Morgunblaðið - 24.11.1978, Síða 21

Morgunblaðið - 24.11.1978, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1978 53 TT TT VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 10100KL. 10— 11 FRA MÁNUDEGI 0 Þulir útvarps „Eflaust má ýmislegt finna að málfari þula útvarpsins og annarra sem koma þar fram. Sagt var um Árna Oddsson að hann hefði verið gallalaus. En er eng- inn af þulunum gallalaus? þar á ég við hvort enginn þeirra tali lýtalaust mál, hafi gailalausan framburð, sem hægt sé að taka til fyrirmyndar. Að mínum dómi eða réttara sagt áliti hefur Ragnheiður Ásta Pétursdóttir mjög aðlaðandi og skýran framburð. Hún er til fyrir- myndar á þessu sviði, og hefur verið lengi. Með því að hlusta á Ragnheiði Astu ættu þeir sem við útvarpið vinna að geta lært. Þó er ástæða til að Ríkisútvarpið athugi hvort ekki sé þörf á frekari kennslu málsnjallra manna í út- varp. Mætti jafnvel hafa smá námskeið fyrir þá sem hefðu að- laðandi málróm og málfar. Það má ekki taka orð mín svo að ég sé að setja út á þulina í heild, því fer fjarri. T.d. hefur Pétur Pétursson fegurstan málróm, sem þulur af karlkyninu hefur haft í útvarpinu til þessa. Enda búinn að gleðja ótalinn fjölda hlustenda með rödd sinni. Fjölga þarf slíkum snilling- um i útvarpi eftir megni. Þau feðgin bera því af þarna ásamt Jóni Múla Árnasyni. Er Jón mjög áheyrilegur og fimur orðasnill- ingur og dylst það engum sem á hann hlustar, en eins og er kann ég bezt við Ragnheiði Astu. Virð- ingarfyilst, Þorsteinn Jónsson. Þessir hringdu . . . 0 Góður þáttur í morgunútvarpi Anna Bergþórsdóttir: — Ég vildi fá að leggja nokk- , ur orð í belg varðandi þáttinn Morgunpóstinn. Ég hlusta alltaf á þennan þátt, þvi að meðr finnst hann verulega áheyrilegur og góður og finnst ekki rétt að öllu leyti sú gagnrýni, er fram hefur komið á þennan þátt. Ég vinn vaktavinnu oft langt fram yfir miðnætti og ríf mig samt sem áður alltaf upp á morgnana til að hlusta á þennan ágæta þátt. 0 Skátar moki? Ein gömul, eins og hún vildi láta nefna sig, bað fyrir þá beiðni til skáta og unglinga annarra, hvort ekki væri mögulegt að þeir vildu rétta gömlu fólki hjálpar- hönd við að moka snjó af tröppum sínum. Sagði hún að gamla fólkið gæti þetta ekki, en þyrfti samt að ganga um og væri varhugavert i miklum snjó. Kvaðst hún ekki vera að fara fram á neina þegn- skylduvinnu, heldur að unglingar gætu boðist til að vinna þetta og yrði þeim síðan greitt fýrir það. SKÁK Umsjón: Margeir Pitursson Á samsovézka úrtökumótinu Daugavpils í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Ziljbersteins, sem hafði hvítt og átti leik, og Kims. ^ Er hann þræll? Lára: — Eg vildi fá að bæta aðeins við það sem sagt var á dögunum hjá Velvakanda um stæðisvörðinn hjá Alþingi, en mér finnst satt að segja stundum að hann sé háif- gerður þræll, sem hleypur út úr Þórshamri i hvaða veðri sem er til þess að opna fyrir einum og ein- um bíl þingmanna sem koma þarna. Finnst mér naumast sæm- andi nokkrum manni að fara fram á svona þjónustu og spyr hvort ekki væri alveg eins hægt að taka upp sektir gegn því að leggja i merkt bilastæði og gætu þá sekt- irnar runnið i hinn fátæka ríkis- sjóð. En þessar aðferðir minna jafnvel á vinnumenn i Austur- löndum. HÖGNI HREKKVÍSI S'Zr3 S\GSA V/öGA £ \iLVZ9AU Glugga- og huróaþéttingar Tökum aö okkur aö þétta opnanlega glugga, úti- og svalahuröir. Þéttum meö SLOTTLISTEN innfræstum varanlegum þéttilistum. Ólafur Kr. Sigurösson hf. Tranavogi 1, sími 83499. „Hann hefur dregið allar lokur frá skilningarvitum sínum“ segir Erlendur Jónsson um Guölaug Guömundsson, höfund bókar- innar ÁSTIR í AFTURSÆTI Og Erlendur bætir við: . .. „Hvort sem nú hinn ungi vatnsdælingur í bílstjórasætinu hefur fundið sig sem eins konar Ara fróða sem forsjónin væri þarna að útvelja til að skrásetja sögu þessara kynlegu tíma eður eigi þá er svo mikið víst að hann hefur dregið allar lokur frá skilningarvitum sínum og fest á sálarfilmu sína þær furðulegu senur sem fyrir augu og eyru bar“ .. . . . . ,,og kemur mér ekki á óvart þó bók hans beri hátt á metsöluhimninum fyrir komandi Jór ■ ■ • MYNDSKREYTT VERÐLAUNABÓK Bókaútgáfan Örn og Örlygur Vesturgötu 42, sími 25722 19. Hxe7+! - Kxe7, 20. Bb4+ - KÍ7, 21. Bd5+ - Ke8, 22. De6+ - Kd8, 23. Bb7+ - Dd7, 24. Ba5 mát. Sigurvegari á mótinu varð hinn 15 ára gamli Kasparov, hann hlaut 9 v. af 13 mögulegum og er langyngstur þeirra sem hafa unnið sér rétt til þess að tefla í úrslitum á Skákþingi Sovétríkjanna. Jafn Kasparov að vinningum, en lægri á stigum varð I. Ivanov, en í 3.-7. sæti komu þekktir kappar, þeir Kaupreitschik, Mikhailchisin, Kapengut, Panchenko og Tseshkovsky, sem allir hlutu 8lA v. m<z m Bá # 'úWr/tfQO WO\(KO%M- tOV/4 'QoK'bKHAo'bÖVÍ f Y//I05- sW /|' \|()t>W9dV? 'QfNCrf'■ tá Yi/ftr s?a9 ötúq Aoó- UNUYf Á Y\£0.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.