Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 8

Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978 100 þúsund kr. sekt við að afmá eða hylja merkingar skipa SamKÖniíuráðunoytið hofur Kofið út nýjar ro«lur um morkinjíar skipa. Skal náfn hvors skips og hoimahafnar þcss vera málað á afturstafn, ijósum stöfum á dökkan grunn oða dökkum stöfum á ljósan Krunn. Sé afturstafn þannix lasaður. að þossu vorði ekki við komið. skai . nafn þcss og hoimahafnar málað háðum mcjíin á hliðar þess við aftur- stafn. A sama hátt skai mála nafn skipsins á bójía þess. Fiskiskip skulu, auk þess að vera merkt sem að framan jíreinir, vera merkt umdaemis- stöfum og tölum á bóginn báðum megin. Þá skulu fiskiskip einnig vera merkt með skipaskrárnúmeri á báðar hliðar á brúarvæng, á brúarþak eða annan stað, sem vel sést úr lofti að mati Siglingamálastofnunar. Þá eru einnig settar sérstakar reglur um staerð stafanna: Hæð bókstafa í nafni og heimilisfangi skal samkvæmt því vera minnst þessi: Á skipum 30 brl. og stærri: 15 cm Á skipum undir 30 brl: 12 cm Hæð umdæmisbókstafa og talna og skipaskrárnúmers skal vera minnst: # Á fiskiskipum 30 brl. og stærri: 45 cm Á fiskiskipum undir 30 brl. 25 cm Á opnum vélbátum: 20 cm Haeð einkennisbókstafa: 15 cm Á hvert skip sem þjóðernis- skírteini hlýtur, skal marka einkennisstafi þess á lúgubita eða karm. Skip sem eru undir 30 brl. þarf ekki að merkja á eða við afturstafn. Þá er í hinum nýju reglum eins og áður ákvæði um það að hvert skipaskráningarumdæmi hafi sína umdæmisbókstafi, og skulu skráningarskyld fiskiskip og bátar bera umdæmisbókstafi og tölur þess umdæmis sem þau eru skráð í. Umdæmisbókstafirnir eru þessir: AK: Akranes ÁR: Árnessýsla BA: Barðastrandarsýsla EA: Eyjafjarðarsýsla og Akureyri. GK: Gullbringusýsla Settar hafa verið nýjar rcglur um merkingar skipa. Þar er meðal annars að finna ákvæði um að fiskiskip skuli merkt með skipaskrárnúmori á báðar hliðar. á brúarvæng, þak eða annan þann stað er vel sést úr lofti. Stafirnir skulu vera dökkir á ljósum fleti eða öfugt. HF: Kjósarsýsla og Hafnar- fjörður HU: Húnavatnssýslur ÍS: ísafjarðarsýslur og Isafjörð- ur KE: Keflavík KÓ: Kópavogur MB: Mýra- og Borgarfjarðar- sýsla NK: Neskaupstaður NS: Norður-Mulasýsla og Seyðisfjörður ÓF: Ólafsfjörður RE: Reykjavík SF: Austur-Skaftafellssýsla SH: Snæfellsness- og Hnappa- dalssýsla SI: Siglufjörður SK: Skagafjarðarsýsla og Sauð- árkrókur ST: Strandasýsla SU: Suður-Múlasýsla ÞH: Þingeyjarsýslur VE: Vestmannaeyjar VS: Vestur-Skaftafellssýsla Skip og bátar, sem heima eiga í Kjósarsýslu eða Hafnarfirði mega halda umdæmisbókstöfum (GK) og tölum óbreyttum, en við frumskráningu skips eða um- skráningu vegna eigendaskipta, skal það hljóta umdæmisbók- stafina HF. í nýju reglunum má ennfrem- ur finna sérstaka grein um hvernig merkja skuli björgunar- báta og bjarghringi, og fíeira í þeim dúr. Þá er sérstakt ákvæði sem kveður á um að ekki megi afmá einkenni á skipum, afbaka þau, gera óskiljanleg, hylja þau eða dylja. Skipstjóri verður að axla þær byrðar að halda vel við öllum merkjum, er skipi ber að hafa og sett hafa verið á það. Brot við þessum reglum nema allt að hundrað þúsund króna sektum. Siglingamálastofnunin: Komið verði í veg fy rir grútar- mengun í loðnulöndunarhöfnum Siglingamáiastofmin ríkisins hofur gert allítarlegar tillögur tii úrbóta vegna grútarmeng- unar sem orðið hefur