Morgunblaðið - 24.11.1978, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
269. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
^I/l 1*11111 fntlim Presur “r bal,ðarískum hvítasunnusöfnuði
■*■«( ^"^ IÆ.J.K.M. J. I/»/ ÆÆ.J.M.M. hér skríða á fjórum fótum framan við
minnismerkið um Abraham Lincoln í Washington á leið til Hvíta hússins. Klerkur þessi, Hans
Mullikin að nafni. hefur skriðið með þessum hætti rúmlega 2500 kílómetra leið frá Texas til
Washington og eytt í það tveimur og hálfu ári. Segist hann með þessu vilja sýna Bandaríkjamönnum
að þeim beri að krjúpa á kné og iðrast. Við lok ferðarinnar vildi Mullikin hitta Carter
Bandaríkjaforseta, en hann kvaðst of upptekinn til að ræða við hann.
Frekari við-
ræður óþarfar
— segir Moshe Day an
Jerúsalem. Kaíró. 23. nóv. AP. Reuter.
DAYAN utanríkisráðherra
ísraels sagði í dag að um ekkert
frekar væri að semja við
Egypta og að hann myndi ekki
á næstunni halda til Washing-
ton til viðræðna. Sagði hann að
nú væri það Sadats Egypta-
landsforseta að fallast á samn-
ingsdrög þau sem ísraelska
stjórnin hefur þegar samþykkt.
Sadat hefur hins vegar ekki enn
viljað fallast á þau drög ein og
sér og kreíst þess að sett verði
ákvæði um hvenær gengið skuli
til kosninga á Vesturbakka
Jórdanár og á Gazasva'ðinu og
hvenær Palestínumenn skuli
hljóta fullveldi.
Sadat og helztu aðstoðarmenn
hans sátu á fundinum í dag og að
honum loknum sagði Sadat, að
Egyptar hefðu ákveðið að gera
nokkurt hlé á viðræðum og
kanna málin frá grunni að nýju.
Sagðist hann hafa verið í sam-
bandi við Carter Bandaríkjafor-
seta og hefðu þeir orðið sammála
um að ræðast aftur við í næstu
viku.
„Hætta á borgarastyrj-
öld í Iran fari ég frá”
— segir keisarinn
„íranskcisari hcfur tckið mjög nærri sér allt það ofbeldi sem
.viðgengist hefur í landi hans undanfarið og hann á erfitt með að
skilja að það cru ekki aðeins fámennir hópar öfgamanna sem
andvígir eru stjórn hans,“ segir fréttaritari Times í Teheran í
blaði sínu í London í dag eftir að hafa átt langt viðtal við
keisarann.
Fréttaritarinn, Charles
Douglas-Home, segir að keisar-
inn telji hann ekki mundu gera
landi sínu gagn með því að segja
af sér, þar sem þá sé hætta á
mikilli vargöld og blóðugum
átökum stríðandi afla um völd-
in. Segir keisarinn að herinn í
landinu muni ekki taka við
skipunum frá neinum öðrum en
sér og að borgarastyrjöld mundi
hljótast af ef hann færi frá.
Ekkert er haft beint eftir
keisaranum í viðtalinu við
Douglas-Home og er það í
samræmi við ákvörðun hans
fyrir nokkru að láta ekkert hafa
beint eftir sér opinberlega. I
viðtalinu kemur þó glöggt fram
hver afstaða keisarans er til
ástandsins í landinu og hve
alvarlegum augum hann lítur
það vantraust sem hann telur
sig hafa orðið varan við meðal
almennings víða í landinu.
Segir Times að keisarinn hiki
við að taka á sínar herðar alla
gagnrýni sem stjórn landsins
hefur sætt úr ýmsum áttum
undanfarið og sé ráðþrota með
hverjum hætti hann eigi að
reyna að lægja öldurnar í
landinu. „Hann er ekki enn viss
um að það versta sé liðið hjá,“
segir í blaðinu.
I Iran gerðist það annars
helzt í dag að tveir menn biðu
bana í átökum sem urðu sunnar-
lega í landinu milli mótmælenda
og lögreglu. Stjórnvöld í landinu
skoruðu í dag á alla þá Irani
sem flúið hafa land af ótta við
að verða ákærðir fyrir spillingu
að snúa til baka, því ella verði
eigur þeirra gerðar upptækar og
leitað liðsinnis alþjóðalögregl-
unnar Interpol
Lík 120 Uganda-
manna finnast
Dar es Salaam, 23. nóv. AP
IIERMENN stjórnar Tanzaníu
fundu í dag lík 120 hermanna frá
llganda. og segja Tanzaníumenn
að félagar þessara hermanna hafi
skotið þá að fvrirma'lum Amíns
Ugandaforseta. Líkin fundust
innan landamæra Tanzaníu og
segja Tanzaníumenn að þau hafi
verið flutt þangað til að reyna að
koma sökinni á þá.
