Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
31
(2v), Birgir Jóhannesson 4, Sigur-
bergur Sigsteinsson 3, Egill
Jóhannesson 1, Björn Eiríksson 2,
Theodór Guðfinnsson 2, Viðar
Birgisson 1.
Brottrekstur af velli: Steindór
Gunnarsson, Gísli Arnar, Þor-
björn Jensson, allir úr Val, í 2.
mín.
Pétur Jóhannsson og Birgir
Jóhannesson, Fram, báðir í 2 mín.
MISHEPPNUÐ VÍTAKÖSTi
Þorbjörn Guðmundsson skaut
yfir á 3. mín. Guðjón Erlendsson
varði hjá Jóni Pétri á 13. mín.
Ólafur Benediktsson varði hjá
Pétri Jóhannessyni á 16. mín. og
hjá Atla Hilmarssyni á 42. mín.
Dómarar voru Björn Kristjárisson
og Kristján Ingibergsson og
dæmdu þeir leikinn ágætlega. Þr.
Valsstúlk-
urnar skoruðu
eitt mark í
25 mínútur
EINN leikur fór fram í 1. deild
kvenna í gærkvöldi. Fram sigraði
Val 13—8. Valsstúlkurnar höfðu
eitt mark yfir í hálfleik 7—6, en í
síðari hálfleiknum réðu
Fram-stúlkurnar lofum og lögum
á vellinum og skoruðu sjö mörk á
móti einu hjá Val. Var hreint
ótrúlegt hve botninn gat dottið úr
leik Vals. Fram-stúlkurnar gengu
á lagið og sigur þeirra var
sanngjarn.
MÖRK FRAM: Oddný Sigsteins-
dóttir 3, Guðríður Guðjónsdóttir 2,
Erla Sverrisdóttir 2, Jenný Grétu-
dóttir 2, Jóhanna Halldórsdóttir 2,
Sigrún Blomsterberg 1, og Guðrún
Sverrisdóttir 1.
MÖRK VALS: Harpa Guðmunds-
dóttir 4, Erna Lúðvíksdóttir 3,
Björg Guðmundsdóttir 1. þr.
VALUR sigraði Fram með fimm
marka mun í 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöldi,
25 — 20. Sigur Vals var aldrei í
hadtu þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu Framara. Valsmenn gátu
alltaf bætt við sig þegar á þurfti
og siglt fram úr. Minnsti munur á
liðunum var eitt mark, 16—15, er
um tuttugu mínútur voru eftir af
leiknum en Fram náði ekki að
fylgja því eftir og stórsigur Vals
var staðreynd.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur og sýndu Valsmenn
oft snilldartakta. Sérstaklega
vakti athygli góð samvinna Bjarna
Guðmundssonar og Steindórs
Gunnarssonar. Steindór skoraði
þriðja og fjórða mark Vals á
glæsilegan hátt, kastaði hann sér
inn í teiginn og greip knöttinn í
loftinu eftir sendingu Bjarna úr
horninu og skoraði glæsilega.
Valsmenn náðu að skora fjögur
fyrstu mörkin í leiknum en
Framarar gáfust ekki upp heldur
sóttu sífellt á þrátt fyrir mótlætið
og tókst að minnka muninn niður í
tvö mörk, 8—6, en Valsmenn höfðu
samt ávallt yfirhöndina. í hálfleik
var staðan 12—9 og í síðari
hálfleiknum var oftast tveggja til
þriggja marka munur á liðunum
fyrir utan eitt skipti. Þegar staðan
var 20—17 var tveimur Valsmönn-
um vikið af velli samtímis, en allt
kom fyrir ekki, Frömurum tókst
ekki að minnka muninn þrátt fyrir
að þeir væru sex á móti fjórum,
það voru Valsmenn sem skoruðu.
