Morgunblaðið - 24.11.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
25
Vatn á myllu kölska
— ný skáldsaga Ólafs Hauks Símonarsonar
MAL OG menning hefur scnt frá
sér nýja skáldsögu eftir Ólaf
Ilauk Símonarson sem nefnist
Vatn á myllu kölska. í forlagsum-
sögn segir m.a.i
„Vatn á mvllu kölska er snjöll og
margslungin skáldsaga sem erfitt
er að lýsa í fáum orðum. Hún gæti
kallast fjölskyldusaga eða ættar-
króníka í gömlum stíl enda þótt
sögutíminn séu örfáir dagar: En
umfram allt er hún hvöss og
markviss ádeilusaga og afhjúpandi
samtíðarlýsing.
Vettvangur sögunnar er Reykja-
vík nútímans og hún á sér stað að
hluta í fjölmiðilsumhverfi. Aðal-
„Sögulegt
KOMIN er út þýdd ástarsaga
eftir Linden Griersson, og nefnist
hún „Sögulegt sumarfrí".
Sagan fjallar um Anitu Wilson
sem fer ásamt vinstúlkum sínum í
sumarfrí til Tasmaníu. Strax í
persóna er sjónvarpskvikmynda-
gerðarmaður sem er orðinn
uppgefinn á starfi sínu eða öllu
heldur á því að fá aldrei að vinna
að neinu sem máli skiptir. Hann
stefnir hraðfara til glötunar en
eru ekki ljósar orsakirnar sjálfum.
A þeim dögum í lífi hans sem
sagan segir frá verður hann margs
vísari, ekki síst um sekt og
úrkynjun þeirrar voldugu fjöl-
skyldu sem á bak við hann
stendur. . .“
Ólafur Haukur Símonarson
hefur áður vakið á sér athygli með
verkum af ýmsu tagi, sögum,
ljóðum, hljómplötum.
Vatn á myllu kölska er 297
sumarfrí”
upphafi ferðarinnar kynnist hún
ungum verkfræðingi með talsvert
sérstæðum hætti og örlögin hafa
því svo að þau hittast oftsinnis í
ferðinni, allt af tilviljun og
hvorugu til mikillar ánægju. Síðar
lenda þau saman í þyrlu inni í
„Maðurinn á
svölunum”
- skáldsaga um glæp
MÁL og menning hefur sent frá
sér bókina Maðurinn á svölun-
um" eftir Maj Sjöwall og Per
Wahlöö í þýðingu Þráins Bertels-
sonar. „Maðurinn á svölunum" er
þriðja bókin í sagnaflokknum
„Skáldsaga um glæp", tvær þær
fyrri eru „Morðið á ferjunni" og
„Maðurinn sem hvarf".
Maj Sjöwall og Per Wahlöö voru
bæði þekktir rithöfundar, einkum
hann, þegar þau hófu í sameiningu
að skrifa þessar bækur, meðal
annars í þeim tilgangi að ná til
þess stóra lesendahóps sem yfir-
leitt les ekki svokallaðar fagurbók-
menntir. „Árangur þessarar til-
raunar varð tíu bóka flokkur
óvenjulegra og einstaklega vel
gerðra lögreglusagna segir í
fréttatilkynningu frá útgefanda.
„Sögurnar hafa verið þýddar á
flestar heimstungur og hvarvetna
notið gífurlegra vinsælda". Kvik-
mynd eftir einni þessara sagna,
„Maðurinn á þakinu,“ var sýnd
nýlega hér á landi.
Unnið að byggingu gróðurhúss
Heimtur í
meðallagi
Syðra-Langholti 21.11.
VEÐRIÐ hefur verið afleitt hér
undanfarið en færð hefur samt
ekki spillzt að neinu ráði. Sauðfé
er alls staðar komið í hús og eru
heimtur af fjalli taldar í meðal-
lagi.
Félagslíf er í venjulegum
skorðum nú í vetrarbyrjun og er
það jafnan mikið. Menn sem
staðið hafa í byggingarfram-
kvæmdum keppast nú við að
ljúka þeim áður en veturinn
gengur endanlega í garð.
Sig. Sigm.
ÓlftFUR KftUKUÓ
blaðsíður, sett í Prentsmiðjunni
Odda og prentuð í Prentsmiðjunni
Hólum.
óbyggðum og það sem meira er, í
þyrluslysi, og forlögin taka þannig
í taumana að eftirminnilegt er.
Snjólaug Bragadóttir þýddi
bókina, en útgefandi er Bókaútgáf-
an Örn og Örlygur.
Fótmál dauðans
— ný njósnasaga Francis Cliffords
ELLEFTA bók Francis Cliffords
á íslenzku er komin út hjá
Ilörpuútgáfunni á Akranesi. Það
er njósnasaga sem nefnist Fótmál
dauðans.
í umsögn frá útgáfunni segir
m.a.i
Bandaques er lítill friðsæll
ferðamannabær á Costa Brava á
Spáni. — Skyndilega var kyrrðin
rofin. Lares-stíflugarðurinn brast.
Tíu milljón kúbikfet af vatni
flæddu yfir dalinn ... Daginn eftir
fundu þeir líkið af þjóðverjanum
... Stirðnaður óttasvipur var á
ruddalegu andlitinu ... Rannsókn
leiddi hins vegar í ljós að hann
hafði verið skotinn til bana áður
en stíflan brast.
En hver hafði drepið nazistann
og hvers vegna? Hvaða glæpi
geymdi fortíð hans? Hvað gerðist í
Gondra, þegar nazistarnir voru
þátttakendur í borgarastyrjöldinni.
á Spáni? Var dauðinn í fótmáli
hans hvert sem hann fór? Enn
einu sinni tekst meistara Clifford
að spinna þræði, sem mynda hinn
fullkomna vef.
FRANCIS
CLIFFORD
EAVH l
m mWmirnmmm
Francis Clifford hefur hlotið
fjölda verðlauna fyrir bækur
sínar, meðal annars 1. verðlaun
Crime Writer’s Associatron.
Skúli Jensson þýddi bókina, sem
er 182 bls. Hún er prentuð í
Prentverki Akraness h.f. er 'd-
in inn í Arnar-Bergi h.f.
Bindindisdagur-
inn á Akranesi
í TILEFNI „Bindindisdagsins"
gengst kirkjan og stúkan Akur-
blóm á Akranesi fyrir kvöldvöku í
Akraneskirkju á sunnudagskvöld-
ið næstkomandi kl. 8.30. Kirkju-
kórinn syngur og einnig verður
almennur söngur. Kvöldvökunni
stjórnar séra Björn Jónsson.
Ávörp flytja Guðbrandur
Kjartansson læknir, séra Jón
Einarsson í Saurbæ, Ríkharður
Jónsson málarameistari og Ari
Gíslason æðsti templar í St.
Akurblóms nr. 3.
9 tegundir
fyrirliggjandi
Takmarkaöar
birgöir.
Lítið vlð í verslun okkar
Gjataúrvalið hefur aldrei verið fallegra
Hafnarstræti 19.
Vetrarsport
Opið föstudag 6—10 ■ M O
laugardag 10—6 sunnudag 1—7. jj
í húsi Alþýöusambandsins
á horni Fellsmúla og Grensásveg
Seljum og tökum í umboössölu
notaöan skíöafatnaö
Skíðadeild