Morgunblaðið - 24.11.1978, Qupperneq 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978
Eru þeir í mat? — Nei, þcir
gerðu verkíall!
Það eru einmitt svona tilraun-
ir. sem kæía skal í fæðingunni!
Hvað ætlar strákurinn nú að
Kera?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Hvað er heppni? Er það heppni,
að vera gefin hendi með 21
hápunkt? Eða er það heppni að
lenda á of háu sagnstigi með svo
góð spil. Þessu er erfitt að svara
fyrr en spilið er búið.
Gjafari suður, norður-suður á
Norður
S. Á10542
H. K108
T. KD
L. 976
Austur
S. 9
H. D75
T. 109542
L. 8543
Suður
S. KDG76
H. Á42
T. Á6
L. ÁK2
hættu.
Vestur
S. 83
H. G963
T. G873
L. DG10
S agnirnar:
COSPER
Fiömokka-
kerfi leyft?
„Tvisvar var það tuggið í mann
i kvöldfréttunum 20. nóvember sl.
að Janus kadar harðstjóri i Ung-
verjalandi hefði sagt að það gæti
vel komið til mála að leyfa fjöl-
flokkakerfi í mommúnistaríkjun-
um eins og Evrópukommúnistarn-
ir predika.
Ég verð að biðja alla sem kallað-
ir hafa verið harðstjórar á spjöld-
um sögunnar fyrirgefningar, því
að enginn þeirra sýndi eins mikla
grimmd og sú sem viðgengst i
sósialríkjunum í dag. Þá er það
spurningin hvernig á að hafa
stjórnarandstöðuna í kommún-
istarikjunum? Atla stjórnvöld að
afsala sér ráðstöfunarréttinum yf-
ir hernum, leyniþjónustunni,
fangabúðunum og geðveikrahæl-
unum? Ef þau gera það ekki,
hverjir ýilja þá vera að standa
fyrir stjórnarandstöðunni? Verð-
ur þetta ekki alveg eins og þegar
mýsnar héldu fjöldafundinn og
einhver félagsfræðingur lagði til
að binda bjöllu á köttinn svo að
hann yrði hættulaus. Þetta þótti
binda bjöllu á köttinn svo að hann
yrði hættulaus. Þetta þótti snjall-
ræði hið mesta, en þá spurði ein
gömul mús hver ætlaði að setja
bjölluna á .köttinn. Þá vandaðist
málið og enginn köttur þarf að
burðast með músabjöllu.
Það má vel vera að Janus Kadar
sé einna skástur :f járntjalds-
kúgurum, en var ekki Ungverja-
landi lokað með gaddavir og þó
núna sé hér gefið út af Menn-
ingarsjóði fræðslurit fyrir alþýðu
landsins, þar sem segir á Rússar
hafi frelsað landið að beiðni
alþýðunnar 1956, þá stendur það
nú samt á þrykki i SÍA bókinni
það sem Hjalti sagði: „Hér er
ástandíð þannig að bændurnir
verða að afhenda vörur sínar á
því verði sem stjórnin skipar, inn-
skot Rússar keyptu alla fram-
leiðsluna, 1% þjóðarinnar var i
fangabúðum, enginn getur um
frjálst höfuð strokið og lífskjör
fólksins fara síversnandi."
Það hefur stundum verið gerð
bylting út af minna tilefni. Það er
liklegt að fyrirbærið Evrópu-
kommúnismi sé ættaður frá Þjóð-
viljanum eins og blaðið vill vera
láta, en hvernig samræmist kenn-
ingin fræðum Karls Marx, sem
veitir ekkert frelsi i neinni
mynd? Það stendur lika í hans
fræðum: „Þið eruð að komast til ,
réttlæti, sannleikur og sanngirni
meðan þið eruð að komast til
valda, en þá skuluð þið ýta þeim
til hliðar, því að þá þurfið þið
ekkert á þeim að halda.“
Húsmóðir.“
Suður Vestur Norður Austur
1 spaði — 3 spaðar —
4 xrönd — 5 tíglar —
5 líriind — 6 hjörtu —
6 spaðar aliir pass.