vart í flestum loðnulöndunarhöfnum landsins. Mengun af þessu tagi var í hámarki á norðanverðum Austfjörðum síðari hluta septcmbormánaðar si'ðastlið- ins. Að ósk forráðamanna sveitar- félaga á umræddu svæði fór Stefán Bjarnason mengunarsér- fræðingur Siglingamálastofn- unarinnar austur í byrjun októ- ber s.l. og kannaði umfang og eðli grútarmengunarinnar og hugsanlegar leiðir til úrbóta. Heilbrigðiseftirlit ríkisins ósk- aði eftir því að fá að taka þátt í þessari athugun og fóru því fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins og líffræðingur frá Líffræðistofnun Háskóla ís- lands með Stefáni í þessa ferð. Skýrsla um athugun þessa ásamt tillögum stofnunarinnar til úrbóta liggur nú fyrir. Skýrslan hefur verið send öllum viðkomandi aðilum á þeim stöðum sem athugunin fór fram. I megindráttum má telja ástæðurnar fyrir þessari meng- un, sem þarna varð, vera fjórar: í fyrsta lagi frá skipum við löndun loðnunnar, í öðru lagi frá löndunarbúnaði loðnuverk- smiðjanna, í þriðja lagi vegna hreinsunar á lestum skipanna eftir löndun og í fjórða lagi í frárennsli frá verksmiðjunum sjálfum. Mengunardeild Siglingamála- stofnunarinnar telur erfitt að fullyrða um mikilvægi hvers þáttar um sig í grútarmengun- inni, en telur þó fullljóst, að áhrif hvers þáttar um sig ráðist mjög af ástandi loðnunnar við löndun og vinnslu. Þannig sé ljóst, að loðnufarmur sem hefur Unnið að loðnulöndun. Grútarmengun í loðnulöndunarhöfnum ræðst mjög af ástandi loðnunnar við löndun og vinnslu. velkst og slegist um í lestum í langan tíma þegar löndun fer fram, sé líklegri til þess að valda grútarmengun í höfnum í gegn- um alla þá þætti er að framan greindi, heldur en farmur sem er stöðugur í lest. Á grundvelli þessara niður- staðna hefur Siglingamálastofn- un ríkisins gert eftirfarandi tillögpr til úrbóta í þessu sambandi: 1. Tryggt verði að lensibúnað- ur í lestum loðnuveiðiskipa sé þannig að auðvelt sé að ná sjó úr öllum farmi skipsins. 2. Gerðar verði breytingar á dælubúnaði skipanna þannig að mögulegt sé að losa þvottavatn úr lestum beint til móttöku í landi. 3. Komið verði upp búnaði, setgeymi, til þess að taka við skiljuvatni við löndun og þvotta- vatni úr lestum skipanna, þar sem loðnulöndun fer fram. 4. Skilju- og löndunarbúnaður verði þannig útbúinn að frá honum renni enginn vökvi til sjávar. 5. Verði búnaður skv. tillögum 2—4 ekki kominn upp við upphaf næstu sumarloðnu- vertíðar, þá er það álit Siglinga- málastofnunar að eina raun- hæfa lausnin til þess að minnka mengun vegna loðnulöndunar á sumarvertíð frá því sem nú er, sé sú að hafnaryfirvöld á öllum loðnulöndunarhöfnum banni einhliða og í sameiningu löndun með sjódælingu úr skipum en heimili þess í stað eingöngu annaðhvort löndun með þurr- dælingu eða löndun með krabba og framfylgi auk þess ákvæðum í hafnarreglugerðum um bann við lensun á hafnarsvæðum. MIKEBROGAN „Víkingar á vígaslóð” 2. bindi um Hörð Harðjaxl Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út annað bindið um Hörð Harðjaxl, sem á enskunni nefnist Action Man og mörg börn kannast við sem leikfang hér á landi sem annarsstaðar. Höfundur bókarinnar er Mike Brogan en þýðandi Loftur Guðmundsson. Efni bókarinnar fjallar um leiðangur sem Hörður og félagar hans fara í stríðinu til Noregs til þess að sækja í hendur fjand- mannanna þekktan vísinda- mann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.