Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 17

Morgunblaðið - 24.11.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978 49 félk í fréttum + SIGURVEGARINN. Hér má sjá sigurvegarann úr stórpólitískum aukakosningum austur í Indlandi, Indiru Gandhi. Kosningaúrslitin voru talin mikill persónulegur sigur fyrir Indiru. Hér er þessi indverski kvenskörungur að fagna sigri. Blómum hafði nánast rignt yfir hana er úrslitin voru kunn. + MEÐ KÚLU í höfðinu. - Þessi ameríski maraþonhlaup- ari, Dennis Rainear varð fyrir því um daginn í maraþon- hlaupi, í dal einum við borgina Midland í Michiganfylki, að hyssukúla lenti í höfði hans. Svo hraustur er þessi maður, að hann hélt áfram að hlaupa og lauk keppninni, 26 mflna spretti. Ilann hafði orðið fyrir byssukúlunni er hann átti eftir 16 mílur í markið.Á eftir sagði hlauparinn mikli að byssukúlan hefði dregið úr þrótti sínum. Hann hefði því ekki getað hlaupið vegalengd- ina á innan við 3 klst. — Það væri sárgrætilegast. En hver skaut kúlunni er ekki upplýst mál. En iæknar fjariægðu hana úr höfði hlauparans við uppskurð. + HARÐJAXLAR — einkum þó sá til hægri, en það er enginn annar en hinn gamli þýzki hnefaleikaheimsmeistari Max Schemling. — Hinn er kvikmyndaleikarinn ameríski Cary Grant. — Þeir gera hér að gamni sínu á skemmtun sem haldin var í gleðiborginni Las Vegas fyrir nokkru til heiðurs hinum gamla ameríska heimsmeistara í boxi, Joe Louis. (Hann barði Schmeling eitt sinn niður í keppni eftir að þeir höfðu verið aðeins 15—20 sek. í boxhringnum. — Gott ef hann ekki beinbraut Schemling). + „IIJÁ MAXIM“. — Þessi mynd er tekin í veitingahúsinu heimsfræga í París „Hjá Maxim“. Það er vcrið að gera æsispennandi mynd þar í borginni. Þetta er eitt atriði myndarinnar. Aðalsögupersónurnar f myndinni, sem heitir „B!oodline“ koma f veitingahúsið. Yfirþjónninn tekur á móti þeim og vísar þeim á frátekið borð þeirra. — í myndinni leika þau Audrey Hepburn, sem lítið hefur látið á sér kræla um árabil, og Ben Gazzara. Þau sjást hér ásamt yfirþjóninum hjá Maxim. Alúðarþakkir sendi ég ættingjum, venslafólki og vinum sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveðjum á 75 ára afmæli mínu 19. nóvember s.l. og gerðu mér daginn ánægjulegan. Guðfinna Árnadóttir. Snjóbíll til sölu í sérflokki Bombardier 12 manna árg. 1973. Mikið af varahlutum fylgja. Vérð kr. 3,2 millj. Talstöö getur fylgt. Upplýsingar hjá Baldri í síma 96-22777. f Afram\ meö smériö x piltar . Kyngimagnað hispursleysi og hviknakin frásögn Áfram með smérið,piltar segir Ólafur bóndi á Oddhóli og fyrrum í Álfs- nesi í öðru bindi æviminninga sinna sem Dagur Þorleifsson skráir. Þótt ótrúlegt sé, þá er annað bindi æviminninga Ólafs mun fróðlegra en hið fyrra sökum óvenjulegra þjóðháttalýsinga, og það sem er enn ótrúlegra; mörgum sinnum skemmtilegra — og þá er mikið sagt — því nú sleppir hann alveg fram af sér beislinu í kyngimögnuðu hispursleysi og hviknakinni frásögn af körlum og konum beggja vegna Atlantsála. Þú hlærð þig máttlausan við lesturinn og á stundum getur þú ekki lesið fyrir hláturrokum. Bókaútgáfan Örn og Örlygur Vesturgötu 42, sími 25722

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.