Morgunblaðið - 01.12.1978, Side 3
I
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
3
Skólavörðustígur 14:
Viðræður um
að kaupin
gangi til baka
VIÐRÆÐUR eru í gangi milli
núverandi eiganda húseignarinnar
Skólavörðustígur 14 og húsbyggj-
andans um að kaupin gangi til
baka, en mikil blaðaskrif hafa
orðið um kaupin á umræddu húsi
enda þóttu þau allóvenjuleg. „Ég
geri mér vonir um að samkomulag
náist fyrir helgina,“ sagði Bergur
Guðnason hdl. í samtali við Mbl. í
gær, en hann heur annast rekstur
þessa máls fyrir húsbyggjandann.
Grænlenzka
stúlkan látin
UNGA stúlkan, sem flugvél Flug-
félags Norðurlands sótti fársjúka
til Seoresbysunds á Grænlandi á
þriðjudaginn, lézt á gjörgæzlu-
deild Borgarspítalans í fyrradag.
Stúlkan, sem var 17 ára, var veik í
höfði og gekkst hún undir aðgerð á
Borgarspítalanum.
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í frétt Mbl. í
gær, að sagt var í frétt að Málm-
og skipasmiðasamband íslands
ætti í greiðsluerfiðleikum vegna
vanskila aðildarfyrirtækja á ár-
gjöldum en þar átti að standa
Samband málm- og skipasmiðja.
Málm- og skipasmiðasambandið er
samband launþega í þessari grein,
en Samband málm- og skipa-
smiðja er hins vegar samtök
vinnuveitendanna. Leiðréttist
þetta hér með.
Afburðagott
tíðarfar
— IIÉR hefur um langan tíma
verið afburða gott tíðarfar. sagði
Egill Jónsson að Seljavöllum í
Austur-Skaftafellssýslu í samtali
við Mbl.. sumarið. haustið og það
sem af er vetrinum verið mjög
gott.
— Samgöngur hafa ekki trufl-
ast eða tafist neitt að ráði því að
áætlunarbílarnir hafa oftast kom-
ist sinna ferða með eðlilegum
hætti og þótt snjóaði hér um
daginn þá er hann farinn nú og var
ekki erfitt um færð hér innan
héraðs. Mesta spennan er búin í
atvinnumálum hér núna þótt enn
sé næg atvinna, en menn eru
teknir að snúa sér örlítið að
félagsmálum í og með og verður
t.d. í kvöld, föstudag, árshátíð
kvenfélagasambandsins. Bændur
hafa tekið fénað á gjöf og hefur
hægst um hjá þeim eftir sláturtíð-
ina og menn eru farnir að huga að
andlegum málefnum og síðan
dregur að því að rnenn hugsi til
iólaundirbúnings.
Umboðslaun
Innflutnings-
deildar SÍS
125,3 millj.kr.
á síðasta ári
UMBOÐSLAUN Innflutnings-
deildar SÍS árið 1977 voru 8,5%
eða 125,3 milljónir króna að því er
fram kom á blaðamannafundi sem
stjórn SIS hélt. Umboðslaun af
búsáhöldum voru 7,4%, af
yefnaðarvöru 8,7% og af birgða-
stöð 8,7%. Tekið var fram að undir
liðinn erlend umboðslaun væru
færðar ýmsar erlendar greiðslur
svo sem auglýsingafé þannig að
umboðslaunin væru í raun minni
en tölurnar gæfu til kynna.
Kváðust forsvarsmenn SÍS hafa
sent þessar tölur til verðlagsstjóra
og væru þeir reiðubúnir til að gefa
upp hvaða vörutegundir hér væri
um að ræða.
Stórkostleg m
btorKostieg mynagæoi og pægmdi fjarstyringar.
Þróaður SHARP „LINYTRON PLUS“ MYNDLAMPI
stórkostleg myndgæði, orkusparandi
erk, „elektrónískur tónstillari með LED stöðvarveljara og
vndstillina“ IOPfít
Þægileg ffjarstýring
Fjórfalt fjarstýringakerfi fyrir
tón og myndstillingar og skipt-
ingar á stöövum.
Hinn Þróaöi
SHARP
„Linytron Plus“
litmyndalampi
Hinn sérlega hannaöi útbúnaö-
ur í geislamóttakaranum notar
svartar lóöréttar línur sem gefa
skýrari, skarpari og eölilegri lit
sem aldrei virkar „upplitaöur“.
Micro móttakararnir eru sam-
settir úr sem fæstum hlutum til
aö tryggja minnst mögulegt
viöhald, en eru jafnframt orku-
sparandi og þurfa minni hitun.
Sjáandi myndstillir
Skýrleiki, litur og skarpleiki
aölaga sig aö birtu herbergis-
ins sjálfvirkt.
Handhægt
ffjarstýritæki
„Sjáandi" skynjari sér um
stillingarnar sjálfvirkt.
Nú ertu laus viö þreytandi og
tímafrekar stillingar. Litur,
skarpleiki og skýr mynd stillast
sjálfvirkt þrátt fyrir breytingar á
birtu í herberginu. Umframorka
eyðist ekki lengur í myndsjána
(picture tube) og þegar bjart er
í herberginu (hverfur) máist
myndin ekki. Nú veröur alltaf
ánægjulegt aö horfa á myndina
og allt sem þú þarft aö gera er
aö sitja kyrr og njóta ánægj-
unnar.
Þróuö tækni SHARP er aug-
Ijóst í þessu einstaka tæki þar
sem notaðir eru mjög áreiöan-
legir „ICs“ til aö fækka stórlega
einingum í samsetningu. Þetta
tæki þarf því lítið viöhald og má
notast lengur.
Hin einfalda samsetningar-
tækni sparar einnig orkunotk-
un SHARP.
TV chassis notar þessa þróuöu
samsetningartækni.
10 cm breiður
hljómmikill hátalari
Hin nýja hönnun SHARP á
hátalarakerfi á engan sinn líka,
hvaö varðar skýran tón.
10 cm breiður hátalari gefur
aukna möguleika á betri hljóm-
buröi.
Mynd og tal birtast á fjórum
sekúndum og þar meö sparast
dýrmæt orka.
Tækiö er í mjög ve( geröum
viöarlíkiskassa.
Innbyggð AFT, ADC og AGC
stjórntæki.
Næmur
„elektrónískur“
tónstíllir meö
LED stöövarveljara
Þetta áreiöanlega endingar-
góöa elektróníska stykki er
tengt átta næmum plötum,
sem þú forstillir inn á þína
uppáhaldsstöö. (Ekki um ann-
aö aö velja en Ríkisútvarpiö —
Sjónvarp).
Hljómdeild
/\MT T lfM Lj/tZrí
LAUGAVEGI 66 f 1 . H Æc. Simi tra skiptiborói 281S5