Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 3

Morgunblaðið - 01.12.1978, Page 3
I MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978 3 Skólavörðustígur 14: Viðræður um að kaupin gangi til baka VIÐRÆÐUR eru í gangi milli núverandi eiganda húseignarinnar Skólavörðustígur 14 og húsbyggj- andans um að kaupin gangi til baka, en mikil blaðaskrif hafa orðið um kaupin á umræddu húsi enda þóttu þau allóvenjuleg. „Ég geri mér vonir um að samkomulag náist fyrir helgina,“ sagði Bergur Guðnason hdl. í samtali við Mbl. í gær, en hann heur annast rekstur þessa máls fyrir húsbyggjandann. Grænlenzka stúlkan látin UNGA stúlkan, sem flugvél Flug- félags Norðurlands sótti fársjúka til Seoresbysunds á Grænlandi á þriðjudaginn, lézt á gjörgæzlu- deild Borgarspítalans í fyrradag. Stúlkan, sem var 17 ára, var veik í höfði og gekkst hún undir aðgerð á Borgarspítalanum. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frétt Mbl. í gær, að sagt var í frétt að Málm- og skipasmiðasamband íslands ætti í greiðsluerfiðleikum vegna vanskila aðildarfyrirtækja á ár- gjöldum en þar átti að standa Samband málm- og skipasmiðja. Málm- og skipasmiðasambandið er samband launþega í þessari grein, en Samband málm- og skipa- smiðja er hins vegar samtök vinnuveitendanna. Leiðréttist þetta hér með. Afburðagott tíðarfar — IIÉR hefur um langan tíma verið afburða gott tíðarfar. sagði Egill Jónsson að Seljavöllum í Austur-Skaftafellssýslu í samtali við Mbl.. sumarið. haustið og það sem af er vetrinum verið mjög gott. — Samgöngur hafa ekki trufl- ast eða tafist neitt að ráði því að áætlunarbílarnir hafa oftast kom- ist sinna ferða með eðlilegum hætti og þótt snjóaði hér um daginn þá er hann farinn nú og var ekki erfitt um færð hér innan héraðs. Mesta spennan er búin í atvinnumálum hér núna þótt enn sé næg atvinna, en menn eru teknir að snúa sér örlítið að félagsmálum í og með og verður t.d. í kvöld, föstudag, árshátíð kvenfélagasambandsins. Bændur hafa tekið fénað á gjöf og hefur hægst um hjá þeim eftir sláturtíð- ina og menn eru farnir að huga að andlegum málefnum og síðan dregur að því að rnenn hugsi til iólaundirbúnings. Umboðslaun Innflutnings- deildar SÍS 125,3 millj.kr. á síðasta ári UMBOÐSLAUN Innflutnings- deildar SÍS árið 1977 voru 8,5% eða 125,3 milljónir króna að því er fram kom á blaðamannafundi sem stjórn SIS hélt. Umboðslaun af búsáhöldum voru 7,4%, af yefnaðarvöru 8,7% og af birgða- stöð 8,7%. Tekið var fram að undir liðinn erlend umboðslaun væru færðar ýmsar erlendar greiðslur svo sem auglýsingafé þannig að umboðslaunin væru í raun minni en tölurnar gæfu til kynna. Kváðust forsvarsmenn SÍS hafa sent þessar tölur til verðlagsstjóra og væru þeir reiðubúnir til að gefa upp hvaða vörutegundir hér væri um að ræða. Stórkostleg m btorKostieg mynagæoi og pægmdi fjarstyringar. Þróaður SHARP „LINYTRON PLUS“ MYNDLAMPI stórkostleg myndgæði, orkusparandi erk, „elektrónískur tónstillari með LED stöðvarveljara og vndstillina“ IOPfít Þægileg ffjarstýring Fjórfalt fjarstýringakerfi fyrir tón og myndstillingar og skipt- ingar á stöövum. Hinn Þróaöi SHARP „Linytron Plus“ litmyndalampi Hinn sérlega hannaöi útbúnaö- ur í geislamóttakaranum notar svartar lóöréttar línur sem gefa skýrari, skarpari og eölilegri lit sem aldrei virkar „upplitaöur“. Micro móttakararnir eru sam- settir úr sem fæstum hlutum til aö tryggja minnst mögulegt viöhald, en eru jafnframt orku- sparandi og þurfa minni hitun. Sjáandi myndstillir Skýrleiki, litur og skarpleiki aölaga sig aö birtu herbergis- ins sjálfvirkt. Handhægt ffjarstýritæki „Sjáandi" skynjari sér um stillingarnar sjálfvirkt. Nú ertu laus viö þreytandi og tímafrekar stillingar. Litur, skarpleiki og skýr mynd stillast sjálfvirkt þrátt fyrir breytingar á birtu í herberginu. Umframorka eyðist ekki lengur í myndsjána (picture tube) og þegar bjart er í herberginu (hverfur) máist myndin ekki. Nú veröur alltaf ánægjulegt aö horfa á myndina og allt sem þú þarft aö gera er aö sitja kyrr og njóta ánægj- unnar. Þróuö tækni SHARP er aug- Ijóst í þessu einstaka tæki þar sem notaðir eru mjög áreiöan- legir „ICs“ til aö fækka stórlega einingum í samsetningu. Þetta tæki þarf því lítið viöhald og má notast lengur. Hin einfalda samsetningar- tækni sparar einnig orkunotk- un SHARP. TV chassis notar þessa þróuöu samsetningartækni. 10 cm breiður hljómmikill hátalari Hin nýja hönnun SHARP á hátalarakerfi á engan sinn líka, hvaö varðar skýran tón. 10 cm breiður hátalari gefur aukna möguleika á betri hljóm- buröi. Mynd og tal birtast á fjórum sekúndum og þar meö sparast dýrmæt orka. Tækiö er í mjög ve( geröum viöarlíkiskassa. Innbyggð AFT, ADC og AGC stjórntæki. Næmur „elektrónískur“ tónstíllir meö LED stöövarveljara Þetta áreiöanlega endingar- góöa elektróníska stykki er tengt átta næmum plötum, sem þú forstillir inn á þína uppáhaldsstöö. (Ekki um ann- aö aö velja en Ríkisútvarpiö — Sjónvarp). Hljómdeild /\MT T lfM Lj/tZrí LAUGAVEGI 66 f 1 . H Æc. Simi tra skiptiborói 281S5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.