Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
Valsmenn leika
fyrri leik sinn
hér heima 9.
Uppistaða landsliösins erlendis er
leikiö veröur viö Dani í Desember?
NÚ HEFUR verið gengið írá leikdögum Vals í Evrðpukeppni
meistaraiiða í handknattleik. Leika þeir íyrri leik sinn hér heima
laugardaginn 9. des. og þann síðari í Bucarest 14. des.
Þetta gerir það að verkum að hugsanlegt er að leikmenn Vals nái
ekki heim fyrir landsleikina við Dani 17. og 18. des. Yrði það mjög
bagalegt þar sem Víkingar leika síðari leik sinn við Ystad 17. des.
og verða því ekki með landsliðinu.
Uppistaða landsliðsins er úr þessum tveimur féiögum, 6 frá hvoru
félagi.
Man. City
hálfa leið
Leik AC Mílanó og Manchester City í UEFA-keppninni, sem frestað
var í fyrrakvöld, lauk með jafntefli í gærkveldi. Bæði lið skoruðu
tvívegis. Staða enSka liðsins er því mjög sterk, þar sem liðið á
heimaleik sinn eftir.
Mílan sótti af feiknakrafti framan af leiknum og þrívegis skoruðu
leikmenn liðsins það sem reyndust vera rangstöðumörk. Rétt fyrir hlé
fengu ítalirnir kalda vatnsgusu í andlitið, þegar Brian Kidd skallaði í
netið. Fljótlega í síðari hálfleik versnaði enn staða Mílanó, þegar Paul
Power skoraði annað mark MC. Lokakaflann nýttu ítalirnir þó vel,
Alberto Bigon skoraði tvívegis og Mílan fékk góð færi á að knýja fram
sigur á lokamínútunum.
• Basti Rasmussen. besti leikmaður Ystad. Hann var kjörinn handknattleiksmaður Svíþjóðar fyrir
síðasta keppnistímabil. Víkingar munu leggja allt kapp á að stöðva hann í leiknum á laugardag. Ef Basti
skorar minna en átta mörk í leik tala blöðin um að eitthvað sé að hjá honum.
Víkingar verða
að vinna stórt
Máli Viggó
vísað frá
KÆRUMÁLI Viggó Sigurðssonar hefur verið vísað frá dómstól
HKRR á þeirri forsendu, að kæran hafi borist of seint. ESns og
kunnugt er kærði Hannes Þ. Sigurðsson dómari Viggó og taldi
hann hafa hlaupið sig um koll eftir úrsiitaleik Víkings og Vals í
Reykjavíkurmótinu í handknattleik.
Þar sem málinu hefur verið vísað frá fellur það niður og Viggó
hlýtur ekki leikbann. þr.
Bikarkeppnin
í sundi idag
BIKARKEPPNI Sundsambands íslands heLst kl. 20.00 í kvöld í
Sundhöll Reykjavíkur og verður fram haldiö laugardag og
sunnudag. Keppnin hefst kl. 17.00 á laugardag og kl. 15.00 á
sunnudag. Keppt verður í alls 28 sundgreinum á mótinu og má
búast við hörkukeppni milli þeirra fimm félaga sem eru í 1.
deildinni, en þau eru eftietalini Ægir, Ármann, H.S.K., Breiöablik
og Sundfélag Hafnarfjarðar.
Allar líkur eru á að Sundfélagið Ægir og Héraðssambandið
Skarphéðinn komi til með að berjast um efsta sætið. H.S.K. hefur
mjög góðu sundfólki á að skipa og er þess skemmst að minnast hversu
sigursælt sundfólk þeirra var á landsmótinu á Selfossi síðastliðið
sumar. Neðsta félagið í 1. deiid fellur niður í 2. deild.
Þá mun á mánudagskvöld hefjast haustmót í sundknattleik, og fer
það einnig fram í Sundhöllinni. Fyrsti leikur mótsins er á milli KR og
Ægis, leikin verður einföld umferð. Næsti leikur er á milli Ármanns
og Ægis og síðan leika KR—Ármann. — þr.
— VIÐ munum leggja allt kapp á
að sigra með fimm til sex marka
mun í leiknum því að Svíarnir
eru sterkir á heimavelli. sagði
hinn pólski þjálfari Vikings á
blaðamannafundi sem félagið
boðaði til í gær. — Ég hef sjálfur
tvisvar leikið á móti Ystad með
mínu gamla félagi. Slask. og þeir
leika skemmtilegan handknatt-
leik. Iiandknattleik sem gleður
augu áhorfenda. Þeir eru með
Stórleikir
í 2. deild
Tveir stórleikir fara fram í 2.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik í kvold, annar í Ásgarði, hinn
á Akureyri.