Suður langaði í alslemmuna en
hætti við þó norður sýndi bæði ás
og tvo kónga. Enda eins gott. Eftir
útspilið, sem var laufdrottning, sá
suður, að nógu erfitt yrði að ná
saman tólf slögum.
Sagnhafi tók útspilið, tvo slagi á
tromp, tígulslagina tvo, laufásinn
og spilaði þriðja laufinu. Vestur
var neyddur til að taka slaginn og
suður var rogginn yfir tækni sinni.
Vestur mátti ekki spila láglit og
sagnhafi taldi spilið vera unnið
væri hann svo heppinn, að drottn-
ing og gosi í hjartanu væru skipt
og vestur ætti ntuna. Þá léti hann
áttuna úr borðinu þegar vestur
spilaði lágu hjarta og austur yrði
að láta drottninguna en þá yrði
auðvelt að svína fyrir hjartagos-
ann.
Nei, það var ekki nóg að vera svo
heppinn að rétta legan var fyrir
hendi. Vestur spilaði hjartagosa
og eftir það var sama hvað
sagnhafi gerði. Hann hlaut að tapa
slag á hjarta, einn niður.
Og þegar upp var staðið var
suður óheppinn að hafa svo
sterkan andstæðing í sæti vesturs.
Og sennilega hefur hann næst
vandað betur val andstæðinga sin
nna.
„ Allt í lagi
bækurnar”
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út tvær bækur í
nýjum bókaflokki sem nefnist
„Allt í lagi bækurnar", en þær
eru sérsaklega ætlaðar ungum
börnum með það í huga að gefa
á uppörvandi hátt einfaldar
skýringar á ýmsu, sem þau
kunna að óttast og velta fyrir
sér á því skeiði bernskunnar
þegar hugurinn er að mótast.
Tilgangurinn er aö sýna fram á
að það sé ekki allt sem sýnist —
það sé í rauninni allt í lagi.
Tvær fyrstu bækurnar nefn-
ast Ævintýri í myrkrinu og Nýi
kennarinn. Ævintýri í myrkrinu
fjallar um ótta við myrkur. Litla
músin Angi lærir að vinna bug á
hræðslu við ímyndaðar verur
náttmyrkursins. Nýi kennarinn
fjallar um söknuð. Broddgaltar-
stelpan Ögn tekur það mjög
nærri sér, þegar kennarinn
hennar lætur af störfum, en hún
lærir að láta sér líka við nýja
kennarann.
„Allt í lagi“-bækurnar eru
samdar af Jane Carruth en
þýddar af Andrési Indriðasyni.
„Sjórán
í norð-
urhöfum”
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út þriðja bindið um
Magnús Heinason eftir Eilif
Mortanson í þýðingu Lofts
Guðmundssonar.
í þessari bók segir frá því að
Magnús Heinason siglir skipi
sínu, Stórkjóanum, um
Norður-Atlantshaf. Hann leitar
uppi og ræðst á alla sjó-
ræningja. Eftir að Magnús
Heinason var þræll á galeiðu
Don Bredos Alvarez, úlfi
Biskayflóans, hatar hann alla
sjóræningja og hefur svarið
þeim skefjalausa hefnd. Stór
hluti sögunnar er látinn gerast
hér á landi.
i
„Sæfinnur
sjóræningi”
Ut eru komnar hjá Erni og
Örlygi fjórar smábarnabækur
um SÆFINN SJÓRÆNINGJA
og félaga hans. Þýðandi er
Loftur Guðmundsson. Þetta eru
teiknimyndabækur í litlu broti
og eru byggðar á vinsælum
sjónvarpsþáttum. Sæfinnur og
félagar hans lenda í margskonar
ævintýrum og oft syrtir í álinn,
þótt ætíð fari vel að lokum.