Morgunblaðið - 26.11.1978, Page 26

Morgunblaðið - 26.11.1978, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1978 Starfsmannafélag ríkisstofnana: Leysa ber efnahagsvandann með hagsmuni almennings í huga StarfsmannafélaK ríkisstofn- ana samþykkti nýleKa á fundi trúnaðarmanna ályktun um kjaramál. Sejjir þar að enda þótt kjör launþega hérlendis séu lakari er hjá launþeKum erlendis hafi stjórnvöld ekki um árahil séð aðrar leiðir til að draga úr óðaverðbólKu en draga úr kaup- ma'tti launa. Síðan segir í ályktuninni að vonast hafi verið til þegar núver- andi ríkisstjórn tók við völdum, að ráðist yrði að rótum meinsemdar- innar og allt efnahagskerfið yrði tekið föstum tökum. Síðan segir: Því lýsir trúnaðarmannafundur SFR ábyrgð á hendur hverjum þeim er yrði þess valdandi að ríkisvaldið brygðist þessu megin- hlutverki sínu. Jafnframt því að standa vörð um kjör félagsmanna sinna, lýsir SFR sig reiðubúið til þess að taka jákvætt á hverju því máli sem leitt gæti til lausnar þjóðfélagsvanda- mála þeirra er við blasa, svo framarlega sem þar verði að unnið með hagsmuni almennings í land- inu í huga. Flokkspólitískir hagsmunir ein- stakra stjórnmálamanna og flokka eiga ekki og mega ekki ráða ríkjum, þegar um þjóðarheill er að tefla. Lúxus jólakort Jólakort sem gleður. eftir yðar eigin litmyndum. myndiójan HÁSTÞÓR" Hafnarstræti 17. — Suðurlandsbraut 20. FOUNTAIN! Vfeist þú hvaó þaö er? Sími 16463. 1FOUNTAIN eru drykkjavélar i ýmsum stærðum, með heitum Ijúffengum drykkjum, t.d. fyrir vinnustaði, heimili, skip, báta og söluskála. 2VIÐ VEITUM fyrsta flokks þjónustu. Hráefni er ekið til viðskiptavina á tveggja vikna fresti, þeim að kostnaðarlausu. LÁNUM YÐUR vél til reynslu i vikutima án nokkurra skuldbindinga. 4HRINGIÐ i síma 16463 og fáið sölumann i heimsókn og hann mun gefa yður að smakka og allar nánari upplýsingar. ÞAÐ LRU meinleg örlög þeirra sem tala mikið yfir lýðnum, að lýðurinn man það oft betur er þeim verður fótaskortur á tungunni heldur en orðskviðina sem þeir eru búnir að berja saman af öllum kröftum sínum og hugviti. Menn kannast líka við það, að gáfulegustu athugasemdir geta orðið kjánalegar séu þær teknar úr samhengi sínu. Slfkt er að sjálfsögðu oft fúlmannlega gert. Sem betur fer er það þó líka oft meinlítið og er þá varla nema gott um það að segja, því veröldin hefur ábyggilega gott af dálitlum hlátri. The Observer hefur í mörg ár birt reglulega dálka þar sem höfð eru eftir spakmæli vikunnar, ef svo má kalla, og eru það ýmist sjálfsagðir hlutir eða ofsagðir, öfugmæli, eða snjallyrði um flókin hugtök og hugmyndir. Nú eru auðvitað alltaf uppi fleiri snillingar en tölu verði á komið og það er kannski þess vegna sem svo fáir þeirra ná frægð. Observer hefur þó alla tíð haft af nógu að taka, og nú er búið að gefa út úrval í bók. Eru þar mörg og lýsandi dæmi þess hvert mannsandinn getur náð ef saman fara meðfædd- ar gáfur, rétt uppeldi, iðni og ástundun, eitthvað af þessu eða ekkert af þessu. Eða hvað finnst mönnum um heilræðið sem birtist í tímariti brezka hersins árið 1949: „Bezta vörnin við kjarnorku- sprengjunni er að vera ekki viðstaddur þegar hún springur". Eða þessi eftirminnilegu orð Aldolfs Eichmann í réttarhöldun- um yfir honum, 1961: „Ég sá aðallega um fólksflutninga ...“. Hvorugt er þetta sérlega fyndið. En hvort tveggja er minnisstætt. Sama er að segja um ágæta skilgreiningu starfsheitisins dipló- mat, hafða eftir bandaríska sendi- herranum í London 1961: „Dipló- Peter Russell Holl er hugarró — IJT L]R komin frá ísafold bókin „IIoll er hugarró" eftir Peter Russell. Innhverf ihugun og kenningar Maharishi Mahesh Yogi eru efni bókarinnar. en þýðendur eru Guðrún Andrés- dóttir og Jón II. Ilannesson. Höfundur útskýrir eðli hugans og áhrifamátt innhverfrar íhugun- ar, sem svo er nefnd, eða slökunar- aðferðina Transcendental Medi- tation, sem kunn er víða um lönd. Holl er hugarró Alafossteppi róm- að í Danaveldi ULLARTEPPI, framleitt hjá Ála- fossi, hlaut nýlega verðlaun danska blaðsins „Bo bedre", þar sem hönnuðum var veitt viður- kenning fyrir bestu vörur til heimilisbúnaðar. Var þar um að ræða vörur, sem komið hafa á markað á þessu ári og hannaðar hafa verið af Dönum. Þrenn verðlaun voru veitt, fyrstu verðlaun fyrir eldfastan borðbúnað, ullarteppi hannað af Vibeku Klint og framleitt af Álafossi hlaut önnur verðlaun, og þriðju verðlaunin komu í hlut úrsmiðs fyrir sérlega fagra og látlausa klukku. » Farið er mjög lofsamlegum orðum um Álafossteppið í blaðinu, og það lofað fyrir gerð og nota- gildi, og talið að það henti jafn vel á heimilum sem í hótelherbergj- um. Þrátt fyrir mikla notkun líti það lengi út sem nýtt, jafnframt því sem mýkt og áferð þess gerði það að verkum, að það má hæglega nota sem sjal. Auk þeirra þriggja hönnuða sem verðlaun fengu eru nefndir 25 vörutegundir sem fá viðúrkenn- ingu. Er þar efst á blaði áklæði, sem Anne Birgette Ilansen hefur hannað og ber það nafnið Breida, sem áreiðanlega er stytting á okkar gamla og góða orði ábreiða. Uppitaða í áklæðinu er bómull en ívafið íslensk ull og áklæði sagt ofið í nyrstu dúkagerð heimsins sem sé á Akureyri og er það klæðaverksmiðjan Gefjun. Þess má geta, að hvort ullar- teppi er sagt kosta kr. 200 danskar, og hver metri af áklæðinu, sem er 150 sm breitt, kosti kr. 210.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.