aðeins voru eftir 6 sekúndur af leiktímanum,
meö einu af sínum frægu og lúmsku undirskotum. Fagnaðarlæti áhorfenda
voru gífurleg í ípróttahúsinu í Hafnarfirði pegar leiknum lauk, en
áhorfendur höfðu verið meö á nótunum allt frá upphafi og mjög margir
fylgdust meö leiknum.
Leikurinn var allan tímann mjög
jafn og skemmtilegur og óhætt aö
segja aö mikill stígandi hafi veriö í
leiknum. FH tókst að ná forystu í f.h.
og komast 2 mörk yfir, 6:4, en
Víkingum tókst að jafna metin og
voru þeir eitt mark yfir í hálfleik,
11:10.
Síöari hálfleikur var geysispenn-
andi og jafn allan tímann og óhætt er
aö fullyröa að sjaldan hefur jafn mikill
hasar sést á handknattleiksvelli.
Leikurinn var mjög hraður en ekki vel
leikinn, því mikið var um mistök hjá
báðum liöum og virtust leikmenn
mjög þrúgaöir og taugaspenntir.
Þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum
haföi FH tveggja marka forystu,
18:16. Ólafi Einarssyni tókst aö
minnka muninn niöur í eitt mark. FH
misnotaði næstu sókn og Víkingur
fékk knöttinn. Þá gerði Árni Indriða-
son sig sekan um aö slá Gils
Stefánsson í magann í sókninni og
var vikiö af leikvelli í 2 mínútur og
FH-ingar fengu knöttinn. Þegar tvær
mínútur voru eftir af leiknum fór
Guömundur Árni inn úr vinstra
Mörk Hauka: Margrét 6,
Svanhildur 4, Kolbrún Jónsdóttir
1, Guðrún Gunnarsdóttir 1,
Sesselja 1 mark.
- þr/SS.
Manchester Utd
keypti Thomas
á 300 þús. pund
Manchester United hefur fest
kaup á welska landsliðsmannin-
um Mike Thomas frá 2. deildar-
liðinu Wrexham. Kaupverðiö er
300 púsund sterlingspund.
Thomas, sem er tengíliður,
leikur sinn síðasta leik með
Wrexham í kvöld gegn Leicester
en skrifar undir hjá Manchester
á morgun.
horninu í góðu færi en Kristjáni
markverði tókst að verja meistara-
lega. Víkingar sóttu og þegar ein
mínúta var eftir jafnaði Erlendur
Hermannsson leikinn 18:18 en Geir
átti síöasta orðiö eins og áður sagði.
Var þá allt komiö í upplausn og
spennan í hámarki.
Beztu menn FH voru Geir Hall-
steinsson, Guðmundur Árni svo og
bræðurnir Gils og Sæmundur. Hjá
Víkingi var Páll Björgvinsson beztur
að venju en markvarzlan var mjög
slök hjá liðinu. Hjá Víkingi vantaði
Viggó Sigurðsson og Janus Guð-
laugsson hjá FH.
í STUTTU MÁLI>
íslandsmótið 1. deild. íþróttahúsið Hafnar
firði, FH-Víkingur 19.18 (10.11?.
MÖRK FH. Geir 8 (5v), Valgarð Valxarðs-
son 3. Guðmundur Árni 3. Sæmundur
Stefánsson 2. Viðar Sfmonarson 2. ok
Guðmundur Magnússon 1 mark.
MÖRK VÍKINGS. Páll 5. (2v), Árni
Indriðason 3 (3v). Sigurður Gunnarsson 2.
Ólafur Jónsson 2, Erlendur Ilermannsson 2.
ólafur Einarsson 2. Steinar Birxisson 2
mörk.
BROTTREKSTUR AF VELLI. Sæmundur
Stefánsson. Valttarður Valxarðsson. Erlend-
ur Hermannsson. Árni Indriðason. 2
minútur hver. Páll BjörKvinsson 4 mínútur.
MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST. Ma«nús Óiafs-
son varði vftakast Páls Björgvinssonar f f.h.
DÓMARAR VORU. Haukur Þorvaldsson ok
Óli Olsen ok voru þeim mislaxðar hendur f
dómKa'zlunni. enda leikur hraður ok erfiður
að dæma.
-þr.
Everton að ná Liverpool
ÚRSLIT í ensku knatt-
spyrnunni í gærkvöldi,
1. DEILD:
Birmingham — Bolton 3:0
Bristol City — Wolverhamtom 0:1
Coventry — Derby 4:2
Everton — Manchester Utd 3:0
Ipswich Middlesbrough 2:1
Southampton — Aston Villa 2:0
2. DEILD:
Brighton — Millwall 3:0
Charlton — Luton 1:2
Crystal Palace — Sheffield Utd 3:1
Fulham — West Ham 0:0
Orient — Blackburn 2:0
Preston — Sunderland 2:0
Nú munar aðeins einu stigi á
Everton og Liverpool. Ross, King og
Latcford skoruðu mörk liösins.
Birmingham og Wolves unnu eftir
langa bið, Alan Buckley skoraði eitt
af mörkum Birmingham og Steve
Daley, sem Nottingham Forest vitl
kaupa, skoraöi sigurmark Wolves.
I
!
I
Knattspy r nuÞ jalf a ra r
- knattspyrnuÞjálfarar
Knattspyrnuþjálfarafélag íslands gengst fyrir almennum félagsfundi
í Domus Medica fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20 þar sem rætt
verður um fyrirkomulag Landsmóta o.fl. Kvikmyndasýning.
Fjölmennið.
Stjórnin.
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA í KÖRFUKNATTLEIK
ÍS — F.C. BARCELONA
í Laugardalshöll í kvöld kl. 20.00
Sjáiö snillingana Dirk Dunbar og John Johnson leika saman.
Eitt frægasta félagsliö Evrópu í fyrsta sinn á íslandi
ATH. ÍS. heldur kveðjuhóf í Óðali að ioknum leik.
ÍÞróttafélag
stúdenta