CaUaghan býður til nýs
fundar um Rhódesíu
London. 23. nóvember. Reuter. AP.
CALLAGHAN forsætisráðherra Bretlands ákvað í dag að gera enn
eina tilraun til að koma öllum aðilum Rhódesíudeilunnar að einu
samningaborði. Callaghan ákvað að senda formann þingflokks
Verkamannaflokksins, Cledwyn Ilughes fyrrum ráðherra, til
suðurhluta Afríku til að ná fundum allra aðila dcilunnar og boða síðan
til toppfundar í líkingu við Camp David fund leiðtoga ísraels,
Egyptalands og Bandarikjanna, verði ferð Ilughes árangursrík.
Hughes, sem er einn virtasti
þingmaðurinn í brezku neðri
málstofunni, heldur til Afríku
þegar í næstu viku. Callaghan
sagði í dag í þinginu, er hann
tilkynnti ákvörðun sína, að þessi
leið hefði verið valin í samráði við
Carter Bandaríkjaforseta til að
láta enn á það reyna hvort einhver
leið væri til þess að ná friðsamlegu
samkomulagi í deilunni áður en
það yrði endanlega um seinan.
Sagðist Callaghan reiðubúinn til
að stjórna fundi deiluaðilanna, ef
það kynni að koma að gagni. Allir
stjórnmálaleiðtogar í Bretlandi
sem létu frá sér heyra um málið í
dag fögnuðu þessu nýja framtaki
forsætisráðherrans, þeirra á með-
al leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Margaret Thatcher.
Mótmælasamkomur
bannaðar á Spáni
Madrid. 23. nóvember. AP — Reuter i og útisamkomur þar til að aflokinni I hina nýju stjórnarskrá landsins.
Spánarstjórn ákvað í dag að þjóðaratkvæðagreiðslu þeirri sem Bann þetta bitnar líklega mest á
banna alla opinbera mótmælafundi I fram á að fara 6. desember n.k. um I öfgasinnuðum hópum hægri
manna, sem mjög hafa lagzt gegn
hinni nýju stjórnarskrá og hafa
skorað á herinn í landinu að ræna
völdum. Bannið bitnar einnig á
fyrirhuguðum mótmælaaðgerðum
vinstri manna. sem styðja sjálf-
stæðisbaráttu Baska og ofbeldis’ 0-
gerðir þeirra, en talið er að þær
hafi m.a. leitt til hinnar misheppn-
uðu tilraunar nokkurra her-
foringja til valdatöku í fyrri viku.
Bann sem þetta hefur ekki verið í
gildi frá því stuttu eftir dauða
Francos þjóðarleiðtoga fyrir þremur
árum, en í kjölfar hans kom alda
ofbeldis og mótmæla bæði á hægri
og vinstri væng stjórnmálanna á
Spáni. Bannið verður í gildi til 10.
des.
Ný ágreinings-
efni á Svalbarða
Ósló, 23. nóvember.
Frá íréttaritara Mbl.
Jan-Erik Lauré.
NÝ ágreiningsefni virðast í
uppsiglingu milli Noregs og
Sovétríkjanna vegna yfirráða
Norðmanna yfir Svalbarða.
Norska vinnustaðaeftirlitið
hefur nú krafizt þess að í einu
og öllu verði farið eftir norskri
vinnumálalöggjöf á Svalbarða
eins og annars staðar á norsku
yfirráðasvæði og þá jafnt á
athafnasva'ði Sovétmanna sem
annars staðar á eynni. Hefur
verið farið fram á það við
Sovétmenn að þeir láti af hendi
upplýsingar um starfsemi
þeirra á eynni.
Vinnustaðaeftirlitið hefur
áður óskað þess að framfylgt
verði norskum reglum um
vinnuvernd á Svalbarða en
hingað til hafa ekki verið höfð
afskipti af rússneskum starfs-
mönnum á eynni. Talið er að
erfitt geti reynst að koma fram
breytingum á þessu sviði, þar
sem Rússar hafa komið sér upp
eigin starfsháttum, er látnir
hafa verið afskiptalausir af
Norðmönnum hingað til.