Morgunblaðið - 26.11.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.11.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1978 15 AJk m Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156 Pétur Gunnarsson ÉG UM MlG FRÁ MÉRTIIMÍN í skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og nýir farþegar slást í hópinn. í miðju atburðarásarinnar stendur Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins — búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fullorðins- skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út- gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður en það verður um seinan. IgUMMIGFRÁMÉRTIL MÍN PÉTUR GUNNARSSON Ólafur Gunnarsson MILLJÖN PRÓSENT MENN Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður, peningafursti og milljón prósent maður með dollaramerki í augunum og uppá- tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and- stæða hans og á milli þeirra stendur Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að verða milljón prósent, en hann langar líka til að verða skáld. Milljón prósent menn er þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi peningamannsins á gráglettinn hátt og af óbeislaðri gamansemi. Þorsteinn Antonsson Sálumessa Þau áttu allt til alls — einbýlishús og nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir- tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann- vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er kannski hægt að krefjast einhvers meira af lífinu? Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík. Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta slys? Óhappatilviljun? Morð? Daginn eftir er handtekinn maður og hnepptur í gæslu- varðhald. —- En er hann sá seki? Thor Vilhjálmsson KJARVAL Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins mesta og einkennilegasta listamanns, sem uppi hefur verið hér á landi, í með- ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóóar. Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum hans og list á afar persónulegan hátt, gerir hvert smáatriöi lifandi og sögulegt, þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft endranær í verkum hans. Aó miklu leyti er bókin sprottin af nánum kynnum þessara manna, löngum samtölum þeirra og feröa- lögum saman. Bókina prýöa margar af hinum listrænu Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af Kjarval. Pórarinn Eldjárn VcMteyJWMUUL „Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru spegill gerður úrorðum ...“ Ó.M.J. / Vísir „Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft eins gaman af að lesa upphátt...“ A.l. / Dagblaðið „Samtíminn með róttækri félagslegri út- tekt á fjölmiðlum er viðfangsefni skálds- ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla beigi rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er gamansamur í besta lagi... Disneyrímur eru ortar af ærnum hagleik .. Á.B./ Þjóðviljinn Ská/dad i sköröin Ási í Bæ segir frá aflaklóm og andans mönnum Af sinni alkunnu frásagnargleði og góð- látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip- myndinni annarri fróðlegri og skemmti- legri af göldróttum forfeðrum, vinum, kunningjum, furðufuglum, skáldum og skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson, Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson, Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson, Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. aó ógleymdum öllum yndislegu konunum sem koma við sögu í þessari bráð- skemmtilegu og fróðlegu bók. Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af sannri virðingu fyrir efni hennar og anda. BroddiJóhannesson O£>lttur Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les- anda, iðulega með því að hnita saman veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu eða minnileg atvik. Náin tengsl við náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a. starfshætti hennar, birtast hér með af- brigðum vel. Öll er bókin mikifsvert fram- lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum toga. ÞÓRARINN ELDJARN IÐUNN Ská/detd i skörðin, AsiiBæ löunn Broddi Jóhannesson O‘blitur Iðunn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.