Morgunblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 21 Klukkan „seigl! sögðu tímaverðir Ármann ætlar ekki að kæra leikinn I leik Armanns og Þórs írá Akureyri í 2. deild karla sem fram fór um helgina fyrir norðan, kom upp sú staða í lok leiksins að jöfnunarmark Þórs var skorað, eftir að leiktíma lauk. Svo virðist sem dómararmr hafi ekki haft nægileg tök á leiknum og voru þeir í miklum vafa hvort dæma ætti markið gilt. — Við ætlum ekki að kæra leikinn, við leggjum það ekki á okkur að fara norður aftur til að leika, sagði Geir. — Það er slæmt þegar lið æfa fjórum til fimm sinnum í viku og leggja hart að sér en verða síðan fyrir því að lenda á dómurum eins og þeim Jóni Magnússyni Fylki og Bjarna Hákonarsyni ÍR, sem eyðileggja alveg leikina. Ég vil að það sé haft eftir mér að það besta sem þeir geta gert íslensk- um handknattkeik er að leggja dómgæsluna alveg á hilluna. Það hefði þurft morð til að fá brottrekstur af velli í leiknum. Og handknattleikurinn mótaðist af því. — Þá er það ekki gott að það eru öll lið farin að kvíða því að fara norður og leika á Akureyri. Oftast eru sendir svo slakir dómarar norður að til skammar er. Er slæmt til þess að vita að ekki virðast norðanmenn treysta sínum eigin mönnum til að dæraa leikina. — í leik okkar við Þór dæmdu dómararnir markið gilt, síðan eftur að hafa þingað við tíma- vörðinn þá var markið dæmt af. En þá æstust áhorfendur upp í húsinu og var þá haldið til búningsklefanna, og eftir að hafa rætt málin kom Jón Magnússon dómari inn í klefa okkar Armenninga og tjáði okkur að þeir ætluðu að láta markið gilda en við gætum kært leikinn ef okkur sýndist svo, og sennilega myndum við vinna kæruna. Að dómari skuli segja svona hlut er vítavert. — Þá hef ég fregnað að enginn dómari vildi fara norður til að dæma leikinn og er slæmt þegar verið er að fá menn á síðustu stundu. Þetta hafði þjálfari Ármanns um málið að segja. Mbl. hafði einnig samband við annan dómara leiksins, Jón Magnússon, og fékk hans áiit á því sem skeði. Jón sagði: — Þegar 3 sek, voru eftir af leiktímanum var dæmt auka- kast á Ármann á miðju vallar- ins, boltinn gekk á milli þriggja manna áður en skorað var úr horninu, og ég tel útilokað að hægt sé að skora á svo skömm- um tíma. Meðdómari minn, Bjarni Hákonarson, dæmdi hinsvegar mark. — Ég hljóp rakleitt að borði tímavarða og sá þá á klukkunni að hún var 4 sek. yfir ieiktímann. Þeir gáfu þá skýringu að klukkan hefði „sigið", furðuleg skýring. Mitt mat er það að þeir hafi vísvitandi dregið að flauta Þeir fara til ÍA AKURNESINGUM hefur bætzt góður liðsauki frá Þór á Akureyri. Eru það félagarnir Sigurður Lárusson og Sigþór Ómarsson, sem ákveðið hafa að leika með ÍA næsta sumar. Sigurður hefur verið bezti maður Þórs s.l. ár, geysisterkur varnarmaður, sem skorar mikið af mörkum. Sigþór hefur verið einn helzti markaskorari Akureyrarliðsins s.l. tvö ár, en áður lék hann með Akranesi. Þrír leikmenn hafa gengið tii liðs við ÍA á skömmum tíma, því að áður hafði Kristján Olgeirsson úr Völsungi tilkynnt félagaskipti yfir í ÍA. - SS. Víkingar sigruðu sænska liðið Ystad með einu marki í fyrri leik liðanna í Evrópubikar- keppninni. Hér sést hinn ungi og efnilega Sigurður Gunnarsson lyfta sér og skjóta á mark Ystad í leiknum. Sjá íþróttaopnu. ÍÞRÓTTASÍÐAN hefur fregnað að fyrir ársþing KSÍ, sem haldið verður um næstu helgi, verði lögð fram tillaga um