Morgunblaðið - 26.11.1978, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1978
Tóta
tíkarspeni
eftir
Þóri S. Guðbergsson.
fairir s'
Tóta
tíkarspeni
Tóta tíkarspeni var lítil
stelpa sem enginn vildi
hlusta á eöa sinna því aö
allir voru svo uppteknir.
Svo fann hún tréö og þaö
haföi tíma til aö hlusta.
Höfundar myndanna í
bókinni, Hlynur Örn og
Kristinn Rúnar, eru 11 og
13 ára.
<á
Almenna
bókafélagið,
Austurstræti 18 — sími 19707.
Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055.
Ólík öllum
öðrum hljóm-
, pltitum
V i D Dreifing: Steinar h.f. símar 19490 og 28155.
Gróska
í Borgamesi
í Borgarnesi hefur ætíö verið
jöfn og góð atvinna. Þar er enginn
atvinnulaus og ýmsir atvinnu-
möguleikar. Um þessar mundir
eru erftirspurn eftir fólki þar.
Verið er að byggja brú yfir
Borgarfjörðinn. Sú brú mun nema
land í Borgarnesi. Mun það bæta
samgöngur til muna. Leiðin suður
styttist um rúma þrjátíu kíló-
metra. Þagar brúin verður komin í
gagnið mun þjóðvegurinn fara í
gegnum þorpið. Það er álit manna
að þetta muni verða mikil lyfti-
stöng fyrir plássið. Borgnesingar
eru í óða önn að undirbúa sig fyrir
þessar framfarir.
Miklar Byggingar-
framkvæmdir
Heilt iðnað^rhverfi er að rísa
við bæjarræturnar. Það ber nafnið
Sólbakki. Þar er steypustöð þegar
risin og í fullri notkun. Þar verður
plastverksmiðja, mjólkursamlagið
og margt fleira. Síðastliðinn ára-
mót voru sextíu og tvær íbúðir í
smíðum. Síðan hefur verið byrjað
á fjörutíu og fjórum íbúðum, tíu í
einbýlishúsum og þrjátíu og fjór-
um í fjölbýlishúsum. Eitt ár er
síðan níu íbúðir frá leiguíbúðar-
nefnd kómust í gagnið. Á svæðinu
má sjá einbýlishús, raðhús og
fjölbýlishús ýmist fullkláruð eða á
'byggingarstigi. Verið er að ljúka
við byggingu íþróttamiðstöðvar.
Þar verður sundlaug og íþróttasal-
ur undir sama þaki. Sundlaugin
var tekin í notkun snemma á þessu
ári. íþróttasalinn er verið að taka í
notkun. í kjallara er vonast til að
fá aðstöðu fyrir félagsstarfsemi.
Nýr leikskóli var byggður í fyrra.
Skammt fyrir utan bæinn hefur
risið þyrping hesthúsa. Hesta-
mennskan á vaxandi fylgi að fagna
í plássinu. Verið er að byggja við
hótelið á staðnum. Er það nýr
salur, stækkun á eldhúsi og
fjölgun herbergja, um sexhundruð
rúmmetra viðbygging. I smíðum er
nýtt húsnæði undir starfsemi
mjólkursamlagsins. Það hús er
stórt og vandað. Aðalbyggingin er
fokheld. Verið er að ganga frá
vélarkaupunum. Hús er í smíðum
fyrir sýsluskrifstofu og lögreglu-
stöð. Verið er að byggja nýtt hús
fyrir prjónastofuna. I byggingu er
nýr neysluvatnstankur. Undirbún-
ingsvinna er hafin á nýjum
grunnskóla. Skipt hefur verið um
jarðveg í eldri götum og endurnýj-
un vega er um röskan kílómetra.
Verið er að vinna að fyrsta áfanga
hitaveituframkvæmda. Heita
vatnið mun, að öllum líkindum,
koma úr Deildatunguhver sem er
þrjátíu og átta kílómetra frá
Borgarnesi. Mun vatnið verða leitt
yfir Borgarfjörðinn. Gert var ráð
fyrir að heitavatnslögn í brúnni.
Heita vatnið kemst því ekki í
notkun fyrr en brúin er fullgerð.
Iðnaður
Töluverður iðnaður er í Borgar-
nesi. Hjá Vírnet hf. vinna fjórtán
manns. Þar er framleitt: mótavír,
bindivír, naglar og þakjárn. Þak-
járnsframleiðslan hófst síðastliðið
vor. Ætti Vírnet hf. að geta annað
allri þakjárnsþörf fyrir landið, ef
hráefni og annað stæði ekki í vegi.
Nýlega var húsnæðið stækkað
fyrir þessa framleiðslu. Þakjárnið
er unnið úr sléttu galvaniseruðu
járni, sem kemur á rúllum frá
Lúxemborg. Járnið fer inn í
aflanga vél sem ríður bárurnar
með miklum hávaða og klippir það
í lengdir. Nú er hægt að fá
bárujárnsplöturnar í hvaða lengd
sem hverjum hentar best. Því er
ekki þannig farið með innflutta
Hjúkrunarfræðinemar í H.L:
„Kjaradómur van-
metur hjúkrunar-
fræðinám úr H.L’,
Kjarabaráttufundur fé-
la^s hjúkrunarfræðinema í
H.I., en hann var haldinn 17.
nóvember s.l., samþykkti
eftirfarandi ályktuni
Þann 8. nóv. s.l. birtist
úrskurður kjaradóms um
launamál hjúkrunarfræðinga
með B.Sc. próf frá H.í. í þeim
dómi vanmetur Kjaradómur