Morgunblaðið - 22.11.1978, Qupperneq 32
Á leið í skóln
gœtió oð
Verzliö
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19.
BUÐIN sími
y 29800
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1978
Ljósm. Mbl.: Emjlía.
Mikill eldur kom upp í tveggja hæða steinhúsi við Norðurstíg í gærkvöldi og hér eru slökkviliðsmenn
að bjarga konu úr eldsvoðanum.
Rannsóknarnefnd flugslyssins:
Vonast til að geta hlust-
að á samtöl flugmanna
og flugturnsins í dag
Sri Lanka, 21. nóv. Frá Árna Johnsen blm. Mbl.
RANNSÓKNARNEFND flugslyssins hélt fund í dag til þess að
skipuleggja samræmdar aðgerðir í rannsókninni, sem mun taka
langan tíma. m.a. er verið að hreinrita segulbandsupptökur af öllu tali
og hljóðum við stjórnklefa þotunnar síðustu 30 mínúturnar.
Upptökurnar verða síðan sendar til Bandaríkjanna til frekari vinnslu
með aðstoð íslendinga.
I dag var áfram unnið á slysstað
og fundust nokkur lík í viðbót í
flakinu. Á morgun á að reyna að
lyfta hluta þess til að kanna hvort
einhver lík leynast þar undir. Einn
þátturinn í rannsókninni er í
höndum vísindamanna frá Sri
Lanka-háskóla. Þeir eru að rann-
saka blóðsýni úr fjórum af hinum
Flugleiða-
fólkið heim
HEIMFLUTNINGUR flugliða
og starfsfólks Flugleiða frá
aðalviðkomustöðunum í pfla-
grímaflugi félagsins, gengur
seinlega þar sem erfiðleikum
hefur reynzt hundið að fá sæti
handa þessum fjölda f
áætlunarflugi til Evrópu. bó
liggur nú fyrir, að 32 manns
munu koma til Evrópu frá
Jakarta á fimmtudag n.k. og
verður hópurinn síðan
væntanlega fluttur hingað til
lands á föstudag ef allar
áætlanir standast. Einn starfs-
maður Flugleiða verður cftir í
Jakarta til að sinna málum
Flugleiða þar.
Flugleiðafólkið í Colombo á Sri
Lanka, þ.e. Dagfinnur Stefánsson
og aðstoðarmaður hans, svo og
hinir slösuðu er lifðu af flugslysið
verða þar enn um sinn eða næstu
10—14 dagana eða þar til allir
eru orðnir ferðafærir. Lík þess
áhafnarmanns sem síðast fannst,
hefur verið sent áleiðis til
landsins og kemur væntanlega
annað kvöld. Útföi1 hinna látnu
verður ekki sameiginleg heldur á
vegum aðstandenda.
látnu úr áhöfninni til þess að fá
vitneskju um, hvort eldur eða
reykur hefði verið kominn upp í
vélinni fyrir lendingu.
Islenzku rannsóknarmennirnir
hafa ekki ennþá fengið að hlusta á
segulbandsupptöku af viðskiptum
vélarinnar og flugturnsins. En
vonir standa til að það verði í dag.
Yfirvöld hér hafa staðfest, að
aðflugsljós og stefnuviti flugvall-
arins hafi verið óvirk. Stefnuvit-
inn er nálægt brautarendanum og
gefur upp stefnu á braut og
fjarlægð vélar frá braut. Og
aðflugsljósin eru ljósin á enda
flugbrautarinnar áður en kemur
að brautarljósunum sjálfum. Um
langt skeið hafa flugmenn kvartað
yfir að ekki væru öll tæki í lagi á
Colomboflugvelli. En bilun fyrr-
greindra tækja á þó ekki að ráða
neinum úrslitum um lendingu.
Sem dæmi um kynduga stjórnun
um flugturninn hér má nefna, að
sama dag og DC-8 þotan fórst,
lenti ein flugvéiin hér á vitlausum
flugvelli. Flugturninn sagðist ekki
sjá flugvélina, sem ekki var von,
því hún var að lenda á röngum
velli, sem hafði of stutta braut, en
flugmanninum tókst að ná vélinni
aftur á loft.
Tvær töskur úr Loftleiðavélinni
hafa verið hér í fréttum en þær
fundust hjá brakinu merktar
barnaheimilinu hér og ekki er
vitað ennþá hvort barnafatnaður-
inn var frá íslandi eða á vegum
Indónesa. Og það má bæta því við í
sambandi við flugvöllinn, að flug-
menn British Airways hafa lýst
yfir sérstakri óánægju með tækja-
búnað vallarins.
í dag fóru 38 Indónesar flugleið-
is til Indónesíu með Garuda, sumir
allsjúkir ennþá.