Leikurinn í Ásgarði hefst klukk-
an 20.00 og eigast þá við lið
Stjörnunnar og KR. KR-ingar eru
meðal efstu liðanna í deildinni, en
Stjarnan hefur tapað tveimur
síðustu leikjum sínum og verður
því að vinna leik þennan ef liðið
ætlar að blanda sér af alvöru í
keppnina á toppi deildarinnar.
Ármenningar ferðast til Akur-
eyrar og etja kappi við KA. Hefst
leikur þeirra klukkan, 20.30. Eins
og flestir leikir 2. deildar, er hér
um geysimikilvægan leik að ræða,
þar sem bæði liðin eiga von um
eitt af tveimur efstu sætunum.
Grindavík
vann
Snæfell
ÞAÐ VAR á misskilningi byggt,
það sem Mbl. greindi frá fyrir
skömmu, að öllum heimaleikjum
Snæfells fram til jóla hefði verið
frestað. Liðið lék um helgina gegn
Grindavík í 1. deild og fóru leikar
þannig, að Grindavík sigraði
102—70 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 49—38 fyrir Suður-
nesjamennina. Þetta er annar
leikurinn í röð, sem Grindavík
skorar meira en 100 stig.
Hjá Snæfelli bar mest á Einari
Sigfússyni, en Bandaríkjamaður-
inn Mark Holmes átti frábæran
leik hjá Grindavík, skoraði 50 stig.
Var hittni hans með eindæmum.
þrjá frábæra leikmenn og við
munum leggja kapp á að stöðva
þá. — Þeirra hættulegasti leik-
maður er Basti Rassmussen.
leikmaður á heimsmælikvarða.
enda kjörinn handknattleiks-
maður ársins í Svíþjóð 1978.
— Ég mun láta Víkingsliðið
leika eins hratt og hægt er, í
sókninni reyna mikið af hraðaupp-
hlaupum, og í vörninni mun ég
gefa fyrirskipun um að leika mjög
Tommy Docherty og vinkona
hans Mary Brown yfirgefa Þing-
húsið í Lundúnum, eftir að
kappinn hafði viðurkennt að hafa
ausið lygum í heilan kviðdóm.
Docherty
áfram!
YFIRSTJÓRN enska 1. deildar-
liðsins Derby County hefur nú
fyrirgefið framkvæmdastjóra sín-
um, Tommy Docherty, allar yfir-
sjónirnar í sambandi við málaferli
hans við Willy Morgan. Stjórnin
hefur beðið Docherty að vera svo
vænan að hefja störf tafárlaust á
nýjan leik og hefur hann orðið við
þeirri beiðni. Docherty var settur
af í vikutíma fyrir viku, meðan
stjórn Derby kannáði hneykslis-
málið sem upp ktím þegar Doch-
erty viðurkenndi að hafa logið
heilan kviðdóm fullan. Derby á
leik gegn QPR á laugardaginn og
mun ekki veita af að hafa góðan
framkvæmdastjóra.
fast, virkilega taka vel á þeim.
Þetta sagði Bodan, þjálfari
Víkings. Hann ætti að vita um
hvað hann er að tala, hann hefur
undirbúið pólska liðið Slask alls
sex sinnum undir Evrópukeppni.
Forsala að leiknum í Laugardals-
höllinni er í dag frá kl. 6—7,30 og
er fólki bent á að tryggja sér miða
til að forðast þrengsli á laugardag.
Leikurinn hefst kl. 15.30 á laugar-
daginn. þr.
Stjörnu-
hlaup FH
Fyrsta stjörnuhlaup FII á
vetrinum fer fram á laugardag-
inn og hefst það klukkan 11.30.
Illaupið hefst hjá Lækjarskóla og
er hlaupið tæplega 6 km í
karlaflokki. en tæpa 3 km f
kvennaflokki.
Fyrirtækja-
keppnl í
badminton
BADMINTONDEILD Víkings
mun halda laugardaginn 2. des.
n.k. keppni í hadminton með
nýstárlegu fyrirkomulagi. Keppt
verður í tvfliðaleik. og verða
keppendur að vera fastir starfs-
menn fyrirta-kjanna sem þeir
keppa fyrir, karlar og konur í
sama flokki.
Ekki er leyft að nema einn
meistara- eða A-flokksmaður sé í
hverju liði, en það gerir keppnina
mun jafnari og skemmtilegri.
Fyrirtækið sem sigrar fær bikar
til eignar, en keppendur verð-
launapeninga, gull, silfur og brons
til þeirra sem komast í undanúr-
slit. Keppnin fer fram í íþrótta-
húsi Réttarholtsskóla og hefst kl.
13.00 laugardaginn 2. des. n.k. eins
og fyrr segir. Þátttöku skal
tilkynna til Þorsteins V. Þórðar-
sonar í síma 32000 eða Sigurðar
Jóhannessonar á kvöldin í síma
34161 í síðasta lagi 29. nóv. n.k.
Þátttökugjald er kr. 10.000 á lið.