stofnun úrvalsdeildar í knattspyrnu og samkvæmt tillögunni á hin nýja skipan að taka gildi árið 1980. Milliþinganefnd hefur unnið að athugun á þessu máli og eftir því sem Mbl. hefur komizt næst mun nefndin gera tillögu um 8 liða úrvalsdeild, þar sem leikin verði tvöföld umferð, 8 liða 1. deild, 8 liða 2. deild og 3. deild, þar sem leikið verði í lands- hlutariðlum eins og nú er gert. Hér er um róttækar tillögur að ræða, því nú eru 10 lið í 1. og 2. deild og 3. deildin er leikin í landshlutariðlum. Hér er því um að ræða fækkun í deildum um tvö lið og stofnun nýrrar deild- ar, þannig að deildin verði fjórar í stað þriggja. Mörg önnur mál mun bera á góma þingsins, m.a. félagaskipti íslenzkra leikmanna til erlendra félaga. Þá verður lögð fram róttæk tillaga um dómaramál yngri flokkanna, þar sem gert er ráð fyrir því að heimalið verði gert ábyrgt þannig að það tapi leik ef dómari mæti ekki. Ellert B. Schram ætlar að gefa kost á sér áfram sem formaður og má telja víst að ekkert mótframboð komi fram enda nýtur Ellert vinsælda í starfinu. Sömuleiðis ætla þeir þrír stjórnarmenn, sem eiga að ganga úr stjórninni að gefa kost á sér áfram, þeir Árni Þor- grímsson, Friðjón Friðjónsson og Helgi Daníelsson og er ekki vitað um mótframboð þar held- ur. Úr varastjórn eiga að ganga Bergþór Jónsson, Gísli Már Gíslason og Karl Guðmundsson. Þeir Bergþór og Karl gefa kost á sér áfram en Gísli ekki, en hann er fluttur frá Hafnarfirði norð- ur í land. - SS. Ellert gefur kost á sér áfram Blorjötmblnbib Örnfor- ] maður ellefta árið í röð ^ ÖRN Eiðsson var endurkjörinn A formaður Frjálsíþróttasam- ^ bands íslands á þingi sam- ^ bandsins sem haldið var í ^ Reykjavík um helgina. Var þetta í ellefta sinn í röð að Örn M er kjörinn formaður sambands- ins. % Stjórn FRÍ var að öðru leyti ^ öll endurkjörin, en auk Arnar eru í henni Sigurður Björnsson, Einar Frímannsson, Finnbjörn Þorvaldsson og Sveinn Sig- V mundsson. í varastjórn voru ^ kosin Hreinn Erlendsson, Katrín Atladóttir og Kristinn Sigurjónsson. Magnús Jakobs- son var kjörinn formaður laga- nefndar og Sigurður Helgason formaður útbreiðslunefndar. I reikningum sambandsins sem lagðir voru fram á þinginu kom í ljós að skuldir FRÍ nema nú 10.425.843 krónum. Rekstrar- halli á árinu varð 3.152.127 krónur. Fram kom að kostnaður umfram tekjur af Reykjavíkur- leikunum var um 2,5 milljónir króna. — ágás. § Enn bætir > S Óskar sig ÓSKAR Sigurpálsson gerir það ekki endasleppt í kraftlyfting- unum. Á kraftlyftingamóti í sjónvarpssal á laugardag setti hann þrjú ný Islandsmet í yfirþungavikt. Hann lyfti 320 kg í réttstöðulyftu sem er íslands- met, og í réttstöðubeygju lyfti hann sömu þyngd og bætti þar með gamla metið sem Björn Lárusson átti um 15 kg. Saman- lagt lyfti Óskar 815 kg og er það nýtt íslandsmet í samanlögðu. - þr. leikinn af. Þeir voru báðir úr Þór og höfðu því hagsmuna að gæta. Sama skeði kvöldið áður í leik KA og Ármanns, leikurinn var ekki flautaður af á réttum tíma, þá voru KA-menn á klukkunni. Það er ekki forsvaranlegt að bjóða upp á slíkt leik eftir leik að félagsmenn séu tímaverðir og ritarar. Einu vil ég bæta við, sagði Jón dómari að lokum. Þórsarar leika svo gróft að það á ekkert skylt við handknattleik, leikur þeirra jaðrar við hrein slagsmál. Svo mörg voru þau orð annars dómara leiksins, Jóns Magnús- sonar. - ÞR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.