Konu bjargað
úr eldsvoða
MIKILL eldur kom upp í húsi við Norðurstíg við horn
Vesturgötu í Reykjavík í gærkvöldi. Allt slökkviliðið í
Reykjavík var kallað á staðinn kl. 23.24 og var
slökkvistarfinu lokið að mestu eftir rúman hálftíma.
Að sögn slökkviliðsins í
Reykjavík var hér um að
ræða tveggja hæða steinhús
og var eldurinn einkum á
annarri hæð hússins. Konu
var bjargað út úr húsinu og
var hún flutt á slysadeild en
Konan var flutt á slysadeild, en
hún hafði fengið snert af reyk-
eitrun.
hún hafði fengið snert af
reykeitrun.
Þá upplýsti slökkviliðið
að miklar skemmdir hefðu
orðið á húsinu, en eldurinn
komst ekki í nálæg hús, sem
eru samföst. Eftir að
slökkvistarfi var að mestu
lokið uppúr miðnættinu var
sett vakt á brunastaðnum,
en nánari upplýsingar um
skemmdir eða orsök brun-
ans lágu ekki fyrir er Mbl.
fór í prentun.
Stolið litsjón-
varpstækjum að
verðmæti 2 millj.
NÝVERIÐ var stolið 5 sjónvarps-
tækjum úr vöruskemmu í Reykja-
vfk og er söluverðmæti tækjanna
um 2 milljónir króna.
Á tímabilinu 19. ágúst til 2.
október var stolið þremur Sony-lit-
sjósnvarpstækjum, 20 tommu, úr
skemmunni og á tímabilinu 15.
október til 6. nóvember var stolið
tveimur Toshiba C-2080 litsjón-
varpstækjum úr sömu skemmu, en
tækin eru einnig 20 tommu.
Rannsóknarlögreglan biður þá
sem upplýsingar geta veitt um
stuldinn á tækjunum að hafa strax
samband við sig.
Veður hamlar
viðgerð Scotice
ENN VERÐUR bið á því að sæstrengurinn Scotice komist í lag. Nú eru
liðnir 16 dagar síðan strengurinn slitnaði rétt norðan við Færeyjar og
hefur strengurinn aldrei fyrr verið jafnlengi bilaður síðan hann var
tekinn í notkun, árið 1962, að því er Jón Valdimarsson tæknifræðingur
hjá Pósti og síma tjáði blaðinu í gær.
Jón sagði að viðgerðarskip hefði
komið á bilunarstaðinn fyrir síðustu
helgi en vegna veðurs hefur skipið
orðið að haida sjó yfir bilunarstaðn-
um siðan.
Veðurhæðin hefur verið
8—9 vindstig dag hvern en ekki er
hægt að hefja viðgerð nema veður-
hæðin fari undir 5 stig.
Líklegt er talið að togari hafi slitið
strenginn. Hefur bilun hans haft
margvíslega erfiðleika í för með sér
fyrir Póst og síma og valdið langri
bið eftir símtölum til útlanda.
Tillögur Alþýðubandalagsins
þýða 15 milljarða kr. útgjöld
Pakki upp á 6 milljarða,” segir Svavar Gestsson
Tillögur Alþýðuhandalagsins
varðandi lausn vandans 1. desem-
her n.k. jafngilda, samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér. útgjöldum er
nema um 15 milljörðum króna.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér er
kostnaðurinn við að greiða niður
hvert prósentustig í launum
talinn vera um 1700 milljónir
króna. Samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu nemur 2% sjúkra-
tryggingagjald 5,6 milljörðum
króna. Erfitt er að meta, hvað
framkvæmdir á félagslegum rétt-
indamálum þýða í útgjöldum, en
sé farið bil beggjas Niður-
greiðslna á launum og sjúkra-
tryggingagjaldsins, nemur hvcrt
prósentustig 2,2 milljörðum
króna.
„Við lítum á þessar tillögur sem
pakka upp á 6 milljarða króna og
teljum að það sé hægt að afla
tekna til hans með skattheimtu,“
sagði Svavar Gestsson viðskipta-
ráðherra er Mbl. spurði hann í gær
um tillögur flokksráðsfundar Al-
þýðubandalagsins um lausn efna-
hagsvandans 1. desember n.k.
„Við bendum á gamlar hug-
myndir ufn veltuskatt og fjár-
festingarskatt," sagði Svavar. „Og
þar að auki teljum við rétt að
framlengja skyldusparnaðinn, sem
fráfarandi ríkisstjórn setti á með
febrúarlögunum."
Svavar sagði að ekki lægi fyrir,
hversu miklar tekjur slík skatt-
heimta myndi gefa, en sagðist að
auki ekki telja það ofverk ríkis-
stjórnarinnar að minnka reksturs-
kostnað sinn um tvo milljarða.