Lið Vals er mjög gott um þessar
mundir og mikil breidd er í liðinu,
sem sést best á því að fjórir menn
• Steindór Gunnarsson sýndi sniildartakta í línuspili í ieik Vals og Fram í gærkvöldi. Hér hefur hann
sloppið fram hjá Pétri Jóhannssyni, Fram, og skorar. Þorbjörn Jensson til hægri fylgist spenntur með
framvindu mála. Ljósmynd Emilía.
skora fimm mörk í leiknum. Besti
maður Vals í leiknum var Bjarni
Guðmundsson, eldfljótur leik-
maður og baráttuglaður, þá áttu
þeir Steindór Gunnarsson og Jón
Pétur Jónsson ágætan leik. Vörn
Vals og markvarsla var líka sterk.
Hjá Fram var Atli Hilmarsson
bestur og þeir Birgir Jóhannesson
og Sigurbergur Sigsteinsson sem
barðist eins og og ljón allan
tímann. Gústaf Björnsson lék ekki
með Fram að þessu sinni og var
þar skarð fyrir skildi. Er hann við
nám á Laugarvatni og vegna
ófærðar komst hann ekki til
Reykjavíkur.
í STUTTU MÁLL íslandsmótið 1.
deild. Valur — Fram 25—20
(12—9)
MÓRK VALSi Bjarni Guðmunds-
son 5, Steindór Gunnarsson 5, Jón
Pétur Jónsson 6, Þorbjörn Guð-
mundsson 5, Stefán Gunnarsson 3,
Jón Karlsson 1, Þorbjörn Jensson
1. __
MÖRK FRAMi Atli Hilmarsson 7
Öruggur sigur Vals
Axel með
Tvær breytingar
á landsliðinu
TVyER breytingar hafa verið
gerðar á landsliðshópunum sem
heldur utan á sunnudag til
þátttöku í alþjóðahandknattleiks-
móti í Frakklandi. Axel Axclsson
hefur skipt um skoðun og hefur
nú ákveðið að gefa kost á sér til
undirbúnings fyrir forkeppni
Ólympíuleikanna á Spáni og mun
leika með liðinu í Frakklandi og
taka þátt í undirbúningnum. Þá
mun Símon Unndórsson ekki geta
komið því við að fara út og kemur
Sigurður Gunnarsson, Víkingi í
hans stað.
Það eru gleðifréttir að Axel
ætli að gefa kost á sér því að
ísland verður að tefla fram sínu
sterkasta og reyndasta liði í
keppninni á Spáni. Eins og fram
hefur komið í Mbl. verður Ölafur
II. Jónsson með í keppninni.
- ÞR.
VALURi Ólafur Benediktsson 3, Brynjólfur Kvaran 2, Þorbjörn
Jensson 2, Þorbjörn Guðmundsson 3, Jón Karlsson 1, Jón P.
Jónsson 3. Stefán Gunnarsson 2, Steindór Gunnarsson 3, Gísli
Gunnarsson 1, Karl Jónsson 1. Bjarni Guðmundsson 4.
FRAMi Guðjón Erlendsson 2. Sigurður Þórarinsson 2, Birgir
Jóhannesson 3, Björn Eiríksson 1, Theodór Guðfinnsson 3,
Sigurbergur Sigsteinsson 3. Pétur Jóhannsson 2, Atli
Hilmarsson 4, Erlendur Davíðsson 2. Kristján Unndórsson 1,
Viðar Birgisson 1, Egill Jóhannesson 1.
FIL Sverrir Kristinsson 1, Magnús Ólafsson 2, Geir
Hallsteinsson 3. Guðmundur Árni Stefánsson 3, Gils Stefánsson
2. Sæmundur Stefánsson 3. Guðmundur Magnússon 2, Valgarð
Valgarðsson 3. Hafsteinn Pétursson 1, Kristján Arason 1, Viðar
Símonarson 1.
VÍKINGlJRi Kristján Sigmundsson 1, Eggert Guðmundsson 1,
Páll Björgvinsson 3, Árni Indriðason 2, Sigurður Gunnarsson 2,
Ólafur Einarsson 2, Erlendur Ilermannsson 3, Ólafur Jónsson 2,
Skarphéðinn Óskarsson 2. Steinar Birgisson 2.
Viö viljum vekja athygli á
aö tvær verzlanir opna á
morgun sem hafa einkaumboö
á öllum vörum frá okkur.
Þær eru:
Ram Húsavík
Hornabær Höfn Hornafirði
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR