Morgunblaðið - 26.11.1978, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1978
Heimur barnsins
Sveinhjiirn I. Baidvinsson —
Ljóðfélasiöi
STJÖRNUR í SKÓNUM.
Ylmenna hókafélaKÍð 1978.
Hljómplatan Stjörnur í skónum
er til vitnis um að skáldskapur og
tónlist eiíía samleið. Samvinna
skálda ok tónlistarmanna hefur
oft borið (íóðan árangur. Ép nefni
Ijóða- oj4 jassflutniníí sem dæmi,
en j)að er ekkert því til fyrirstöðu
að Ijóð peti notið sín með dæfíur,-
músík.
Um hina skemmtilefíu tónlist á
jæssari plötu ætla ók ekki að vera
marftorður. En épt heyri ekki betur
en tal ojí tónn eifíi vel saman.
Sveinbjörn I. Baldvinsson sem er
höfundur ljóðverksins hefur fenfjið
til liðs við • sifí hóp unfts fólks,
leikara, spilara og söngvara. Mest
kveður að þeim Ragnheiði Stein-
dórsdóttur, Gunnari Hrafnssyni
og Kolbeini Bjarnasyni. Sjálfur
syngur Sveinbjörn hástöfum, leik-
ur á sígildan gítar, sex- og
tólfstrengja hljómgítar, orgel (sem
reyndar er bara hljómtölva) bláan
fólksvagn, enskt bílhorn og nokkur
ásláttarhljóðfæri. (Orðalagið er
sótt til hljómplötuumslagsins).
Sveinbjörn I. Baidvinsson er ungur
maður, fæddur 1957, og hefur áður
gefið út ljóðabókina I skugga
mannsins (1977). Stjörnur í skón-
um flytur fyrstu tónlistina sem
keniur út eftir hann.
Ég átti þess kost að' kynnast
Stjörnum í skónum í flutningi
Ljóðfélagsins á bókmenntakynn-
ingu í Menntaskólanum við Sund.
Ég hreifst þá af verkinu. Ekki hef
ég orðið fyrir vonbrigðum með það
eftir að platan kom út og spá mín
er sú að hún eigi eftir að verða
vinsæl.
Það er heimur barnsins sem
túlkaður er í Stjörnum í skónum.
V,erkið lýsir þeim heimi sem
Lítidtil beggja^hlida
1979 er þegar gengið í garð á sviði bílaviðskipta.
SYNUM
’79 árgerðirnar frá: AM American Motors AM Jeep
Mitshubishi, Japan þessa helgi
Laugardag kl. 10 til 17 Sunnudag kl. 13 til 17
í sýningardeild okkar að Laugavegi 118,
gengið inn frá Rauðarárstíg.
Allt 3 sama Staó Laugavegi 118-Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HE
Ljóðfélagið. Kolbeinn Bjarnason, Ragnheiður Steindórsdóttir, Gunnar
Ilrafnsson og Sveinbjörn Baldvinsson.
barnið lifir í og dreymir í eins og
segir í Laginu um þríhjólið:
Upp að hnrni
i)K niftur uft hnrni
nær ííanK.síéttin.
Ekki lenjtra
éu þori aft hjóla
því þar endar heimurinn
Það er margt sem barnið skilur
ekki, en það fær fljótt aö vitá hvað
er bannað því að fullorðna fólkið
er svo skrýtíð. Ljóðin eru einföld
og blátt áfram í anda minninga-
skáldskapar sem víða ryður sér til
rúms eftir langt tímabil óræðra
orða og hugrenninga. Frumraun
Sveinbjörns I. Baldvinssonar, í
skugga mannsins, var um margt
athyglisverð bók. I Stjörnum í
skónum kemur hann fram sem
þroskað skáld sem ekki er ólíklegt
að við eigum eftir að fá að heyra
oft til í framtíðinni. Skáldskapur-
inn á plötunni vekur trúnað. Hér
kynnumst við einlægni barnsins
sem sér allt í ljósi fyrstu reynslu;
veröldin er því mikilvæg uppgötv-
un, ævintýri sem ekki tekur enda.
Lagið um snjóinn er dæmigert
fyrir efni plötunnar:
Núna er byrjaó að snjóa
og brátt verður gatan mín hvít
cins <>k strik framhjá stéttum ok húsum
strikað af risa með krit.
En svo koma kolsvartir trukkar
sem kunna ekki við svona krot
þeir renna eftir strikinu hvíta
ok stroka það út eins og skot.
Bökmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Sjártu snjókornin
hvítu fiðrildin
sem fljúga svo mörK
sjáðu fiðrildin
hvítu snjókornin
sem fljÚKa.
l»á lÍKKur Katan mín eítir
Krásvört á litinn ok blaut
eins og mynd sem er tekin í myrkri
af máv sem er floginn á hraut.
En þegar svona er komið
mér sýnist að komið sé nó«
ok það þykir Kuði víst líka
því kuÖ sendir strax meiri snjó.
Sjáðu snjókornin
hvítu fiðrildin
sem fljÚKa svo mörK
sjáðu fiðrildin
hvítu snjókornin
sem fljúga.
Stjörnur í skónum er verk
handa öllum ljóðavinum og það á
ekki síst erindi til barna, enda
hefur mér virst að þau kunni vel
að meta það.
Frá verðlaunaafhendingu fyrir „longdrinks" keppni s.l. árs.
Formaður Barþjónaklúbbsins, Daníel Stefánsson, afhendir Hafsteini
Egilssyni barþjóni á Hótel Sögu fyrstu verðlaun en að baki standa
barþjónarnir Kristján Runólfsson á Hótel Borg og Símon
Sigurjónsson á Naustinu.
Kokteilkeppni
med nýju sniði
KOKKTEILKEPPNI Bar-
þjónaklúbbs íslands fer fram
í Þórskaffi á miðvikudags-
kvöldið og verður keppnin nú
með öðru sniði en verið hefur
til þessa. Nú er boðið upp á
vandaða dagskrá með mat,
tískusýningum, skemmtiatrið-
um og að lokum dansað til
klukkan tvö eftir miðnætti.
Borðhald hefst klukkan 19
en að því búnu hefst kokkteil-
keppnin. Rétt til þáttöku hafa
allir barþjónar landsins og
keppt um hin glæsilegustu
verðlaun. Kynnir verður
Þorgeir Ástvaldsson.
Tískufatnaður verður sýnd-
ur frá Tískuversluninni 17,
Laugavegi, og Fatagerðinni
Bót h.f. Halli og Laddi
skemmta og að lokum leika
Lúdó og Stefán fyrir dansi.
Dagskrá er miðuð við að
gestir geti notið kvöldsins við
góðan mat og fjölbreytta
skemmtun.
Tekið verður við borða-
pöntunum í Þórskaffi márií-
daginn 27. nóvember milii kl.
18 og 20.